Morgunblaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 6
6 MORGVISBLAÐIÐ Þriðjudagur 14. ágúst 1962 Sjóstangaveiði- mót í Keflavík SÍÐASTLIÐINN laugardag og sunnudag var haldið í Keflavík mót sjóstangaveiði Sunnanlands og voru þátttakendur frá Reykja vík, Vestmannaeyjum, Keflavík og Keflavíkurflugvelli. Alls tóku 32 þátt í mótinft og sóttu þeir sjó inn á fjórum bátum, tveim stór um og tveim litlum. Það voru vígalegir veiðimenn, sem stigu um borð í báta sína í Keflavíkurhöfn á laugardags- morgun kl 9. Allir vopnaðir veiðistöngum, gildum hnífum og nestistöskum. því enginn kokkur yar um borð og tími takmarkað ur til matseldar, því veiðikeppn in sat í fyrirrúmi fyrir öllu öðru og ekki einu sinni litið til veðurs. Allir verða að leggja af stað á sama tíma og koma í höfn á sama tíma, sem að þessu sinni var kl. 6. Ýmsar aðrar reglur eru veiði skapnum settar og allar í heiðri hafðar. Fyrri daginn var farið í Garðs- sjóinn og á önnur nálæg mið og ráða skipstjórar á hverjum bát hvert farið er. Á sunnudagsmorg un var lagt upp frá Sandgerði og haldið á miðin við Reykjanes og var afli þax betri og meira um Stærri fiak. Ánægður veiðimaður með vænan ufsa. Þeir voru drjúgir a svipinn veiðimennirnii, þegar þeir horfðu á balana sína fulla af fiski og svo var skoðað í balana hver hjá öðr um til að reyna að finna út hver hefði fengið þann stærsta. Loft ur Guðmundsson, rithöfundur, horfði með velþóknun á sinn stóra golþoxsk, sem lá efstur í bal anum ofaná nokkrum ufsatittum. — Þegar stórufsinn fór að birt- ast í öðrum bölum og ennþá stærri þorskur, þá þyngdist brún in. Einar Ásgeirsson í Tóledó taldi þennan veiðiskap laxveiðunum miklu frernri, þarna væri meiri félagsskapur með veiðimönnun um og alltaf vissa fyyrir að fá eitthvað og um margar tegund- ir af fiski að ræða. Reyndist það rétt vera að þessu sinni, því alls veiddust 10 tegundir af fiski. Ein ar taldi sjóstangaveiðina vera sport fyrir alla, það væri skemmtilegt, tilbreytingaríkt og veran á sjónum væri engu síðri en að ganga meðfram veiðiám og vötnum f leit að laxi og að veiðileyfi í sjónum þyrfti enn ekki að greiða. Einn af veiðimönnunum var frú Dóra Möller og var hún ekki síðri en aðrir. ekkert sjóveik og aflasæl. — Frú Dóra sagði að þetta væri einmitt sport fyrir konur, svo létt og skemmtilegt — hún kvaðst hafa saknað þess að fleiri skyidu ekki hafa verið með því það væri reglulega gam an að draga þann stóra, þegar karlarnir væru með smáufsa á sínum öriglum. Þegar upp var gert eftir tveggja daga veiði reyndist Birg ir Jóhannesson aflahæstur með 201,9 kíló, sem hann hlaut sín verðlaun fyrir. Stærsta fiskinn dró Þórhallur Helgason frá Kefla vík og var ufsi sá 13,2 kg, en stærsta þorskinn dró Sverrir Ein- arsson frá Reykjavík og var hann 11,2 kg, en verðlaun voru veitt fyrir stærsta fisk af hverri teg- und. Keflavíkurbær gaf bikar til þeirra keppnismóta, sem fara fram frá Keflavík í framtíðinni og hlýtur Keflavíkurbikarinn sú sveit, sem mestan afla hefur og að þessu sinni var það I. sveit frá Reykjavík, sem aflaði saman lagt 505,2 kg. í sveitinni eru þeir Birgir Jóhannesson, Guðmundur Ólafsson, Hákon Jóhannsson og Magnús Valdimarsson. Sveinn Jónsson, bæjarstjóri, af henti bikarinn og lýsti reglugerð hans. Mestan meðalafla á mann hafði m.b. Silfri, skipstjóri Auð- unn Karlsson, og hlaut hann fagra styttu að verðlaunum. y r J M.s. Rangá við bryggju í Keflavík. Nýtt skip bætist í flotann 99 66 kom tll Keflavíkur í gær M.S. RANGÁ kom til Keflavíkur í gærmorgun úr sinni fyrstu ferð, og var það hlaðið timbri, sem losað verður á 10 höfnum víðs- vegar am landið. IMjósna- hringur Vínarbörg, 8. ágúst NTB-AFP. LÖGREGLAN í Austurríki hefur komizt á spor víðtæks njósnahrings, sem selt hefur úr landinu margs konar fram- leiðsluleyndarmál og smyglað málmhlutum tii Austur-Ev- rópu ríkjanaia. Tíu manns hafa verið hand- teknir, en vitað er að margir útlendingar eru aðilar að hringnum — sem lagt hefur mesta áherzlu á að na í fram- leiðsluleyndarmál ' frá stórri verksmiðju í Tyrol, er fram- leiðir málmhluti í þotuhreyfla eldflaugar og kjarnakljúfa. Veiðimenn töldu alla aðstöðu í Keflavík mjög góða til sjóstanga veiði og hyggja að hafa mót sín þar oftar. Veiðimenn bjuggu á Flugvallar hótelinu í boði klúbbsins þar og var lokahófið haldið þar og þótti viðgerningur allir hinn bezti. Stanley Roff stjórnaði mótinu af mikilli röggsemi og sá um all an undirbúning þess. Rangá er 1049 tonn að stærð með 68 þúsund teníngsfeta lestar rými. Skipið er smíðað í V-Þýzka landi í skipasmíðastöð D. W. Kremer Sohn, sem áður hefur byggt Laxá, sem einnig er eign Hafskip h.f. Aðalaflvél er Deutz dieselvél 1050 hestöfl og var ganghraði í reynsluferð 12 mílur. 3 liósavélar eru í skipiriu, Mannheim-diesel með 50 kw. orku hver, og í eld- húsi er Rafha-eldavél, sem flutt var út til að setja í skipið, vegna þess að þær eldavélar hafa reynzt betur en flestar aðrar. Allar vindur í skipinu eru vökvadrifnar og lestarlúgur með Mac Gregor útbúnaði. Skipið er 66 metrar á langd og 10,2 m á breidd. Siglingartæki öll og stýri búnaður er af nýjustu og full komnustu gerð. íbúðir allar, bæði yfirmanna og undirmanna, eru sérstaklega vel úr garði gerðar, með baði og öðrum þægindum og borðsalir stórir og vel búnir. í sambandi við eldhús eru bæði frysti og kæliklefar. Rangá er sérlega vandað og sterkbyggt skip smíðað eftir I. flokks kröfum Germanis Lloyd. Á heimleið hreppti skipið vonzku veður og leyndist mjög vel. Skipstjóri er Steinar Kristjáns- son sem áður var með Laxá, yfir vélstjórir er Þórir Konráðsson, fyrsti stýrimaður Jón Axelsson og bryti Árni Björnsson. Rangá er emgöngu flutninga- skip og heimahöfn þess skráð 1 Bolungarvík. Eigendur er Haf- skip h.f. Framkvæmdastjóri þess er Sigurður Njálsson og stjórnar formaður Gísli Gíslason. — hsj. Steinar Kristjánsson, skipstjóri • Original húsgögn til Húsgagnaarkitekt skrifar: Fimmtudaginn 2. ágúst s.l. skrifar „Glúmur“ um hús- gagnastælingar, sem að nokkru leyti eru orð í tíma töluð. Við grein hans vil ég þó gera nokkrar athugasemdir: Á síðustu þremur árum hefir félag Húsgagnaarkitekta geng- izt fyrir tveimur húsgagnasýn- ingum hér í Reykjavík. Þar hafa eingöngu verið sýnd hús- gögn, sem sérstaklega voru teiknuð fyrir þessar sýningar og framleidd af meðlimum félags húsgagnameistara og bólstrara. Talsverður hluti þeirra hús- gagna sein á þeim voru sýnd, eru nú fáanleg á hinum frjálsa markaði innanlands. Með grein sinni hefir „Glúmur" algjörlega strikað yfir þetta framlag hús- gagnaarkitekta. Hinsvegar ef umboðsmaður Scandinavian Times hefði leitað til félags húsgagnaarkitekta, þá hefði hann án efa fengið viðun- andi fyrirgi eiðslu, og getað kom izt að raun um, að auk stælinga megi einnig finna orginal hús- gögn, og á þessi saga vonandi ekki eftir að endurtaka sig, því slíkt kemur engum að gagni. • 110 ára gamall stóll í sambandi við nefndan Safari stól, þá virðist greinar- höfundur ekki þekkja að öllu leyti sögu þessa stóls, sem víða erlendis gengur undir nafninu nýlendustóll (Kolonialstuhl). Saga þessa stóls er mjög gömul, því að haiin var fyrst að finna í Indlandi árið 1850, og nálægari egpONG 0 ypm p^éí \ 'M Austurlöndum. Nokkru seinna mátti einnig sjá þá á nýlendu- svæðum suðurríkjanna, og hefir nafn hans vafalaust verði dreg- ið af því. Stólarnir voru þó á þeim tímum mun grófari útlits, en hafa smám saman þróazt i fíngerðara form. Prófessor Kaare Klint hefir unnið sinn stól í það form sem hann er. og er enginn að kasta rýrð á starf þess mæta manns. Hinsvegar er það á misskiln- ingi byggt. að títt auglýstur stóll sé afbökun af háns stóL Þess vegna þurfa framleiðendur hans ekki að bera kinnroða fyrir því, að bjóða á íslenzkum markaði stól, sem á rót sína að rekja frá árinu 1850, og sem er enn og mun verða um ókomin ár í sínu fulla gildi. • Of lítiIJ farkostur Ég er sáróánægð yfir skipu- lagsleysi Þingvallarútunnar, það endurtekur sig helgi eftir helgi og sumar eftir sumar að mörgum farþegum er ekki séð fyrir fari frá Þingvöllum fyrr heldur en sérleyfisafa hentar bezt og þá oft svo að slegizt er um sætin Nærtækasta dæmið er frá því á frídegi verzl.manna en þá tók það hóp manna 4 klst. (frá kl. 4 30 — 8,30 áð fá far í bæinn frá Vatnsvíkinni. Kunnugt er að sérleyfishafi sendi einn sinn bezta bíl vestur og hefði því augljóslega getað verið séð fyrir farþegunum. Væri tildæmis ekki betra að selja farseðla fyrirfram! í t.i,n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.