Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.09.1962, Blaðsíða 22
22 1UC RGVNBL AÐ1Ð Laugardagur 15. sept. 1962 Hefur starfað þar í 47 ár af 50 ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ var sett í húsakynnum SVFÍ á Grandagarði Meðal gesta á þessu þingi sem haldið er í tiiefni 50 áira afmæli ÍSÍ voru forseti fslands Ásgeir Ásgeirsson, vemdari ÍSÍ, Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- herra, Gunnlaugur Pétursson borgarritari í fjarveru borgar- stjóra, Eiríkur Eiriksson form. UMFf o.fl. Benedikt G. Waage forseti fSf setti þingið og bauð þessa gesti sérstaklega velkomna. Setning í setningarræðu sinni ræddi Benedikt G. Waage um starf ÍSÍ ó breiðum grundvelli, drap á erfiðan fjárhag þess og leiðir til úrbóta. Hann vék að því nyt- semdarstarfi sem ÍSÍ ynni meðal æskulýðsins og lét í Jjós vonir um að draumar frumherjanna um 'starf þess og gang mættu rætast. Hvað vöxt snerti hefði ÍSá dafnað vel. Innan samtak- anna væru 25000 félagar í 235 félögum og 27 sérsamböndum. í ræðu sinni tilkynnti Ben. G. Waage að hann myndi ekki taka endurkjöri i stjórn fSÍ, en forseti sambandsins hefur hann verið í 36 ár og setið í stjóm þess í 47 ár af 50 starfsámm sarmbandsins. Er slíkt einstæð þjónusta í félagsmálum. Ávarp forseta fslands Forseti íslands Ásgeir Ásgeirs- son flutti ÍSÍ árnaðar óskir. Hann vék sérstaklega að starfi Bene- dikts Waage innan samtakanna og sagði að það að vera svo lengi í forystu frjálsra samtaka bæri vott um einstæða samivinnu lipurð, félagsanda og mannkosti Þakkaði hann Benedikt öll hans störf i þágu ísl. æsku og ÍSÍ fyrir giftudrjúgt starf. Eiríkur Eiríksson form. UMSÍ flutti ávarp og færði kveðjur frá UMSÍ. Skúli Norðdal flutti kveðjur frá Æskulýðssambandi íslands og Skúli Þorsteinsson flutti einnig kveðjur og árnaðar óskir. í upphafi þingstarfa minntist Benedikt G. Waage látinna sam- herja þeirra Gunnars Halldórs- sonar fulltrúa, Kjartans Ólafs- sonar rakarameistara og Sig. Finnssonar skólastjóra. Risu þingfulltrúar úr sætum í virðing arskyni við minningu hinna látnu. Þingstörf Kjörbréfanefnd tók til neð- ferðar kjörbréf og voru mættir fulltrúar 22 aðila samlbandsins með 51 atkvæði en í sambandinu eru 32 sambönd og aðilar. Þingforseti var kjörinn Baldur Möller ráðuneytisstjóri ag til vara Guðjón Ingimundarsón. Rit arar eru Guðlaugur Guðjóns- son og Sveinn Jónsson Eyjafirði. Benedikt G. Waage flutti skýrslu stjórnar sem var ýtar- leg og lá prentuð fyrir. Var þar rakið starf liðins árs, afmælis- hátíðahöldin, erfið fjármál og leiðir til úrbóta og fleira Gunnlaugur Briem gjald- keri flutti reikninga sambands- ins. Skýrslurnar voru samþykktar umræðulaust. Kosið var í fasta- nefndir sem starfa á morgun og málum visað til þeirra. í gær kvöldi sátu fulltrúar kvöldverð,a boð menntamálaráðherra í Þjóð- leikhúskj allaranum. Brigthwell sfeinlá lengi eftir sigur í 400 m hlaupi Ove Jonsson heztur í 200 m IHorale vakti mesta athygli HIÐ glæsilega 400 m grindahlaup Italans Metcalfe var hápunktur Evrópumótsins í gær. Hann jafn- aði heimsmetið og hljóp svo tign- arlega og glæsilega að allir dáð- ust að og undruðust. Hann átti hugi allra þær sekúndur sem hann var að hlaupa. Nokkrir Norðurlandabúar kom ust í úrslit í undanrásum gær- dagsins, en mesta athygli þeirra vakti þó frábær frammistaða Finnanna í langstökki. Þeir tóku silfur og brons í langstökkinu. Bikarkeppni LEIKUR Í.B.H. og Breiðablik í Bikarkeppni K.S.Í. fer fram á þriðjudag kl. 6,30 í Hafnarfirði en ekki í dag eins og áður hefur yerið skýrt frá. Þeir eru báðir kornungir menn Stenius, sem varð annar, er að- eins 19 ára gamall og því enn drengur. Ógleymanlegur var 400 m spretturinn í úrslitahlaupinu, Brightwell Englandi sigraði örugglega, en keppnin var geysi- lega hörð og tími sigurvegarans nýtt mótsmet. Brightwell var ger samlega útkeyrður og það tók margar mínútur að fá hann á fætur aftur eftir hlaupið en hann steinlá eftir það. Svíinn Ove Jonsson náði bezt- um tíma í undanrásum 200 m hlaupsins 20.8 sek. og hljóp lang glæsilegast allra hlauparanna. Hann er talinn sigurstrangleg- astur í þessari grein. En nú lát- um við tölurnar tala sinu máli. Úrslit í gær: 400 m grindahlaup EM-meist- ari S. Morale Ítalíu 49.2 (heims- metsjöfnun). 2. Neumann Þýzka- land 50.3. . 3. Janz Þýzkaland 50.5. 4. Rintamæki Finnland 50.8. 5. Krimov Rússl. 51.3. 6. Anissi- mov Rússl. 54.2. 50 km ganga EM-meistari Pamich Ítalíu 4:18.46.6 klst. 2. Pamitsjkin Rússl. 4:24.35.6. Kúluvarp karla EM-meistari Varju Ungverjalandi 19.02 m. 2.Lipsnis Rússl. 18.30. 3. Sosgor- nik Póllandi 18.26. 4. Komar Póllandi 18.00. 5. Nagy Ungverja landi 17.97. 6 Skobla Tékkósló- vakíu 17.87. Hástökk kvenna EM-meistari Balas Ungverjalandi 1.83 m. 2. Gere Júgóslavíu 1.76. 3. Kvow- les England 1.73. 4. Shirley Eng- land 1.67. 5—6. Tsjenksjik Rúss- landi og Dam Ealter Þýzkal. 1.67. 400 m hlaup karla EM-meistari Brightwell England 45.9 nýtt mótsmet) 2. Kinder Þýzkalandi Framhald á bls. 23. Valbjörn hlaut 6790stigígær Hann var ekki meðal 6 fyrstu ÞAÐ var þreyttur Valbjörn sem lauk tugþrautarkeppninni á EM í gær. Hann hlaut 6790 stig — eða aðeins 193 stigum minna en þegar hann setti metið hér á Melavellinum á dögunum og tókst betur upp en nokkru sinni. Valbjöm var heldur óheppinn fyrri daginn, en vann það veru- lega upp þann síðari. Hann vakti mikla athygli í stönginni er hann flaug hátt yfir 4.30. Það nægði þó aðeins í 2. sætið. Júgóslavinn Kolnik stökk 4.45 m. Við vitum ekki um endanlega röð Valbjarn- ar en hann hefur staðið sig eins vel og við mátti búast. Keppnin á slíkum mótum er afskaplega þreytandi. Hún tók 12 tíma fyrri daginn og 11 tíma þann síðari. Árangur Valbjarnar í einstök- m grein var sem hér segir: 100 m 11.0 908 stig langst. 6.47 632 — kúluv. 11.77 561 — hástökk 1.80 770 — 400 m 51.1 765 — Fyrri dagur 3636 stig 110 m grhl. 15.6 673 stig kringla 39.62 616 — stöng 4.30 915 — spjótk. 56.01 646 — 1550 m 4.54 304 — Síðari dagur 3154 stig Samtals 6790 stig Valbjörns var oftast getið síð- ari daginn í fréttastofufregnum. Hann varð sem fyrr segir annar í stangarstökki. Hann var 10. í kringlukasti. Hann var 5. í spjót- kasti og hann var 12. í 1500 m hlaupinu. Blaðið fékk aðeins upplýsing- ar um 6 efstu menn í tugþraut- inni í gær. EM-meistari Kuznetzov Rúss- land 8026 stig 2. Moltke Þýzkanld 8022 — 3. Bock Þýzkaland 7835 — 4. Kamerbeek Holland 7724 — 5. Holdorf Þýzkaland 7526 — 6. Diatsjov Rússland 7400 — Eins og sézt af stigatölu og árangri Valbjarnar var rangt frá skýrt í blaðinu í gær. Stafaði það af misheyrn í síma og röngura útreikningi í 400 m hlaupi. En nú er allt rétt — vonandi. Kristleifur rak lestina í hindrunarhlaupiiu KRISTLEIFUR Guðbjörnsson sótti ekki gull eða græna skóga til Evrópumcistaramótsins. I gær tók hann þátt í undanúrslitum hlaupsins og hafði það þunga hlutverk að reka Iestina hvað tima snertir. Hann hljóp á 9.30.8 og var all langt á eftir næsta manni í hlaupinu. Fréttamaður Mbl. í Belgrad segir að riðillinn sem Krist- leifur hljóp í hafi verið mjög erfiður og keppnin þar ákaf- lega hörð og einkennileg. Kristleifur ætlaði að fylgja lAllir mót- mæltu FRÉTTAMAÐUR Mbl. í Belgrad segir að árangur þrí stökkvaranna allra í gær sé að minnsta kosti 30 sm lak- ari en ætti að vera fyrst og fremst vegna slæmrar brautar og í öðru lagi vegna mótvinds. Þeir höfðu allir beðið um að brautinni yrði snúið svo að vindurinn væri í bakið — en því var neitað. I dag henti það sama í langstökkinu. En nú voru keppendurnir ákveðhari. Þeir neituðu hreinlega að keppa ef brautinni yrði ekki snúið og höfðu sitt fram. Árangurinn kom líka í ljós 8.19 er glæsilegt stökk. hópnum, en það varð honum að falli. Hann hreinlega sprakk og er á leið hlaupið var hann útkeyrður og hafði varla kraft til að stökkva yfir hindranirnar og lenti hvað eftir annað ofan í vatnsgryfj- unni og varð að vaða upp úr. Er það ólíkt hans fyrri hlaup- um hér heima. En það voru fleiri en hann í þessum riðli sem sprungu. Heimsmethafinn Krykowiak, Olympíumeistari og EM-meist ari var sleginn út. Hann hafn- aði í 5. sæti í riðlinum á góð- um tíma en aðeins 4 komust í úrslit úr hverjum riðli. Hér koma tímar riðlanna. 1. riðill: 1. Buhl Þýzkalandi 8:42.2. 2. Texereau Frakkl. 8:48.8. 3. Evdokimov Rússl. 8:49.2. 4. Herriot Englandi 8:49.2. 5. Kryz- kowiak Póll. 8:49.2. 6. Fazekas Ungverjal. 8:57.6. 7. Ellefsæter Noregi 8:59.8. 8. Papavassiliou Grikkland 9.05.8. 9. Ganzl Aust- urríki 9.14.4. 10. Kristleifur Guð- björnsson 9:30.8. 2. riðill: 1. Roelants Belgxa 8:42.0. 2. Skoolov Rússl. 8:46.8. 3. Dorner Þýzkal. 8:46.8. 4. Simon Ungverjal. 8:50.0 5. Zhanal Tékk. 8:51.6. 6. Hafner Júgóslav. 8:54.2. 7. Motyl Póll. 8:55.8. 8. Hall Eng- landi 8:57.0. 9. Sommaggio Ítalíu 9:16.8. 3. riðill: 1. Konov Rússl. 8:43.4. 2. Vamos Rúmenía 8:44.6. 3. Span Júgóslav. 8:45.0. 4. Siren Finn- land 8:46.4. 5. Onel Tyrkl. 8:47.2. 6. Capman England 8:50.4. 7. Chromik Pólland 8:54.0. 8. Muller Þýzkal. 9:00.4. 9. Ferreira Portú- gal 9:01.8. 10 Maear Ungverjal. 9:04.6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.