Morgunblaðið - 04.07.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.07.1963, Blaðsíða 1
24 siðun upp dóm sinnígær : Hæstu laun ríkisstarfs- manna 19.910 kr. á Smánuði — Lægstu laun 4.800 kr. J KJARADÓMUR kvað upp síðdegis í gær dóm í launa- deilu ríkisstarfsmanna og ríkissjóðs. Samkvæmt dóminum skulu launaflokkar ríkisstarfsmanna vera 28, en um það hafði samkomulag tekizt milli deiluaðila. Laun í 28. flokki verða 19.910 krónur á mánuði og taka laun samkvæmt hon- um biskup, hagstofustjóri, landlæknir, lögreglustjórinn í Reykjavík, póst- og símamálastjóri, ráðuneytisstjórar, rekt- or háskólans, ríkisendurskoðandi, sendiherrar, yfirborgar- dómari og yfirsakadómarL Hinir nýju launaflokkar eru birt- Ir á blaðsíðu 8. Kjaradómur að störfum. Talið frá vinstri: Svavar Pálsson, Eyjólfur Jónsson, Sveinbjörn Jónsson, Benedikt Sigurjónsson og Jhannes Nordal. Kommúnisminn komi fyrst - síöan fööuriandið — segir IMikifa Krtísjeff, forsætisráðherra Sovetríkjanna Dómurinn gildir frá 1. júlí 1963 til ársloka 1965. Tekur hann m.a. tillit til þeirrar 7.5% hækkunar, sem ýmsir starfshópar þjóðfélagsins hafa fengið að undanförnu, meira atvinnuöryggis ríkisstarfs- manna en annara og þess sam komulags deiluaðila, að auka beri launamismun milli flokka til að tryggja, að rík- Ið eigi kost hæfra starfs- manna og sé um það sam- keppnisfært við einkarekstur- inn. Kjararáð B.S.R.B. gerði fyrir hönd ríkisstarfsmanna mun hærri kröfur en tilboð ríkissjóðs var. Kjaradómur fór meðalveg þar á milli. Er því Ijóst að um mjög verulegar launahækkanir er að ræða til ríkisstarfsmanna, en vegna mikilla breytinga milli launaflokka og ýmissa annara atriða, er erfitt að gera sér grein fyrir, hversu miklar hækk- anirnar eru að prósentutölu. Morgunblaðið birtir hér á eft- ir dóm Kjaradóms, að öðru leyti en því að sleppa varð, sökum rúmleysis, kröfum sóknaraðila (Kjararáðs B.S.R.B.) og varnar- aðila (ríkissjóðs) og skiptingu í launafiokkana: „Ár 1963, miðvikudaginn 3. júli, var Kjaradómur settur og hald- inn af hinum reglulegu dómend- um, í hýbýlum dómsins að Lauga vegi 18, hér í borg. Tekið var fyrir kjaradómsmál- ið nr. 1/1963. Kjararáð fyrir hönd starfs- manna ríkisins gegn fjármáiaráð- herra fýrir hönd ríkissjóðs og i því kveðinn upp svohljóðandi dómur: Mál þetta, sem rekið hefir verið samkvæmt ákvæðum IV. kafla laga nr. 55 frá 28. apríl 1962 uim kjarasamninga opinberra etarfsmanna, var þingfest fyrir Kjaradómi hinn 24. apríl s.l., en tekið til dóms eftir flutning hinn 28. f. m. Samkvæmt ákvæðum 3 tl. 2. mgr. 29. gr. laga nr. 55/1962 ekyldi Kjaradómur hafa tekið mál þetta til meðferðar hinn 1. marz 1963, en með bréfum fjár- málaráðherra til dómsins dags. 24. febrúar, 14. marz, 30. marz og 16. apríl þ. á., frestaði hann, með heimiid í 29. gr. laganna fyrir töku málsins til 24. apríl s.l., en |>ann dag var málið þingfest, svo ■em áður greinar. Samkvæmt ákvæðum 3. tl. 2. mgr. 29. gr. laganna skyldi dóm- urinn hafa lokið störfum 1. júlí 1963, en með bréfi fjármálaráð- herra dags. 29. f.m., færði hann tímamark þetta til 4. júlí 1963. Aðilar hafa fengið fresti til að gera kröfur, rita greinargerðir og koma að gögnum. Hafa þeir ritað tvær greinargerðir hvor. Þá hef- ur dómurinn kvatt aðila á sinn fund, lagt fyrir þá spurningar og rætt málið við þá. Aðiiar hafa lýst því yfir, að samkomulag hafi orðið um það, að launaflokkar ríkisstarfsmanna skyldu vera 28. Skyldu lægst laun vera greidd í fyrsta flokki, en hæst í 28. flokki. Þá hafa aðilar lýst því yfir, að þeir hafi orðið sammála um, hversu skipa skyldi ríkisstarfsmönnum í fyrrgreinda 28 launaflokka. Washington, 3. júlí — AP t Sovétstjórnin hefur harð- lega mótmælt handtöku rúss- neskra hjóna, sem sökuð eru um að hafa stundað njósnir í Bandaríkjunum. — Þau hafa verið starfandi hjá Samein- uðu þjóðunum. Bandaríkja- stjórn vísaði mótmælunum þegar á bug. t Það var seint í gærkvöldi, sem tilkynnt var af hálfu bandarísku leyniþjónustunn- ar, að tvenn hjón hefðu verið handtekin, grunuð um aðild að víðtækum njósnahring. Önnur hjónin voru sögð rúss- nesk, Ivan Dmitrievits Egorov, 41 árs að aldri, og Aleksandra Berlín, 3. júlí — NTB — AP — Reuter — t Nikita Krúsjeff, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, sagði í ræðu í A-Þýzkalandi í kvöld Egorova, 39 ára — bæði starfs- menn hjá Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna. Ekki voru gefin upp nöfn eða þjóðerni hinna hjónanna, en sagt, að þau hefðu kallað sig Robert Keistutis Baltch og Joy An Garber. í>að væru á hinn bóginn nöfn alsak lausra bandarískra borgara, Baltch væri kaþólskur prestur, en Garber húsfreyja í Connecti- cut. Hefðu þau ekkert þekkt til njósnaranna og vissu ekki um að nöfn þeirra væru notuð í ó- heiðarlegum tilgangi. ★ Fyrsti sendiráðsritari sovézka sendiráðsins í Washington, Ge- orgi Kornienko, gekk í morgun á fund Richard Davis, aðstoðar- utanríkisráðherra, í Washington og krafðist þess, að hin hand- að kommúnistar yrðu ætíð að láta hagsmuni kommúnism- ans sitja í fyrirrúmi fyrir hagsmunum föðurlandsins. — „Við verðum að vera fyrst og teknu hjón væru þegar í stað lát- in laus. í viðtali við fréttamenn skömmu síðar, sagði Kornienko, að handtaka þeirra væri ólögleg og sízt líkleg til þess að bæta sambúð Rússa og Bandaríkja- manna. Bæði hjónin eru sökuð um að hafa heitið starfsmönnum sov- ézku leyniþjónustunnar upplýs- ingum um bandarískar herstöðv- ar, herflutninga og flotastöðvar. Tveir starfsmenn sovézku sendi- nefndarinnar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna eru sagðir við málið riðnir, en þeir eru ný- lega farnir frá Bandaríkjunum. ★ Robert Kennedy, dómsmálaráð herra Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsviðtali um mál þetta í kvöld, að njósnastarfsemi Rússa í Bandaríkjunum færi stöðugt vaxandi — og raunar ekki að- eins Rússa, öll kommúnísku rík- in héldu þar uppi sívaxandi njósnum. fremst kommúnistar, því næst Þjóðverjar; fyrst og fremst kommúnistar, því næst Pólverjar; fyrst og fremst kommúnistar, því næst Rússar“, sagði Nikita Krúsjeff. Ræðu þessa hélt Krúsjeff & fjöldafundi í Frankfurt an der Oder, sem er rétt við landamæri Austur-Þýzkalands og Póllands. Um það bil 80.000 manns hlýddu máli hans og fögnuðu honum mjög. Einnig héldu þeir ræður Walter Ulbricht, leiðtogi austur þýzkra kommúnista, og Josef Cyrankiwics, forsætisráðherra Póllands. f ræðunni skírskotaði Krúsjeff til kommúnista allra landa að taka höndum saman. Hann vís- aði til slagorða Karls Marx „Ör- eigar allra landa sameinist“, og sagði að markmiðið væri að vinna að framgangi þessarar hugmynd- ar, efla hana og verja. Hann sagði að reynslan myndi kenna þeim, er ekki gætu fallizt á þá staðreynd, Framhald á bis. 23. Prohimo sekt- oður fyrir umferðorbrot London, 3. júlí. NTB-Reuter. 9 John Profumo, fyrrv. her- málaráðherra Bretlands — sá sem mestur styrr hefur staðið um að undanförnu, var í dag dæmdur í fjögurra sterlings- punda sekt fyrir of hraðan akstur. Brot þetta á umferðar lögum Bretlands hafði hann framið daginn eftir að hann sagði af sér embætti. Framhald á bls. 8. Sovézkir n/ósnarar hjá S.Þ. Tvenn hjón handtekin í Bandaríkjunum — grunuð um aðild að víðtækum njósnahring

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.