Morgunblaðið - 17.08.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.08.1963, Blaðsíða 6
MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 17. ágúst 1963 Þýzk kona við rann- sóknir á Dran gajökli Ingólfsfirði, 15. ágúst: — Laugardaginn 3. ágúst kom hing að að Eyri í Ingólfsfirði með flóabátnum Guðrúnu frá Hólma vík þýzk kona að nafni dr. Emmy Todtmann. Er hún frá Ham- borg í Þýzkalandi, jarðfræðing ur að mennt og ferðinni hingað heitið til að gera jarðmælingar á Drangajökli. Hún gisti hér eina nótt og fékk síðan mótorbátinn Guðrúnu til að flytja sig norð ur að Dröngum. Þar gisti hún um nóttina, fékk síðan bóndann á Dröngum, Kristin Jónsson, til að reiða sig upp að jökli. Hún hafði tjald og farangur með sér, en vegna þess að hún var óvön að sitja hest sóttist ferðin þang að seint, þvi bóndinn varð að teyma undir henni. Voru þau 4—5 tíma upp að jökulrönd. Dalur liggur þar að jöklinum, er Meyjardalur heitir. Þar fann Krístinn gott tjaldstæði og hjálp „Seló“ nýtt ísl. flntningoskip FÖSTUDAGINN 9. ágúst var hinu nýja flulningaskipi Haf- skip h.f., gefið nafn og heitir það „Selá“. Heimahöfn skipsins verður Siglufjörður. Frú Guðný Þorsteinsdóttir, kona Sigurðar Njálssonar, for- stjóra Hafskips h.f., gaf skipinu nafn. „Selá“ er þriðja skip félagsins og er að stærð 1750 tonn og byggt hjá skipasmíðastöð D.W. Kremer Sohn, Elmshorn, Vest- ur-Þýzkalandi. Skipið verður væntanlega af- hent félaginu í október byrjun n.k. aði hinni þýzku konu að koma tjaldinu fyrir og var það um 40 metra frá jökulröndinni. Síðan dvaldist dr. Emmy Todtmann þar í vikutíma og segist hún venju- lega hafa gengið árla morguns kl. 6—8 á jökulinn dag hvern. Veður var þarna sæmilegt. Einn dag vikunnar kom mikil þoka, er hún var komin langt upp á jökul, og er hún hélt að tjaldstað um kvöldið rataði hún ekki og varð að liggja úti á jökl inum næturlangt. Sofnaði hún eitthvað en hélt á sér hita með því að ganga um öðru hvoru. Morguninn eftir var komið sæmi legt skyggni og fann hún þá tjaldið. Hún hafði með sér dag- bók, sem hún færði í viðburði daganna og jarðmælingar sínar. Hún segir að jökullinn hafi þynnzt mikið. Einn daginn heyrði hún í þrýstiloftsflugvél, sem flaug þar yfir. Laugardaginn 10. ágúst sendi bóndinn á Dröngum mann upp að jökli að vitja hennar, en hann varð hennar ekki var þótt hann leitaði á jöklinum í fimm klukku stundir, en þá hefir hún verið svo langt uppi á jökli að hún varð hans ekki vör. Sami maður fór aftur sunnu- daginn 11. ágúst að leita og þá var hún ea. khómeter frá tjald- inu, en hún hafði hrapað og meitt sig í fæti og þurít; hjálpar við og hjálpaði hann henni til að komast í tjald sitt. Var hún þá þreytt mjög og syfjuð en sagðist samt heldur vilja vera áfram í 3 daga við jökulinn en fara til byggða og var því aldeilis ekki af b'aki dottin að halda þarna til. Maðurinn ráðlagði henni að halda til byggða, hitaði fyrir hana kaffi og beið meðan hún svaf í klukkustund. Síðan tók hann saman tjald hennar og farangur og fór með hana á hesti aS Dröng um og voru þau rúmar 4 kls. á leiðinni. Á Dröngum var henni veittur góður beini og síðan svaf hún í 13 tíma svo sjá má að hún var hvildar þurfi. Dr. Todtmann hélt kyrru fyrir á Dröngum í tvo daga, því veður hafði versnað, svo ekki var hægt að flytja hana til Ingólfsfjarðar á sjó, en á þriðja degi ílutti Magnús Jakobsson, sá sami og sótti hana upp að jökli, hana á trillu hingað til Ingólfsfjarðar, þar sem hún beið komu Skjald- breiðar til ísafjarðar en þaðan fór hún landleiðina til Reykja- víkur. Fór hún héðan frá Ingólfs firði í dag. — I. G. Hér er hið nýja fyrirtæki Ferðanesti á Akureyri. Því hefur ver- ið komið upp við Eyjafjarðarbraut gegnt Akureyrarflugveiili og selur flest það sem ferðafólk er talið þurfa að grípa með sér, auk þess sem selt er benzín. — Ljósm. Sv. p. Fjölbreyttur fiugdagur á sunnudaginn Komnir heim ai Norðurlandsveiðam Akranesi, 13. ág. Höfrungur II. kom heim vest- urleiðina af síldveiðum norðan- landis í nótt, og Ver kom kl. 3 e.h., fór fyrir sunnan land og kastaði nótinni sunnan Reykja- ness og fékk 600 tunnur, sem fóru í bræðslu. Síldin var svo smá, að hún var tæplega vinnslu hæf. Syndið 200 metranci Sigurður kom að norðan í fyrradag. Mánudaginn .12. ágúst reri línutrillan Vonin og fiskaði 100 kg. — Oddur. NÆSTKOMANDI sunnudag gengst Flugmálafélag íslands fyr ir flugdegi á Keykjavíkurflug- velli, og verður það sjöundi flug- dagurinn, sem haldinn er hér- lendis. Hefur Flugmálafélagið gengist fyrir slíkum flugdögum á tveggja ára fresti að undan- förnu, og hafa þeir þótt vel tak- ast. Ýmsar nýjungar verða á döf- inni á sunnudaginn, og verður þar margt flugvéla, alls 30—40, bæði innlendar og frá varnarlið- inu á Keflavíkurflugvelli. Er flugdagur var síðast haldinn fyr- ir tveimur árum sóttu hann 8—10 þúsund manns. Flugvöllurinn verður opnaður fyrir gesti kl. 1 e. h. á sunnudag- inn, en dagurinn formlega settur kl. 2 af Baldvin Jónssyni, for- manni Flugmálafélagsins. Inngangur á flugvöllinn verð- ur um Miklatorg, og verður ein- stefnuakstur þar bæði inn og út af vellinum. Bílastæði verður sunnan flugvallarvegar. Er sér- staklega mælzt til þess að fólk fylgi settum reglum, en skátar, lögregla og meðlimir Flugbjörg- unarsveitarinnar mynu annazt gæzlu á staðnum. Fyrsta atriði verður hópflug lítilla einkavéla. Eftir- flugtak munu þær skiljast að og koma ein og ein yfir flugbrautina í lít- illi hæð. Fara vélarnar síðan ann- an hring og lenda ein og ein. Þá verður sýnt listflug á svifflugu, og ennfremur listflug á vélflugu, og ef gott veður er, mun æfinga- þota af Keflavíkurflugvelli einn- ig sýna listflug. Ennfremur verð- ur sýnt flugtog með svifflugur. Landhelgisgæzlan mun einnig taka þátt í flugdeginum og sýnir gæzluflugvélin Sif ýmis merki. Þá munu flugvélar af Keflavík urflugvelli taka þátt í flugsýning unni, bæði Neptune-flugvélar og stór Constellation-radarflugvél, auk æfingaþotu af T-33 gerð. Þá munu fjórar orrustuþotur af gerð inni F 102 Delta Dagger koma í hópflugi yfir flugbrautina, skilja síðan og koma aftur ein og ein í halarófu með hraða, sem nemur 96% af hraða hljóðsins. Þotur þessar geta farið með nær tvö- földum hraða hljóðsins, en að sjálfsögðu munu þær ekki brjóta hljóðmúrinn, þar eð slíkt veldur rúðubrotum ef gert er nærri þétt- býli, svo sem kunnugt er. Þegar þessar þotur fara fljúga þær út yfir sjó, og setja á svokallaða afturbrennara, og þjóta beint upp í loftið, 12000 fet. á mínútu. Búizt er við að flugdeginum ljúki um kl. 16:30 með almennu hring- flugi. Þulir munu kynna sýning- aratriði jafnharðan og verða það Valdemar Ólafsson, flugumferð- arstjóri og Bogi Þorsteinsson, yf- irflugumferðarstjóri. Auk þeirra atriða, sem að fram an eru nefnd, mun ungur Reyk- víkingur, Sigurður Þorkelsson, sýna flug á svonefndum Gyro- kopta, sem er vélarlaus þyrla, sem hann hefur smíðað sjálfur að undanförnu. Merki verða seld á flugvellin- um og gilda þau sem aðgöngu- miðar að flugsýningunni. Kosta þau 20 kr. fyrir fullorðna og 10 kr. fyrir börn. Mótstjóri verður Sverrir Ágústsson en aðrir í mótsstjórn Sigurður M. Þorsteinsson, Hörð- ur Magnússon, Ólafur Þ. Guðjóns son og Þorgeir Pálsson. — Fari svo, að veður verði óhagstætt á sunnudaginn, kann svo að fara að sýningunni verði frestað til næsta sunnudags. Drengjameist- aramótið í Vest- mannaeyjum Drengjameistaramótið í frjáls- um íþróttum verður ' haldið í Vestmannaeyjum um næstu helgi. Stjórn IBV sér um mótið og þarf að filkynna þátttöku til hennar. • Enn um skólabygg- inguna í Kópavogi „Fadir“ sendir þetta bréf: „Kæri Velvakandi! Bréfið, sem þú birtir í gær um hina væntanlegu barna- skólabyggingu, sem verið er að reisa á Digranestúni í Kópa- vogi, bar það með sér, að það var orðið hálfsmánaðargamalt, — því að nú er búið að hífa strengjasteypuþakið yfir frauð vegginu, og byggingin því bein línis lífshættuleg fyrir verka- mennina, sem að henni vinna. Við ofurlítinn jarðskjálfta- kipp, (sem aldrei gerir boð á undan sér), mundu lausar þak- lengjurnar endastingast ofan af veggbrúnunum og húsið falla saman eins og spilaborg. Framhald þessarar furðu- byggingar, með þessu þaki, er vita tUgangslaust, því að for- eldrar þeirra barna, sem hér er ætluð skólavist, hafa þegar gert með sér þegjandi sam- komulag um að láta börn sín ekki í þennan skóla, að óbreyttu byggingarlagi. Eina leiðin til úrbóta þess- ari tilraunabyggingu er sú að taka steypustrengina niður og refta yfir tóftina með timbri, — áður en slys hljótast. af. Þetta sjá víst allir, sem vilja sjá. Og það þarf ekki einu sinni jarðskjálftakipp til að felia strengjasteypuþakið, — nóg að vörubíll bakkaði óviljandi á horn eða gafl, — þá er allt hrunið. Furðubygging þessi hefur þegar vakið verðskuldaða at- hygli, svo að fólk flykkist þangað á kvöldin til að skoða hana. — Fa»ir“. -íb(b cmfæ vbgk xzðó xzðð AEG MÆLITÆKI BRÆÐURNIR ORMSSON Simi 1146).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.