Morgunblaðið - 26.11.1963, Blaðsíða 15
mm
Þriðjudagur 26. nðv. 1963
MGRGU N BLAÐIÐ
15
Dallas, Texas, 25. nóv.
AP — NTB
• Lögreglan í Dallas
hefur nú skýrt frá helztu
sönnunargögnum, er fund
izt höfðu fyrir sekt Lee
Harvey Oswald og lögð
voru til grundvallar hinni
opinberu ákæru gegn
honum.
• Síðast í dag fannst í
leiguherbergi Oswalds í
borginni, kort af Dallas
með krossum merktum
við leið þá, er forsetinn
ók frá flugvellinum til
morðstaðarins. Ennfremur
var á korti þessu dregin
lína, er sýndi leið þá er
riffilkúlan fór frá glugga
hússins, er skotið var frá
Herbergið í skólabókageymslunni, þar sem morðinginn beið. Á einum slíkum bókakassa hef-
ur hann setið.
Sterkar líkur voru
fyrir sekt Oswalds
sagði fregnina ökumanni
strætisvagnsins, en hann
spurði hvaðan hún hefði
þessi tíðindi. Svaraði hún
því, að maður aftar í vagn-
inum hefði sagt sér og hlegið
við.
• í sama mund steig Os-
wald út úr strætisvagninum,
náði í leigubíl og ók í áttina
til hússins í Oak Cliff, þar
ÍJr skýrslu lögreglunnar um
fyrirliggjandi sönnunargögn
Lögreglumaður með fingraför Oswalds
til þess, er hún hæfði for-
setann.
• Hér fer á eftir úr-
dráttur úr skýrslu Henry
Wade, ríkissaksóknara í
Texas um helztu sönnun-
argögnin. En lögreglan í
Dallas hefur lýst því yfir,
að hún muni beita sér fyr-
ir því að allar upplýsing-
ar, er fengizt hafa um Os-
wald verði síðar birtar
opinberlega.
• Fjölskylda Lee Harvey
Oswald var búsett í Irving,
einni af útborgum Dallas.
Þar dvaldist Oswald yfirleitt
aðeins um helgar, en leigði
sér herbergi inni í borginni
til hægðarauka vegna vinnu
sinnar þar.
• Aðfaranótt föstudags
hafði Oswald dvalizt á heim-
ili sínu. Nágranni hans ók
með hann til borgarinnar á
föstudagsmorgun. Hafði Os-
wald þá með sér aflangan
pakka í brúnum pappír og
sagði nágrannanum, að þar
í væru gluggatjöld.
0 Eigínkona Oswalds hef-
ur skýrt lögreglunni svo frá,
að hann hafi átt riffil, er
verið hafi í íbúð þeirra á
fimmtudag, en ekki verið á
sínum stað á föstudag
# Rannsókn lögreglunnar
hafði leitt í ljós, að riffillinn
var ítalskur að gerð, Carcano
riffill með 6.5 mm hlaup-
vídd, búinn sjónauka. Hafði
riffill þessi verið pantaður
frá Ohicago í marzmánuði
s.l. og var pöntunarseðillinn
rithönd Oswalds. Númer
morðvopnsins svara til nú-
mers þessa riffils.
• Oswald starfaði í skóla-
bókageymslu í Dallas átta
hæða byggingu, þaðan sem
gott útsýni var yfir leið þá,
er Kennedy ók frá flugvell-
inum skammt utan við borg-
ina. Oswald starfaði á sjö-
undu hæð byggingarinnar.
Höfðu samstarfsmenn hans
orð á því, hvort hann ætlaði
ekki að vera þeim samferða
niður á götuna, til þess að
sjá forsetann aka fram hjá.
Hafði Oswald kveðið nei við
en beðið þá um að senda lyft
una upp aftur.
• Að sögn vitna var byssu
hlaup dregið inn um glugga
á sjöundu hæð, rétt eftir að
skotið reið af er varð forset-
anum að bana. Lögreglumenn
þustu inn í bygginguna og
var Oswald meðal þeirra, er
þeir hittu fyrir á þriðju hæð.
Var hann að opna gosdrykkja
flösku.
• Forstöðumaður bóka-
geymslunnar staðfesti, að
hann væri starfsmaður í
byggingunni og var honum
þá sleppt. *5íðar náðist í alla
starfsmenn byggingarinnar
nema Oswald og var þá lýst
eftir honum.
• Oswald fór upp í stræt-
isvagn við Lama Street og
sagði konu nokkurri í vagn-
inum frá því, að forsetinn
hefði verið skotinn. Konan
sem hann leigði herbergi.
Skammt frá húsinu sáu menn
lögreglumann ganga laumu-
lega í áttina til Oswalds, en
hann tók þá upp skamm-
byssu og skaut lögregluþjón-
inn þremur skotum. Að
svo búnu hlóð hann byssuna
á ný og hélt til kvikmynda-
hússins Texas Theatre.
• Lögreglan kom til kvik-
myndahússins skömmu síðar
eftir tilvísun konu í miðasöl-
unni, sem fannst framkoma
Oswalds grunsamleg. Er lög-
reglumennirnir komu auga á
Oswald miðaði hann á þá
skammbyssunni, tók í gikk-
inn, en skotið reið ekki af.
Var hann handtekinn þar á
staðnum.
• í skólabókageymslunni
fannst riffillinn bak við
bókastafla. Ljóst var að morð
inginn hafði setið á kassa
meðan hann beið og eftir
öllu að dæma verið að borða
kjúkling, er pakkað hafði
verið í brúnan pappírspoka.
• Fingraför og lófaför,
samsvarandi Oswalds, fund-
ust á rifflinum, kassanum og
pappírspokanum.
• Paraffín-prófun á hönd-
um Oswalds, er gerð var
klukkustund eftir að hann
Frh. á bls. 23
Vinnuiatabúðin
Lfaugav. 76 sími 15475
Amerísku nylon
úlpurnar komnar
affur
Vinnutatcbúðin
Laugav. 76 sími 15475
að auglýsing í stærsta
og útbreiddasta blaðinu
borear sig bezt.
/