Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLADIÐ Fostuðagur 3. Jan. 1964 Fjölskyldan, sem missti eigur sínar í brunanum. Talið frá vinstri: Steindór, 18 ára, Inga Marta, 20 ára, Stefanía Guðmundsdóttir, Guðmundur, 10 ára, Oddný, 17 ára, Ingimundur Steindórsson, og Eyjólfur, 14 ára. Myndin var tekin af Sv. Þ. að Litla-Bjargi, þar sem fjöl- skyldan dvelur nú. I en það var ekki tími til að bjarga öðru. Húsið varð fljótt alelda. — Svo fór ég í kjallarann til að hleypa út dúfum, sem strákamir áttu þar, og kom- ust þær út. Eldur komst aldrei í kjallarann, en þar er mikið skemmt af reyk og vatni. — Vátrygging á húsinu sjálfu er mjög lág. Okkar inn- bú var óvátryggt en innbú móður minnar, Oddnýjar Hjartardóttur, er eitthvað tryggt. Mamma var ekki heima þegar eldurinn kom upp. Hún er núna 64 ára göm- ul. — Við eigum 5 böm, Stein- dór, 18 ára, Ingu Mörtu, 20 ára, Oddný, 17 ára, Eyjólf, 14 ára, og Guðmund, 10 ára. — Fjölskyldan er nú öll hjá Áma Elíassyni, Litla-Bjargi. Erum við mjög þakklát ná- grönnunum fyrir alla hjálp- ina og vinsemdina, sem þeir hafa sýnt okkur vegna þess- arar hörmulegu reynslu okk- Gestir í brennandi húsinu vöktu fólkið Rætt við heimilisföðurinn, Ingimund Steindórsson, sem bjargaðist út á nær- fötunum einum saman MORGUNBLAÐIÐ átti við- tal vlð Ingimund Steindórs- son í gærdag og sagðist hon- um svo frá um brunann: — Það mátti ekki tæpara standa að við björguðumst út. Elzti strákurinn, Steindór, sem er 18 ára, var einna hætt- ast kominn. Honum var bjarg að út meðvitundarlausum af tveim gestkomandi mönnum hjá okkur, þeim Sigurði Stef- ánssyni og Ólafi Árnasyni, en þeir sváfu á rishæðinni. — Það var Ólafur, sem vakn aði og vakti fólkiö á efri hæð inni. Sigurður og dóttir mín komu hlaupandi niður og vöktu okkur. — Þetta var svo naumt, að allir voru meira eða minna fatalausir. Eg fór út á nær- fötunum og konan mín, Stef- anía Guðmundsdóttir, tókst aðeins að hafa með sér sæng ina. — Eg hljóp aftur inn i hús ið og tókst að ná í buxurnar, Bátinn „Straumur“ rak á sker — talinn sokkinn Keflavik, 2. janúar. VÉLBÁTURINN Straumur, GK-302, slitnaði frá bryggju í Höfnum og rak út úr ósunum á nýársdag. Lenti hann fyrst á Skerjum, skammt frá Básendum, og talið er að báturinn hafi lið- azt sundur og sokkið, fremur en rekið til hafs. Hann var 11 tonn að stærð. Eigandinn, Valgeir Sveimson, fór uim borð í Straum á gamlárs- kvöld á smákænu, sem var svo illa lek að Valgeir treysti sér ekki til að fara í henni í land aftur. Losaði hann því Straum frá legufærum og fór á honurn upp að bryggju, þar sem bátur- inn var svo bundinn. Hafði Valgeir farið um borð til að sækja rakettur til að skjóta á loft um kvöldið. Snemima á nýársdaig mun bát- urinn hafa slitnað frá bryggju, en þá var veður mjög slæmt. Rak hann út úr ósunurn og sást til hans síðla á nýársdag, þar sem hann var á skerjum skarnmt frá Básendum, eins og getið er hér að framan. Hefur ekki sézt tiíl bátsins síð- an. — hsj. / NA /5 hnútor yT S V 50 hnútor ¥ SnjóJromo » ÚÍi 7 Skvrir K Þrumur WSi KoUoskit Hih»m H Hml \ L ’ LmtlJ I Um hádegi í gaer var S-átt nærri kyrrstæð. Hins vegar og 2 4 st. hiti um allt land. var háþrýstisvæði (1035 mb) Þurrt og bjart norðaustan yfir Þýzkalandi. Var því talið lands en skúraveður sunnan útlit fyrir milda en óstöðuga lands og vestan. Um 600 km. og rysjótta veðráttu næstu suðvestur af Reykjanesi var daga, alldjúp lægð (965 millibar) en Mjög góð kirkju- sókn KIRKJUSÓKN var með afbrigð um góð í kirkjum borgarinnar um jólin og áramótin. Messað var á hverjum helgum degi, sums staðar oftar en einu sinni, og að auki voru haldnar barna- guðsþjónustur. Má segja, að yf irfullt hafi verið við sumar mess urnar en því sem næst troðfullt við aðrar. Messað var á einum 13 stöðum í Reykjavík og Kópavogi þ.e. Dómkirkjunni, Hallgrímskirkju, Neskirkju, Laugarneskirkju, Sjó mannaskólanum, Langholts- kirkju, Breiðagerðisskóla, Kópa- vogskirkju, Fríkirkjunni, kirkju Óháða safnaðarins, elliheimilinu Grund, kirkju kaþólskra, Krists kirkju, svo og voru helgistundir hjá hinum ýmsu sértrúarflokk- um. - NATO Framh. af bls. 1 ust þeir við í tvær stundir. Þá hafði erkibiskupinn ákveðið að fella úr gildi Kýpursamninginn. í dag var allt með kyrrð og spekt í gríska hluta Nicosia. Búðir voru opnar að venju, og margt manna var á götum úti. Á hlutlausa svæðinu va<r hins vegar enginn á ferli, ef frá eru taldir brezkir hermenn, sem stóðu vörð. Sir Alec Douglas Home, for- sætisráðherra Breta, sem verið 'hefur í jólaleyfi í Skotlandi, ákvað í dag að halda til London, vegna þess, hve ástandið er al- varlegt á Kýpur. Á morgun, föstudag, verður Duncan Sandys kaminn til London, og mun hann þá gera Riohard Butler, utan- ríkisiráðlherra, grein fyrir ástand- inu á Kýpur og viðxæðunum við Makarios. Krúsjeff í Póllandi — kom þangað skyndilega í gær; talinn munu eiga einkaviðræður við ráðamenn Varsjá, 2. janúar — NTB: Krúsjeff, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, kom í dag til Varsjá- ar, höfuðborgar Póllands. Þar hafði hann þó aðeins skamma Jarðhrær- ingar á Suðurlandi Grunur fellur á gosið JARÐSKJÁLFTAMÆLARNIR á Kirkjubæjarklaustri, í Vik í Mýrdal og í Reykjavík hafa nú á annan mánuð sýnt öðru hverju vægar hræringar og geira enn. Hlynur Sigtryggsson, veðurstofu- stjóri, tjáði blaðinu að þessar hræringar væru dálítið sérkenni legar, að því leyti að þær likist hvorki venjulegum jarðskjálft- um né jarðaróróa, sem ailtaf ber á. Bkki kvaðst hann vita af hverju þetta stafaði, en grunaði þó gosið við Vestmannaeyjar i»m að valda því. Þessar hræringar byrjuðu að visu ekki alveg um leið og gosið byrjaði, en hafa verið öðru hverju lengst af þann tíma. Þar eð ekki fylgja hræringum þess- um venjulegar hreyfingar frá jarðskjálftum, er erfitt að úr- skurða hvaðan þetta kemur, þó grunur falli á gasið. Akranesbátar Akranesi, 2. janúar. AUK hinna þriggja báta, sem þega<r eru byrjaðir á línu, láta 4 beita línuna í dag. Aðrir 4 láta beita á morgun eða hinn daginn. Sólfari fer í nótt í útilegu með línu og Höfrungxxr II einnig á útilegu á næstunni. — Oddur viðdvöl, en hélt síðan til Olsztyn héraðs, fyrir norðan borgina. • í fylgd með forsætisráðherr anum voru þá T. Mazurov, aðal- ritari kommúnistaflokks Hvíta- Rússlands, aðalritari pólska kommúnistaflokksins, Vladyslav Gomulka, pólski forsætisráðheix ann, Josef Cyrankiewicz, og Mar- ian Spychalski, varnarmálaráð- berra. Fátt hefur verið látið uppi um erindi Krúsjeffs til Póllands nú, en fréttastofan PAP segir svo frá, að forsætisráðherrann hafl komið í opinbera heimsókn, eftir að hafa fengið um það boð frá Gomulka og Cyrankiewicz. Það hefur áður komið fyrir, a5 Krúsjeff hafi koir.lð í heim- sókn til Póllands að vetrarlagi, og hefur hann þá átt viðræður við pólska ráðamenn. Hafa þær farið fram á laun. EFTA-löndin lækkuðu tolla innbyrðis ENN EIN tollalækkunin kom til framkvæmda nú um ára- mótin hjá EFTA-löndunum og nemur hún 10%. Hafa EFTA- löndin nú lækkað tolla sín í milli á ýmsum vörutegundum um 60%. Sem dæmi um það má nefna, að 10% tollur á freð- fiski er nú kominn niður í 4% þegar hann er seldur milli EFTA-Iandanna. Hins vegar þurfa íslendingar og aðrir ut- an EFTA að greiða 10% toll af freðfiski, mjöli, lýsi, niður- soðnum sjávarafurðum og hvalafurðum. Um kl 9 » nyarsmorgun brotna ði niður aðalalma a miklum bygff ingarkrana, sem notaður hefur verið við byggingu á sambýlis- húsi við Kringlumýrarbraut. —Brotnaði álman niður í hvassviS rinu þá um morguninn. ~ ... ' - s .(Ljósm.: Sveinn Þ.),

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.