Morgunblaðið - 11.01.1964, Blaðsíða 1
24 slður
51. árgangur 8. tbl. — Laugardagur 11. janúar 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins
I.ikan af hinu fyrirhugaða ráðhúsi Reykjavíkur, sem á að risa í norðurenda Tjarnarinnar. Það er 8 hæða hús, en tvær neðstu hæðirnar stærstar að flatarmali,
teiknað af fjögurra arkitekta nefnd. Á þessu líkani sést að búið er að fjarlægja gömul hús, svo sem Iðnó, Búnaðarfélagshúsið o.fl. Svarta strikið á miðri myndinni eru
samskeyti á likaninu. Ljosm.: ÓL K. Mag. Sjá fleiri myndir á bis. 8.
Samstaða arkitekta og borgaryfirvalda um nýja teikningu
1 GÆR samþykkti borgarráð einróma tillögu ráðhúsnefndar
um að ráðhús Reykjavíkur skyldi byggt samkvæmt fram-
lögðum teikningum í norðurenda Tjarnarinnar og vísaði mál-
inu til borgarstjórnar, þar sem það verður væntanlega tekið
til umræðu næstkomandi fimmtudag. Þangað til verður lík-
an og uppdrættir til sýnis fyrir borgarbúa í Hagaskólanum.
Ráðhúsið er skv. tillögunni tveggja hæða hús með 6 hæða
hábyggingu á eða alls 8 hæðir og er rúmmál hússins 28 þús.
í'úmm. að viðbættum kjallara. Utveggir eru úr steinsteypu,
málmi og gleri og útveggir turnsins léttbyggðir, efsta hæðin
að mestu úr gleri og svalir í kring. Fyrir norðan húsið er
steinlagt torg. Uppdrættir að ráðhúsinu eru miðaðir við að
húsið rúmi æðstu borgarstjórn um alllangan tíma og um
langt skeið verður þar hægt að sjá allmörgum af stofnunum
borgarinuar fyrir húsnæði.
Kaflinn af Skothúsvegi, sem liggur yfir Tjörnina, á að
hverfa og verða þar hólmi með tveim léttxun göngubrúm í
staðinn. Ráðhúsið á að standa í norðurenda Tjarnarinnar og
þarf ekki að ryðja burtu húsum meðan það er í byggingu,
en Iðnó og Búnaðarfélagshúsið þurfa að hverfa þegar bygg-
ingin verður tekin í notkun. Og síðar verða fleiri hús látin
rýma. —
Að borgarráðsfundi loknum f
gær sýndi borgarstjóri frétta-
mönnum likan og uppdrætti að
hinu fyrirhugaða ráðhúsi, að við-
staddri ráðhúsnefnd, borgarráði
og arkitektum hússins. Svaraði
hann spurningum fréttamanna
og sagði að ef borgarstjórn féllist
á tillögur þessar á fimmtudag,
tíma. Kostnaðaráætlun sem ger
var sl. ár hafði gert ráð fyri
120 millj. kr. kostnaði. í því vær
framkvæmdir við lóðina o
Tjömina, en ekki fasteignakauj
í áætlun bæjarins fyrir yfirstan
andi ár er gert ráð fyrir 5 mill
kr. framlagi til ráðhúss og 3 mill.
eru til f sjóði.
yrði hafin undirbúningsvinna <8
byggingarframkvæmdum. Væri
gert ráð fyrir 4—6 ára byggingar*
í Stuttri ræðu sagði Geir Hall-
grfmsson, borgarstjóri, m.a. að
spnhntegs ráðhúsi væri ætlað
að ráða bót á erfiðri starfsað-
stöðu borgarstjórnar, borgarfull-
trúa, borgarráðsmanna, borgar-
stjóraembættisins og annarra
stofnana er tengdar eru yfir-
stjórn borgarmálefna og því
væri einnig ætlað skv. framlögð-
um uppdráttum að vera vettvang
ur hátíða borgarbúa og móttöku
gesta, er sækja Reykjavík heim,
en jafnframt og umfram allt að
vera daglega opið Reykvíking-
um, þar sem þeir geta mælt sér
mót og gengið um sali prýdda
listaverkum og notið útsýnis og
umhverfis, þar sem Tjörnin er,
perla borgarinnar.
Gunnar Thoroddsen fjármála-
ráðherra, formaður ráðhússnefnd
ar, sagði í ræðu sinni m.a.: — Um
þessa tillögu um gerð og fyrir-
komulag ráðhúss Reykjavíkur er
alger samstaða og eining innan
ráðhúsnefndar og með arkitekt-
um, sem að þessu hafa unnið. —
Eins hefur borgarráð í dag, einn-
Framhald á bls. 8.
Blóðugar óeirðir í Panama:
Unglingar drógu fána að húni
— með þeim afleiðingum að 20 manns
biðu bana, 250 særðust — Öryggis-
ráðið fjallar um málið
Washington, Panama City,
10. jan. (AP-NTB)
TIL alvarlegra átaka og
blóðsúthellinga kom í Pan-
ama í gærkveldi og aftur í
dag, eftir að bandarískir ungl
ingar höfðu dregið fána lands
síns að húni fyrir framan
skólabyggingu eina á yfir-'
ráðasvæði Bandaríkjamanna
við Panama-skurðinn. Sam-
kvæmt samningi Bandaríkj-
anna og Panama eiga fánar
beggja ríkjanna að blakta
hlið við hlið.
Á- Samkvæmt síðustu fregn
um biðu 20 manns bana í
átökunum, stúdentar frá Pan-
ama og bandarískir hermenn
en um 250 manns særðust. —
Brenndar hafa verið eignir
bandarískra borgara, íbúðar-
hús, skrifstofur og bifreiðar.
★ Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hefur fengið málið
Framh. á bls. 23