Morgunblaðið - 16.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1964, Blaðsíða 1
28 siður Aftökur fcoiaiar á Zanzibar Arabar eru ofsóttir Zanzibar og Dar es Salem, 15. jan. (AP) FREGNIR frá Zanzibar eru mjög ©ljósar. í dag kom einn af ráð- herrum byltingarstjórnarinnar fram í Zanzibar-útvarpinu til að mótmæla fregnum um aftökur fyrrverandi ráðherra landsins, en fregnir þessar voru hafðar eftir John Okello, yfirherstjóra bylt- ingarmanna. Segir Okello að tveir fyrrverandi ráðherrar verði hengdir, en aðrir tveir dæmdir til 15 ára fangelsisvistar. Einnig Ekýrði hann frá ofsóknum gegn arabískum mönnum á eyjunni, og Dr. Ernest L. Wynder. Myndin var tekin þegar hann var hér i heimsókn fyrir nokkrum ár- um til viðræðna við prófessor Niels Dungal. sagði að einn af leiðtogum Araba, Elek Sailim, yrði ausinn benzíni og brenndur lifandi. Þá kvaðst hann hafa fyrirskipað Hilal Ki- hanga, sem er auðugur kaupmað- ur í höfuðborginni, að drepa alla syni sína og dætur, en fremja sið- an sjálfsmorð. Hvað, sem rétt reynist í þess- um fregnum, þá er víst að ofsókn ir eru hafnar gegn Aröbum. Hef- ur mörgum þeirra verið fyrirskip að að krjúpa eða leggjast flatir á götum úti í nærfötum einum klæða, og syngja lofsöngva til dýrðar byltingarstjórninni og Abeid Karume forseta. Ekki hafa enn verið birtar ná- kvæmar tölur um mannfall í bylt ingunni, en óttazt að um 100 menn hafi fallið og 450 særzt. Byltingarstjórnin er nú full- skipuð. Karume er forseti, eins og fyrr greinir, Hon Kassim Hanga er forsætisráðherra og varaforseti, og Abdul Rehman Babu utanríkisráðherra. — Nýja stjórnin gaf út yfirlýsingu í dag, þar sem hún segir m.a. að óráðið sé hvort landið verður áfram í brezka samveldinu. Ted Sören- sen hættur Washington, 15. jan. (NTB) LYNDON B. Johnson, for- seti, skýrði frá því í dag að hann hefði orðið við beiðni Ted Sorensen um lausn frá embætti. Sorensen hefur ver- ið sérstakur ráðgjafi forseta Bandaríkjanna allt frá því Kennedy tók við embætti í ársbyrjun 1961. Lætur hann af störfum í febrúarlok, og mun hafa í hyggju að rita bók um Kennedy. Leiðtogar byltingarinnar á Zanzibar. Til vinstri á myndinni er Abeid Karume, núverandi forseti, en til hægri Abdul Rehman Mohamed Babu, utanríkisráðherra. Karume er formaður Afro-Shirazi flokksins, sem stóð fyrir byltingunni á Zanzibar á sunnudag, en Babu er formaður Umma-flokks- ins. Babu er talinn mjög róttækur í skoðunum og hlynntur Rússum. Fiskimálaráðstefnan í London: Fulltrúar Noröurlandanna bíða frekari fyrirmæla Landhelgismálin tefj London, 15. jan. (AP-NTB) NEFNDARFUNDIR voru haldnir í dag á fiskimálaráð- stefnunni í London. Var á fundi ráðstefnunnar í gær skipuð sérstök nefnd til að reyna að samrýma óskir allra þátttökulandanna varðandi landhelgi og fiskveiðilögsögu. Dr, Ernest Wynder: Hættuminni sígarettur nauðsynlegar Sérstakar síur og bætt brennsla geta dregið úr skaðlegum dhrifum reyksins Washington, 15. janúar. — AP-NTB — Krabbameinssérfræðing- urinn dr. Ernest L. Wynd- er, sem starfar við Sloan- Kettering rannsóknarstofn unina í New York, sagði í viðtali við fréttamenn í dag að unnt væri að búa til síg- arettur, er væru ekki eins skaðlegar og þær, sem nú eru á markaðnum. Skoraði hann á bandarísku stjórn- arvöldin og forstöðumenn tóbaksiðnaðarins að leggja áherzlu á rannsóknir, er miði að því að draga úr skaðsemi tóbaksreyks. Þá sagði dr. Wynder að sum- ir sígarettuframleiðendur hefðu þegar náð góðum árangri á þessu sviði. Taldi hann að sumar síur (filt- ers), sem nú væru á mark- aðnum, drægju mjög úr skaðsemi reyksins. Ekki vildi hann þó nefna neinar sígarettutegundir í því sam bandi. Ummæli dr. Wynders eru í algjörri andstöðu við niður- stöður bandarísku vísinda- mannanefndarinnar, sem sagði að ekki væri sjáanlegt að síur hefðu nein áhrif til að draga úr hættunni af reykingum. — Hinsvegar hefur einn nefnd- armanna, dr. James M. Hund- ley, sagt í blaðaviðtali, að nefndin hafi ekki kannað nægi lega gagnsemi síanna, og geti því í rauninni ekki kveðið upp dóm um það mál. Wynder hefur um langt skeið unnið að krabbameins- rannsóknum, og er einn þeirra vísindamanna, sem tókst fyrst að skapa krabba- mein í músum með því að smyrja bak þeirra með „tjöru“ úr sígarettum. Hann segir að eftir birtingu vísindamanna- skýrslunnar sé tvennt nauð- synlegt. f fyrsta lagi frekari uppfræðsla almennings um Framh. á bls. 19 a mjög fundarstörfin Fyrir nefnd þessari lá tillaga frá fulltrúum Bretlands og Efnahagsríkjanna sex um sex mílna landhelgi og 12 mílna lögsögu, með undanþágum fyrir hefðbundnar veiðar út- Jendra fiskiskipa, innan ytri sex mílnanna. Norðurlöndin öll eru andvíg þessari tillögu, og neituðu að skipa fulltrúa í nefndina. Verða niðurstöður nefndarinnar lagðar fyrir allsherjarfund á morgun, en ólíklegt talið að þær hljóti stuðning allra þátttökuríkj- anna. Umræður um landhelgi og lög- sögu hafa dregizt meir á langinn en við var búizt, og stafar það af því að ísland og hin Norðurlönd- in hafa neitað að hvika í nokkru frá 12 mílna landhelgi sinni. En sendinefndir Norðurlandanna hafa óskað eftir nýjum fyrirmæl- um frá ríkisstjórnum sínum, og ættu þau að berast á morgun. í frétt frá Ósló segir að mál þetta hafi verið rætt í fiski- og utanríkismálanefndum þingsins. Er talið að Norðmenn séu fúsir til að gefa eitthvað eftir að því er varðar þann tíma, sem erlend fiskiskip njóta undanþágu til veiða innan ytri sex mílnanna, og að hugsanlega verði undan- þágurnar látnar gilda þremur til fjórum árum lengur, en um var samið. Staðan á ráðstefnunni virðist nú þanngi: Island: Afneitar algjörlega samningum um nokkuð annað en skilyrðislausa 12 mílna lögsögu. Noregur: Að mestu sammála ís landi. Danmörk: Fús að undirrita brezku tillöguna, ef undanþága um veiðar innan ytri sex míln- anna nær ekki til Færeyja og Grænlands. Svíþjóð: Hefur í rauninni ekk- ert út á brezku tillöguna að setja en neitar ef til vill að undirrita ef hin Norðurlöndin gera það. Sennilegast er að eftirtalin lönd undirriti brezku tillöguna: Bretland, Austurríki, Sviss, Spánn, Portúgal, Frakkland, V- Þýzkaland, Holland, Ítalía, Belgía og Luxembourg. Hugsanlegt er að írland undir- riti tillöguna, en ýmislegt bendir þó til þess að það standi með Norðurlöndunum. Framh. á bls. 2. Húsið hrundi, fjórtún fórust París, 15. jan. (NTB) TÓLF hæða fjölbýlishús, sem var í smíðum við Boulevard Lefevre í úthverfi Parísar á vinstri bökkum Signu, hrundi skyndilega í dag til grunna. Vitað er að minnst 14 bygginga- verkamenn biðu bana í rústun- um og 10 manna er saknað. • Utveggir hússinis voru fuill- steyptir og öill gólf nema það efsta, sem verið var að steypa þegar húsið hrundi méð ógnar gný, er barst langar leiðir. f hi inu unnu 30-40 menn. Notek: þeirra, sem unnu á neðri ha unum, gátu bjargað sér m því að stokteva út um glugga, flestir grófust þeir í brateii Ellefu hinna látnu létust í rú unum, en þrír eftir komuna sjúterahús. 16 menn aðrir lig{ þungt haldnir í sjúkrahúsum. Bkki er vitað um ástæðu fy: i hruni hússins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.