Morgunblaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 1
28 si«kir og Lesbók 51. árgangur 15. tbl. — Sunnudagur 19. janúar 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins ið Zanzibar“ BYltingmnni lokið — Karume enn forseti Zanzibar, 18. jan. (NTB—AP). í DAG lýsti talsmaður byltinga- stjórnarinnar í Zanzibar því yfir, að ríkið nefndist héðan í frá „Alþýðulýðveldið Zanzibar". Talsmaðurinn sagði, að bylting- in væri nú farsællega til lykta Soldáninn af Zanzibar Seyid Jamshid Bin Abdulla, leitaði { hælis í Tanganayika, er bylt- ingarmenn ráku hann frá völdum á dögunum. Hér sést soldáninn (sjötti frá hægri með hvítan hatt) ganga á land I Dar-Es-Salam ásamt fylgdarliði sínu. Á sunnudags- kvöldið heldur soldáninn til i London þar sem hann hefur ' fengið landvistarleyfi. \ Panama kallar heim sendi- menn sína í USA Washington, Panama City, 18. jan. (NTB). SKÝRT var frá því í morgun, Mótmælaaðgerðir við sendiráð Breta i Jakarta Skrifstofur sendiráðsins eru nú á heimili Gilchrists Djakarta, 18. jan. (NTB). 1 DAG efndu þúsundir stúdenta og skólafólks í Djakarta til mót- mælaaðgerða við sendiráð Breta í borginni. Var efnt til aðgerð- anna vegna þess að s.l. þriðju- dag skýrði varnarmálaráðherra Indónesíu, Nasution hershöfð- ingi, frá því að Bretar hefðu gert npptæk tvö indónesísk skip í Hong Kong. Brezka stjórnin hefur skýrt frá því að ummæli Nasutions eigi ekki við rök að styðjast. Sendiráð Breta í Jakarta er nú til húsa á heimili Andrews Gilehrists sendiherra. Voru skrifstofurnar fluttar á heimili Gilchrists eftir að Indónesíu- menn höfðu brennt skrifstofu- byggingu sendiráðsins til grunna s. 1. haust. Öflugur lögreglu og hervörð- ur var við sendiráð Breta, er stú dentarnir hófu mótmælaaðgerðir sínar og voru engin spjöll unnin á húsinu. Áður en stúdentarnir héldu til sendiráðs Breta, höfðu þeir skorað á stjórn Indónesíu að slíta stjórnmálasambandi við Breta, vísa öllum brezkum borg- urum úr landi og þjóðnýta eignir Breta í landinu. Frá sendiráði Breta héldu ung- mennin til sendiráðs Bandaríkj- anna, en þar var einnig öflugur hervörður. Hrópuðu ungmennin slagorð fyrir utan sendiráðið, for dæmdu hegðun Bandaríkja- manna í Panama og skoruðu á þau að kalla heim herskipin, sem eru við gæzlustörf á Ind- landshafi. að stjórn Panama hefði tilkynnt Bandaríkjastjórn, að hún hyggð ist kalla heim alla sendimenn sína í Bandaríkjunum. Einnig krafðist stjórn Panama þess, að allir bandariskir sendimenn í landinu færu á brott þaðan. Panamastjórn lagði hins vegar áherzlu á, að haldið yrði áfram viðræðum við Bandaríkjastjórn til þess að reyna að leysa deilu- málin, þó að stjórnmálasam- bandi hafi verið slitið. Panama- stjórn hefur beðið sendiráð Costa Rica að gæta hagsmuna Panamabúa í Bandaríkjunum. Panamastjórn skýrði frá því þegar í s.I. viku, að hún hefði í hyggju að slíta öllu stjórnmála sambandi við Bandaríkin, en formlega var því ekki slitið fyrr en í gærkvöldi. í morgun hermdu fregnir, að bandarískir sendimenn í Panama, fjölskyldur þeirra og einnig full- trúar friðarsveita Bandaríkj- anna, sem starfað hafa í Panama, væru komnir inn á svæðið, sem Bndaríkjamenn ráða yfir við Panamaskurð og myndu halda heimleiðis við fyrsta tækifæri. Sendinefndin, sem samtök Ameríkuríkja sendi til Panama í byrjun vikunnar til þess að reyna að miðla málum í deilu Panamabúa og Bandaríkja- manna lagði í gærkvöldi skýrslu fyrir fastaráð samtakanna í Was hington. Eftir að skýrslan hafði verið lögð fram sagði formaður sendinefndarinnar Enrique Tej- era Paris, að ástandið í Panama væri nú gott og allt með kyrrum kj örum. Fundur æðstu manna Indónesíu, Malaysíu og Filippseyja Tókío 18. jan. (NTB). SUBANDRÍO utanríkisráð- herra Indónesíu sagði í morg un, að Sukarnó, Indónesíu- 2—300 menn hafa látizt í óeirðum í A-Pakistan UNDANFARNA daga hafa verið óeirðir í Dacca, höfuðborg A.-Pakistan. — Þar hafa átzt við Múha- meðstrúarmenn og Hindú- ar og er haft eftir áreiðan- legum heimildum, að þetta séu alvarlegustu árekstrar, sem orðið hafa í borginni í tíu ár. Talið er að milli 200 og 300 menn hafi látizt í átökun- um. í dag var útgöngubann í Dacca og hersveitir eru á verði á götunum. Sjúkra- hús í Dacca eru full af særðu fólki og haft er eft- ir áreiðanlegum heimild- um, að brennd hafi verið til grunna nokkur þorp í nágrenni höfuðstaðarins. Öeirðirnar í Dacca hófust er 50 þús. Múhameðstrúar- menn komu til borgarinnar frá Vestur-Bengal og Kal- kutta í Indlandi. Höfðu menn þessir flúið tiil Austur-Paki- stan vegna þess að í brýnu slóg milli þeirra og Hindúa. Þegar flóttamennirnir komu til Daceam staðhæfðu þeir, að hafin væri ofsóknarher- ferð á hendur Múhameðstrú- armönnium í Indlandi. Vildu þeir hefna sín á Hindúum í Pakistan og óeirðimar hófust er þeir réðust á verzlanir indverskra Hindúa í Dacca, rændu þær og brenndu. Yfirvöldin í Dacoa hafa hótað óeirðaseggjunum þung- um refsingum og heitið því að vernda Hindúa í borginni. Talið er að mi'lli 300 og 400 menn hafi verið handteknir. Ayub Khan, forseti Paki- stan hefur skorað á stjórn Indlands, að stemma stigu við óeirðunum í Vestur-Bengal, og sikipað yfirvöldum í Aust- ur-Pakistan að koma þegar á firiði. forseti, og Robert Kennedy dómsmálaráðherra Banda- ríkjanna, hefðu komizt að samkomulagi um ýmis atriði varðandi væntanlegan fund æðstu manna Malaysíu, Indónesíu og Filippseyja. Sem kunnugt er kom Robert Kennedy til Tókío s.l. föstudag og ræddi þar við Sukarnó for- seta og Subandrío. í dag heldur Kennedy áleiðis til Seoul í S,- Kóreu. Kennedy og Subandrío héldu sameiginlegan fund með frétta- mönnum í morgtun. Kvaðst Subandrío telja ráðlegast, að ekki yrði tekin ákvörðun um fund æðstu manna Indónesíu, Malaysíu og Filippseyja, fyrr en Robert Kennedy hefði heimsótt höfuðborgir hinna tveggja síðar- nefndu og rætt við ráðamenn þar. Á fundinum kvaðst Robert Kennedy ánægður með að aðil- arnir í deilunni vegna Mailaysíu ætiluðu að setjast að samninga- borðinu og reyna að leysa hana á friðsamlegan hátt. Frá Seoul í S.-Kóreu iheldur Kennedy til Manila- og Kuala LfUimpur og ræðir við Maoapagal forseta Filippseyja og Abdui Rahman forseetisráðherra Mal- aysiu. leidd og óbreyttir borgarar, sem barizt hefðu fyrir núverandi stjórn hefðu fengið skipun um að skila lögreglunni vopnum sín- um. í morgun komu lögreglumenn frá Tanganayika til Zanzibar, þeir fyrstu af 300, sem stjórn Tanganyika hefur lofað bylting- ' arstjórninni til þess að aðstoða hana við að halda uppi lögum og reglu á eyjunni. Talsmaður stjórnar Zanzibar, ræddi við fréttamenn í dag. Sagði hann, að höfuðstöðvarnar, sem byltingarmenn settu upp í útvarpsstöðinni í Zanzibar, er byltingin hófst, hefðu verið yfir gefnar og innan skamms yrði komið á eðlilegu stjórnarfari 1 landinu. Talsmaðurinn bar til baka fregn, sem höfð var eftir útvarpinu í Zanzibar fyrir fáum dögum þess efnis, að John Okello „marskálkur" hefði vikið Abeid Karume forseta bylting- armanna úr embætti. Talsmaður inn kvað fregn þessa úr lausu lofti gripna, því enginn vafi léki á að stjórnartaumarnir væru enn í höndum Karume. Frh. á bls. 27 I „Aðeins heim- skingjar óttost ekki stríð“ — segir Krúsjeíf Moskvu, 18. jan. (NTB). KRÚSJEFF forsætisráðherra Sovétrikjanna hélt í gær- kvöldi ræðu fyrir verksmiðju fólk í Kalinin, eu þangað kom hann í fylgd með Castro for- sætisráðherra Kúbu. í morgun sögðu vestrænir fréttamenn í Moskvu, að í ræðu sinni hefði Krúsjeff gert óbeinar árásir á leiðtoga kin verska Alþýðulýðveldisins og stefnu þeirra bæði varðandi friðsamlega samúð og önnur mál. Krúsjeff lagði m.a. áherzlu á það í ræðu si"ni, að Kúbu- búar ættu að líta á Rússa en ekki Kínverja, sem sína beztu Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.