Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. júní 1964 fyrra sumar var 5.96 m. Einnig voru mælingar gerðar á mæliríga stönginni á Pálsfjalli. Svo sem áður hefur verið frá Slcýrt og birtar myndar af, er komið stórt ^prungusvæði hjá Pálsfjalli, upp af Síðujöklinum, sem hlaupið hefur fram í vetur. Sprungur liggja á leiðina, sem Jöklarannsóknarmenn fara á leið sinni úr Tungnaárbotnum til Grimsvatna. Fóru þeir því að þessu sinni 314 km. norðar en þeir éru vanir, en þurftu samt að kræ-kja fyrir smásprungur. Var sprungusvæði þetta kannað eftir föngum og reynt að af- marka það. Reiknaðist þeim svo ti! að um 400 ferkm. svæði sé á skriði í sambandi við Síðujökul, að því er Magnús sagði. Höfðu menn orðið varir við þessar sprungur í haust úr flugvél og birti Mbl. þá myndir af þeim, en Undir Griðarhomi í Grímsvötnum, sem nú hafa hækkað með íslagi um 11,7 m. á árinu, ng eru nú að nálgast það mark sem var 1959, þegar hlaup varff. Myndina tók Halldór Gislason, í fyrri viku. Síðujö'kullinn hljóp ekki fyrr en í vetur. Nú liggja nyrstu sprung- unar í aðeins 463 m. fjarlægð frá mælingastöng Jöklarann- sóknarfélagsins á Pálsfjalli. Þyrfti að ta'ka myndir af þessu svæði úr lofti til að fá yfirlit yfir það og gera kort. Leiðangurinn ók norður til Kverkfjalla í dýrðlegu veðri o^g útsýni og sá ýfir á sprungusvæð- ið á Brúarjökli. 241 taugaveikitilfelli í Aberdeen Vei1 innar einnig vart víðar. Umræður í brezlca þinginu í dag. Varúðarráð- staíanir 1 Bandaríkjunum Bílar úr vorleiðangri Jöklar annsóknarfélagsins í Grinvsvötn uni á Vatnajökli. Lengst til vinstri sjást skíði leiðangurs- manna aftan á einum snjóbílnum. Skotlandsíarar œttu að láta bólusetja sig MBL. ÁTTf í gær tal við Ben edikt Tómasson, skólayfirlækni, í skrifstofu landiæknisembættis- ins vegna taugaveikifaraidursins í Aberdeen og Glasgow í Skot- landi, en Benedikt gegnir nú störfum landlæknis, sem er er- lendis. Benedikt kvað engar ráðstaf- anir mundu gerðar hér, a.m.k. ekki fyrst um sinn. Þegar farald- Eyjabátar selja vel Vestmannaeyjum, 1. júní. TVEIR Vestmannaeyjabátar seldu i Skotlandi fyrir helgi. Vb. Eyjaberg seldi í Grimsby á fimmtudag tæp 30 tonn fyrir 3.134 sterlingspund, eða á 13 kr. hvert kig. Þykir þetta afbragðs- sala, ekki sízt þegar þess er gætt að áhöfnin var ekki nema hálfan sólarhring að veiða þennan afla. Aflinn var blandaður, en mest- megnis ýsa. Vb. Huginn seldi í Grimsby á miðvikudag rúm 80 tonn fyrir 7.700 steriingspund. Vb. Leó er nú á veiðum fyrir Bretlandsmarkað og mun sigla með aflann bexnt, eins og hin sktpio. | ur kæmi einhvers staðar upp, ; væri varúðarráðstafanir fyrst og ' fremst gerðar á pestarsvæðinu, j— í þessu tiifelli Bretlandi. Að sjálfsögðu mundu heilbrigðisyfir völd hér þó fylgjast með faraldr- . inum og útbreiðslu hans. Taugaveikin virðist hafa kom- , ið upp í Skofiandi við það, að . neytt vár ákveðinnar, niðursoð- innar fæðu. Mundu flestir sjúkl- ingarnir haía neytt hennar. Benedikt kvað þessa sjúklinga að vísu geta sýkt út frá sér, ef hrein lætis væri ekki gætt. Að lokum kvað Benedikt ráð- legt fyrir þá, sem ætluðu að fara til Skotlands á næstunni, að !áta bólusetja sig áður við taugaveiki. Umfcrðarslys BÍLSLYS varð skamnrft austan bseMrins Ingólfshvols í Ölfusi aðfaraótt sunnudags. Fólksibíll var þar á vesturleið og fimm manns í honum. Á blindbeygju neðan við nýbýlahverfið undir Irigólfsfjalli missti bílstjórinn vald á bílnum, svo að hann kast- aðist út af veginum og valt. Stúlka, sem í bílnum var, hent- ist út úr bílnum og lenti undir honum. Mun hún hafa slasast all- alvarlega. Fyrst var hún flutt í sjúkrahúsið á Selfossi, en síðan í sjúkrahús í ReykjaVík. Aberdeen, 1. júní (AP-NTB) SÍFELLT fjölgar taugaveiki- sjúklingum í Aberdeen. — I kvöld var vitað um 224 til- felli, en auk þess liggja 17 í sjúkrahúsi, sem einnig eru taldir hafa tekið sóttina. Þá hafa fyrstu taugaveikitil- fellin fundizt utan borgarinn- ar, þeirra á meðal 14 ára drengur í Glasgow. Talið hefur verið að tauga- veikina mætti rekja til niður- suðudósar með kjöti, sem flutt var til ,Bretlands fyrir 13 árum. Segja talsmenn heilbrigðisyfir- valdanna að engin sönnun hafi fengizt fyrir því. Á fundi borg- arstjómarinnai' í Aberdeen í dag gerði einn fulltrúanna fyrir- spurn um það hvort rekja man'iti sýkina til minnkandi hreinlætis á almenningssaleinum borgarinn ar vegna fækkunar starfsfólks að undanförnu. Var beilbrigðis- yfirvöldunuim falið að rannsaka þann möguleika. Jafnvel þótt fyrstu tilfellin hafi smitazt frá niðursoðna k’öt inu, hafa síðari sjúklingarnir bor ið sóttina út á annan hátt. NÝR FARALDUR ' Dr. Ian MacQueen, yfirmaður i heilbrigðismála í Abardeen, sagði nýlega að vonandi tækist að stöðva frekari útbreiðslu taugaveikinnar, og að meðan fjölgun sjúklinga færi ekki yfir 30 á dag, væri ekki um nýjan faraldur að ræða. Samkvæmt því er nú um nýjan faraldur að ræða, því því tilfellum hefur fjölgað um 64 í dag, ef með eru talin óstaðfest tilfelli. Yfirvöldin í Aberdeen geta ekki heft ferðir íbúanna, en dr. MacQueen hefur birt áskorun til ■ þeirra um að fara ekki út fyrir borgina. Engu að síður kvarta íbúar í nærliggjandi byggðarlög um yfir því að vegna minn.k- andi viðskipta komi jafmvel mat vörukaupmenn frá Aberdeen þangað til að selja vörur sínar. Hefur þetta víða vakið mikinn óhug í nágrenni við Aberdeen. | Va.rðandi G1 a sgo w -drenginn, sem tekið heíur sóttina, er ben.t I á að’ hann hafi eki haft sam- band við neina Aberdeenbúa, og því ekki talið að hann hafi sótt smitunina þangað. Enda kemur það ósjaldan fyrir í Glasgow um þetta leyti árs að taugaveiki skýtur upp kollinum. En oftast er aðeins um einstök tilfelli að ræða. Fyrr í dag var sagt að tveir sjóliðar af kafbátnum „Rorqual“, sem staddir voru í Glasgow, hefðu tekið taugaveik- ina. Komið er í ljós að hér var um misskilning að ræða. Sjólið- arnir þjáðust aðeins af venju- legri magaveiki. UMRÆÐUR í ÞINGINU í London er búizt við að tauga veikin í Aberdeen komi til um- ræðu í þinginu á morgun. í því sambandi áttu þeir Ghristopher | Soames, matvæla- og la.ndbúnað- arráðherra, og Michael Noble, Skotlandsmálaráðherra, viðræð- ur í dag. Mun Noble flytja Néðri málstofunni skýrslu um málið á morgun, en þá hefjast fundir þingsins að nýju eftir vorleyfi. | Er talið að ríkisstjórnin verði fyrir miklum árásum í þinginu vegna þessa máls. Tilkynnt var I Washington ! dag að fylgzt yrði með öllum ferðamönnum, sem koma til Bandaríkjanna og hugsanlegt er að hafi getað smitazt af sjúkling um í Aberdeen. Ferðamenn til Bandaríkjanna eru ekki krafðir um bólusetningarvottorð gegn taugaveiki, en heil'brigðisyfirvöld in fylgjast venjulega með ferðum þeirra, sem koma frá landssvæð um þar sem sóttarinnar hefur orðið vart. Er heilbrigðisyfirvöld um á áfangastað þessara fereða- manna gert aðvart, og ferða- mönnunum fyrirskipað að leita tafariaust læknis ef eitthvað amar að. K;artan Thors .* endurkosinn for- maður V.S.Í. FULLSKIPUÐ stjórn Vinnm cit endasambands Islands kom sam- an á fund í gærmorgun. en hana skipa 39 menn. Formaður var endurkosinn Kjartan Thors og varaformaður Guðmundur Vil- hjálmsson. Aðrir í framkvæmda nefnd voru endurkjörnir, þeir Benedikt Gröndal, Ingvar Vil- hjálmssoh og Jón H. Bergs. I o NA /S hnótar Lr SVSOAnútsr X SnjHomt ! V Shúrír » Oi: i - ÞraiBur H Hmt l L L 1 101 o /ooo 1020 í GÆR var vindur hægur og sólskin norðaniands og Vest- an, en A-stinningskaldi og skúrir við S-ströndina. Hlýj- ast var 13 stig á Akureyri um nónbilið; kaldast 4 stig á Daia tanga. Hæðin yfir íslandi og hat- inu umhverfis færist lítið úr stað, svo að búast má við breytilegri átt og góðviðri næstu dægrin. LEIDANGRI Jöklarannsókna- félagsins á Vatnajökul er lokið og komu leiðangúrsmenn í bæ- inn um helgina eftir 8 daga ferð. Höfðu þeir fengið sólskin og logn allan tímann, engar tafir haft. í leiðangrinum voru 12 menn undir fararstjórn Gunnars Guðmundssonar. Mælingar voru gerðar á jökl- inum að vehju. Reyndust Gríms- vötnin hafa hækkað um 11,72 m. að því *er Magnús Jóhannsson tjáði blaðinu, og telst honum svo til að ekki vanti nemá 3—4 m. upp að marki því sem var •komið haustið 1959, en þá um veturinn varð hlaup í Gríms- vötnum. Mælingastöngin í Grímsvötn- um hafði farið í vetrarveðrunum, e« með gryfjugrefti fannst að snjólagið á jöklinum frá því i Þurftu að krækja fyrir sprungubelt- ið við Pálsfjall Líklega 400 ferkm. sprungusvæði upp af Síðujökli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.