Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 28
ÍELEKTROLUX UMBOÐIÐ 'iAUGAVCGI ffiími 21800 121. tbl. — Þriðjudagnr 2. júní 1964 = Verið að landa úr bv. Hvalfelli í gær. (Ljósm.: Sv. Þ.) = Fullfermi á 12 dögum |„Eigum að nýta landhelgina betur með togurunum" segir skipstjórinn á bv. Hvalíelli TOGARINN Hvalfell kom til Reykjavíkur á sunnudags- kvöld með fullfermi frá Aust- ur-Grænlandsmiðum, eða um 270 tonn. Mbl. náði snöggvast í skip- stjórann, Guðbjörn Jensson, í gær og spurði hann um veiði- ferðina. Sagðist honum svo frá: — Þetta var sérstaklega góð ur túr. Við vorum tólf daga í honum og fengum þetta allt á er mjög góður, og hann var einstaklega auðfenginn, en það er ekki oft um þessar mundir, sem togarar fylla sig á svona skömmum tíma. Ekki dregur það úr, að þetta er gæðafiskur.- — Um 70—80 tonn er þorsk- ur, en hitt karfi af ágætri stærð. Við fylltum sem sagt skipið og vorum með 15 tonn á dekki. Nokkur fleiri skip voru komin á staðinn, þegar við fórum. — Rúmur mánuður er síðan skipið kom úr klössun, og hef- ur hásethluturinn verið um 17 þús. kr. — Svona túrar minna okkur á, að við megum ekki gefa tog- arana frá okkur, þessi stóru atvinnutæki. Hvalfellið getur enn staðið fyrir sínu, þótt það sé síðan 1947. Við eigum að nýta landhelgina betur með togurunum. Við þurfum ekki endilega að komast inn í „Bugtina" (Faxaflóa), en með betri nýtni landhelginnar geta togararnir sýnt, hvað þeir geta. Þá þyrftum við jafnvel ekki að kaupa svona marga nýja báta. = Anton Dorn-banka. Fiskurinn ...............................................mmmmmmmmmmmi.......mmmmmmmmmmmmmmfi Síldarbræðslurnar tilbúnar að taka víðast á móti Undirbúningur í síldarhöfnum á Norður- og Austurlandi í fullum gangi MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við fréttaritara sina í nokkrum sildarhöfnum á Norður- og Austurlandi til að forvitnast um, hvernig undirbúningur gangi fyrir síldarvertíðina. Frásagnir þeirra fara hér á eftir: Xlfc Siglufjörður: — Ahliða undir- búningur hófst fyrir nokkru hjá Síldarverksmiðjum ríkisins og Rauðku og eru þær tilbúnar til að taka móti í bræðslu nú þegar. Söltunarstöðvarnar verða um 20 hér í sumar eða svipað og ver- ið hefur. Mikill spenningur er í fólki og virðisC fólk sjaldan hafa gert sér jafnmiklar vonir um gott sumar og nú, hvað sem á daginn kann að koma. Sfldarleitin hér er ekki tekin til starfa, en undirbúningi mun iokið. — Stefán. *0Þ Daivík: — Undirbúningur fyrir síldveiðarnar er í fullum gangi, ekki sízt eftir að fréttist um afla Heiga Flóventssonar. Þrjú síldar- plön verða starfrækt hér i sumar, eða jafnmörg og í fyrra. Átta skip verða gerð héðan út til síldveiða og fara þau út upp úr næstu heigi. — Kári. Seyðisfjörður: — Síldarbræðsl- an hér er tilbúin til að taka á móti síld, en hún bræðir 5 þús- und mál á sólarhring. Hún var endurbætt og lagfærð í vetur. Níu söltunarstöðvar verða hér í sumar, einni fleira en í fyrra. Er það stöð Fiskiðjunnar hf. Fjórir bátar verða gerðir út héðan til síldveiða og fara þeir út eftir næstu heigi. Allur undirbúningur er í fuilum gangi. Grískt skip losar hér sykur og salt og norska leitarskipið G. O. Sars kom hér í dag til að taka vatn og vistir. — Fréttaritari. Raufarhöfn: — Sildarverksmiðj ur rikisins hér eru þegar tilbún- ar til að taka á móti síld og er von á fyrsta farminum í nótt með Jóni Kjartanssyni frá Eskifirði, sem hefur verið að kasta í dag um 75 mílur norð-austur af Langanesi. Unnið hefur verið að undirbún- ingi hjá söltunarstöðvunum, sem verða í sumar a.m.k. 8 talsins. Verið er að-fullgera tvær nýjar stöðvar, Björg hf. og Síld hf. Hvítanes kom hingað í gær frá Noregi með 17 þúsund tunnur, salt og sykur. Er verið að afskipa í dag. — Einar. Neskaupstaður: — Unnið hefur verið af fullum krafti að undir- búa síldarverksmiðjuna fyrir síld armóttöku og er hún þegar til- búin. Smíðaðir hafa verið pallar til að setja mjölpokana beint á og mun það spara mikið fé og mannafla í sumar. Söltunarstöðvarnar verða fimm í sumar, Sæsilfur, Drífa, Máni, Ás og Nípa, sem er ný stöð, eign Jóns Helgasonar, rafstöðvarstjóra á Egilsstöðum o. fl. Nú er verið að vinna að undirbúningi hjá sölt unarstöðvunum. Átta bátar verða gerðir út héð- an í sumar á síldveiðar og verða þeir fyrstu tilbúnir um næstu helgi. — Ásgeir. Fyrsta síldin til Húsa- víkur í gærkvöldi VB. Helgi Flóventsson kom með fyrstu Norðurlandssíld sumars- ins, 900 tunnur, til Húsavíkur kl. hálfníu í gærkvöldi. Fréttaritari Mbl. á Húsavík átti þá samtal við skipstjórann, Hreiðar Bjarnason, og sagðist honum svo frá: — Síldina fengum við um 80 sjómilur austur undan Langanesi. Hún er bæði stór og falleg, en vont var að eiga við hana, því að hún var stygg. Sjávarkuldi var feikimikill, eða 2—4 stig við yfir- borðið. — Við köstuðum níu sinnum og fengum sildina í tveimur köst- um, 500 tunnur í því fyrra, en 400 í því síðara. — Við sáum síld vaða þarna úti, en urðum einskis varir á heimléiðinni. Við fengum hríðar- hraglanda, þegar við háfuðum seinna kastið, og hríð á leiðinni til lands. — Vb. Jón Kjartansson frá Eskifirði var kominn á sama stað. Hann fékk líka 900 tunnur í tveimur köstum, 500 400, og mun sennilega fara með hana til Eskifjarðar. Hann fékk síldina í dag og kvöld, en við í (sunnudag) og gærkvöldi. gær Taka aðilar afstöðu í dag? FYRIR helgi sendi ríkisstjórn in fulltrúum deiluadilja í kjaramálum, vinnuveitendum og verkalýðshreyfingunni, frumdrög að hugmyndum rík isstjórnarinnar um lausn kjaramálanna. Hafa aðiljar haft frumdrögin til athugun- ar á fundum, hverir í sínu lagi, og eins munu þeir hal'a gengið á fund ríkisstjórnar- innar og rætt þau við hana. Ekki er talið ólíklegt, að í dag taki málsaðiljar afstöðu til þessara frumdraga. Stúlku bjargað úsr Akureyrarhöfn Akureyri, 1. júní: — MIKIL ölvun var hér í bænum um helgina, og komu þar bæði við sögu bæjarbúar og aðkomu- fólk. Átti lögreglan óvenju ann- ríkt af þeim sökum. Skemmdarverk voru unnin á nokkrum bílum, brotnar loftnets stengur og rúður, handföng snú- in sundur og bilarnir dældaðir. Um miðnætti á laugardags- kvöld sá Gústav Júlíusson, starfs Somningafundirnir: Nikkurl sum- komulug núðist KL. TVÖ aðfaranótt mánudags lauk samningafundi fulltrúa verkalýðsfélaga á Norður- og Austurlandi og fulltrúa vinnu- veitenda. Þokaðist talsvert í átt- ina til samkomulags á þeim fundi. Náðist samkomulag um ákvæðisvinnutaxta í síldarvinnu og um kauptrygginguna á síldar- vertiðinni, sem nú fer í hönd,! þ. e. fyrir landaverkafólk. Fundur átti að hefjast aftur kl.' 14 í gær, en vegna viðræðna um : frumdröig rikisstjórnarinnar, | sem sikýrt er frá. hér annars stað- ar, frestaðist fundurinn tit kl. ‘ 20.30 Hófst hann þá og stóð enn kl. hálf eitt i nótt. Barn í lífshúska vegna inntöku eiturs Á FÖSTUD AGSK V ÖLD vildi það óhapp til norður á Hvamms- tanga, að tveggja ára gamalt barn saup á eiturglasi. Eitur þetta er svo sterkt, að 8 milli- grömm nægja til þess að drepa fullorðinn mann, en barnið mun hafa sopið gúlsopa. Sem betnr fer, var þegar í stað tekið eftir þessu og«læknir sóttur, en barn- ið missti >meðvitund þremur mín útum eftir að það • saup á. Hér aðslæknirinn, Þórarinn Ólafs- son, fór tafarlaust að dæla upp úr barninu, og flugvél frá Birni Pálssyni var send í snarhasti norður. Var síðan flogið með barnið suður. Læknirinn fylgd- ist með og hélt áfram að dæla upp úr því. Tókst það svo vel, að barnið var raknað við áður en til Reykjavíkur jiom. — Barn ið er á batavegi, en þó ekki enn talið úr lifshættu. maður hjá Skeljungi h.f., sem átti leið um hafnarbakkann í bíl sínum, að unglingsstúlka lagðist til sunds norðan við Torfunefs- bryggjurnar, alklædd, meii-a að segja í kápu. Steig hann þegar út úr bíl sínum, kallaði til henn- ar og bað hana snúa til lands. Þverneitaði hún því og fjar- lægðist land, þegar hann gerði sig líklegan til að sækja hana. Hljóp hann þá í síma til að kveðja lögregluna til og kom brátt aftur á staðinn. Var stúlk- an þá komin upp í flæðarmálið á uppfyllingunni sunnan við B. S. O. og lá þar meðvitundar- laus, hálf í sjó og hálf á þurru. Bar Gústav stúlkuna upp í bíl sinn og hlúði að henni, en í þeim svifum kom lögreglan að og flutti hana í sjúkrahús. Annar lög- reglumannanna í bílnum hóf þeg ar lífgunartilraunir með blásturs aðferð á leiðinni þangað, og báru þær brátt árangur. Þetta var utanbæjarstúlka, aðeins 17 ára, og reyndist hafa verið mjög ölvuð. — Sv. P. Hljómsveitor- \ st;ÓTÍnn fór með söng- meynni ÞEGAR ungverska „príma- donnan" í Sardasfurstynjunni | fór heimleiðis í gær, fór ung- V verski hljómsveitarstjórinn og í leikstjórinn með henni. Söng- 7 konan og leikstjórinn voru \ bæði við sýningu Þjóðleik- hússins á sunnudagskvöld. Næsta sýning verður á mið- vikudagsk völd, og tekur þá Eygló Viktorsdóttir við hlut- verki útlendu söngkonunnar. en Ragnar Björnsson mun að öllum likindum annast hljóm- sveitarstjórn, eftir þvi sem Mbl. frétti í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.