Morgunblaðið - 30.06.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.06.1964, Blaðsíða 1
28 siður 51 árgangur 149. tbl. — Þriðjudagur 30. júní 1964 Prentsniiðja Mcrgunblaðsins Prins Philip, hertogi af Edinborg, og Elizabet drottning er hertoginn var í þann veginn að leggja af stað í íslandsförina, frá Lossiemouth i Skotlandi. Myndin var tekin um borð í bátn- um, sem flutti hann um borð í Brittania. — Símamynd: Sco tti&h Daily Mail. iimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiimiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiu Aðeins einn sovéskur fáni á lofti í Oslo — er Krúsjeff fór um borgina í gær — Skap hans fer eftir veðri, segja fréttamenn * Einkaskeyti til Morgunbl. Osló, 29. júní — Skúli Skúlason. HEIMSÓKN Krúsjeffs, for- sætisráðherra Sovétríkjanna til Noregs, hefur gengið eftir áætlun hingað til. Er Krús- jeff steig á land í Osló, höfðu um 3000 manns tekið' sér stöðu að baki sérstakri girðingu, sem komið hafði verið upp. Strangt eftirlit var haft með öllum, sem nærri komu for- sætisráðherranum og fylgdar Xiði hans, og hafði fjöldi lög- reglumanna verið kvaddur til, til að gæta þess, að etfir öil- um öryggisreglum væri farið. Sérstakt eftirlit var haft með fréttamönum, sem fengu að fylgjast með þvi úr nálægð er Einar Gerhardsen, forsætis ráðherra, heilsaði Krúsjeff. — Bryg'gjan, þar sem hann steig á land, hafði verið sérstaklega skreytt í tilefni komunnar. Eftir landgönguna voru haldnar margar ræður, mun fleiri, en gert hafði verið ráð fyrir, og frú Krúséff voru færð blóm. Þá lék herhljóm- sveit „Internationalinn“, en síðan var norski þjóðsöngur- inn leikinn. Gestirnir virtu't mjög ánægðir með móttökuin ar, og Krúsjeff veifaði ákaft til fólksins. Er forsætisráðherrann gekk til sovézka sendiráðsins kváðu við húrrahróp. Síðan hittu gestirnir erlenda sendimenn að máli, en að þeim fundi loknum var haldið til norska stórþingsins. Þar tók Lang- helle, þingforseti, á móti gest unum erlendu. Við stríðsminnismerkið við Akershus lagði Krúsjeff blóm Framhald á bls. 27 llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHU Styður USSR Kína ekki í styrjöld? Sovézka stjórnin lét í dag að því liggja, að hún muni ekki leggja Pekingstjórninni lið með kjarnorkuvopnum, hefji Alþýðulýðveldið Kína styrjöld. Ummælin komu fram, eftir margháttaðar yfirlýsingar af sovézkri hálfu, þar sem segir, að „andstyggileg and-sovézk afstaða“ kunni að draga úr 4- Helmsókn hertogans af Edinborg hefst í dag Hann leggur að landi við Loftsbryggju kl. 5 síðdegis ★ t DAG, kl. 5 síðdegis, hefst íslandsheimsókn Philips pr.ns, hertogans af Edinborg, eiginmanns Elisabetar Englands órottningar. Mun hann dveljast hérlendis í þrjá daga í boði forseta íslands, herra Ásgeirs Ásgoirssonar., -Á Varðskipið „Óðinn“ tekur á móti Konungssnekkjunni rBritannia“ í Faxaflóa og fylgir henni til Reykjavíkur. Verð- wr komið á ytri höfnina um kl. 4.30 og kl. 5 kemur hertoginn í land við Loftsbryggju. Þar taka á móti honum forseti ís- llands, herra Ásgeir Ásgeirsson; Bjarni Benediktsson. forsæt- iisráðherra og Guðmundur í. Guðmundsson, utanríkisráð- herra, auk annarra — en þaðan verður ekið rakleiðts til AI- þingishússins, þar sem stutt mótökuathöfn fer fram. ★ Á miðvikudag fer hertoginn til Þingvalla og tim Uxahryggi í Norðurárdal, þar sem hann rennir fyrir lax. Þiiðan. fer hann flugleiðis til Akureyrar og síðar um kvöldið að Mývatni. Þar dvelzt hertoginn þar til síðdegis á fimmtu- dag er hann fer aftur flugleiðis til Reykjavíkur. Á föstudags- morgun verður hann í Reykjavík — mun litast um í borginni sækja heim hrezka sendiráðið og Þjóðminjasafnið, og e.t.v. fleiri staði, ef tími vinnst til. En kl. 12 á hádegi leggur hann af stað heimleiðis frá Reykjavíkurflugvelli. -jt Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar virðist út- lit fyrir, að hertoginn fái að sjá Akureyri og Mývatn í björtu og góðu veðri. Er spáð, að veður verði svipað og verið hefur sunnanlands og vestan; suðvestanátt, skýjað en úrkomulítið. Ilinsvegar muni veður hatna mjög. er norðar dregur og aust- ar — má búast við, að þurrt verði og léttskýjað á svæðinu milli Akureyrar og Egilsstaða. Hertoginn lagði upp frá Lossi- emouth í Skotlandi s.l. laugar- dag kl. fjögur síðdegis, að stað- artima. Kona hans, drottningin, kom um borð í konungssnekkj- una „Britannia" nokkru fyrir hádegið ásanjt syni þeirra, Charl es prins, og snæddu þau hádegis- verð með hertoganum. Charles prins stundar nám í Gordons- toun skólanum, skammt frá Lossiemouth en mun næstu daga dveljast með móður sinni í orlofi í Skotlandi. Höfnin í Lossiemouth var fán- um prýdd og fjöldi fólks, meðal annars margt ferðamanna, hafði safnazt saman á hafnarbakkan- um. Margir klifruðu um borð í Framhald á bis. 2 vilja Sovétríkjanna til að verja Kína. Það var varautanríkisráð- herra Sovétríkjanna, Valerian Zorin, sem túlkaði þessa af- stöðu í stjórnarblaðinu „Iz- vestia“. Zorin vék sérstaklega að yfir- lýsingu sovézku stjórnarinnar, stm gefin var 21. september sl. Ein setning — sem lítill gaunvur var gefin á þeim tíma — segir, að Kína verði að treysta á eigin kjarnorkuher, ef stjórn þess hvggist fylgja eftir þeim stefnu- málum, sem önnur sósialisk riki geta ekki sjálf fylgt eftir með herafli. Frá því að þetta var ritað hafa Sovétrikin ásakað Kína fyrir slík ar aðgerðir. Grein Zorins víkur að mis- munandi skoðunum Moskvu og Peking á afvopnun, og þar er endurtekin sú gagnrýni sovézku stjórnarinnar, sem víkur að vilja kinverskra ráðamanna til að eignast kjarnorkuvopn. Vikið er að þeirri hugmynd Pekingsstjórnarinnar að eignast kjarnorkuvopn, og um hana sagt, að „öryggi Kína sé tryggt“, nema því aðeins, að Kínverjar hafi í hyggju einhverjar þær aðgerðir, sem sósíalistaríkin geti ekki stutt með herafli. „. . . . en aðeins þeir, sem hafna alþjóðastefnu öreiganna, þeir sem víkja frá meginstefnu sósíalista í utanríkismálum, þeir sem vilja ekkert hafa með stefnu Lenins — friðsamlega sambúð, geta átt sér slíkt stefnumál", seg- ir Zorin. Zorin lýsti því loks yfir, að viiji Pekingstjórnarinnar til að kjarraorkuvæðast sé í beiniu sam- bsndi við „frávik" hennar firá helztu stefnumálum kommún- istahreyfingarinnar".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.