Morgunblaðið - 05.01.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.1965, Blaðsíða 1
28 síður Malaysía eflir varnirnar, þar eð Indónesia hyggst segja sig úr SÞ Göngum ef til vill í samtökin, þegar kjörtímabil It/fialaysíu rennur út, segir talsnraður Indónesíu Ólafur Xhors Útför Ólafs Thors gerð frá Dómkirkjunni í dag Kuala Lumpur, New York, f ÍDjakarta, 4. janúar. # Stjórn Malaysíu kom saman til sikymlifundar í dag: og að hon- Wm loknum skýrði forsætisráð- herra landsins, Abdul Rahman, frá því, að varnir landsins yrðu cfldar vegna hins hættulega á- Btands, sem skapazt hefði, eftir að Indónesíumenn lýstu því yfir *ð þcir ætluðu að segja sig úr Sameinuðu þjóðunum, vegna |»ess að fulltrúi Malaysíu var kjörinn í Öryggisráð samtak- BJina. # Ekki hafa Indónesíumenn ennþá sagt sig formlega úr SÞ, ®g í aðalstöðvum samtakanna er litið svo á, að þeir séu aðilar að London, 4. jan. — (NTB) BREZKA stórskáldið T. S. Eliot lézt í kvöld á heimili *ínu í London, 76 ára að aldri. T. S. Eliot Eliot var fæddur í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum, en forfeður hans fluttust til 800 þús. til A.-Berlínar um jóiin Berlín, 4. jan. (NTB). BÉMEF.GA 800 þús. V.-Berlín- arbúar heimsóttu ættingja sína í A.-Berlín um jólin og áramót- In. Berlínarmúrinn var opnaður fyrir slíkar heimsóknir 19. des. e.l., en allir, sem fengu að fara Inn í A.-Berlín, þurftu að hafa eérstök vegabréf. Hver maður mátti dveljast fyrir austan múr- iim einn sólarhring i senn og ffara þangaff tvisvar á timabil- inu frá 19. des. til 3. jan., en þá var múrnum lokað á ný. Verð nr hann ekki opnaður aftur fyrr en um páska og verður þá opinn I bálfan noánuð þeim, þar til borizt hafi skrifleg úrsögn. # Talsmaður Indónesíu hjá SÞ sagði í dag, að Indónesíumenn væru staðráðnir í að falla ekki frá ákvörðuninni um að segja sig úr samtökunum, en hugsanlegt væri, að þeir gengju í þau aftur, er kjörtimabil fulltrúa Malaysíu í Öryggisráðinu rynni út eftir ár. • Bretar senda nú aukinn liðs- styrk til Malaysíu samkvæmt samningi, sem gerður var í ágúst, og Ástralíustjórn hefur ákveðið að flýta umræðum um aukna hernaðaraðstoð við Malaysíu, vegna ástandsins, sem skapazt hefur. Að afloknum skyndifundi Bandaríkjanna frá Englandi á 17. öld. Eliot nam heim- speki og málvísindi við Har- vard-háskóla, Sorbonne-há- skóla og háskólann í Oxford. Hann settist að í Bretlandi 1914 og varð brezkur ríkis- borgari 1927. Að loknu nánfi starfaði Eliot sem kennari í London, en síðar hóf hann störf í Lloyds hanka. Frístundir sínar notaði hann til að yrkja og skrifa bókmenntaritgerðir. 1915 birtist fyrsta ljóðið eftir Eliot „The Love Song of J. Alfred Prufrock“ og vakti mikla athygli. Frægast verka hans er ..The Waste Land.“ Eliot hlaut hókmenntaverð- laun Nóbels 1948. Sjá grein um Eliot inni í hlaðinu. Malaysíustjórnar í dag, lýsti Ab- dul Rahman, forsætisráðherra, því yfir, að svo gæti farið, ,að stjórnin bæði SÞ um aðstoð til þess að hamla gegn yfirgangi Indónesíumanna. Hann skýrði frá því að stjórnin hefði samþykkt áætlun í fjórum liðum á fundi sínum og væri hún, sem hér seg- ir: 1) Að biðja bandamenn Malay síu um að rannsaka ástandið ná- kvæmlega og senda aukinn her- styrk, ef nauðsyn bæri til. 2) Að skýra SÞ frá hve mikil hætta Malaysíu stafaði af Indó- nesíumönnum og árásum þeirra, sem yrðu æ tíðari, og biðja sam- tökin um aðstoð, yrði það nauð- synlegt. 3) Að kalla fleiri menn til her þjónustu og koma á fót fleiri þjálfunarstöðvum í landinu. 4) Að undirbúa gagnaðgerðir, sem gætu orðið nauðsynlegar til að tryggja framtíð landsins. Ef Indónesíumenn gera alvðru úr að segja sig úr SÞ, eru þeir fyrsta þjóðin, sem það gerir frá stofnun samtakanna. Talsmaður Indónesíu sagði í gær, að Indó- nesíumenn litu ekki á sig sem aðila að SÞ og teldu ákvarðanir samtakanna ekki bindandi. Framh. á bls. 27 ÚTFÖR Ólafs Thors, fyrrum for sætisráðherra, verður gcrð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, og hefst athöfnin kl. 1,30. — I í Morgunblaðinu í dag er hins I látna leiðtoga og stjórnmála- skörungs minnst, m.a. í ritstjórn- argreininni „Leiðtogi kvaddur", en affalgreinina skrifar dr. Bjarni Benediktsson forsætisráffherra, formaffur Sjálfstæðisflokksins. Aðrir sem.skrifa kveðjuorð og minningar um Ólaf Thors í blaðið í dag eru: Árni Grétar Finnsson, formaður Sambands ungra Sjálf stæffismanna; Björgvin Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambands íslands; Einar Halldórsson, bóndi, Setbergi; — Friðleifur I. Friðriksson, vörubif reiðarstjóri; Geir Hallgrímsson, borgarstjóri; Gísli Jónsson, fyrrv. alþingismaður; Gunnar Gunnars- son, rithöfundur'; Gunnar Helga- son, formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins; ' Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra; dr. Halldór Hansen yfirlæknir; Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ og formaður Alþýðubanda- lagsins; Jóhann Hafstein, dóms- málaráðherra; Jón Ásbjörnsson, fyrrv. hæstaréttardómari; Jón Pálmason, Akri, fyrrv. alþingis- forseti; Jón Sigurðsson, Reyni- stað, fyrrv. aliþingismaður; María Maaek, formaður Sjálfstæðis- kvennafél. Hvatar; Matthias Á. Mathíesen, alþingismaður; Odd- ur Andrésson, bóndi Neðra Hálsi; Ólafur Bjarnason, bóndi, Brautar holti; dr. Páil ísólfsson, tónskáld; Pálmi Einarsson, landnámsstjóri; Pétur Ottesen fyrrv. alþingismað ur; Pétur Sigurðsson, formaður Sjómarmadagsráðs, Sigurður Hall dórsson, Akranesi; dr. Sigurðu Nordal, prófessor; Steingrímur Steinþórsson, fyrrum forsætisráð herra; Steini Guðmundsson, bóndi, Valdastöðum; Stvrmir Gunnarsson, formaður FUS Heim dallar; Sverrir Júlíusson, form. Landssambands ísl. útvegsmanna og frú Vigdís Jakobsdóttir, Kefia vík. Ólafur Thors var fæddur hinn 19. janúar 1892 í Borgarnesi, son- ur hjónanna Thor Jensens, kaup- manns þar og síðar stórútgerðar- manns og bónda á Korpúlsstöð- um og Lágafelli, og Margrétar Þorbjargar Kristjánsdóttur fró Hraunhöfn í Staðarsveit á Snæ- fellsnesi. Ólafur Thors kvæntist eftirlifandi konu sinni Ingibjörgu Indriðadóttur 1915, og eignuðust þau 5 börn, og eru 4 þeirra á lífi. Þau eru: Marta, gift Pétri Benediktssyni, bankastjóra; Thor v framkv.stjóri íslenzkra Aðalverk taka s.f., kvæntur Stefaníu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Jónssonar frá Galtafelli; Ingi- björg, gift Þorsteini Gíslasyni, framkv.stjóra SH í New York, Jónssonar fyrrum alþingismanns, og Margrét, gift Þorsteini Jóns- syni, flugstjóra, syni Snæhjarnar bóksala Jónssonar. Son misstu Iþau hjón, Thor að nafni, og iézt hann þegar hann var 4ra ára Framhald á bls. 2 Yfir 60 létust |er kirkja hrundi Mexikóborg 4. jan. (NTB) SKÝRT var frá því í nött, aff minnsta kosti 61 maffur hefði látiff lífiff, er kirkja hrundi í bænufn Rijo í Peublariki í Mexikó í gær. Ekki er kunnugt um orsa'k- ir slv-sis þessa ,en það varð, meðan verið var að vígja kirkjuna, sem var nýibyggð. Lögreglan rannsakar nú rnálið og beinist rannsóknin tfycrst og fremst að bróður prestsins. Hann stá um bygg- ingu kirkjunnar, en hefur ekki réttindi, sem bygginigameisf- ari. Hann var etkki í kirkj- unni, er þakið hrundi. Daginn áður en slysið varð voru fjar- iægðir biáðil’oirg'ðaistólpar, sem studdu þakið. Presturinn var meðai! þeirra sem létust er þak kirkjunnar hrundi. Talið er að um 35 menn hafi slazast alvarlega. Ekki er vitað nákvæmileiga hve margir voru- í kirkjunni, talið a'ð það hafi verið hátt annað hundrað manns. Björgunarsveitir voru send- ar til Rijo frá Mexikóborg, um 160 km. vegalengd, til þess að bjarga mönmum úr kirkjurúst unum. Óttast er, að enn séu nokkrir gratfnir undir þakinu og lítil von er taJin um, þeir séu á iífi. en á að T. S. Eliot látinn r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.