Morgunblaðið - 24.01.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.01.1965, Blaðsíða 1
32 síður og Lesbok Michael Stewart, sem tók við embætti utanríkisráðherra í Bret landi í gær. Bækur brenndar, rúður brotn- air hjá upplýsingaþjónustu Bandaiiíkjanna Saigon, 23. jan. (AP). SÍÐDEGIS í dag kom til mikilla óeirða búddista í borg inni Hué, um 650 km. fyrir norðan Saigon. Um þrjú þús. þeirra söfnuðust saman fyrir framan hús bandarísku upp- lýsingaþjónustunnar og báru spjöld með áletruðum slagorð um gegn ríkisstjórninni í Suð ur-Vietnam og gegn Maxwell Taylor, sendiherra Bandaríkj Komst til meðvitundar anna. Ruddust svo nokkrir úr hópnum inn í húsið, brutu hverja einustu gluggarúðu og brenndu um helming allra bóka í safni stofnunarinnar. Enginn af starfsmönnum upp- lýsingaþjónustunnar eða banda- rísku ræðismannsskrifstofunnar í Hué varð fyrir meiðslum, en hús- ið er mjög illa útleikið og marg- ar verðmætar bækur voru eyði- lagðar. Ræðismaður Bandaríkj- anna í Hué, Samuel Thompson, sagði í símtali við AP-fréttastof- una, að hann teldi að fáir úr mannfjöldanum hafi tekið þátt í skemmtdarstarfseminni. Hafi flestir verið farnir á brott þegar skemmdarverkin voru unnin, að- eins um 100 manns eftir. Michael Stewart: Ahrifum Breta beitt Vietnam Sjónarvottar segja að lögregl- an í Hué hafi lítið haft sig í frammi við að hindra aðförina að húsi upplýsingaþjónustunnah Herstjórnin í Mið-Vietnam, Ngu- yen Chanh Thi, herforingi, var Staddur í Saigon þegar árásin var gerð, en hann hefur yfir- stjórn lögreglumála á þessu svæði. Bækurnar voru allar brenndar ínni í húsi upplýsingaþjónust- unnar, og munu skemmdarvarg- arnir hafa haft bensín meðferðis svo að bækurnar loguðu betur. Tjónið hefur enn ekki verið met- ið til fjár. Mikið hefur verið um óeirðir í Hué undanfarna daga. Síðast í gær kom til óeirða við hús upplýsingaþjónustunnar þar, og voru þá brotnar rúður í sýning- argluggum hússins. Einnig komu fulltrúar búddista á fund banda- ríska ræðismannsins og afhentu honum bréf til Johnsons forseta þar sem þess er krafizt að Banda ríkjamenn hætti aðstoð við Huong-st j órnina. -<S> Síðasti dansinn. Mynd þessi var var tekinn á dansleik í Washing- ton s.l. miðvikudagskvöld eftir að Lyndon B. Johnson hafði svar- ið embættiseið sinn. lengi þátt í stjórnmálalífinu að ekkert kæmi sér lengur á óvart. Hann kvaðst bera vii'ðingu fyr- ir Gordon Walker og hafa samúð með honum, en bætti því við að hann vonaðist til þess á næstu vikum að njóta hollráða fyrir- rennarans varðandi embættið og rekstur þess. FYRRI STÖRF Stewart er 58 ára. og hefur getið sér gott oi'ð innan brezka Verkamannaflokksins, en er lít- i'ð þekktur út á við. Hann stund- aði nám við Oxford háskóla, og þótti þar mjög góður ræðumað^ ur á fundum stúdenta. Að námi Framhald á bls. 31 Tók við embætti i gær — Gordon Walker í París London, 23. jan. (NTB). MICHAEL Stewart, hinn nýi utanríkisráðherra Bret- lands, tók við emhætti í dag. En fyrirrennari hans, Patrick Gordon Walker, fór í gær- kvöldi, ásamt konu sinni og dóttur, til Parísar, þar sem þau munu dvelja fram yfir helgi. Stewart var staddur í Bristol-háskóla þegar honum hárust fréttir um að hann hafi verið tilnefndur utan- ríkisráðherra. Ræddi hann þá við fréttamenn og sagði meðal annars að nú bæri hann á- byrgðina á því að áhrifum Breta yrði beitt til að efla friðarhorfur og menningu í heiminum. Aðspurður hvort skipan hans í embætti utanríkisráðherra hefði komið honum á óvart, svaraði Stewart að hann hefði tekið það Teheran, 23. jan. (AP) HASUANALI Mansour, for- sætisráðherra írans, sem varð íyrir skoti launmorðingja s.l. fimmtudag, komst til meðvit- undar í dag, en þekkti ekki sina nánustu, er voru við sjúkrabeð hans. Segja læknar að ekki sé unnt að spá um Johnson kvefaðaðist. Er í sjúkrahúsi Var hatt- og frakkalaus við eiðstökuna á miðvikudag hvort Mansour nái bata. ÞAKKIR Hugheilar þakkir fyrir v>nar- og samúðarkveðjur, sem okkur bárust frá rikisstjórn Islands, utanríkisráðuneyti, ástvinum og velunnurum, vegna fráfalls eiginmanns míns og föður okkar THORS THORS, sendiherra Ágústa Thors, Ingólfur Thors Virginía og Thor Thors yngri Washington, 23. jan. I (AP—NTB). LYNÐON B. Jobnson, forseti, var í nótt fluttur með sjúkra- bifreið til sjúkrahúss flotans í Bethesda, Maryland, einnar útborga Washington. Hann mun hafa fengið slæmt kvef s.l. miðvikudag, en þá var hann lengi úti við yfirhafnar- laus í sambandi við innsetn- ingu hans í forsetaembættið. Segja læknar að ekkerí sé að óttast. Líkamshiti og hjart- sláttur séu eðlilegir, en forset- inn hafi haft sáran hósta og því talið réttara að flytja hann í sjúkrahús í nokkra daga. Líflæknir forsetans, dr. George Burkley, aðmíráll stundar sjúklinginn ásamt dr. W. J. Gould, kunnum háls-, nef- og eyrnalækni frá New York. George Reedy, blaðafuii- trúi Hvíta hússins, segir enga hættu á ferðum. Tók hann sér stakiega fram að hjartamæl- ingar sýndu að ekki væri hætta á að forsetinn fengi nýtt hjartaáfall. En Johnson fékk aðkenn- ingu að slagi árið 1955 og var þá um tíma all þungt haldinn. Sagði Reedy að jafnvel þótt rétt hafi verið talið að fiytja^ forsetann í sjúkrabifreið, hafi hann gengið einn og óstuddur til bifreiðarinnar og einnig inn í sjúkrahúsið. Jo'hnson var fengin íbúð til afnota á 17. hæð Bethesda- sjúkrahússins, og er forseta- frúin hjá honum. Hefur verið gestkvæmt þar í dag, og marg ir af nánustu samstarfs- mönnum forsetans komið til að ræða við hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.