Morgunblaðið - 14.04.1965, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.04.1965, Blaðsíða 32
 88. tbl. — Miðvikudagur 14. apríl 1965 IHetafladag- ur í Eyjum | GÆRKVELDI voru margir netabátanna í Vestmanna- eyjum komnir að og farnir að landa. Var aflinn mjög góð- ur og jafn. Margir bátanna voru með 35 til 50 tonn. Af nótabátunum var það að frétta, að nokkrir höfðu til- kynnt mjög mikinn afla og voru enn að. Einn hafði til- kynnt tæp 70 tonn. Útlit Var fyrir að í gær yrði mesti afla dagur það sem af er vertíð í Eyjum. Sjómenn í E.vjum létu vel af horfunum og sögðu fisk- inn smáan og göngulegan. Afli virtist góður hjá togbát- unum líka. Voru nokkrir þeirra komnir með um 20 tonn í gærkveldi. Þá hafði aflazt vel á handfæri. f fyrradag var bræla á miðunum, svo að netabátarnir höfðu lítið getað aðhafzt. Var þó dálítill hluti afla einhverra þeirra tveggja nátta. Úku drukknir á 2 bíla ILÖGREGLAN í Reykjavík tók í fyrrinótt fjóra drukkna pilta á bil. Höfðu þeir ekið mjög hratt um götur bæjarins, reynt að kom ast undan lögreglunni og ekið á tvær bifreiðar. Skömmu eftir miðnaetti í fyrri nótt var hringt tii lögreglunnar og kvartað vegna bíls, sem ekið væri með ofsahraða um göturn- ar. Fannst bíll þessi innan skamms í akstri og fylgdu lög- reglumenn honum eftir upp Vesturvallagötu og voru rétt að ná honum, er hann ók á bíl, sem þama var á ferð. Gáfu lögreglu- menn stöðvunarmerki með síren- unni, en ökumaðurinn skeytti því engu heldur ók upp á Holts- götu og á annan bíl sem þar stóð kyrr. Skömmu síðar nam hann þó staðar og tók á rás út úr bíln- um ásamt öðrum pilti, sem með honum var Komust þeir þó ekki langt áður en lögreglumenn höfðu hendur í hári þeirra, enda hafði ökumaður steypzt á höfuð- ið yfir girðingu og inn í garð og meitt sig. í bílnum sátu eftir tveir drukknir piltar, annar þeirra eig andi bílsins. Kvaðst hann hafa verið sofandi í aftursætinu, þar til árekstrarnir urðu, en þá hafa seilzt fram í, stöðvað vélina og tekið lyklana úr, til að hindra frekari akstur. Studdi framburð- ur hinna farþeganna þetta. Allir kváðust piltarnir þó lítið muna, sökum ölvunar Þeir vo'ru að koma af dansleik. Langá, nýtt skip Haf- skips, til Rvíkur í gœr M/S Langá, hið nýja og glæsi- lega flutningaskip Hafskips h/f, kom til Reykjavikur í gærmorgun. Er þetta fjórða skip félagsins, og kom það fyrst til Vestmannaeyja sl. sunnu- dag. Skipið er mjög vel búið í alla staði, og má m. a. geta þess, að eins manns klefar eru fyrir alla skipshöfnina, sem mun vera nýlunda í íslenzk- um flutningaskipum. M/s Langá er 2300 tonn. Aðalvél skipsins er 1500 hest- afla Deutz-vél, og reyndist ganghraði skipsins 12,8 sjó- mílur í reynsluferð. Þrjár ljósavélar eru í skipinu og enn fremur öll nýjustu siglinga- tæki, eins og t. d. gýrókompás. Þá eru og í skipinu mjög full- komnir kranar af Atlas-gerð, en þeir komu fyrst á markað fyrir einu ári og auðvelda stór lega uppskipun og fermingu. Þá má og geta þess, að í borð- sal áhafnarinnar er komið fyr- ir sjónvarpi. Eins og fyrri skip félagsins er M/s Langá byggð í Vestur- Þýzkalandi hjá skipasmíða- stöðinni D. W. Kremer Sohn í Elmshorn. Erlend lán vegna skipakaupa Hafskips h/f eru fengin í Vestur-Þýzkalandi og eru án ríkis- eða bankaábyrgð ar. Heimahöfn M/s X>angá er Neskaupstaður en heimahafn- ir fyrri skipa félagsins eru Vestmannaeyjar, Bolungarvík og Siglufjörður. Skipstjóri á skipinu er Steinarr Kristjánsson og 1. vél stjóri Þórir Konráðsson. Fréttamenn fóru í gær um borð og skoðuðu hið glæsilega skip. Sagði skipstjórinn, að M/s Langá hefði reynzt vera Mokafli Reykjavíkurbáta Leifur Zakaríasson, stýrimaður, sem fórst af slysförum á vélbátn- l*m HUGRÚNU s.l. laugardag, eins og skýrt var frá í Mbl. í gær. AFLI er nú mjög að glæðast hjá Reykjavikurbátum. Um 20 nótabátar voru að veiðuir,. í gær og var útlit fyrir langmesta afla dag vertíðarinnar hjá þeim. Nóta bátarnir leggja allir upp i Þor- lákshöfn, en fiskurinn fluttur á bílum til Reykjavíkur. Afli neta- ' bátanna var mjög sæmilegur lika. Þegar síðast spurðist til í gærkveldi, var Óskar Halldórs- son hæstur. Hann hafði þá feng- ið 75 tonn og ætlaði að kasta aftur. Óskar Halldórsson fékk rúm 90 tonn á laugardag. Skip- stjóri á honum er Ingimundur Skip komast ekki fyrir Horn Tvö olíuskip bíða á Vestfjörðum TVÖ ©líuskip hafa legið á Vest- fjjörðum siðan á sunnudag og komast ekki austur fyrír Hörn, þar sem sigling er þar ófær af völdum íssins. Verða þau frá að hverfa. Annað er danska leiguskipið Metro, sem átti að fara til Siglu- fjarðar og taka lýsi. Hefur þáð legið á ísafirði síðan á sunnu- dag. Hitt er Stapafell, og skýrði Hjörtur Hjartar, framkvæmda- stjóri Skipadeildar S.Í.S. Mbl. svo frá í gærkveldi, að það hefði verið komið að Hæiavík- ur bjargi á sunnudag, er snúa varð við, og hefði sigiingin til baka verið erfið vegna íssins. Síðan hefði Stapafellið legið á Önundarfirði. Hjörtur kvað nú ákveðið að láta StapafeDi'ð, sem átti að flytja olíu til Akureyrar og Húsaví'kur, iosa á Vest.fjörðum og höfnum Suðvesturlands, þar sem illa horfði um siglingar fyrir Horn. Kvað hann strax verða lesta olíu fyrir Norðurlandshafn- ir, er vænlegar boríði, en ekki fyrr. Ingimundarson. Ásbjörn var kominn með 70 tonn (skipstj. Halldór Benediktsson), Þor- steinn 65 Lnn (skipstj. Eggert Gíslason), Sigurvon 65 tonn (skipstj. Guðmundur Ibsen), Vigri 50 tonn (skipstj. Gísli Hermannsson), Ögri 50 tonn (skipstj. Þórður Hermannsson), og a.m.k. 3 bátar höcfðu fengið 40 tonn. Ekki var vitað gerla um afla Árongurslous sútluiundur SÁTTASEMJARI ríkisins, Torfi Hjartarson, hélt fund með samninganefndum Loft- leiða h.f. og flugmanna þeirra á Rolls Royce 400 vél- unum, sem nú eru í verkfalli. Fundurinn hófst kl. 5 og lauk kl. 8:30 án þess að bera nokk urn árangur. Fundur kjördæmisrúðs Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestur- landskjördæmi verður haldinn í í Hótel Borgarnesi laugardaginn 17. apriil kl. 14. FuUtrúax mæti st'undivisiega. netabátanna, en Ásþór hafði þó þegar komið inn með 50 tonn. Féll fimm metru ÞAÐ slys varð fyrir framan Vél- smiðjuna Héðin í gærdag, að Eiríkur Þorleifsson, rafvirki, sem þar var að vinnu féll úr 5 metra hæð og skaddaðist á höfði. Eiríkur var að gera við vöru- lyftara (hlaupakött) og sat í kassa, sem hékk í lyftaranum í 5 metra hæð, er hann féll niður. Var hann fluttur meðvitundar- laus á Slysavarðstofuna og siðan á Landsspítalann. Þar komst hann til meðvitundar í gær og mun líðan hans eftir atvikum góð. ágætt sjóskip. Á heimleiðinni hefði það hreppt slæmt veður, 8 — 10 vindstig, og þrátt fyrir 130 tonna farm á dekki, hefði allt gengið eins og bezt yrði á kosið. Steinarr Kristjánsson er fyrsti skipstjóri Hafskips hf. og hefur alltaf tekið við nýj- ustu skipurn félagsins. Við Langá tók hann í Hamborg og sigldi því þaðan til Gdynia, Kaupmannahafnar, Gautaborg ar og síðan heim til íslands. Öll skip félagsins eru nú í áætlunarferðum til hafna í Evrópu. í stjórn Hafskips hf. eru: Gísli Gíslason formaður, Ólaf- ur Jónsson varaformaður, Axel Kristjánsson, Sigurður Óli Ólafsson, og Einar Guð- finnsson. Framkvæmdastjóri er Sigurður Njálsson. Axoríjörður iullur uí ís Kópaskeri, 13. apríl. Á SUNNUDAG tók is að reka inn með Melrakkasléttu vestan- verðri frá norðaustri. í gær var ísinn orðinn landfastur hér og í morgun var ís svo langt sem sást, nema vestur við Tjörnes mátti í kíki greina auða rönd. Búið var að leggja mikið af grásleppunetum hér fyrir utan, en þau hafa nú týnzt undir ís- inn. Flotbelgir og baujur af net- unum sjást víða á ísbreiðunni, svo að búast má við að tjón verði talsvert á netunum. Aðal- eigandi netanna er Guðmundur Halldórsson á Kvíslarhóli á Tjör nesi. — Fréttaritari. Inflúenzan kom- in til Akraness JNFLÚENZA sú, sem geysað hefur i Skagafirði og Húnavatns sýslum hefur nú einnig náð til Borgarf jarðar og Akraness. Hún breiðist afar hægt út, þótt hennar hafi tekið að gæta fyrir um 10 dögum. Þórður Oddsson, læknir í Borgarnesi, skýrði Mbi. frá því í gær, að helzt gætti infiúenz- unnar á bæjum í vestursveit- um og hefði þar sumsstaðar allt heimilksfólk lagzt, einkum ef börn af heimiiunum væru ný- komin af skólanum að Varma- landi þar sem flestir hefuð smit- azt og veikinnar gætt fyrst. í Borgarnesi hefðu fáir tekið veik ina, en fyrstu tilfellin hef'ðu verið á heimilum manna, sem nýkomnir voru norðan úr Mið- firði. Torfi Bjarnason, læknir á Akranesi, hafði líka sögu. að segja. Veikin væri mjög hæg- fara þar, en þó nokkur tilfelli og hefði fyrst orðið vart inflú- enzunnar fyrir u.þ.b. 10 dögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.