Morgunblaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 1
28 síður
White iór út úr geimfarinu og var utan Jbess i 20 mínútur
FRÁBÆR ÁRANGUR BANDARÍKJAMANNA
Ráðgert að Gemíni IV leridi á
mánudagskvöld — Gelmfararnir
sáu Florida eins og landabréf,
og allt lék i lyndi
t í GÆRDAG nnnn Bandaríkjamenn stórkostlegt af-
rek á sviði geimferða, þegar tveggja manna geimfari, Gemini
IV, var skotið á loft frá Kennedyhöfða og annar geimfarinn,
Edward H. White, fór út úr geimfarinu og var í 20 mínútur
•vífandi fyrir utan það.
| Fullyrða má, að Bandaríkjamenn hafi með afreki
þessu dregið Rússa uppi í kapphlaupinu um geiminn.
f Einn liðinn í þessari geimferð var ekki hægt að fram-
kvæma, þ.e. að af tæknilegum ástæðum var ekki talið hyggi-
legt að White hætti sér nærri síðasta þrepi eldflaugarinnar,
þar sem það valt mjög á braut sinni, og hefði getað verið
honum hættulegt, auk þess sem ekki þótti á það hættandi að
eyða of miklu eldsneyti geimfarsins til þessa.
t Hinsvegar hverfur þetta í skuggann af öðrum merk-
um áföngum, sem þegar hafa náðst í geimferð þessari, sem
raunar má segja að enn sé á byrjunarstigi, með tilliti til þess
að henni á ekki að ljúka fyrr en að kvöldi mánudags.
t Eitt af því. sem til algjörra nýjunga má telja í sam-
bandi við geimferð þessa, er það að White notaði litlar þrýsti-
loftsbyssur til að hreyfa sig utan geimfarsins og tókst það vel.
| Hér á eftir fer frásögn fréttastofunnar Associated
Press af geimskoti þessu, en annars staðar birtist samtal það,
sem geimfararnir áttu saman á meðan White svei' í lausu
lofti. (Sjá ennfremur grein á blaðsíðu 15).
Bilun olli töf að fer'ðbúa Gemini-geimfar
Kennedyhöfða, 3. júní — AP — Titaneldflaugin hefur sig á loft með þá McDivitt og White í
Gemini IV geimfarinu á Kennedyhöfða í dag.
Þeir James A. McDivitt og
Edward H. White voru vaktir
ki. 9:10 í morgun að íslenzkum
tima. Lokið hafði verið við a'ð
dæla eldsneyti á Titan-eldflaug-
ina kl. 7:30 í morgun, klukkust-
und á undan áætlun. Gekk verk
ið snurðulaust og fljótt. Alls
ílutti eldflaugin 52 tonn af elds
ney ti.
McDivitt og White fóru í stutta
Sæknisskoðun, og settust síðan
eð morgunverði, sem var hin
íiíðasti þeirra á jörðinni þar til
é mánudag, ef allt gengur áð
éætlun.
Kfl. 10 var hafin talning fyrir
geimskotið Kl. 10:25 komu geim-
íararnir út úr vistarverum sínum
©g var ekið að skotpallinum. >ar
íór siðasta læknísskoðunin fram.
Geimfararnir fóru síðan í lyftu
upp skotturninn, og minútu síð
©r voru þeir komnir inn í dauð-
flireinsað herbergi efst á turnin
um, þar sem unnið var að því
Sformsvalan
af stað
að fer'ðbúa
iþeirra.
Geimfararnir voru léttir í
ska.pi og brostu út að eyrum er
þeir kvöddu um 70 sérfræðinga
og starfsmenn. I>eir íóru síðan
inn í geimfarið.
Kl. 12:31 að í^lenzkum tíma
var lúgum geimfarsins lokað.
Er 34 mínútur og 15 sekúndur
voru til flugtaks, var talningin
stöðvuð sökum bilunar á raf-
magnskerfi því, sem flytur skot-
turninn frá eldflauginni rétt fyr-
ir flugtak. Vegna þessarar bii-
unnar varð flugtak ekki fyrr en
kl. 15:16 eftir ísl. tíma.
„Stórkostlegt liér uppi“
Hin geysimikla Titan 2. eld-
flaug, sem flutti Gemini IV. á
braut umihverfis jörðu, hóf sig
á loft með miklum gný kl. 15:16
að íslenzkum tíma (allar tíma-
ákvarðanir í fregninni eru mið-
aðar við isl. tíma). Eldflaugin,
sem er nær 30 metrar á lengd og
vegur um 105 tonn, steig í fyrstu
hægt, en síðan jókst hraðinn á
meðan mótorar fyrsta þreps
'hennar drukku um 640 lítra af
eldsneyti á sekúndu.
Þúsundir manna á Kennedy-
höfða horfðu á eldflaugina hefja
sig til himins, en auk þess sáu
milljónir manna atburðinn í sjón
varpi, þeirra á me'ðal Johnson
forseti.
Eins og áður getur varð nokk
ur töf á að eldflauginni yrði
skotið á loft, en það stafaði af
#f
Eg kem ekkert
- sagbi White geimfari eftir 20 min. göngutúr i geimnum
lögð
Einkaskeyti til Mbl.:
Glasgow, 2. júní — AP:
SEGLSKÚTAN Stormsvalan
lagði af stað í Islandssiglingu
eína á miðvikudagskvöld.
Vegna logns varð að nota
hjálparvél skútunnar til að
sigla henni út úr Clydefirði.
Hörður Jóhannsson, skip-
stjóri, segir að skútan muni
hafa viðkomu í Færeyjum, en
«ð óvissa væri um komudag
til Reykjavíkur sökum þess
»ð mikiar stillur væru á At-
lantshafi
HÉr FER á eftir samtal geim
faranna Mc Divitts og Whites
meðan hinn síðarnefndi var
fyrir utan geimfarið úti í
geimnum. Samtalið fór fram
á milli geimfaranna sín á
milli og Virgil Grissoms, en
hann stjórnaði sambandinu
við þá félaga frá jörðu. Griss-
om stjórnaði sem kunnugt er
síðustu Gemini geimferð
Bandaríkjamanna.
McDivitt: Segðu okkur,
hvað þú sérð.
White: Mér sýnist sem við
séum að nálgast strönd Kali-
forniu.
McDivitt: I>að er aðeins eitt,
sem er að, á meðan Ed er
þarna úti á hreyfingu, að þá
er anzi erfitt að stjórna geim-
farinu.
Grissom: Er hann að taka
myndir
McDivitt: þkki enn þá.
Grissom: Takið nokkrar
myndir.
White: Allt í lagi, ég ætla
að undirbúa mig undir að
taka nokkrar myndir núna.
McDivitt: Allt í lagi. Vertu
fyrir framan, svo að ég sjái
þig. Ég hef aðeins tekið þrjár
myndir.
White: Allt í lagi.
McDivitt: Hvar ertu núna?
White: Ég er fyrir framan
þig, úti.
Grissom: Heyrðu, þú átt eft
ir að vera um fimm mínútur
þarna úti.
Whitc útskýrði nú fyrir Mc
Divitt, að hann ætlaði sér að
fara að gera eitthvað, en hér
truflaðist sambandið sem
snöggvast.
McDivitt: Hreyfðu þig sem
minnst. Ég ætla að taka mynd
af þér.
McDivitt: Svífðu bara um.
Nú höfum við einmitt sam-
band við jörð beint fyrir neð
an okkur.
(Hér gerði White athuga-
semd um, að sambandið hefði
truflaztl.
i McDivitt: Láttu mig taka
nærmynd af þér.
(Þögn).
McDivitt: I>ú atar út fyrir
mér rúðuna, sóðinn þinn.
Þeir hlæja báðir.
McDívitt: Sérðu, hvernig
hún er öll útötuð þarna uppi.
White: Jú.
McDivitt: Það er eins og
það hafi verið komin himna
utan á rúðuna og þú hafir
þurrkað hana burt. Það er ein
mitt það, sem þú hefur gert.
McDivitt: Ed, ég veit ekki
nákvæmlega, hvar við erum
staddir, en mér sýnist sem við
séum yfir Texas núna. Það,
sem er hér fyrir neðan okkur,
virðist vera Houston.
Grissom: Gemini IV. Houst
on kallar.
McDivitt: Já, Galveston flói
er einmitt þarna rétt hjá.
White: Já.
McDivitt: Heyrðu Ed. Get-
urðu séð inn í geimfarið þín
megin?
White: Já.
McDivitt: Geturðu séð
Framh. á bls. 27
smávægilegri bilun í skotpalli
hennar. Hinsvegar var ekkert að
sjálfri eldflauginni, né heldur
geimfarinu, og störfuðu þar ödl
tæki eins og ráð hafði veri'ð fyr-
ir gert.
Eftir 20 sekúndur tók Titan-
flaugin að sveigja í átt til lárétts
og stefndi til NA. Skildi hún eft
ir sig mikla rák á himninum. Er
hún hafði náð 35.000 feta hæð,
skutust tvær orustuþotur upp að
henni, í því skyni að taka mynd
ir af bákninu.
Annað þrep eldflaugarinnar
kom í gagnið 3 mínútum eftir
flugtak, nákvæmlega eins og ráð-
gert var.
„Það er stórkostlegt hérna
uppi“, kallaði McDivitt þá upp.
Er fjórar mínútur og 50 sekúnd-
ur voru liðnar frá flugtaki, var
tilkynnt á Kennedyhöfða að allt
gengi nákvæmlega eftir áætlun.
Framh. á bls. 27
Góð síldveiöi
BLAÐIÐ átti í gærkvöldi tal við
síldarleitina á Dalatanga og fékk
þær fréttir að um 55—60 skip
væru komin á miðin fyrir Aust-
urlandi og aðalveiðisvæðið væri
100—120 mílur austur af Langa-
nesi. í gær höfðu 11 skip til-
kynnt um veiði, en mikill fjöldi
skipa var á leið til hafnár eða
lá í höfnum. Allar verksniiðjur,
sem tilbúnar eru til sildarmót-
töku voru að fyllast nema á
Vopnafirði, en þangað inn kom-
ast skipin ekki fyrir hafís.
Skipin, sem tilkynntu um
veiðina í gær, voru: Snæfell 900
mál, Einar 300, Gunnar 300,
Grótta 600, Æskan 200, Náttfari
750, Pétur Jónsson 200, Jón
Þórðarson 800, Helga G-uðmunds-
dóttir 900, Vonin 650 og Sunnu-
tindur 700 mál.
Gott veður var á miðunum en
svarta þoka.