Morgunblaðið - 11.06.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.06.1965, Blaðsíða 1
De Gaulle til V-Þýzka lands BONN, 10. júní. — NXB—AP. — De Gaulle forseti Frakklands kemur til Bonn á föstudag til viöræðna við kanzlara V-Þýzka lands, Ludvig Erhard, samkv. samningi Frakka og V-Í»jóð- verja um samvinnu sín á milli. Fátt bendir tii þess, að fundur þeirra muni leiða til nokkurra breytinga á hinu kuldalega and rúmslofti, sem ríkt hefur að undanförnu á milli þessara landa. Talið er, að Erhard muni vilja ræða ýmis málefni svo sem land búnaðarmál Efnahagsbandalags- ins og málefni NATO. Þá er ekki talið, að de Gaulle muni nú reyna að hamla á móti fyrirhug- uðum fundi utanríkisráðherra Efnahagsbandalagsins eins og búist hafði verið við áður. MJÖG góð síldveiði hefur verið að undanförnu og er löndunarstöðvun yfirleitt á Austfjörðum, enda hafa fæst- ar síldarverksmiðjurnar þar byrjað bræðslu. Skipin leita nú til Eyjaf jarðarhafna og Sigluf jarðar. Myndin var tekin um borð í Jörundi III. fyrir skömmu á miðunum og sem sjá má er geysimikil síld í nótinni. Skipið hélt með aflann til Krossanesverksmiðjunnar og landaði þar um 2000 málum. Ejósm.: Erlingur Guðmunds- son. Haröir bardagar í S.-Vietnam Bærinn Dong Xoai til skiptis á valdi uppreisnarmanna og stjórnarhersins Genf, 10. júní — (NTB) • FULLTRÚAR aðildarríkja Fríverzlunarsvæðisins komu saman til fundar í Genf til þess að ræða sjónarmið 6tjórna sina varðandi fyrirætl «nir um aukið samstarf við Efnahagsbandalagið. Fyrir fundinum liggur tillaga þar að lútandi frá framkvæmdastjóra samtakanna, Frank Figueres. Saigon, 10. júní NTB—AP. SKÆRUEIÐAR Viet Cong hófu í dag mikla sókn að bæmim Dong Xoai í Suður-Vietnam og bækistöðvum bandarískra og suðurvietnamskra hermanna í námunda við bæinn. Samkvæmt fréttum frá NTB tókst þeim að ná bænum og helmingi bæki- stöðvanna á sitt vald. Dong Xoai liggur um 100 km fyrir norðan Saigon. Stjórnhernum tókst hins vegar að ná bænum aftur á sitt vald um kvöldið að afstöðnum hörðum bardög- um. Mikið mannfall varð í liði beggja og mun það nema mörg- um hundruðum. í árásinni, sem hófst upp úr miðnætti, mun einn Bandaríkja maður hafa fallið, en sautján Geimfararnir Kcomnir heim Houston, 10. júní NTB -AP BANDARÍSKU geimfararnir James McDivitt og Edward White komu síödegis í dag til Houston í Texas. Var þeim jþar vel fa-gnað af vinum og vandamönnum og var þegar í stað slegið upp veizlu á heimili McDivitts, til þess að halda hátíðlegan afmælisdag hans, — en hann varð 36 ára í dag. Geimfararnir komu í morgun til Mayport í Florida með flug- móðurskipinu „Wasp“. Voru þar fyrir um það bil tvö þúsund manns, er fögnuðu þeim ákaf- er saknað. Þá munu að minnsta kosti þrettán Bandaríkjamenn hafa særzt. Ekki er vitað, hversu margir hermenn frá S-Vietnam hafa fallið í þesum átökum, en þeir munu vera margir. Sprengj um var varpað á herþækistöðina úr 60 mm sprengjuvörpum áður en leifturárás var gerð. Banda- rískar þyrlur, sem reyndu að flytja liðsauka til bæjarins urðu frá að hverfa vegna vélbyssu- skothriðar, sem skæruliðar Viet Cong beindu gegn þeim og voru tvær þeirra skotnar niður. Bandarískar sprengjuflugvél- ar og orrustuþotur hófu þá miklar loftárásir á sveitir upp- reisnarmanna, sem álitið er að í hafi verið um 1500 manns. Munu flugvélarnar hafa gert samtals um 60 loftárásir á stöðv- ar uppreisnarmanna. Síðan gerðu öflugar sveitir stjórnar- hermanna gagnárás á bæinn og tókst að nýju eftir mikla bar- daga að ná bænum á sitt vald, eins og að framan greinir. Séjstæður fornleifa- fundur Osló, 10. júní — (NTB) — 1 BLAÐIÐ Aftenposten í Noregi Iskýrði í dag frá afar sérstæð- | um fornleifafundi. Er þar um i að ræða víkingahaug frá því , um 800, sem fannst í héraðinu Austur-Agðir. í haugnum hafa fundizt mjög margir verðmæt ir gripir, þar á meðal 3 sverð, þrjár axir, 15 spjótsoddar og 2 kvenskartgripir úr bronzi. — Ennfremur hafa fundizt þarna tvö bcizli, næla og margar glerperlur í margvíslegum litum. Sumir þessara gripa hafa varðveizt illa, en engu að síöur er hér um mjög mik- ilvægan fornleifafund að Sræða. Haugurinn fannst, þeg- ar verið var að grafa grunn fyrir nýbyggingu. lega. Var í dag liðinn vika frá því þeir lögðu upp í hina vel- heppnuðu geimferð sína. Meðal þeirra, sem heilsuðu geimförun- um í Mayport var Haydon Burn- es, ríkisstjóri í Florida. Bauð hann þá velkomna á fast land aftur og afhenti þeim sérstakt heiðursskjal með merki Florida. Til Houston fóru geimfararnir með glæsilegri þotu og var fagn- að af miklum mannfjölda þegar þangað kom. Eiginkonur og börn þeirra voru að vonum manna fegnust að sjá þá aftur heila á húfi. Höfðu börn þeirra skreytt heimili þeirra með ýmsum hætti og á heimili McDivitts var þeim búin afmælisveizla. Framihald á bls. 27 • Lestarræningi fundinn í írlandi SEM menn rekur minni til, var framið einstakt lestarrán í Bretlandi í ágúst 1963 og þá rænt um 2,5 millj. sterlings- punda. Einn af fjórum for- sprökkum ræningjanna er niú í Dublin í írlandi þ,ar sem hann gengur laus og er hvorki unnt að handtaka hann þar og yfirheyra eins og er. Verður ekki unnt að gera tilraun til þess að handtaka -hanoi , fyrr en það verður heimilt sam- kvæmt lögum að framselja brezka afbrotamenn frá írska lýðveldinu eftir um það bil þrjár vikur. Hins vegar er Scotland Yard fullkunnugt um aðsetur hans og lætur fylgjast með honum dag og nótt, í því skyni að unnt verði að handtaka hann strax og heimildin til þess er fyrir hendi. Kapp er nú lagt á að hraða frumvarpium framsal brezkra glæpamanna frá írska lýðveld inu í gegnum írska þingið, en vandkvæðin af því, að þessa heimild vantar, kom glögglega í ljós í desember sl., þegar tveir starfsmenn Scotland Yards hlutu þar dóm fyrir að sýna dómstólum óvirðingu, er þeir reyndu að taka þar fast- an brezkan afbrotamann, sem ekki hafði fengizt framseldur. Ræningi sá, sem lögreglan er nú á hælunum á, mun ann- að hvort vera Charles F. Wilson, sem slapp úr fangelsi í Englandi í ágúst -sl. eða Bruce R. Reynolds, sem er talinn vera höfuðpaurinn í sambandi við ránið. Fjórir menn, þeirra á meðal Wilson og Reynolds eru efst á lista þeirra glæpamanna, sem lýst er eftir í Bx-etlandi vegna lestarránsins. Orðrómur hefur leikið á því, að þeir hefðu sézt m. a. í Uraguay. Nú er það vitað, að minnsta kosti einn þessara fjögurra manna, ef til vill allir — hefur lifað Framhald á bls. 27 g k ■■ívúý.ýV Wilson Reynolds

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.