Morgunblaðið - 12.06.1965, Blaðsíða 16
16
MOkCU N BLAÐIÐ
Laugardagur 12. júní 1965
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Rítstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
NYR LISTAMANNA-
SKÁLI
L það liefur margsinnis ver-
ið bent hér í blaðinu, að
gamli Listamannaskálinn við
Kirkjustræti er orðinn ger-
samlega ófullnægjandi sýn-
ingarstaður fyrir íslenzka
myndlistarmenn. Skálinn var
byggður sem bráðabirgðahús
næði á sínum tíma og bætti
þá úr brýnni þörf. Hafa verið
haldnar í honum fjölmargar
sýningar, sem orðið hafa ís-
lenzkri list og listamönnum
til margvíslegs framdráttar.
Þessi gamli skáli er nú að
niðurfalli kominn, og enda
þótt stöðugt sé verið að halda
í honum sýningar, er hann í
raun og veru gjörsamlega ó-
nothæfur orðinn.
Reykjavíkurborg hefur
sýnt góðan skilning á þörfum
borgarinnar og þjóðarinnar
fyrir nýtt sýningarhúsnæði í
þágu íslenzkrar myndlistar.
Borgarstjórn hefur úthlutað
samtökum listamanna glæsi-
legri lóð á einum fegursta
stað í borginni. Er gert ráð
fyrir að þar verði byggðir
rúmgóðir og hentugir sýning
arsalir og aðstaða sköpuð að
öðru leyti til fjölbreyttrar
listastarfsemi. Ber mjög að
fagna því. En fé til fram-
kvæmdanna mun nær ekk-
ert vera fyrir hendi. Félag
íslenzkra myndlistarmanna
hefur að vísu efnt til happ-
drættis til ágóða húsbygging-
armálinu, en byggingarsjóður
félagsins mun þó vera mjög
léttur. Brýna nauðsyn ber til
þess áð höfuðborgin og ís-
lenzka ríkið hlaupi hér mynd
arlega undir bagga. Strax og
lokið er við að teikna óg und-
irbúa að öðru ieyti hina nýju
sýningarsali, verður að hefj-
ast handa um bygginguna.
Það er hvorki höfuðborginni
né þjóðinni í heild vanzalaust
að búa við það ástand, sem
nú ríkir í þessum efnum.
Mikil gróska hefur undan-
farið ríkt í íslenzkri mynd-
list. Fjöldi listamanna hefur
haldið sýningar á verkum sín-
um við hinar ófullkomnu að-
stæður. Vaxandi áhuga verð-
ur vart meðal almennings á
myndlist og margar sýningar
hafa verið mjög vel sóttar og
mörg listaverk keypt. íslend-
ingar eru teknir að skreyta
heimili sín með fögrum lista-
verkum, eins og aðrar menn-
ingarþjóðir. Því miður er
listagagnrýni hér á landi enn
þá frekar ófullkomin. En úr
því verður vafalaust bætt í
nánustu framtíð eins og svo
mörgu öðru sem til bóta
stendur í okkar unga og vax-
andi þjóðfélagi. Aðalatriðið
er, að fólkið mæti listinni
með opnum huga og þjóðfé-
lagið leggi sig fram um að
skapa sem bezt skilyrði og
starfsaðstöðu fyrir listamenn-
ina.
ÞRÖUNIN
KREFST VIÐ-
SKIPTAFRELSIS
Jjað er vissulega rétt, sem
Magnús Jónsson, fjár
málaráðherra, sagði í ræðu
sinni á fundi Verzlunarráðs
íslands í fyrradag, að íslend-
ingum ber höfuðnauðsyn til að
tryggja hagkvæma sölu af-
urða sinna á erlendum mörk-
uðum, til þess að geta byggt
hér upp velmegunarþjóðfélag.
Ráðherrann benti einnig á, að
við yrðum að athuga gaum-
gæfilega, hvort nauðsynlegt
reyndist að ganga í EFTA.
Þróunin væri sú, að tollamúr-
arnir væru brotnir niður, og
af því leiddi aukið viðskipta-
frelsi þjóða í milli.
Á því ríkir nú vaxandi
skilningur, að tollamúrarnir
eru leifar frá liðnum tíma.
Hagsæld þjóðanna byggist í
vaxandi mæli á því að þessir
múrar séu brotnir niður, við-
skiptafrelsi ríki og sem
stærstar viðskiptaheildir skap
ist. Að þessu marki er í raun
og veru stefnt með hinum
ýmsu verzlunarbandalögum
og viðskiptasamtökum, sem
orðið hafa til síðan síðari
heimsstyrjöldinni lauk. Virð-
ist nú jafnvel svo komið að
ríkin í Austur-Evrópu geri
sér ljósa nauðsyn aukinnar
efnahagssamvinnu milli aust-
urs og vesturs. Ríkin í COME-
CON eru farin að finna, að
viðskiptatengsl í vesturátt
eru lífsnauðsyn f yrir þau.
Þess vegna leggja þessi ríki
nú mikið kapp á að auka við-
skipti sín við vestrænar lýð-
ræðisþjóðir.
Kjarni málsins er, að inni-
lokunar- og haftastefna í við-
skipta- og verzlunarmálum
hefur beðið endanlegt skip-
brot. Aukið frjálsræði er
krafa nútímans. Við íslend-
ingar komumst að sjálfsögðu
ekki hjá því að taka tillit til
þess sem gerist í þessum efn-
um meðal nágrannaþjóða
okkar og helztu viðskipta-
Judy Holliday
Idtin 41 drs.
JUDY Holliday, leikkonan
sem frægust varð af myndinni
„Fædd í gær“, lézt 7. júní sl.
úr krabbameini, hálfum mán-
uði fyrir 42 ára afmæli sitt.
Judy Holliday hafði þjáðzt af
kra'bbameini í möng ár og
gekkst undir uppskurð 1960,
sem var þó skammgóður verm
ir, því sjúkdómurinn tók sig
upp aftur. Judy Holliday, sem
hét réttu lagi Judith Tuvim,
var lögð inn á sjúkrahús 26.
maí sl. Hún lætur eftir sig
einn son, Jonathan. Judy var
gift David Oppenheim en
skildi við hann.
Judy Holliday lét einkar vel
að leika heimskar ljóshærðar
stúlkur á sviði og í kvikmynd-
um en sjálf hafði hún greindar
visitöluna 170 og var með
beztu nemendum í skóla.
Leiksviðsferil sinn byrjaði
hún að tjaldabaki, sem síma-
stúlka hjá leikflokki Orson
Welles, „Mercury Theater" og
átti reyndar eftir að sitja
við símaborðið á sviðinu líka,
í „Bells are ringing“, sem lengi
gekk á Broadway. Hún vakti
fljótlega á sér athygli fyrir
skammtilega framkomu,
hnyttni og hlýja gamansemi.
Hún lék smáhlutverk í „Kiss
them for Me“ svo að gagn-
rýnendur þóttust sjaldan hafa
séð annað eins og Judy fékk
fyrir frammistöðuna Clarence
Derwent verðlaunin. Árið
1946 var henni svo fengið í
hendur hlutverk Billie Dawn,
ljóshærðu fegurðardísarinnar
í „Fædd í gær“ og þar með
var Judy orðin stjarna. Leik-
ritið gekk á Broadway í fjag-
Judy Holliday.
ur ár samfleytt og síðan var
gerð eftir því kvikmynd, sem
Judy fékk fyrir Oscarsverð-
launin árið 1950.
Sjö sólarhringa
úti í geimnum
Næsta Gemini-geimferb Banda-
ríkjanna ráðgerð 9. ágúst
Kennedyhöfða, Houston og
flugþiljuskipinu Wasp,
9. júní — (AP-NTB) —
GEMINI 5, næsta tveggja
manna geimfari Bandaríkj-
anna, verður skotið á loft frá
Kennedyhöfða 9. ágúst nk. ef
allur undirbúningur gengur
samkvæmt áætlun, að því er
góðar heimildir á Kennedy-
höfða hermdu í gærkvöldi. Sú
geimferð verður hin lengsta
til þessa, en þá er ráðgert að
geimfararnir Gordon Cooper
og Charles Conrad verði í sjö
sólarhringa á braut umhverf-
is jörðu. í þessari ferð á að
gera aðra tilraun til þess að
hafa samband við gervitungl
á sporbraut umhverfis jörðu.
Gervitunglinu á að skjóta á
braut með Gemini-geimfarinu, en
því verður síðan sleppt. Síðar
eiga þeir Cooper og Conrad að
gera tilraun til að stýra geim-
fari sínu að því.
Yfirlæknir Geminiferðanna, dr.
Charles Herry, lýsti því yfir í
nótt að hann væri mjög ánægður
með líðan og heilsu þeirra Mc
Divitts og White eftir hina nær
98 klst. ferð um himingeiminn.
McDivitt fékk blóðnasir í gær,
en ekki taldi dr. Berry það al-
varlegt mál. Hann taldi þetta
eðlileg viðbrögð og sömuleiðis
óþægindi þau í augum, sem
geimfararnir hafa haft síðan þeir
lentu.
f AP-frétt frá flugþiljuskipinu
Wasp, þar sem geimfararnir eru
enn, segir að læknar hafi orðið
varir óverulegra einkenna þess
að blóðþrýstingur geimfaranna
hafi lækkað, blóð safnazt lítillega
fyrir í fótum og hjartað hafi
slegið hratt og ekki með fullri
nýtingu.
Hjartað verður latt í geimferð-
um af því að dæla þyngdarlausu
blóði um hreyfingarlausan lík-
ama geimfarans. Er niður á
jörðu kemur, þarf það að venj-
ast þyngdaraflinu. Hins vegar er
fram tekið að þetta ástand geim-
faranna sé á,mjög lágu stigi, og
muni hverfa í dag. Segjast lækn-
ar enga ástæðu sjá til þess, að
þetta geti hamlað geimferðum.
Þeir White og McDivitt munu
um helgina heimsækja Johnson
forseta að búgarði hans í Texas.
Á morgun, fimmtudag, halda
þeir til Houston frá flugþilju-
skipinu, og er búizt við að blaða-
mannafundur verði haldinn þar.
Fréttir í
stuttu
míli
Moskvu, 4. júní — AP:
0 Tass-fréttastofan skýrir
svo frá í dag, að Rússar og
Kínverjar hafi hafið viðræð-
ur um að endurnýja sam-
vinnu sína á sviði vísinda og
tækni. Ekki var nánar getið
hvers eðlis samvinna þeirra
ætti að verða.
London, 4. júní (NTB)
• Bretar hafa samþykkt til-
löguna um fjölgun aðildar-
ríkja Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna úr ellefu í fimmtán.
Hafa þá 75 ríki samþykkt
breytingu þessa, þar á meðal
Sovétríkin, en til þess að af
henni geti orðið, þurfa einnig
Bandaríkin, Frakkland og For
mósa að samþykkja.
vina. Þess vegna er eðlilegt og
sjálfsagt að athugað verði til
hlítar um afstöðu okkar til
EFTA.
VINSTRI MENN
VANTAR ÍHALD!
TTngur sósíalisti skrifar ný-
lega grein í blað, sem
berst m.a. fyrir myndun
nýrra samtaka svokallaðra
„vinstri" manna í landinu. Ein
höfuðniðurstaða hans þar er
að tilfinnanlegur skortur sé á
„íhaldi“ í íslenzkum stjórn-
málum. Síðan segir hinn ungi
sósíalisti:
„Mér liggur við að segja:
Fyrst hér er ekkert íhald til,
þá verðum við að búa það til
sjálfir“.
Eins og kunnugt er, ríkir nú
hin mesta ringulreið og klofn-
ingur innan fylkina „vinstri“
manna.
Kommúnistar eru marg-
margklofnir og Framsókn
logar að innan. En hinn ungi
sósíalisti, sem talinn er einn
af ritfærustu og gleggstu
yngri mönnum „vinstri hreyf
ingarinnar“ hefur fundið
verkefni fyrir hina sundruðu
hjörð: „Fyrst hér er ekkert
íhald til, þá verðum við að
búa það til sjálfir“, segir
hann* Verður nú fróðlegt að
sjá, hvernig blessaðir vinstri
mennirnir hjálpast nú að við
að leysa þetta brýna og að-
kallandi verkefni, sem hinn
ungi sósíalisti telur svo mik-
ils um vert!