Morgunblaðið - 13.07.1965, Blaðsíða 26
MORCUNBLADID
26
Þriðjudagur 13. júlí 1965
KR tók forystu í 1. deild
Vann Val í gærkvöldi
með 3 mörkum gegn engu
KR-INGAR tóku forystu í 1
deid íslandsmótsins í gærkvöldi.
Þeir sigruðu Val með 3 mörkum
gegn 0 og voru vel að sigrinum
komnir. Leikurinn í heild var
hins vegar heldur daufur og fátt
um fína drætti í honum.
Það var fyrst og fremst fyrir
meiri hraða og meiri ákveðni sem
KR-ingar náðu forystu í leiknum.
Valsmenn áttu framan af síður
en svo færri tækifæri eða hættu-
minni, en það var óákveðni, sem
gerði það að verkum að þeir
fengu ekki nýtt sín færi.
KR-ingar áttu fyrsta hálftíma
leiksins í vök að verjast, þó ekki
væri hættan við mark þeirra
mikil.
■
:
En af og til náðu KR-ingar
upphlaupum sem settu Valsmark
ið í mikla hættu og stafaði ekki
hættan sízt af því að Sigurður
markvörður var ekki í essinu
sínu þetta kvöld.
Á 39. mín. fyrri hálfleiks skor-
•ar KR fyrsta markið. Gunnar
Felixson átti allan heiður af því,
lék upp hægri kant, allt að endá-
mörkum og síðan með þeim, gaf
svo út og fyrir markið og Guðm.
Haraldsson innherji afgreiddi fal
lega í netið.
Magnús Guðmundsson
— íslandsmeistari í golfi.
FH sigraði
KEFLVIKINGAR efndu til
hraðkeppni í handknattleik,
vegna komu færeysku hand-
knattleiksmeistaranna úr félag-
inu Kyndil. Mótið fór fram um
síðustu helgi á grasvellinum í
Njarðvík. Fjögur lið tóku þátt í
mótinu, Keflvíkingar, Haukar,
Kyndil og FH.
FH sigraði, vann öll liðin með
nokkrum yfirburðum, þegar
þess er gætt, að leiktími er að-
eins 2x10 mínútur.
'Úrslit í einstökum leikjum
urðu þessi:
FH — Kyndil 9:6.
Haukar — Keflavík 8:8.
FH — Haukar 8:4.
Kyndil — Keflavík 9:6.
FH — Keflavík 10:6.
Kyndil — Haukar 7:5.
Röð liðanna er þá þannig:
1. FH, 2. Kyndil, 3. Haukar og
4. Keflavík. — R. M.
Magnús fór völlinn
18 holur 2 undur pari
GOLFMEISTARAMÓT íslands
hefst í dag á golfvelli Golfklúbbs
' Bíðo þar til
markvörðurinn
hresslst
SUNNUDAGINN 4. júlí s.l.
áttj að fara fram leikur á
Jiglufirði miili Siglfirðinga og
Reynis frá Sandgerði. Mark-
vörður Reynis hafði slasast
í leiknum við Þrótt og ekki
orðinn heill þegar liðið
átti að leika við Siglfirðinga.
fteynis mönnum fannst til-
gangslítið að mæta Siglfirð-
ingum án síns ágæta mark-
varðar og taka því þá ákvörð-
L un að gefa leikinn. Þá eru það
Siglfirðingar sem segja bara
„nei takk“ við viljum ekki fá
neina leiki gefins. Annað
hvort vinnum við okkar leiki
sða töpum þeim á heiðarleg-
ann hátt og við skulum bara
biða þangað til markvörður
_ykkar er orðinn góður.
Og þetta varð að samkomu-
lagi, hinn rétti vináttuandi
var látinn ráða og leikurinn
ifer fram 25. júlí n.k.
Reykjavíkur við Grafarholt.
Lýkur mótinu á morgun. Þátt-
takendur eru víðsvegar að af
landinu.
Meðal þátttakenda er Magnús
Guðmundsson frá Akureyri sem
telja má líklegan sigurvegara,
nema eitthvert óhapp komi fyrir.
hann er betur þjálfaður og hefur
betri' reynslu en nokkur annar
ísl. golfleikari.
Tveim golfkeppnum er nýlokið
á Akureyri. Var í. hinni fyrri
keppt um „Valbj arkarbikarinn"
sem Valbjörk gaf. Það var 18
holu keppni með forgjöf.
Magnús vann þá keppni. Notaði
hann 72 !högg, sem er 2 undir
pari, en næstir urðu Sigtryggur
Júlíusson og Jóhann Þorkelsson,
en þeir höfðu báðir forgjöf. Hafði
Sigtryggur 76 högg en Jóhann
78.
Þá fór einnig fram keppni um
svokallaðan Olíubikar. Það var
18 holu keppni. * Ekki fengust
úrslit því að þeir Bragi Hjartar-
son, ungur maður að árum og
Hafliði Guðmundsson, einn af
öldungunum í golfi á Akureyri,
skildu jafnir. Eftir fyrri hring-
hringinn hafði Bragi 4 holur unn-
ar, en Hafliði vann það upp á
síðari hringnum. Úrslit um bik-
arinn geta ekki farið fram fyrr
fyrr en eftix landsmótið.
’ Litlu síðar var Guðmundur aft
ur í góðu færi en skaut yfir.
Tveim síðari mörkum KR átti
Baldvin Baldvinsson miðh. allan
veg og vanda af. Þau komu bæði
í síðari hálfleik. Hið fyrra var
skorað á 10. mín. síðari hálfleiks
og sótti Baldvin þá upp hægra
megin við vallarmiðju, hljóp af
sér varnarleikmenn og skoraði.
Hafði Sigurður markvörður hend
ur á knettinum en hélt ekki —
í þetta skipti sem mörg önnur í
þessum leik, þó ekki kæmi að sök.
Þriðja markið skoraði Baldvin
6 mín. síðar. Sótti hann þá upp
af sínum alkunna hraða vinstra
megin við vallarmiðju og skor-
aði í mótstætt horn.
Eins og fyrr segir var heildar-
svipur leiksins heldur daufur. En
KR-ingar voru afgerandi ákveðn-
ari og það réði úrslitum.
Það er furðulegt hve máttlaust
Valsliðið getur orðið er það inæt-
Framhald á bls. 27
•f ■■■■S'- * •'^VVWAV iífH
Þarf að leika auka-
leik í 2. deild ?
UM helgina fóru fram tveir leik-
ir í ánnarri deild. 1 Vestmanna-
eyjum léku á laugardag Í.B.V
og Breiðablik. Á sunnudag léku
á Siglufirði Siglfirðingar og
Haukar frá Hafnarfirði.
Vestmannaeyingar unnu auð-
veldan sigur yfir Kópavogs-
mönnum. í góðu veðri á gras-
vellinum í Eyjum, máttu Breiða-
bliksmenn sjá 5 sinnum á eftir
knettinum í netið. Vestmanna-
eyingar voru sannarlega á skot-
skónum í þessum leik, en í leikn-
um við Í.B.f. á dögunum, virtist
sem þeir hefðu gleymzt heima.
Vestmannaeyingar unnu leikinn
5—4).
Á sunnudag léku svo Sigl-
firðingar við Hauka á Siglufirði.
Þetta var leikur hinna glötuðu
tækifæra Siglfirðinga. Þeir áttu
mun meira í leiknum og ef
ólukku markstangirnar hefðu
ekki verið að þvælast fyrir, þá
hefði þeirra sigur orðið stærri.
Siglfirðingar unnu leikinn 1—0.
Staðan í annarri deild er nú
þannig, að Þróttur á eftir einn
leik, við Siglufjörð í Reykjavík,
en Siglfirðingar eiga eftir tvo
leiki, við Þrótt og Reyni frá
| Sandgerði.
Fari svo að Siglfirðingar vinni
báða þessa leiki, þá eru þeir
jafnir að stigum við Þrótt og
aukaleikur þarf þá að fara fram
milli Þróttar og Siglfirðinga.
Vinni Þróttur leikinn við Siglu-
fjörð, þá eru þeir sigurvegarar
í A-riðli.
1 B-riðli standa málin þannig,
að hugsanlegt er að þrjú lið hafi
möguleika á að hreppa efsta
sætið. Tvö lið hafa þó til þessa
mesta möguleika, ísfirðingar og
Vestmannaeyingar. Vestmanna-
eyingar eiga eftir einn leik, við
FH í Hafnarfirði. Vinni þeir þann
leik þá hafa þeir fengið 12 stig.
Tapi þeir hinsvegar fyrir FH þá
minnkar möguleikinn.
fsfirðingar eiga eftir tvo leiki,
við Breiðablik á ísafirði og Vík-
ing í Reykjavík. Sennilegt er að
þeir vinni heimaleikinn, en þeir
hafa unnið alla leikina heima, þá
hafa þeir fengið 10 stig, en mjög
Þ E TT A er Ron Clarke frá
Ástralíu, er hann kemur að
marki sl. laugardag á Whiíe
City-leikvanginum í London.
Hann hljóp 3 mílur (4827 m)
á nýju glæsilegum heimsmeti,
12.52.4 mín. og er fyrsti mað-
urinn sem hleypur þá vega-
lengd undir 13 mín.
Ron CTarke átti sjálfur fyrra
heimsmetið, sett fyrir rúmum
mánuði, en hann bætti það
met nú um rúmar 8 sekúndur.
er nú sennilegt að þeim takisf
að vinna Víking líka. Breiðablik
hefur möguleika á, að fá 10 stig
og er þeirra aðstaða mun lakari
til að hafa áhrif á efsta sætið, en
hinna.
Hvað sem öllum spádómum
líður, þá munu leikirnir á laug-
ardaginn kemur þann 17. júlí
gefa svar að nokkru við þessum
spurningum. — R. M.
Staðan í 2. deild:
A-riðill
Þróttur ö 4 1 0 22:8 9
Siglufj. 4 2 1 1 9:7 5
Haukar 5 1 1 3 7:10 3
Reynir 4 0 1 3 2:15 1
B-riðiU
Í.B.V. 7 5 0 2 23:11 10
Í.B.Í. 6 4 0 2 19:13 8
Breiðablik 6 4 0 2 10:23 6
FH 7 2 1 4 17:15 5
Víkingur 6 1 1 4 9:16 3
Engin landskeppni við Dani
FRJÁLSfÞRÓTTASAMBAND ís-
lands hefur nú gefið upp alla von
um að af landskeppni Dana og
íslendinga í frjálsum íþróttum
verði, eins og gert var ráð fyrir.
Var um'það munnlegur samning-
ur milli forráðamanna samband-
anna, að Danir greiddu 12 þús.
d kr. vegna ferðar íslendinga til
Danmerkur, og var það sama
upphæð og Danir greiddu 1963
er þeir komu hingað.
Danir hafa hins vegar nú til-
kynnt að þeir geti ekki greitt
nema 8 þús d. kr. og FRÍ skoðar
það svar á þann hátt að Danir
vilji ekki keppa við íslendinga
og vilji vera lausir við að efna til
landskeppninnar.
Forráðamenn FRÍ drógu ekki
dul á að hér væri hreinlega um
samkomulagsbrot af hálfu Dana
að ræða. Að vísu hefðu ekki
verið gerðir skriflegir samning-
ar, enda væri slíkt ekki venja 1
slíkum tilfellum. Hins vegar
hefðu Danir alls ekki staðið við
það er þeir lofuðu er þeir komu
hingað 1963.
12 þús. d. kr greiðsía er aðeins
lítilfjörlegur hluti af þeim kostn-
aði sem er við landskeppni í
frjálsum íþróttum, ferðalög um
30 manna ásamt öllu sem því er
samfara. En nú er komið að
Dönum að taka á móti íslend-
ingurri, þá bregst fjárhagsgeta
þeirra skyndilega og þeir láta
sig muna um þau 2—4 þús d. kr.
sem gætu gert landskeppnina
að veruleika. Verður ekki annað
sagt en þeirra hlutur sé heldur
lítilmannlegur.
En þrátt fyrir þetta eru mörg
verkefni fyrir frjálsíþróttamenn
á þessu ári. 8—10 manna flokkur
fer til Helsingtfors 15.—17. ágúst
og hinn 21. ágúst keppa íslend-
ingar og Skotar í nokkrum grein-
um í Edin'borg. Það verður lands-
keppni með dálítið nýju sniði,
því völlur þar ér búinn rafmagns
teppi undir grasinu og því mega
engar kastgreinar fara fram.
Verður þarna keppt í stangar-
stökki, hástökki, 100 yarda
hlaupi, 220 yarda hlaupi, 440
og 800 yarda hlaupi, 2 mílna
hlaupi, míluhlappi, 120 yarda
grindahlaupi, 4x100 yarda boð-
hlaupi.
Næsta ár koma svo Skotar
hingað og er samningurinn við
þá algerlega gagnkvæmur. Þeir
borga jafn mikið fyrir íslend-
inga og við fyrir þá næsta ár.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en öðrum
biööuxn.