Morgunblaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 1
'24 ^iðuv
Hflaudling eða Heath eftirmaður?
1 'London, 22. júlí, AP - NTB:
SIR AILEC Douglas-Home, leið-
togi íhaldsflokksins t»re* *ka, hef
nr sagi af ser formennsku í
flokknum og ber því við, að gagn
rýni flokksmanna hans, sundur
J»ykki og ósamlyndi innan flokks
ins geri honum ókleift að halda
Jneim aga og þeirri einingu, sem
til þurfi, ef flokkurinn eigi að
Ktandast tnúning Verkamanna-
fliokki Wilsons.
Tilkynning um þessa ákvörð-
wn Sir Alec A'ar birt að loknum
fiuindi hans með nokkrum helztu
þingmönnum flokksins í kvöld
©g sagði jafnframt, að eftirmað
»r hans myndi kjörinn með at-
kvæðagreiðslu, sem hefjast ætti
mk. þriðjudag, en úrslit yrðu svo
kunngerð tveimur dögum síðar.
Meðal þeirra manna, sem tald
ír eru koma til greina, sem eftir-
nnenn Sir Alec, eru sagðir lík-
legastir Reginald Maudling, 48
ára gamall, fyrrum fjármálaráð
he.rra og Edward Heath, aðstoð
»r-ufanrikisráðherra, sá er beitti
sér manna mest fyrir því á sín-
nin tima að Bretar gengju í Efna
toagsbe’ndalagið. lain McLeod,
A mófi skipun
Goldbergs
sem var Jeiðtogi flokksins í neðri
málstofunni í stjómartíð Mac
Miilans, 52 ára gamall, er einn
þeirra, sem tilnefndir hafa verið,
en hann hefur þegar lýst því yf-
ir að hann gefi ekki kost á sér.
Sir Alec Douglas-Home er nú
62 ára gamall. Hann var áður
jarl af Home, hinn fjórtándi í
röðinni, en afsalaði sér tigninni
til þess að taka við embætti for-
sætisráðherra af Harold Mac-
milian í október 1963, eftir mikla
baráttu innan flokksins. Hann
var þá utanríkisráðherra. — Sir
Alec sat þó ekki lengi í forsætis-
ráðherrastóli því nákvæmlega
ári síðar, í október í fyrra, beið
íhaldsflokkurinn ósigur fyrir
verkamannaflokki Wilsons og
hafði þá farið með völdin í 13 ár.
Þegar Sir Alec tók við forsætis
ráðherraemibætti af Harold
Macmillan, var útlitið mjög
slæmt fyrir íhaldsflokkinn o,g
skoðanakannanir sýndu, að
Verkamannaflokkurinn átti mun
meira fylgi að fagna meðal kjós
enda. En eftir því sem leið á
kosningabaráttuna sótti íhalds-
flokkurinn á og bili'ð milli flokk
anna mjókkaði. Þegar komið var
að kjördegi, treysti enginn sér ti(l
að spá hversu fara mundi.
Verkamannaflokkurinn vann
sem kunnugt er kosningarnar en
með mjög naumum meiri hluta
og var Sir Alec almennt þakkað,
að íhaldsflokkurinn fór ekki ver
út úr kosningunum.
Að kosningunum loknum varð
Sir Alec leiðtogi stjórnarandstöð
unnar og endurskipulagði jafn-
framt æðstu stjórn og forustu
íhaldsflokksins. Hann leitaðist
við að gefa yngri mönnum flokk-
ins tækifæri til að sýna hvað í
þeim byggi, en sjálfur fór hann
ekki varhluta af gagnrýni fiokks
manna sinna og þá ekki síður
blaðanna í Bretlandi og var
Framhald á bls. 2
Beirut, Líbanon, 22. júlí AP:
LÍBÖNSK blöð lýstu því yfir í
dag, að skipun Arthur Goldbergs
i embætti aðalfulltrúa Bandaríkj
©nna hjá S.Þ., væri ögrun við Ar
ebaríkin. Goldberg sé Gyðingur
t>g Zíonisti og andstæðingur Ar-
ebarikjanna og forsetanum væri
fiæmra að afturkalla skipun
hans áður en verra hljótist af.
Sir Alec Douglas-Home. — Mynd
in var tekin á Keflavíkurflug-
velli í ársbyrjun 1964, er hann
kom hér við.
14 myiidir
koifinar frá
IHariifer 4.
Pasadena, Kaliforníu, 22. júlí
(AP)
f,Sekur“ segir Brooke
Moskvu, 22. júlí — AP: —
f DAG hófust í Moskvu réttar-
toöld yfir brezka kennaranum
Gerald Brooke, sem tekinn var
höndum í apríl sl. og borið á
brýn að hann hefði smyglað and
eovézkum áróðursbæklingum
inn í Sovétríkin og stundað þar
wjósnir. Aðspurður fyrir réttin-
um, hvort hann væri sekur eða
saklaus af áburði þessum svar-
*iði Brooke ,,sekur“.
Fátt manna var við réttarhöld
ín, sem fram fóru fyrir öpnum
dyrum framan af, meðan lesnar
voru ákærur á hendur Brooke,
en er nú haldið áfram fyrir lukt
um dyrum. Brooke, sem er 2'7 ára
gamall og rússneskukennari í
London var tekinn höndum í
Moskvu 25. apríl sl., er hann var
þar á ferðalagi með hópi brezkra
kennara.
í ákæruskjalinu, sem lesið var
yfir Brooke segir að hann hafi
verið staðinn að verki, er hann
afhenti Rússa nokkrum, læknin-
um Juri Konstantinov, og konu
hans smágjafir sem í voru falin
íyrirmæli um njósnastarfsemi,
útvarpssendingar og dulmálslyk
il að þeim. Er Brooke sagður
handgenginn samtökum rúss-
neskra flóttamanna og hafa starf
að fyrir þau niðan í janúar í
fyrra. Þá er honum gefið að sök
að hafa komið með nokkuð af
andsovézkum áróðursplöggum
tiV Sovétríkjanna og reynt að
dreifa þeim þar og eins að hafa
reynt að safna ýmsum upplýsing-
um um ástandið efnahagsmálum
og sjórnmálum í Sovétrikjunum.
Brooke ér maður kvæntur en
barnlaus. Hefur kona hans feng
ið að heimsækja hann í fangels-
in, sem Brooke hefur nú gist í
þrjá mánuði. Hann var fölur á
vangann er hann gekk inn í rétt
arsalinn en sallarólegur óg svar-
aði öllum spurningum, sem fyrir
hann voru lagðar sjálfur og
mælti á tungu landsmanna en
tveir túlkar voru við hendina
honum til aðstoðar, ef með
þyrfti.
Flóttamannasamtök þau, sem
Brooke er sagður hafa starfað
fyrir, kallast NTS, og hafa að
markmiði sínu að steypa af stóli
stjórn Sovétrikjanna. Samtökin
reka m.a. útvarpsstöð og hafa
sett á stofn deildir i flestum höf
uðborgum Vestur-Evrópu að því
er segir í frétt NTB, m.a. í Lond
on, en hvergi er starfsemi þeirra
þó eins mikil og í V-Berlin. Tal-
ið er að í samtökunum sé fjöldi
Rússa sem fiýðu iand eftir heims
styrjöldina síðari.
MARIN'BR 4 hefur nú sent til
jarðar 14 myndir af 21, sem áætl-
að var að hann tæki af Mars á
leið sinni fram hjá reikistjörn-
unni. Ef ailt gengur að óskum
ætti 21. myndin að koma til jarð-
ar á laugardag, en eins og áður
hefur verið frá sagt tekur það
um átta og hálfa klukkustund
að koma mynd til jarðar frá
Mariner 4. Þrjár fyrstu myndirn-
ar, sem Mariner tók af Mars voru
birtar í fyrri viku, en siðari
myndirnar munu ekki verða birt
ar fyrr en að nokkrum vikurn
iiðnum, að því er haft er eftir
forstöðumönnum rannsóknar-
stöðvarinnar sem gerði Mariner
út af örkinni og stjórna ferðum
hans.
USA biðst
afsökunar
Paris, 22. júlí (AP-NTB)
BANDARÍKIN viðurkenndu í
dag formlega, að bandarisk flug-
vél hefði farið inn á bannsvæði
yfir kjarnorkustöð Frakka við
Pierrelatte í Suður-Frakklandi
í fyrradag, kvað það óviljaverk
og bar fram afsakanir sínar. Tók
franska stjórnin þær til greina
og kvað málið þar með úr sög-
unni að því er Frakka snerti, en
Bandaríkjamenn lofuðu að sjá
til þess að annað eins kæmi ekki
íyrir aftur.
Papandreou, fyrrum' forsætisráðherra, tekur kveðju áhangenda
sinna, er hann kemur til skrifstofu sinnar í fyrsta sinn eftir að
Konstantín kóngur veik honum úr embætti. (Sjá grein á bls. 13)
ÁTAKALAUSTIAÞENU
Aþenu, 22. júlí. AP-NTB.
í DAG var grafinn fneð viðhöfn ]
í Aþenuborg Sotirios Petroulias,
25 ára gamall, sem beið bana I
í óeirðunum í gærkvöldi. Mikill |
viðbúnaður var af hálfu yfir-
valda í Grikklandi vegna jarðar-
íarar Petrouliasar og var hátt á
annað þúsund lögreglumanna á
verði við kirkjugarðinn, en
ámóta mikið lið aninars staðar
í borginni. Hvergi kom þó til
átaka. Var óttast að jarðarförin
gæfi tilefni til frekari óeirða og
átti að jarða Petroulias snemma
morguns, en fjölskylda hans
krafðizt réttarkrufningar, og
frestaði jarðarförinni, fyrst til
síðdegis, en síðan til föstudags
morguns. Er sagt að f jölsk. Pet-
rouliasar hafi jafnvel í hyggju
að sækja lögregluna til saka fyr
ir manmdráp, en Petroulias fékk
heilablóðfall er táragassprengja
sprakk rétt við hlið hans.
Hinn nýskipaði forsætisráð-
herra, George Athanasiadis-Nov-
as, hélt fund með ráðherrum sin
um í dag og kvað áhangendum
Papandreous fyrrverandi forsæt-
isráðherra ekki myndu haldast
Forsetakjör í
Portúgal
Lisboa, Portúgal, 22. júlí (AP)
Á SUNNUDAG fer fram í Portú-
gal kjör forseta landsins. í gær
fjallaði hæstiréttur landsins um
kjörgengi frambjóðenda til em-
bættisins og lýsti því yfir að lok-
um stundarfjórðungsfundi að
frambjóðandi eina stjórnmála-
flokksins sem leyfður er í land-
inu flokki Salazars forsætisráð-
herra, sjóliðsforinginn Americo
Thomaz, sem nú gegnir embætt-
inu fullnægi öllum þeim kröfum
sem til forsetaefnis séu gerðar.
Enginn maður annar er í fram-
boði.
Forseta Portúgals kýs 585
manna kjörnefnd, skipuð þingT
mönnum og fulltrúum bæjar-
stjórna í landinu og er hann
kosinn til sjö ára í senn.
uppi að fara með óspektum og
blóðsúthellingum um borgina. Er
jafnvel haft á orði að herlög
verði sett í Aþenu, en sagt að
her landsins sé því mjög mótfall-
inn.
Papandreou frétti orð eftir-
manns síns og lét illa yfir og
kvað óeirðirnar allar að kenna
andstæðingum sinum, en Athan-
asiadis-Novas sagði Papandreou
og fylgismenn hans aftur á móti
bera ábyrgð á öllu sem skeð
hefði. IoannisToumbas innanríkis
ráðherra. sagði að „skipulögð
stjórnleysingjaöfl“ stæðu að baki
óeirðunum, sem nú hafa staðið
í viku og orðið að bana einum
manni ejns og fyrr segir. 300
manns hafa særzt í átökunum,
þar af 80 hættulega og liggja
tveir í sjúkrahúsi meðvitundar-
lausir. Nokkuð á annað þúsund
manna hafa verið teknir hönd-
um.
Papandreou fyrrum forsætis-
ráðherra gaf út yfirlýsingu í dag v
þar sem sagði. að Athanasiadis-
Novas væri naér að segja af sér
og biðjast fyrirgefningar þjóðar-
innar. fyrir að hafa blekkt hana
til þess að reyna að ná meiri-
hluta á þingi. Er sagt að forsætis
ráðherrann skorti nú 20 þing-
sæti til að ná meirihluta. en
Papandreou segist sjálfur enn
eiga vísan stuðning 150 þing-
manna af 170. sem Miðflokkur-
inn hefur á þingi (af þeim 300
sem sitja i gríska þinginu). —
Athanasiadis-Novas mun æskja
traustsyfirlýsingar þingsins 30.
júlí og berst PapandreoU gegn
því með oddi og egg að honum
megi takast það, og segir bæði
hann og aðra ráðherra í hinni *■
nýskipuðu stjórn — sem allir
eru úr Miðflokknum — svikara
við flokkinn og sig, og vill ólm-
ur ná aftur forsætisráðherraem-
bættinu.
Allt var með kyrrum kjörum
í dag í Aþenuborg, verzlun og
viðskipti gengu sinn vanagang,
og búið var að hreinsa af aðal-
götunum glerbrot og blóðslettur
síðan í gær. En alls staðar voru
lögreglumenn á vakki og minntu
á að ástandið var enn ótryggt.