Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 28. Jfltf 1985 MORGUNBLAÐIÐ 13 ALÞJODliGT HEILSUHÆU ! STOFNAD Á ALS Hugmynd dansks læknís er var 70 ár í rússneskum fangabúðum Alexander Thomsen heitir kunnur læknir í Danmörku. Hann er ekki eingöngu læknir í Augustenburg í Suður Jótlandi þar sem hann hefur m.a. ljósa og nuddlækningastofu, en ekki síður þekktur víða um heim fyrir bók, sem hann skrifaði um 10 ár í rússneskum fangabúð- um. Sú bók hefur verið þýdd á fjölda tungumála og seldur kvik myndarétturinn að henni. Thom sen var tekinn til fanga er hann sem Rauða kross læknir vann við að aðstoða Norðurlandabúa við að komast burt frá Berlín í stríðslok, var haldið í 10 ár, en var loks sleppt 1955. Thomsen og kona hans, lett- neskur læknir, sem hann kynnt- ist í fangabúðunum eru vinafólk Lilju Bjarnadóttur Nissen, for- stöðukonu Farsóttarsjúkrahúss- ins. Hún skýrði Mbl. svo frá, að nú væri dr. Thomsen að koma í framkvæmd hugmynd, sem þró azt hefði í huga hans meðan hann var í fangabúðunum, en það er að stofna alþjóðlegt hvíld arheimili, þar sem fólk af öllum þjóðum, með hvaða trúarbrögð sem er, af hinum ýmsu litarhátt- um og efnalítið jafnt sem ríkt, gæti komist að og náð heilsu. I>etta hvíldarheimili á að reisa á eyjunni Als við Jótland. Þar á að koma upp heilsuhæli, fyrir 100 manns með nuddstofum, ljósaböðum og öðru því sem get- ur veitt fólki betri heilsu, en baðströnd er rétt hjá og miklir skógar. Upphaf málsins er það, að dr. Alexander Thomsen og Olite kona hans beittu sér árið 1963 fyrir að komið yrði upp félags- Dr. Alexander Thomsen erkur A.s. og eru hlutabréf í því boðin út og eru til sölu. Er ætl- unin að þegar hvíldarheimilið er kc.mið upp, þá geti Humanitas stofnunin veitt efnalitlu fólki scyrk til að geta notið þeirra gæða, sem þar er að fá. En hann er byggður fyrir gjafafé. — Dr. Alexander Thomsen er ákafTega humanistiskt innstilltur rraður og vill greiða götu þeirra sem sjúkir hafa verið, segir I.’lja Bjarnadóttir. Og þar sem íslendingar þurfa meira og minna á því að halda að sækja hressingarhæli í Danmörku, þá vildi ég segja frá þessu áformi hans. Ég held að það væri ágæt hugmynd að við styðjum þetta málefni og fáum jafnframt ;nni á þessum yndislega stað fyrir þá íslendinga, sem þurfa á því Frú Odile Thomsen með' son sin n Alex. Myndin er tekin í fanga- búðum 1952. Bkap, er ngfnist Humanitas, en | að halda. Það gæti líka orðið markmið hans var að gera efna- nokkurs konar þakklætisvottur litlu fólki, sem á þyrfti að halda, I fyrir að við fáum handritin. fært að dvelja á hvíldarheimili Ekki sízt þar sem þessi staður á Als og fá þá meðferð sern j _____________________________ þyrfti. Á félagsskapurinn að verða rekinn á alþjóðlegum grundvelli og er að koma upp bækistöðvum í Bandaríkjunum, Englandi, Svíþjóð, Noregi, ^ Þýzkalandi, Hollandi og Belgíu, en ætlunin er að ná til fólks af öllum þjóðernum jafnt. Albert Schweitzer er heiðursmeðlimur þessa félagsskapar og hefur lagt blessun sína yfir hann. í vet- j ur fékk Humanitas að gjöf 200 I þús. danskar krónur frá sjóði Mads Clausens verksmiðjueig- anda og Sönderborgbær hefur tekið frá 3,7 ha. 'landsvæði und- ir hvíldarheimilið. Þannig var kominn nokkur grundvöllur und ir hugmyndina. En svo stór stofn un verður ekki reist með eintóm um gjöfum, svo einnig hefur verið stofnað hlutafélagið Int- liggur á Jótlandi, sem alUaf hef- verið „Danmarks Smertens barn“, því það liggur svo ná- lægt Þýzkalandi. Lilja sagði nokkuð nánar frá lækninum, sem stendur fyrir stofnun Humanitas, dr. Alexand- er Thomsen. Hann var ungur læknir í stríðslok og í maí 1945 starfaði hann sem sjálfboðaliði með Rauða krossinum í Liibeck við að hjálpa flóttamönnum og stríðsföngum. Strax eftir upp- gjöf Þýzkalands, kom hann á vegum sænska ræðismannsins í Hamborg til þess hluta af 3er- iín. sem Rússar höfðu tekið, í þeim tilgangi að aðstoða Norð- urlandabúa við að komast heim. Er hann ætlaði heim, var hann tekinn til fanga af Rússum, sa t- aður um að hafa hjálpað r.azist- um. Og síðan byrjaði fangavist hans í hverju fangelsinu á fæt- ur cðiu, þar til hann loks var sendur í rússneskar fangabúðirn ar Workuta. Öðru hverju var hann látinn starfa sem læknir 5 fangabúðunum og honum var þá fenginn til aðstoðar kven- læknir frá Riga, sem einnig var læknir. Þau urðu ástfangin og eignuðust lítinn dreng. En áður en hann fæddist voru þau aðskil in, og drengurinn síðan tekinn af móðurinni, en hún fékk því loks komið til leiðar að hann var sendur heim til Riga til systur hennar. Fangavist Thomsens stóð í 10 ár, en loks var hann sendur heim til Danmerkur úr sérstök- um fangabúðum fyrir Þjóðverja í Rússlandi. Þá biðu hans ný vonbrigði, því hann var Titinn hornauga sem stríðsfangi frá Rússlandi. En meðan á fangavist hans stóð hafði bróður hans, Thomsen kapteinn úr banda- rísku upplýsingaþjónustunni, sem sendur var til Moskvu af utanríkisráðuneytinu tekizt að finna hvar hann var niður kom- inn og safna skjölrfth um feril hans frá byrjun. Sá bróðir dó éður en hann gæti nokkuð að- hofst til að ná honum úr fanga- vistinni, en öll gögn hans lágu fyrir og þar voru sannanirnar fyrir ferli Alexanders Thomse.ns og sakleysi hans af öllum ákær- um, sem á hann höfðu verið bornar. Ekki löngu eftir að Thomsen var látinn laus, fékk kona hans Olite vegna afskipta H.C. Hansens, forsætisráðherra, að fara til Danmerkur með barn þeirra, Alexander Thomsen. H.C. Hansen fékk því til leiðar kom- ið gegnum samtöl við Krusjeff er hann var í Moskvu. Um þetta skrifaði Alexander Thomsen bókina „I menneskelig- hedens navn“. í henni eru ýms- ar myndir, m.a. nokkrar frá fangabúðunum, svo og myndir af skjölum. En aftast birtist stytt- ur kafli úr dagbók konu hans, Odile, sem hún skrifaði eftir að þau voru skilin að í fangabúð- unum. f formála bókarinnar seg- ir höfundur m.a. Þessi bók á að vera ákall um réttlæti, miskunn semi og mannúð burt séð frá öllum andstæðum í trúarbrögð- um, hugsjónum og stjórnmálum. Frá Stakkavíkurfjöru. Flöskuskeyti rekur í Stakkarvíkurfjöru ÞEGAR gengið var á fjörur í Stakkavík á Selvogi á sunnu daginn var, fannst flaska þar á rekanum og í henni var bréf. Brjóta þurfti flöskuna til þess að ná því og opna þurfti bréf- ið með varúð, því nokkur raki hafði í það komizt. Er það hafði verið þurrkað, var það vel læsilegt. Bréfið var skrif- að á frönsku. Bréfritarinn var belgískur veðurfræðingur, bú- settur í Rotterdam í Hollandi, en starfsmaður á hollenzka veðurathuganaskipinu s/s Cirrus. Flöskunni hafði verið varp- að í sjóinn alldjúpt út af aust urströnd Grænlands, 28. fe- brúar 1964, og var uppdráttur Grænlands dreginn á bréfið til að sýna staðarákvörðun. Bréf ið hefur því verið nákvæm- lega 17 mánuði á ferð sinni til íslan. en efalaust farið geysilangan krók. Vitneskju um .ond þessa flöskuskeytis hefir nú verið komið áleiðis til heimilis bréf ritarans í Rotterdam. Það var ekki allfjarri þess- um stað, sem bjarghring rak af hinu glæsilegá^ danska Grænlandsfari Hans Hedtoft, sem á sínum tíma fórst við Grænland, með allri áhöfn og farþegum, alls um 95 manns. Hún á að vera krafa um fram- r indi til handa öllum ___burt séð kvæmd mannréttinaskrár Sam- frá kynflokki, þjóðemi og trúa- einuðu þjóðanna um mannrétt- I brögðum. * Arangursríkt starf Kirkjukórasambandsins AÐALFUNDUR Kirkjukórasam- bands íslands var haldinn laug- ardaginn 26. júní sl. Mættir voru fulltrúar frá flestum kórasam- böndum víðsvegar að af landinu. Fundarstjóri var kjörinn séra Þorgrímur Sigurðsson, prófastur, Staðarstað og fundarskrifarar frú Hrefna Tynes og Leifur Hall- dórsson í Reykjavík. Formaður Kirkjukórasam- bandsins, Jón fsleifsson, flutti skýrslu um liðið starfsár. Hann gat þess, að 8 kennarar hefðu starfað á vegum sambandsins og 30 kirkjukórar hefðu notið söng kennslu og fjárhagslegrar aðstoð ar Kirkjukórasambands íslands í 39 vikur. Þrír kirkjukórar voru stofnaðir á árinu og fjögur kirkjukórasambönd- héldu söng- mót, hvert fyrir sig. Mikill einhugur ríkti á aðal- fundinum varðandi störf Kirkju kórasambands íslands, og allir sammála um að efla beri starf- semi kirkjukóranna í landinu Kirkjan staðfesfir kraftaverk í Lourdes YFIRSTJÓRN kaþólsku kirkj- unnar í Marseille í Frakk- Iandi hefur lýst því yfir opin- berlega, að 29 ára frönsk stúlka hafi læknazt af beina- sjúkdómi eftir pílagrímsferð til Lourdes 1959. Marc Lallier, erkibiskup af Marseille, skýrði frá því, að kirkjan viðurkenndi lækning- una opinberlega se.m krafta- verk, og er þetta 65. skráða kraftaverkalækningin í Lour- des. Konan, sem lækninguna hlaut, Juliette Tamburini, hjúkrunarkona, hafði þjáðst af mergbólgu í vinstri mjaðmar- beini frá því að hún var 12 ára. 1959 hélt hún í pílagríms- ferð til Lourdes og baðaði fót- inn í vatni úr heilsulidunum. Læknir Juliette, Jean Bou- vala, sagði í skýrslu um lækn- ingu hennar, að sjúkdómurinn hefði horfið úr fætinum á einni nóttu. Var bati hennar vottaður af læknaráðinu í Lourdes og alþjóðlegri nefnd læknisfræðiprófessora. með auknum fjárstyrk O" meiri kennslu. * Stjórn Kirkjukórasambands ís lands skipa: Jón ísleifsson, formaður. Frú Hrefna Tynes, ritari. Finnur Árnason, byggingafull- trúi, gjaldkeri. Jón Björnsson, organisti, Patreksfirði. Eyþór Stefánsson, tónskáld, Sauðárkróki. Séra Einar Þór Þorsteinsson, Eiðum. Frú Hanna Karlsdóttir, HoltL Stevensonstyrknn til náms og starfa h]á S.Þ. Washington, 22. júlí (AP) JOHNSON forseti lagði í dag til, að stofnaður yrði sjóður er bæri nafn Adlai E. Stevensons, aðal- fulltrúa Bandaríkjanna hjá Sgm- einuðu Þjóðunum um árabil, sem lézt í London fyrir viku, og yrðu veittir úr sjóðnum styrkir til handa æskumönnum um allan heim að kynna sér starfsemi S.Þ. við nám og störf. _ Tillögu þessa flutti forsetinn á fundi um fræðslumál, sem hald- inn var í Hvíta húsinu og var henni mjög vel tekið. Johnson kvað slíkár styrkveitingar eklci einungis verðugan minnisvarða hins látna aðalfulltrúa heldur einnig táknrænt dæmi um áhuga Bandaríkjanna á menntun og fræðslu annarra þjóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.