Morgunblaðið - 13.08.1965, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.08.1965, Blaðsíða 13
Föstudagur 13. ágúst 1965 MORGUNBLADIÐ 13 Þórður Jónsson, Látrum: ,Þetta er ekki hægt4 LÁTRABJARG er einn þeirra etaða hérlendis sem fólk hefir gaman af að skoða, þegar fugla- lif er þar í blóma, og raunar hvenær sem er. Þetta bjarg á sína sögu, svo eem önnur hérlend björg, sögu um einn þátt þeirrar hörðu lífs- baráttu forfeðra okkar, og þeirr er kynslóðar sem nú er óðum að enda sitt æfiskeið á öld tækn- innar og man því tímana tvenna. Saga þessa bjargs er hvergi ekráð, utan einn þáttur hennar eem gerðist 1947 og vakti þá at- hygli um mikinn hluta heimsins, evo af varð mikil og góð land- Ikynning. Meðal annars vegna þessa þáttar, sem skráður var í myndum af kvikmyndatöku- manninum Óskari Gíslasyni, vill íóik koma á þennan stað, og sjá með sínum eigin augum hrika- leik hans og fegurð. En hvernig er þá að kom- ast á þennan stað? Það er því miður engan veginn gott. Fyrir harða bartátu Gísla Jónssonar, íyrrverandi alþingismanns okk- er, tókst að koma vegi hingað eð Látrum, en síðan Gísla naut ekki iengur við sem þingmanns, má segja að þessi vegur í heild hafi farið stöðugt versnandi ár frá ári, og heitir nú varla far- andi, þó má hrönglast þetta á fiestum bílum. Frá Látrum var hægt að fara á bil langleiðina út á bjargið, með því að aka yfir sandinn milli byggðarinnar og Brunnanúps, tem er fjall sem gengur fram milli byggðarinnar og bjargs- ins. 1960 kostaði vitamálasjóður vegagerð fyrir Brunnanúp og allt út á bjargbrún, en viti stend- ur þar á bjargbrúninni. Vega- málastjóri sá um lagningu veg- erins, og önnuðust verkstjórar hans hér framkvæmd verksins. Vegurinn var í alla staði vel lagður, og vel frá honum geng- ið, en þar sem liggur framan í hlíð Brunnanúps þá hrynur þar emásaman í skeringuna, og er nú vegurinn þar orðinn það mjór að hættulegt er orðið að fara hann á stórum rútum, en engin aðili hefir talið sig þurfa eð halda veginum við. Sama er eð segja um vegarspotta þann eem gerður var samtímis gegn- um túnið á Látrum, nema hvað hann er ekki hættulegur. Sandurinn sem aka þarf yfir, mun vera um 1,5 km., þar af 700 m. flugbraut (sjúkravöllur) eem er það harður að alloftast má aka hann á hvaða bíl sem er. Svo taka við grasmelar sem ekið er eftir að veginum í Brunnanúp, en bílarnir skera fijótlega niður úr grassverðinum ©g nýjar brautir verður að gera, útfrá þessu byrjar svo uppblást- ur á landinu. Sandurinn frá byggðinni og út eð flugvellinum er mjög laus, og íjöldi fólks lendir þar í erfið- leikum með bíla sína, sem spóla þar í sandinum og festast. Verð- ur oft sá endi á fyrirhugaðri ferð á Látrabjarg, að bíllinn sit- ur fastur í sandinum og byrjar þá strit og vandræði við að ná honurn upp og koma til sama lands aftur, en fólkið heldur heim með brostnar vonir um að fá að sjá fegurð Látrabjargs, er það að vonum ergilegt, þá helzt, ef búið er að aka mörg hundruð km. með Látrabjarg í huga sem hápunkt ferðarinnar, og rekast þá á þennan farartálma svo til á leiðarenda. Farartálma sem er þó mjög auðvelt að lagfæra, að- eins ef vilji réttra aðila væri íyrir hendi. Féð sem til þess færi, eru smámunir einir miðað við vegafé landsmanna. En hér eiga allir landshlutar hlut að jináli ,um not, vegarips. Ég, get hugsað, að frá því þéssi vegur kom fyrir Brunnánúp hafi heimamenn og Vitamála- sjóður haft í hæsta lagi 20% not vegarins, en ferðafólk hvaðan- sefa af landinu, og nokkrir út- lendingar um 80%. Segja má, og það með fullum rétti, að nær standi þeim mönn- um, sem ráða vegafé lands- manna, að koma vegum þangað sem brauðstritið kallar eftir þeim, heldur en að leggja vegi þangað sem ferðamanninn lang- ar að leggja leið sína sér til ánægjuauka, ef hvortveggja fer ekki saman. En sem betur fer, þá er lífs- kjörum þjóðarinnar þannig hátt- að í dag, að flest fólk getur tekið sér einhverja stund frá brautstritinu, og létt sér upp, en þá langar það til að koma á þá staði sem fegurstir og sér- kennilegastir eru á okkar landi, eftir eigin vali. Og er nokkuð eðlilegra, en hin trausta félags- hönd þjóðarinnar hjálpi því til að fá þá ósk sína uppfyllta. Ég hef séð farlama ferðafólk stutt fram á brún bjargsins, þar sem útsýn er góð til að njóta þeirrar fegurðar og hrikaleika, sem þessi staður hefir upp á að bjóða því fólki, sem aldrei áður hefir átt þess kost að líta yfir milljóna byggð fiðurliðans, byggð sem er háreistari en skýja kljúfar mannabústaða. Ég hef einnig séð lamað fólk borið af sterkum örmum félaga sinna, frá bílunum og á slíka staði, eng- inn má verða af því, að líta yfir þetta stórkostlega varpland ið- andi af lífi. Og sem betur fer, máist þá yfir strit við fasta bíla, brotnar bílpönnur, götótta benzín tanka o. fl. Alltaf er sá hópur stækkandi, sem fer frá okkar landi til út- landa til að skoða sig þar um, til þess fer mikið fé, og trúlega verður ríkið af nokkrum upp- hæðum í tollum og söluskatti af þeim vörum sem hópurinn hefir heim með sér. Þegar einnig er á þetta litið, þá getur það ekki talizt óeðlilegt, þótt það opin- bera greiði eitthvað verulega fyrir því fólki sem lætur sér nægja, eða verður að láta sér nægja að skoða sitt eigið land, með sinni fjölbreyttu náttúru- fegurð, þetta fólk kemur heim úr ferðalaginu, snautt af erlend- um varningi, en fróðara um sitt land, og féð sem það eyddi í ferðina heldur áfram að velta hér innanlands. Á þessum tvennum ferðastefn- um, er að mínu vití svo þjóð- hagslega mikill munur fyrir svo fámenna þjóð, að því ber að gefa nánari gætur en almennt er gert, og það opinbera á ekki að horfa í að leggja vegarspotta á þá staði sem séð er að ferðafólk hefir mikinn áhuga á, og þá al- veg sérstaklega þegar saman getur farið almenn vegaþjón- usta um leið, eins og hér á sér stað. Ef okkar land á að verða vax- andi ferðamannaland, sem það þarf að verða, bæði fyrir inn- lenda og erlenda menn, þá get- um við ekki haft efni á því, að ganga framhjá slíkum stöðum sem Látrabjargi, alveg sérstak- lega varðandi útlendinga, og ferðaskrifstofur innlendar ættu að kynna sér, hvað þeir útlend- ingar segja um Látrabjarg sem það hafa skoðað, en mér er ekki kunnugt um að nokkur útlend- ingur hafi komið á Látrabjarg á þeirra vegum, og má það kannski furðulegt teljast. • Nei, það má ekki dragast lengur, að þessi faratálmi, á leið- inni út á Látrabjarg verði lag- færður, og það þarf að gera meira. Það þarf að lagfæra veg- inn úr Örlygshöfn og út að Látr- um, þannig að akstur um hann sé fólki bjóðandi, án þess að það sé með lífið í lúkunum yfir því að stórskemma ökutækin. Ég get ekki að því gert, að'ég finn stundum tií með því fólki, sem verður að snúa frá þessum stað, án þess að fá séð Látra- bjarg með öliu sinu lífi, og oft snýr það við eftir að hafa lent i miklum erfiðleikum. Alveg sérstaklega finn ég til með öldruðu fólki, sem ef til vill er í sinni fyrstu og síðustu skemmtiför, og hefir valið þenn- an stað til að skoða, en verður frá að hverfa, niðurbrotið og vonsvikið. Þá verður flestum áhorfendum á að segja: „Þetta er ekki hægt.“ Ég er ekki I neinum vafa um það, að ef allir háttvirtir al- þingismennirnir, sá stóri hópur ásamt vegamálastjóra, væru staddir hér, og væru áhorfendur að vonbrigðum og erfiðleikum fólksins, að þá mundu þeir segja eins og við: „Þetta er ekki hægt.“ En sá er munurinn, að þeir hafa möguleikann til að láta lag- færa þetta en við ekki. Þess vegna er það vinsamleg beiðni mín til þeirra, að þeir láti lag- færa þetta tafarlaust, veit ég að hundruð ferðamanna mundu þeim mjög þakklátir fyrir þann greiða, og ekki síður fólkið sem býr við þennan veg. Látrum, 18/7 1965. Þórður Jónsson. — U+an úr heimi Framhald af bls. 14 neyddi litlu könnunarvélina til að hækka flugið. Önnur Starfighter-þotan kom nú þjótandi niður undir jörð til þess að dreifa þeim, sem eftirförina veittu með napalmi — benzínhlaupi. Benzínhlaupið skildi eftir mikinn reykhring í röku loft- inu og L19 smáflugvélin, sem kom nú aftur til að huga að flugmanninum, skauzt út og inn um reykskýið. Komið var sólarlag þegar „Andardráttur Töfradrekans" kom á vettvang. Það er DC3 Dakota flugvél, sem hlotið hefur þetta nafn vegna eld- spúandi eldflaugabyssu, sem komið er fyrir neðan á búk hennar. Flugvélin spændi upp frum- skóginn með nokkrum skot- hríðum úr eldflaugabyssunni. Flugmaðurinn kom nú út á bersvæðið aftur. Hann kastaði frá sér hvítu reykblysi til þess að gefa til kynna hvar hann væri staddur, og leítaði síðan skjóls í frumskóginum á ný. Þrjár vopnaðar, bandarískar þyrlur, komu nú fljúgandi úr austurátt. Skothríðin á jörðu niðri magnaðist nú að miklum mun, og rann saman í stöð- ugan hávaða. Þyrlurnar svör- uðu með því að skjóta eld- flaugum. Ein þyrlan varð fyrir skoti, og þar sem hún tók að missa niður eldsneyti flaug hún á brott. Önnur reyndi að lenda, en var hrakin á brott með öflugri skothrfð úr 50 kalíber vélbyssu. Eftir að hafa flogið umhverf is í 10 mínútur í skini hækk- andi tungls, tókst einni þyrl- unni að lenda. Áhöfn hennar fann fallhlíf flugmannsins. Hún beið síðan kvíðafull eftir að hann sýndi sig aftur í rjóðrinu. En flug- maðurinn kom aldrei. í harðn andi skothríð skæruliða hóf þyrlan sig á loft án hans. Ný skothríð úr sprengju- vörpum kommúnista neyddi varnarlið Duc Co til að hverfa aftur inn í vígi sín. Sumarliði Halldórsson ÞEGAR ég var lítil telpa heima í Pellsaxlarikofi, man ég það, að það var kominn ókunnugur mað ur. Hann gekk með bæjarlækn- um, staðnæmdist við fossana þrjá, sem eru í læknum með stuttu millibili í túninu. Hann strauk dö,ggina af grasinu, sem mynda’ðist frá úðanum frá foss- unurn þrem og hann fór mjúk- um höndum um gróðurinn á læ,kjar*bökkunum. Ha,nn gekk um túnið, horfði út á sjóinn, gekk um bergið, sem er í einu horni túnsins, þar sem við systurnar áttum leikhúsin okkar. Allt var skoðað og athugað, falleg orð sögð, sem glöddu litlar telpur. Allt var fallegt og gott. Þetta var Sumarliði Halldórsson. Patobi og mamma þekktu hann og var hann auðfúsugestur og á öllum heyrðisf að hann væri hvers manns hugljúfi. Hann var fæddur í Fel'lsaxlar- koti og alinn þar upp, var mér | sagt. Hann kom held ég á hverju surnri ti'l að líta á bernskustöðv- arnar, sem voru honum einkum kærar. Þá bjó hann á Akranesi. Árið 1946 missti éig manninn minn hér í Reykjavík og þurfti þ'á að fara suður í Fossvogs- kirkjugarð þar að lútandi. Hitti ég þá Sumarliða, þar sem hann var stanfsmaður hjá Kirkjugörð- Dregið í happdrætti 3. ÁGÚST sl. var dregið í happ- drætti u.m.f. „Björn Hítdæla- kappi“, sem stofnað var til á sl. vori til ágóða fyrir félagsheimili ÁlftaneShrepps og Hiraunhrepps að Arnarsta á Mýrum. Upp komiu þessi númer: 7638 Ferð á Ediniborgarhátíðina. 7988 Stálhúsgögn í eldthús. 2486 S'káldverk Gunars Gunn- arssonar. 7299 Málverk eftir Kristir Morthens. 3223 Ferðaviðtæki. 1014 Tjald. 6885 Kaffistell . 3567 Ritsafn Jóns Tnauista 6109 Myndavél. 4740 RafmagnsrakvéL 1682 RaflampL 3026 Stálhnifapör. 5421 Svefnpoki. 599 Bakpoki. 1573 Lindarpenni. 4328 Veiðileyfi í Hítarvatni. Sérstök athygli skai vakin á því, að lagt verður af stað í Edin borgarferðina 23. ágúst n.’k. Upp- lýsingar um vinninga gefur Bjarni V. Guðjónsson, Svarfhóli, sími um Arnarstapa, Mýtr. Öryggislæsingar á glugga. Hafnarstræti 21. Simi 13336. ‘Suðuriandsbr, 32. Simi 38775. Grundarliðið vann 6:5 Akranesi 11. ágúst KLUKKAN 9 í gærkvöldi var háð kinattspyrnukeppni á knatt- spyrnuvetllinum við Miðgarð milli Grundarliðsins og Innesinga Leikar fóru þannig, að Grundar liðfð sigraði með 6 mörkum gegn 5 hjá Innesingum. Bæði liðin 1 voru harðsnúin og leikurinn fjör miki'H. Margt var áhorfenda, I ‘bæði héðan og af Innesinu, í blíðu veðri. I Einhverjir þarna höfðu á orði, að þessi leikur hefði ekki verið sfður sfcemmtilegur en landsleik urinn við íra, og þarna voru þó gerð mörk. Dómari var Kjartan Guðmundsson bli'kksmiðameist- ari — Oddur. Sýnin^ Þorkels Gíslasonar , ÞANN 4. þessa mánaðar opn- aði Þonkell Gíslason máilverka- aýningu í „Gallery Eggerts E. Laxd:arl,“ Laugavégi 133 Á þriðja hiundrað manns hafa nú sótt sýninguna og 10 myndif enu seldar. Sýninguinni lýkur laúgandaginn 14. þessa mánaðar, M. 10 að kvöldi. um Reykjavikur. Þar sannarlega mætti ég viini. Hann var sjálfur búinn að reyna veikindi og dauða síns nánasta ástvinar og átti manna bezt méð að setja sig í annarra spor undir slíkum kring umstæðum. Allt, sem hægt var að gera, var gert fyrir mig. Síð- ar hitti ég hann oft og við tö8- uðum saman. Þá komst ég að raun um hve' óvenjulega góður maður hacnn var og sannaðist á honum svo sannarlega „Að þar, sem góðir rnenn fara, liggja guðs vegir.“ Síðast frétti ég af honum að hann væri farinn norður til son- ar sins, og hugsaði ég að það umhverfi hafi yerið honum að skapi, innan um gróður Vagla- skógar. Þetta eiga ekki að vera nein eftirmæii, aðeins þakk'lætis- kveðja til þessa góða manns, fyrir góðvild og ástú'ð, sem ég varð aðnjótandi frá honum á erfiðum tímum. Nú gyllir sólin lyng og land i laufi bærist vindur. Hann ber honum nú hinztu kveðju frá bernskustöðvunum kæru, fná fossunum og berginu og 01111, sem hann unni, þar, sem hann lék sér lítill'l drengur. Börnum hans og öðrum aðstandendum bið ég blessumar guðs um leið og ég sendi þeim mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sumarliða Hailldórssonar. Reykjavík 5. ágúst 1965. Fanney Gunnarsdóttir frá Fellsaxlarkoti. — Veljið rétta Framhald af bls. 19. til þess að verða í forystusveit framtíðarinnar. Undirbúningur framtiðar æskufólksins í dag, eins og raunar alla tið er fyrst og fremst fólginn í ræktun mann- gildisins. Það er þýðingarmesta hlutverk æskufólksins í dag að rækta sjálft sig og efla til öfl- ugrar sóknar til síbættrar fram tíðar þjóðarinnar. Þetta ræktunarstarf finnst mér minna á alla aðra ræktun og því finnst mér vel tilfallið að þessi skógarhátíð æskunnar er haldin hér í mesta og feg- ursta skógi landsins, ræktun frmtíðarinnar — skógræktin — sýnir glæsilegastan árangur. Látið þennan fagra reit' minna ykkur á hvaða árangri má ná með ræktun. Að lokum vil ég segja þetta. Ég hef óbilandi trú á því, að æskufólk dagsins í dag reynist þess megnugt að lyfta arfinum frá fyrri kynslóðum. Það mun snúast við verkefnum framtíð- arinnar af festu og þrótti og tryggja sess íslenzku þjóðarinn ar meðal fremstu menningar- þjóða framtíðarinnar með sí- batnandi lífskjörum andlega og efnalega. Það mun velja rétta leið að réttu marki, hvort held- ur markið er að verða fyrsti íslenzki geimfarinn eða geim- freyjan fjölfróður vísindamað- ur eða gildur bóndi, iðnaðar- maður eða sjómaður hinnar nýju tækni framtíðarinnar. K<m<U vrvlnní.. að auglýsing í útbreiddasta blaðinu borgar sig bezt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.