Morgunblaðið - 26.08.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.08.1965, Blaðsíða 1
jíZ S>J«V*»u-.ÍT Gemini 5 og Cooper slá met Brakið af Þorbirai RE 36 á s trandstaðnnm undir Kinnaberg i á Reykjanesi. Myndin var tekin » Sv. Þ.). í gærmorgun. — (Liosm. Mbl Vélbáturinn Þorbjörn RE 36 fórst vii Reykjanes í fyrrinótt 5 skipverjar fórust - eiitum var bjargað VÉLBÁTURINN Þorbjörn RE 36 fórst í fyrrinótt í hvass- viftri og miklum sjó við Kinnaberg, sem er milli Sand víkur og Reykjanesvita. Vír festist í skrúfu bátsins og hrakti hann upp undir kletta. Vitavörðurinn í Reykjanes- vita og björgunarsveitir úr Höfnum og Grindavík fóru á vettvang og björguðu Hafna- menn einum skipverja, Atla Michelsen, Hafnarbraut 8, Kópavogi. — Fimm af áhöfn bátsins fórust. Þeir voru: Guðmundur Falk Guð- Sáu 12 . fljúgandi diska Tijuana, Mexikó, 25. ágúst. — AP: NOKKRIR veiðimenn. sem dvöldust í San Quinti-dal, um 200 km suður af Ensenada í Mexikó, hafa skýrt yfirvöldum kvo frá, að þeir hafa séð 12 fljúgandi diska að næturlagi. Sögðust memnirnir hafa orðið gifurlega hræddir, og lagt á flótta í bíl sínum. Talsmaður hópsins, Adalberto Rodriguez Vega, segir, að þeir félagar hafi verið að búast tál . næturdivalar í dalnum, er þeir bafi komiö auga á einn fljúgandi Framh. á bls. 2 mundsson, skipstjóri og eig- andi bátsins, 52 ára að aldri, til heimilis að Kársnesbraut 131, Kópavogi. Hann lætur eftir sig konu og fimm börn. Hjörtur Guðmundsson, 15 ára, sonur skipstjórans. Jón Ólafsson, vélstjóri, 27 ára að aldri, til heimilis að Holtsgötu 23, Reykjavík. — Hann lætur eftir sig konu og tvö börn. John Henderson. 21 árs Suður-Afríkubúi, búsettur í Edinborg. Kaiz Gron, matsveinn, 22 ára að aldri frá Edinborg. Um tvö-leytið í fyrrinótt heyrð ist í talstöðvum, að vélbáturinn Þorbjörn RE 36, 46 lestir að stærð, væri í háska staddur skammt undan Kinnabergi. Veð- ur var mjög slæmt, mikill sjór óg hvassviðri. L.oftskeytastöðin í Gufunesi til kynnti vitaverðinum í Reykja- nesvita þegar um þetta og var hann kominn á staðinn kl. hálf- þrjú. Frá Reykjanesvita hafði björgunarsveitunum í Höfnum og Grindavík verið gert viðvart og komu þær á vettvang um fjögur- leytið, Hafnasveitin þó nokkru fyrr. Þegar hún kom á staðinn var Þorbjörn kominn upp undir klettana og tekinn að brotna all- mikið. Það tókst að skjóta línu yfir bátinn og náði eini skipverj- inn, serb þá var eftir, í hana og var hann dreginn í iand. Báturinn brotnaði mjög fljótt í sundur. Björgunarmennirnir úr Höfn- um voru áfram á verði á slys- stað og höfðu náð einu líki á land um kl. 11 árdegis. í gærdag voru menn á staðnum í þeirri von, að fleiri lí'k ræki á land, en straumasamt er á þessum slóðum. — Sjá frásögn á bls. 2 og 24. „Við vorum hræddir við að vinna gegn málstað sósíalismans" — athyglisvert viðtal við H. K. Laxness í „Information" Einkaskeyti til Mbl., Kaupmannah., 25. ágúst. — Rytgaard: NORSKUR blaðamaður, John Beoh Karlsen, hefur nýlega átt viðtal við Halldór Kiljan Laxness, og spurt hann ým- issa nærgöngulla spurninga. Viðtalið hefur nú birtzt í „Information", og kemur þar fram, að skáldið er mjög ó- ánægt með heimsóknir ferða- manna að húsi sinu við Gljúfrasitein. „Fólk streymir þangað, að- eins til að glápa á mig, eins og ég sé eitthvert furðudýr segir Laxness. „Það á ekkert erindi við mig, en telur míg greinilega eitt af því, sem sýna verður hverjum ferða- manni. Oft gefst ég upp. Ég veit ekk'i, hvernig ég á að fá vinnufrið. Um þessar mundir vinn ég að mörgu, m.a. um tólf blaða greinum, en ein 'þeirra á að fjalla um ábyrgð skáldsins í nútíma þjóðfélagi". Karlsen segir frá því í við talinu, að af þessum sökum hafi hann orðið að hitta Lax- nes að máli að heimili bans í Reykjavík. í viðtalinu er vikið að þeirri fregn, sem birtist fyrir skemmstu í dönsku kammún- istablaði, að unnið sé að því að fá Laxness til þess að vera í framboði við næstu forseta- kosningar. Sagði blaðið, að FraimhaJd á bls. 23. Houston, Texas, 25, ágúst — AP — NTB. GEIMFARARNIR Cooper og Conrad höfðu i dag verið' lengur á lofti en nokkrir aðrir banda- rískir geimfarar til þessa. Fylgdi fréttinni, að báðum mönnunum liði vel, þeir væru við beztu heilsu, og væri ekki að sjá, að langvarandi þyngdarleysi hefði haft nein áhrif á þá. Síðdegis í dag voru liðnir fjór- ir sólarhringar frá því, að „Gemini 5“ var skotið á loft. Þá var því lýst yfir, að geimfarið myndi verða enn a.mk. 24 tíma á braut umhverfis jörðu, en sú venja hefur verið höfð á, að dvöl þeirra í geimnum hefur verið framlengd um einn sólar- þring í einu. Gangi allt að óskum, þá munu geimfararnir bandarísku setja heimsmet í samfelldri dvöl í geimnum síðdegis á morgun. Það met hefur verið í höndum so- vézkra geimfara, ög var sett fyrir tveimur árum, ef Valery Bykovsky fór í geimferð sína, er varaði í 119 klukkustundir og 6 mínútur. Lengsta geimferð Bandaríkja- manna til þessa ef ferð þeirra Edward White og Jaines Mc Divitt, sem varaði í 97 klukku- stundir og 59 mínútuf. Þeim var skotið á loft í „Gemini 4“. Gordon Cooper hefur nú verið lengur í geimnúm, en nökkur annar geimfari, en þetta er önn- ur geimferð hans. 1963 var hann 34 klukkustundir og 20 mínútur á lofti í Mercury-geimfari, en hefur nú verið á lofti á fimmta sólarhring til viðbótar. Eins og greint hefur verið frá í fréttum, var í upphafi áætlaS, að „Gemini 5“ yrði á lofti í > sólarhringa Guðmundur L Guðmundsson Utanríkisráðherra frá störfum SÖKUM forfalla Guðmundar 1. Guðmundssonar, utanríkisráð- herra, mun dr. Gylfi Þ. Gísla- son, menntamálaráðiherra, taka á móti Karjalainen, utanríkis- ráðherra Finnlands, er kemur til íslands í dag, og Emil Jónsson, sjávarútvegsmálaráðherra sem væntanlegur er til landsins í lok vikunnar af félagsmálaráðherra- fundi Norðurlanda, síðan gegna störfum utanríkisráðherra fyrst um sinn. (Frá Utanrikisráðuneytinu).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.