Morgunblaðið - 28.08.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1965, Blaðsíða 1
Slagsmal í ríska þinginu — AtkvæðagreiðsEa um stjórn Tslrimokos i dag Le Corbusier látinn við sig hjá geimförunum í Gemini V. líklega 120 umíerðir Fara Aþenu, 27. ágúst — NTB | MIKIÐ gekk á í gríska þing inu í kvöld, er áfram var liaidiS umræðum um trausts- tillöguna á stjórn Tsirimokos. Hljóp svo mikill hiti í um- ræðurnar, að þingmenn létu hendur skipta áður en lauk. Nokkru eftir miðnætti var fundi slitið, án þess kæmi til atkvæðagreiðslu — og var umræðum frestað til morg- uns. Er þess vænzt, að Ijóst verði orðið, áður en laugar- dagurinn er á enda, hvort Tsirimoko heldur velli eða landið verður áfram stjórn- laust. Það voru þinigTnenn Miðtflokka- samibandsins og Þjó'ðradíkala- samibaindisins, sem börðiu hver á öðrum, er þá skorti or'ð til þess eð tiúilika tilfimnimgar sinar. Var þimgfundi þá frestað í tiu mínúf- ur, — esn þegar Ijóet var, að öld- urmar yröu eklki laegðar, var á’kveðið að senda þingmenn heim eð sofa, og fresta aÆgreiðslu tnáflsins tii morgundiagsins. Mikil eftirvænting var ríkj- endi í höfuðborg Grikklands í kvöld, lögregla hafði uppi við- búnað til þess að hindra óeirð- ir. 12.000 byggingaverkamenn gerðu verkfall í dag, samkvæmt ósk stjórnar verkalýðsfélags þeirra, sem er í höndum komm- únista. Komu nokkur þúsund verkfallsmanna saman til hóp- fundar og krofðust þess, að Tsir imokos segði af sér og að leið- togar verkalýðssambandanna, sem handteknir hafa verið í óeirðunum að undanförnu væru látnir lausir. Fóru verkamenn Framhald á bls. 27 v Mynd þessi var tekin í Seoul fyrir nokkrum dögum, er óeirðir stóðu þar sem hæst út af vin- áttusamningi Kóreu og Japans. Nasser fagnaö í Moskvu 6 sendiherrar mótmæla framkomu fulltrúa Viet Cong á l\ioskvu-flugvelli Mosvku, 27. ágúst. — NTB — AP — t NASSER, forseti Egypta lands, kom til Moskvu síðdegis í dag og var þar fagn- að mjög af helztu ráðamönn- um Sovétríkjanna, þeim Le- onid Brezhnev, aðalritara sovézka kommúnistaflokks- ins, Anastas Mikoyan, for- seta, Alexei Kosygin, forsætis ráðherra, og Andrei Gromy- ko, utanríkisráðherra, auk annarra. ♦ Það bar við á flugvellinum, að sex sendiherrar, sem þangað voru komnir, hættu við að taka þátt í móttökuathöfninni sökum þess, að þeim var skipað í röð eftir fulltrúa kommúnista í S- Vietnam, sem ekki hefur stöðu sendiherra, en hefur haft skrif- stofu í Moskvu frá því í apríl sl. Hafa sendiherrarnir mótmælt þessari framkomu og sögðu í við- töluin við fréttamenn í Moskvu í dag, að hér væri ekki stjórnmál- um tii að dreifa heldur væri hér eingöngu um að ræða brot á við- urkenndum alþjóðlegum siða- regium. Sendiherrarnir sex éru frá Grikklandi, Tyrklandi, Mauri- taníu, Chile, Ceylon og Sómalíu. Komu þeir allir til Moskvu á eftir Viet Cong-manninum, Dang Quang Minh, sem kallar sig „fast- Framhald á bls. 27 Þreyta gerir vart Nizza, 27. ágúst i — NTB — AP — t LE CORBUSIER, hinn , heimskunni arkitekt, lézt í dag á baðstaðnum Roque- i brune Cap Martin á I frönsku Rivierunni. Var Ihann á sundi, er hann lézt og var talið í fyrstu, að hann hefði drukknað — en læknisrannsókn leiddi í ljós, að banamein hans var hjartaslag. Le Corbusier hefði orðið 78 ára 6. októ- ber nk. Arkitektinn var að synda 50—60 metra undan landi, er ung kona, sem þar var skammt frá, tók eftir því að Shann átti í einhverjum erfið- leikum. Kallaði hún þegar á hjálp jafnframt því sem hún hraðaði sér til hans. Er hann hafði náðst í land, voru þegar í stað hafnar björgunartilraun 1 ir, en án árangurs. Skírnarnafn hins látna var Edouard Jeanneret Gris. Hann vax fæddur í La Chaux-De- Fonds í Sviss 6. október 1887, af frönskum foreldrum. Stund aði hann framan af nám í lista skóla í fæðingarborg sinni og ákvað þar að gera húsagerðar- list að ævistarfi sínu. Síðar nam hann einni-g í Austurríki, Berlín og París Og fór náms- ferðir víða um lönd, m. a. til Austurlanda. Árið 1919 settist hann að í París og hóf sam- starf við frænda sinn, Pierre Jeanneret, og hina kunnu Ferret bræður. Vöktu verk hans og hugmyndir um arkitektúr fljótlega athygli bæði innan Frakklands og utan og rigndi yfir hann verkefnum. Var hann með- al annars fenginn til þess að skipuleggja stór bygginga- svæði og jafnvel heilar borg- ir. Teiknaði hann m. a. há- skólasvæðið í Rio de Janeiro, borgarsvæði í Bogóta, fjölda húsa í Indlandi og frá grunni borgina Chandigarh, höfuð- borg indverska rikisins Pun- jab. Meðal frægustu verika- hans í Frakklandi er 17 hæða sambýlishús í Marseille, byggt á súlum. Einnig hefur hann gert aðalstöðvar Fræðslu vísinda- og menningarstofunl ar Sameinuðu Þjóðanna i (UNESCO) og hann var for- maður frönsku nefndarinnar, sem tók þátt í að skipuleggja aðalstöðvar Sameinuðu Þjóð- arina í New York. Yfirleitt hefur nafn Le Corbusier verið viðurkennt eitt hið stærsta í nútíma arkitektúr frá því um 1930 — og fyrir tveim árum lét franski menntamálaráðherr- ann Andre Malraux svo um mælt, að hann væri óumdeil- anlega mestur arkitekta heims. Houston, Texas, 27. ágúst. — NTB— AP — t LANGFERÐ bandarisku geimfaranna, Gordons Coop ers og Charles Conrads, hefur til þessa gengið að óskum og benda allar líkur til þess, að þeir haldi ferðinni áfram til sunnudags. Þó munu þeir lík- lega fara 120 umferðir um- hverfis jörðu í stað 121, þ.e. verða 90 mínútum skemur á lofti en fyrirhugað var, þar sem braut geimfarsins hefur ögn breytzt. Síðdiegis í dag kvörtuðu geim- fararnir um, að þeir væru farnir að finna til stirðleika o-g þreytu af því að sitja í geimfarin-u og viildu gjarnan mega teyigja dug- lega úr sér. Læknar í geimvís- indastööinni í Houston í Texas segja það með ölilu eðliflegt — og benda á, að meðalmaður verð ur gjarnan þreyttur af þvi einu að sitja í sama hægindastólnum þó eflaki sé nema 5—6 klst. Megi þafltka það hinni miklu og góðu þjáflfun geimfaranna, að þeir skuii hafa haldið út óiþreyttir tid þessa. Telja læknarnir, að geim- íaraxnix mundu geta hafl-dið á- fram ferðinni í nokkra daga tS viðbótar, ef því væri að gkipta. Einnig höfðu geimifararnir ortj á þvi í dag, að þeim væri farið leiðast úti í geimnum aðgerðar- lausum, — en í dag hafa þeir ekikj gert nieinar mœilingar né aðrar rannsóknir. Til þess að hafa ofan af fyrir sér tóku þeir sér fyrir hendur áð semja dægur lagatexta og senda tii jarðar. Þar tók við þeim geimfarinn James A. McDivitt, og lék hann fyrix ‘þá í staðinn nokkrar hljómplöt- ur með léttri tónflist. Var það vel þegið þar efra. Framh. á bls. 27. Mannfall I Kashmír? Muzaffarabad, 27. ágúst. — NTB — ♦ Hin leynilega útvarps- stöð, „Rödd Kashmírs", staðhæfði í gærkvöldi í fréttasendingu, að 578 ind- verskir hermenn hefðu lát- ið lífið í baráttu við upp- reisnarmenn í Kashmír síð ustu tíu daga. * >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.