Morgunblaðið - 28.08.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.08.1965, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ L'augardagur 28 ágúst 1965 Nýja Bústaðakirkjan mun taka 500 mann þegar opnað er inn i safnaðarsalinn Þessi mynd var tekin í gær á staonum. Þar sem kirkja Bústaðasóknar mun rísa af grunni austan Tunguvegar. — Þaðan sér yfir Fossvoginn og mun kirkjan verð a liin mesta prýði að sjá af Breið- holti, Kópavogshálsi og úr Fossvvogi. (Ljósm.: Gísli Gestsson) Vegasamband norötr Strandir Vegaendar násf e.t.v. saman i haust HÓLMAVÍK, 25. ágúst. — Vega gerð norður í Árneshrepp miðar vel áfram og sagði verkstjórinn mér um daginn, að ef ekki spillt **ii*V* KoHthoiW G|og»» . H li M A í L Ö ist mjög tíð, væru vegagerðar- menn vongóðir um að koma á sambandi til Djúpuvíkur á þessu hausti. En þá nást saman end- arnir á veginum norður Strand- ir og þar með komið vegasam- band alla leið norður í Ingólfs- fjörð. Strandirnar komast þá í vegasamband við vegakerfi landsins. Vegagerðarmennirnir eru nú komnir með veginn upp á Veiði leysuháls og eru nú að vinna Átta flugferðir AKRANESI, 26. ágúst. — Fluig- vélaidynur heyrist daglega yfir bænium og það o#t á dag. Leigu- flu'gvélarnar fara ábta fastar fierðir á dag. Aufcafiliuigferðir geba menn sivo panta, afitir vikl. Ajldtaf ná'lgast meir og meir sú stund, að fikugvöiMiurinai verði fuillgerður, avo að hann öðlist löggiliddinigu hjá fiiuigytfirvöliduin um. — Oddiur. þar sem farið er að halla niður að Reykjarfirði. Þegar niður að firðinum er komið, þarf aðeins að sprengja sig gegnum kletta- belti til að ná vegarendunum saman við Djúpuvík. Hafa þeir verið mjög heppnir í sumar, því þurrt hefur verið. Þetta er ekki upphleyptur veg ur norður Strandirnar, heldur rudd leið, en hún á að verða fær flestum góðum bílum. Þarna norður eftir er mjög erfið vega- gerð vegna mikillar bleytu og erfiðra kleifa. En það verður geysileg samgöngubót fyrir Strandamenn að komast í vegar samband við vegakerfi landsins og fá færan veg alla leið í Ingólfsfjörð. — Andrés. Grjét sprengt í hafnargerðina AKRANESI, 26. ágúst — Byrjað var á mániuidaginin 23. ágúsit að spirengja grjót og afca því í hafn- argerðina, ein eins og áðtfir hietfuir verið saigit frá í blaðiiniu á að láta vinma nú í sumar og nœsta swm- air við hafnarfraimik'væmdir hér fyrir 13 millj. króna. Verkstjóri við sprengingannar er Jónas Máruissoin. — Oddiur. NÝ kirkja fyrir Bústaðasókn hef- ur verið teiknuð og er nú verið að fá hana endanlega samþykkta hjá viðkomandi aðilum, skipu- lagsnefnd, borgarráði sL þriðju- dag, sóknamefnd á miðvikudags- kvöld og hjá almennum safnaðar- fundi nk. mánudag, þá verður einnig rætt um hvenær hægt verður að byrja á kirkjubygging- unni, en sóknarnefnd hefur mik- inn áhuga á að eitthvað verði byrjað í haust. Hin nýja kirkja er teiknuð af húsameistara ríkisins. Herði Bjarnasyni og mun standa austan megin við gatnamót Tunguveger og Bústaðavegar, þaðan sem sér yfir Fossvoginn og kemur kirkj- an til með að njóta sín vel af Breiðholti Kópavogshálsi og koma vel fram undan raðhúsun- um, þegar ekið er eftir Bústaða- vegi, að því er sr. Ólafur Skúla- son tjáði Mbl., er við leituðum frétta af kirkjubyggingunni í gær. Bústaðakirkja verður um 1040 ferm. að stærð, rúmar 350 manns í sæti, en að auki er safnaðar- salur, sem tekur 150 manns og hægt að opna þar á milli. Hefur tekizt mjög vel til með þetta fyrirkomulag, að því er sr. Ólaf- ur sagði okkur. Veggurinn á milli salanna hverfur alveg, ef á þarfa að halda, og safnaðarsalur- inn verður þá hluti af sjálfu kirkjuskipinu, þannig að altari og predikunarstóll sést vel úr öllum sætum. Sé lokað á milli, er veggurinn alveg hljóðheldur, þannig að t. d. er hægt að hafa tvær guðsþjónustur í einu í sam- bandi við barnastarfið. Þá eru ólæs börn, 4ra til 7 ára gömul i salnum, en eldri börn í kirkjunnL Sagði presturinn að vandræði væru að þurfa að tala við böra á svo ólíku þroskastigi í einu. Aðspurður um stíl kirkjunnar, I sagði sr. Ólafur, að kirkjan væri ekki í gamla krosskirkjustílnum * og nýtízkuleg um ýmislegt. Að | sínum dómi hefði arkitektinum tekizt mjög vel að sameina það úr gamla kirkjustílnum, sem stuðlaði að helgi og hátíðleika og maður vildi halda, ýmsu nýju, sem fólk í dag vildi gjarnan finna í kirkjunum og gerði þær starfshæfari en gömlu kirkjurn- ar. Akranesi, 24. ágúst: — GULUR Moskwitch, M-984, ók út af veginum, Vogatungu meg inn við brúna á Laxá í Leirár- sveit, kl. 2:30 aðfaranótt sl. mánu dags. Tveir menn voru í bílnum. Það bjargaði þeim frá meiðslum og bílnum skemmdum, að fram- hjól bílsins sukku á kaf og meira en það, í þykka leðju. Langferða bíll frá Þ. Þ. Þ. dró bílinn upp úr leðjunni, — Oddur. 'fc Kvartaði ekki yfir okkar mönnum Ekfci alls fyrir löngu birti ég bréf frá bandarískum blaða- manni, þar sem sagt var frá miður góðum viðtöfcum, sera einkaflugmaður sagðist hafa fengið á Islandi. Einkum og sér í lagi kvartaði hann yfir kostnaðinum við lendingu hér. Gunnar Sigurðsson, flug- vallarstjóri, hefur nú haft bréf legt samband við umræddan flugmann, Mr. Fiper, sem að líkindum er einn af eigendum Piper flugvélaverksmiðjanna. Gunnar sendi mér ljósrit af bréfum, sem bárust frá Mr. Piper og kemur þar í ljós, að sögumaður minn, bandaríski blaðamaðurinn, hefur fengið rangar upplýsingar. Sagan hef- ur breytzt í meðförum og sann leikurinn er sá, að Mr. Piper kvartaði yfir afgreiðslunni á Syðri Straurnfirði í Grænlandi, en var hins vegar mjög ánægð ur með alla þjónustu hér á Islandi og hafði síður en svo yfir lendingargjöldum að kvarta. Þetta eru ágætar fréttir og vona ég, að Gunnar Sigurðsson ©g hans fólk hafi ekki skað- azt. Mr. Piper hælir þeim ís- lendingum, sem hann átti skipti við, á hvert reipi — og er það nokkur sárabót. Mölin á Reykja- víkurvelli „í dálkum þínum er vikið nokkuð að Reykjavíkurflug- velli, í sambandi við Fokker Friendship Flugfélags íslands, og starfrækslu vélarinnar af malarflugvöllum, Er þar vitn- að til lendingar Caravelle þotu, hér á flugvellinum fyrir fjór- um árum, sem einskonar vis- bendingu um það, að „Friend- ship“ vélin, hljóti einnig að skemmast á Reykjavikurflug- velli, þó e.t.v. eitthvað minna en úti á landi. Staðhæfing þessi virðist mér nokkuð út í hött, því hví skyldi forstjóri Flugfélagsins, telja „brýna nauðsyn bera“, til þess að setja varanlegt slitlag á malarvelli út á landi, ef eftir sem áður mætti gera ráð fyrir að vél- arnar yrðu fyrir steinkasti, svo sem Velvakandi telur að eigi sér stað hér á flugvellin- um og er hann þó bæði steypt- ur og malbikaður. Það sem hinsvegar skiptir máli í þessu sambandi er að flugbrautir Reykjavíkurflug- vallar voru löngu hreinsaðar eftir „vetrarsandburð", þegar „Friendship“ vélin var tekin í notkun á s.l. vori og sandur sá sem borinn er á flugbraut- irnar ma. samfcvæmt ósk Flug- félagsins, er hafður eins fín- gerður og kostur er á, þó þann ig að hann veiti haefilegt við- nám í hálku og ísingu." Það breytir engu Ég get ekki fallizt á, að skrif min séu út í hött, eins og Gunnar orðar það. Hví skyldi forstjóri Flugfélagsins ekki telja brýna nauðsyn bera til þess að setja varanlegt slitlag á flugvelli úti á landi af því að möl berst inn á brautir Reykjavíkurflugvallar? Ég tók það fram í umrætt sinn, að vafalaust væri steinkastið á Reykjavíkurflugvelli minna en á venjulegum malarvelli. Ég nefndi þó sérstaklega eitt at- vik, þ.e. þegar Caravelle þotan kom. Það sá ég allt með eigin augum. Gott er að vita að brautirnar hafa verið hreinsað- ar — og þær upplýsingar stað- festa, að hreinsunar er þörf öðru hvoru. Og vonandi verður því haldið áfram. ★ Þrír fánar Kunningi minn hringdi til min og spurði hvort ég hefði séð leikinn gegn Norðmönnunv Ég fylgist ekki betur með í- þróttum en það, að ég vissi ekki að hér hefðu verið norsk- ir — en ég spurði hvernig leiknum hefði lyktað. Hann eyddi því, en sagði, að á íþróttavellinum hefðu blakt þrír norskir fánar. Engir tveir þeirra hefðu verið af sömu stærð og hann hefði hugboð um að einhver hlaupagarpur hefði verið sendur út af örk- inni tveimur tímum áður en leikurinn hófst til þess a3 reyna að fá lánaða norska fána hjá einhverjum líklegum aðilum. Manninum hefði tek- izt að hafa upp á þremur og fengið þá með því skilyrði, að þeim yrði skilað strax að leiknum loknum. Já, auðvitað ætti íþróttavöll- urinn að eiga fána Norðurland anna — að minnsta kosti — og alla af sömu stærð. Enginn ætlast til að völlurinn liggi með birgðir af öllum þjóðfán- um heims. En það er ósköp fá- tæklegt að sjá slíkt samsafn á einum stað, ósamstætt og oft misjafnlega upplitað. Hingað koma oft íþróttamenn frá Norð urlöndum og við ættum að vera jafn vel búnir undir í- þróttaheimsóknir á öllum svið- um. Er það ekki? NÝJUNG TVEGGJA HRABA HÖGG- OG SKÚNINGSBORVÉLAR Bræðurnir ORMSSON h.f. Vesturgötu 3. — Sími 38820.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.