Morgunblaðið - 17.10.1965, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.10.1965, Blaðsíða 11
Sunnuctagtfr T7. október 1965 MORCUNBLAÐIÐ 11 ur væri framleitt í verksmiðj- um. Ekki einu sinni í atóm- skáldskapnum. Flest þau tré. sem áður voru flutt til Reykjavíkur, komu frá Danmörk, og þá einkum fyrir tilstilli Schierbecks landlæknis. En þess má einnig geta til gamans, að Sturla kaupmaður Jónsson, flutti inn tré frá Sand- vík í Noregi. Eyvindur líkkistu- smiður lagði mikla alúð við garðrækt, eins og garðurinn hans við Óðinsgötu ber vott um. Þar eru tré frá Sandvík. Nokkr- ar Sandvíkurplöntur standa einnig við danska sendiráðið, sem Sturla byggði, svo sem silf- urreynir. — ★ — Við gengum eftir Laufásveg- inum, þar sem eru margir fallegir garðar. Að Laufásvegi 71, þar sem býr Jón Árnason. er einkennilegt lerki, en ekki sérlega fagurt. í garði Valgeirs Björnssonar að Laufásvegi 67 er 10 metra hátt sitkagreni og annað að Laufásvegi 52, þar sem Eyvindur Árnason bjó einnig. Garður Valtýs Stef- ánssonar er með ræktuðustu görðum í bænum og ber því Vitni, að þar hefur búið sá maður sem bezt kunni til verka í trjárækt og hefur með skrif- um sínum og áhrifum gert meira fyrir skógrækt á íslandi en nokkur annar. Valtýr sagði eitt sinn við Ágúst H. Bjarna- son, prófessor: „Ég skal segja yður, prófessor, það er alls ekki verra að rækta garða í Reykja- vík, heldur en á Akureyri, og mér kæmi reyndar ekki á óvart þó það reyndist auðveldara“. Þessi skoðun Valtýs kom fram skömmu áður en hann byggði hús sitt við Laufásveg, en þeir Ágúst voru þá að ræða um trjá- rækt á íslandi, og hélt prófess- orinn því fram að í Reykavík væru ekki jafn góð skilyrði fyrir trjárækt og á Akureyri. Þá var trjárækt hverfandi í Reykjavík, en fallegir garðar við annað hvert hús fyrir norð- an. Þessi orð Valtýs, eins og margt annað sem hann sagði og skrifaði, hafa reynzt rétt. Hann sá marga hluti betur en sam- ferðamennirnir. Gg enn höldum við áfram göngu okkar um bæinn, komum að Laufásvegi 43 og skreppum inn á baklóðina. Þar stendur, að því er bezt verður vitað, eini askurinn sem hefur komizt til nokkurs þroska á íslandi. Það er gaman að hafa einn Ask yggdrasiis í Reykjavík, ekki veitir af eins og tímarnir eru. Þessi askur er hið fegursta tré, og gæti vel verið lífstréð sjálft ef svo bæri undir — en forfeður okkar lýstu því svo, að „örn einn sitr í limum asksins, ok er hann margs vitandi, en i milli augna honum sitr haukr . . . fkorni sá, er heitr Ratatoskr renn upp ok niðr eftir askinum og berr öfundar- orð milli amarins ok Níðhöggs, en fjórir hirtir renna í limum asksins ok bíta barr“; sbr. hjörtr bítr ofan. . .“ Við sáum bæði örninn og haukinn og þrjá hirti, en sá fjórði var að heiman; okkur var sagt að Ratatoskur og Níðhögg- ur væru niðri í bæ að fylla eyra almenningsálitsins góm- sætu hunangi slúðursagnanna. Askinn gróðursetti Ragnar Ásgeirsson 25/4 1928, en þáver- andi eigandi hússins var Vigfús Guðmundsson frá Engey. f apríl 1962 var askurinn mældur og reyndist þá vera 10,2 m. á hæð, en 25 cm. í þvermál í 1,3 m. hæð frá rót. Við hliðina á askinum stendur fallegur hlynur, hann hefur spjarað sig vel víða um bæinn. Meðan við, göngum frá Lauf- ásvegi 43 að Laufásvegi 5, sem. er næsti áfangastaður, rifjum við upp að fyrir um það bil 40 árum var ekki eitt einasta tré í öllu þessu hverfi nema rifs- runnar. Nú er svo komið mál- um, að ekki er ólíklegt að næsta vor skorti garðplöntur, svo mikil er gróðursetningin í bænum. Nú keppast bæjaryfir- völdin við að fullgera götur og gangstéttir jafnóðum og hús eru reist, eða jafnvel áður, og eflir það vitanlega fegurðarþrá fólks, krefst þess beinlínis af sómakærum borgurum að þeir láti ekki dragast úr hömlu að snyrta í kringum hús sín. Auk þess hafa borgaryfirvöldin gengið vel fram í því að hirða sína eigin garða. Borgin er að breytast úr öskubusku í kóngs- dóttur. Hákon sagði að við Laufás- veg 5 væru elztu trén í bænum, álmur og hlynur; þau gróður- setti Þorvaldur Thoroddsen 1888, og hefur sennilega fengið plönturnar úr garði tengda- föður síns, Péturs biskups, en hann bjó þar sem Morgunblaðs- húsið er nú. 1914 var álmurinn 4,7 m. hár og hlynurinn 5,0 m.. en 1962 voru þessi sömu tré orðin 9,20 og 9,30 m. á hæð. Trén hafa að vísu vaxið hægt, en örugglega. Laufásvegur 5 er merkilegt hús og á sér minnisverða sögu. Þar bjó eins og fyrr getur Þor- valdur Thoroddsen, mennta- skólakennari, og þar eru Borg- systkinin alin upp. Anna Borg bærinn hlýrra og betra athvarf í hversdagsnæðingnum. Slík gönguferð er mannbætandi — og ekki veitir nú af. Við lukum svo göngu okkar í Alþingisgarðinum, en á leið- inni þangað sagði Hákon mér að skoða, þó seinna yrði, garð- ana við Grettisgötu, Njálsgötu og Lindargötu, þeir væru marg- ir fallegir með merkilegum trjám frá þeim tíma, þegar garðrrekt var að hefjast fyrir alvöru í Reykjavík. Hann benti mér einnig á garð Guðlaugar Bergsdóttur á Karlagötu 20, en þar er álmur frá 1937 og er nú 10 metra hár, mjög fallegt tré; þá benti hann mér að skoða silfurreyni, 9 m. háan, í garði Marenar Pétursdóttur, ekkju Baldurs Sveinssonar, að Laugavegi 66 — eitt fallegasta tréð í bænum; ennfremur eina linditréð sem vitað er um að heyi lífsbaráttu í Reykjavík; einstætt að linditré, sem er Mið- Evróputré, skuli skrimta svo norðarlega. Það er í garðinum að Bárugötu 16, og stendur þétt við húsið. Loks er mjög fallegt m f • ' 7 J t M: £ w Ö£Í ijt m hefur vafalaust einhvern tíma átt þessi gömlu, virðuleg tré að vinum. Og ekki voru þau há í lofti, þessi tré, þegar hér bjó Páll Ólafsson skáld, hjá Jóni bróður sínum, skáldrit- stjóra eins og Stefán Einars- son befði víst kallað hann. Jón- hafði blaðaútgáfu sína í kjall- aranum. í þessu húsi dó Páll 1905, og er mér sagt að kista hans hafi verið breiðari og styttri en allar aðrar, vegna þess hann bað um að vera jarð- aður í sömu stellingum og þeg- ar dauðinn kæmi, þá lá skáld- ið krepptur á hliðinni. Nú er leiði hans í gamla kirkjugarð- inum týnt, það var norðanvert við líkhúsið og þekktist lengi af baldursbrám sem Ragnhild- ur, kona Páls, setti á það. Þegar hún lézt, týndist leiði skáldsins. Allt týnist, einnig Páll Ólafsson. ★ ★ Og þannig getum við gengið endalaust um borgina okkar og heilsað upp á trén i görðunum og eignazt vini sem bregðast ekki, þegar minnst varir. Eftir þessa gönguferð fannst mér gullregn í garði Egils Hall- grimssonar, kennara, að Báru- götu 3, það ber fræ og hefur Skógræktin fengið plöntur af því. Annars eru mörg falleg gullregn í bænum, og hafa flest verið gróðursett upp úr 1930. Og nú stóðum við í Alþingis- garðinum og virtum fyrir okk- ur trén, sem Tryggvi Gunnars- son ræktaði þar á bjartsýnisár- um þjóðarinnar, en hafa aldrei náð fullum þroska. Ég spurði hvers vegna trén hefðu ekki komizt til manns í þessum virðulegasta garði landsins, og svaraði Hákon því til að garður inn stæði svo lágt að sjór félli inn í hann, þegar stórstreymt væri, og ræturnar kæmust því ekki nema í vissa dýpt fyrir salti. „Þessi tré verða að lifa í tiltölulega þunnum jarðvegi", sagði Hákon að lokum. Merkilegt að jarðvegurinn skuli vera ónógur einmitt á þessum stað. Hér hefði maður þó haldið að vaxtarsprotinn frá bjartsýnisárunum mundi ná fullum þroska. En enginn má við salti og sjó. Áki Jakobsson hæstaréttarlögmaður Austurstræti 12, 3. hæð, Símar 15939 og 34290 BIRGIK ISL GUNNARSSOIS Lækjargötu 6 B. — 11. hæð Málflutningsskrifstola ■v. VINDUTJÖLD í öllum stærðum Framleiddar eftir máli. 1 - . Kristján Siggeirss. hl ^augavegi 13. Sími 13879 Kristján Siggeirsson hf. Laugavegi 13. — Sími 13879. balastore Stærðir 45—265 cm. Þakjárn—Þakpappi Fyrirliggj andi: Þakjárn, galv. kr. 14,30 pr. ft. Þakpappi, skozkur Þaksaumur, galv. Buxur Pils Peysur Blússur Austurstræti 7 — Simi 17201. iBlaðburðarfólkl vantar í eftirtalin hverli; Aðalstiœti Vesturg. II Kleifarvegur Þingholtsstræti Tjarnargata Lindargata Suðurlandsbraut Vesturgata I Sörlaskjól J iW-il il-iv i|$tiv 4- SÍMI 22-4-80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.