Morgunblaðið - 09.12.1965, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 9. des. 1985
Tóbaksekrueigandinn var að
aýna konu ekrur sínar.
— Hérna sjáið bér tóbakstré í
fullum skrúða, sagði hann.
— En hvað það er dásamlegt,
evaraði konan, en segir mér, hve-
Dær verða vindlarnir íullþroskað-
ir?
— Hvaða kventegund giftist
þú?
.— Hún er engill.
— En hvað þú ert heppinn.
Mín er ennþá á lífi
Blaðamaður hafði frétt af 104
ára gömlum manni, sem bjó
skammt frá borg hans og nú heim
sótti blaðamaðurinn hann til þess
eð eiga við hann viðtai.
— Og hverju þakkið þér þenn-
an háa aldur? spurði blaðamað-
urinn.
— Því að ég hef aldrei bragðað
éfenga drykki á ævinni, svaraði
sá gamli. Hann hafði varla sleppt
orðinu, og geysilegur hávaði og
bölv heyrðist í næsta herbergi.
— Hvað var þetta? spurði
blaðamaðurinn.
— Æ, þetta var bara hann
pabbi. Hann lætur alltaf svona
þegar hann hefur smakkað það.
Maður nokkur kom inn í veit-
Ingahús og pantaði fisk. Þegar
hann hafði borðað nokkra bita,
kallaði hann á þjóninn og sagði:
— Hvernig stendur á þessum
vonda fiski? Ég kom héma fyrir
tveimur vikum og þá fékk ég
þennan dæmalaust góða fisk.
— Nú einmitt það. Og þetta er
sami fiskurinn.
Tveir menn voru að tala um
bítlahárið.
— Mér geðjast ekki að þessu
mikla hári hjá piltunum, sagði
annar, maður veit t.d. ekki hvort
*r karlmaður og hvort er kven-
maður, þegar maður sér tvær
manneskjur ganga eftir götu.
— Jú, það er mjög einfalt, svar
aði hinn. — Þú athugar einfald-
lega hvor það er sem hlustar —
það er karlmaðurinn.
Benedikf Blöndal
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 3. - Sími 10223.
Magnús Thorlaeius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1-1875.
LOGI GUÐBRANDSSON
hénaðsdómslögmaður
Laugavegi 12 — Sími 23207.
Yiðtalstími kl. 1—5 eJx.
GUSTAF A. SVEINSSON
hæslaré t tar lögmað ur
Laufásvegi 8. Sími 11171.
MORGUNBLAÐIO
25
Fólk úr víðri veröld
ANN SYLVAN & CO.
Á danska stjörnuhimininn er
nú uppgengin ung söngkona, Ann
Sylvan að nafni, sem er dönsk
að uppruna, þótt nafnið beri þess
ekki vott. Ann Sylvan er 18 ára
gömul og sendi nýlega frá sér
plötu, sem nýtur feikna vinsœlda,
Message Understood. Það var
söngvarinn Johnny Reimar, sem
uppgötvaði þessa nýju og ágætu
söngkonu, en hann er ráðgjafi
plötufirmans Nordisk Polyfon, og
hlustar daglega á fjölda táninga,
sem langar að verða frægir. —
Reimar varð svo hrifinn af söng
hinnar 18 ára gömlu Sylvan, að
hann útvegaði henni samning á
svipstundu, og afleiðingin er sú
að nú syngur Ann með Herman
Hermits og Hollies á ferð þeirra
í Svíþjóð og víðar.
SLÆMT LOFT f CAVERN
Nú stendur til að loka The
Cavern, Liverpoolklúbbnum, þar
sem bítlamir hittu fyrst Brian
Epstein og Cilla Black, þar sem
Billy Kramer and the Dakotas
og margar aðrar „pop“-stjörnur
hófu feril sinn. Fyrir skömmu
héldu borgaryfirvöldin í Liver-
pool fund þar sem heilbrigðis-
fulltrúi borgarinnar, Ian Levin,
krafðist þess, að klúbbnum yrði
séð fyrir loftræstingu og salernis-
málin þar tekin til gagngerðrar
endurskoðunar, ellegar yrði hon-
ura lokað. Kostnaðurinn sem
þetta rnundi hafa í för með sér,
er xxm 360.000 krónur íslenzkar
og þær á eigandi Cavern, Ray
McFall, einfaldlega ekki til. —
McFall segir:
— Mér þykir það leitt, en ég
sé engin ráð til að afstýra_ því
að klúbbnum verði lokað. Ég á
peningana ekki til, þannig að ég
verð að selja. Það verður tap
fyrir borgina á margan hátt —
hugsið ykkur aðeins, að Liver-
pool er heimsfræg sem fæðingar-
staður „beat’s“-ins. En borgar-
ráðið lítur ekki á málið frá því
sjónarmiði.
The Carvern stendur nú höll-
um fæti fjárhagslega, sökum lít-
illar aðsóknar, á þessum síðustu
og verstu tímum, en i gamla
daga átti klúbburinn miklu gengi
að fagna og peningarnir
streymdu inn, vegna allra „beat“
stjarnanna, sem þar hafa komið
fram á undanförnum árum. Nú
virðist ekki annað fyrir hendi,
en að þessum stað, þar sem
vagga „beats“-ins stóð verði lok-
að, og þykir mörgum að vonum,
erfitt að sætta sig við það.
MEIRA UM PETULA CLARK
Petula Clark var gerð rækileg
skil hér í dálkunum fyrir nokkr-
um dögum. Hins vegar voru að
'berast þær fregnir af henni, að
hún væri allt að því trúlofuð.
Ungur maður, hinn ásjálegasti
eins og gefur að skilja, hefur
grunsamlega oft sézt í fylgd með
henni í næturklúbbnum fræga,
Copacabana í New York. Ekki
er .gjörla vitað um nafn hins
unga manns, en allar kjaftakerl-
ingar kvikmyndablaðanna í
Bandaríkjunum leggjast nú á
eitt, að grafa það upp, svo og
fortíð unga mannsins.
JAMES BOND ~>f ~>f« Eftir IAN FLEMING
— Ah! Þér eruð harðgerðar, ungfrú —
og það líkar mér! Nú segið T»ér mér, hver
sendi yður, eða ég brýt eitthvað . . .
— Hættu þessu, Quarrel. Hún vill ekki
tala . . .
— Hann nær í ykkur, svínin ykkar!
Hann nær í ykkur!
— Aðeins einn náungi getur hrætt fólk
til að þegja svona vel, stjóri . . . og það
er DR. NO! ^ *
" í
t
JÚMB Ó —K— — -X— —<-K—
Teiknari: J. M O R Á
Júmbó var yfir sig hrifinn af því, hve
fljótur Fögnuður var að skilja þetta heima
tilbúna fingra- og táknmál. Hann yfirgaf
Fögnuð, þar sem hann var önnum kafinn
við að tína brauðaldinin, og gekk niður að
ströndinni. Útsýnið var mjög takmarkað
þarna, og það var aldrei að vita hvenær
mannæturnar sneru aftur.
En allt virtist vera í ró og spekt. Eftir
nákvæma könnun á umhverfinu Iagði
Júmbó frá sér byssuna og tók til við fisk-
veiðar. Þarna moraði allt af humar og
öðrum krabbadýrum, og brátt var karfan
full.
KVIKSJÁ *—)<—. --K-
Fróðleiksmolar til gagns og gamans
SÁ möguleiki, að atómstyrjöld
kynni að gera óvirkar banda-
rískar höfuðstöðvar á jörðinni
og þannig lama hernaðarstjórn
Bandaríkjahers, varð til þess að
fyrir fjórum árum lét hershöfð-
ingjaráð Bandaríkjanna byggja
neyðarhöfuðstöðvar, sem komið
var fyrir í risastórri þotu, eða
nánar tiltekið fjórum slíkum
þotum, sem skiptast á vöktum.
Sú höfuðstöð, sem er á vakt
hverju sinni er yfirleitt í 8 km.
hæð og lendir ekki fyrr en önn-
ur höfuðstöð hefur hafið sig til
flugs. Um borð í þotunni er
ætíð einn hershöfðingi og starfs
lið valinna visindamanna, sem á
einu augnabliki geta náð sam-
bandi við Stríðsmálaráðuneytið
og Hvíta húsið. Ef svo ólíklega
skyldi vilja til, að allar varð-
stöðvar á jörðinni yrðu eyði-
lagðar, mun þessi fljúgandi höf
uðstöð taka taumana í sínar
hendur og stjórna öllum gangi
atómstyrjaldarinnar. Þar af leið
andi er um borð í hinum f jórum
þotum „rauð askja sem inni-
heldur allar þær fyrirskipanir,
sem Stríðsmálaráðuneytið hef-
ur talið nauðsynlegt að gefa. En
einn maður getur ekki opnað
þessa „rauðu öskju“.