Morgunblaðið - 14.01.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.01.1966, Blaðsíða 28
Langstœista og fjölbieyttasta blað landsins 10. tbl. — Föstudagur 14. janúar 1966 Helmingi utbieiddaia en nokkurt annað íslenzkt blað Enn dauðaslys í GÆRMORGUN snemma skeði það hörmulega slys að Andrés Sigurðsson bóndi í Asparvík á Strönd- um varð fyrir voðaskoti og beið bana. Atburður þessi skeði um kl. 7 í gærmorgun og var Andrés að búa sig á tófuveið- ar, er skot hljóp úr byssu hans með þeim afieiðingum að hann beið bana. Kona hans hringdi í nætur- síma til Hólmavíkur og komu þaðan iæknir og fulltrúi sýslu manns á staðinn. Nánari atvik slyss þessa eru enn ekki kunn. Andrés heitinn var maður á fimmtugsaldri, kvæntur og átti 4 börn. í>etta er þriðja banaslysið sem verður á nýbyrjuðu ári. Eitt var á Akureyri og annað norður í Blönduhlíð. ikill áhugi verktaka Búrfellsvirkjun í LOK þessa mánaðar og byrjun bins næsta verða opnuð tilboð í framkvæmdir við væntanlega BúrfeJls- virkjun. Hinn 24. jan. verða opnuð til- i túrbinur stöðvarinnar og 4 febrúar tilboð í aðalverkið, það er byggingu orkuvereins sjóJfs. Tiilboð í rafala verða opnuð sáðar. Mangir aðilar hafa þegar sýn/t áhuga á verki þessu og má búast við mörgum tiiiboðum bæði frá erlendum og innlend- u<m venktökuim. Hingað hafa komið menn fná erlendum véia- fyrirtækjuim tiJ að kanna þá vinmurvélanotkun, sem verður við byggingu virkjunarinnar. Gert er ráð fyrir að fram- kvæimdir heifjisit við sjálfa virkj- unina með vorinu. 11 ára drengur varð fyrir bíl LAUST fyrir kl. 11 í gærmorg- un varð það siys að Egilstöðum á Vöilum að 11 ára drengur, Halldór Pálsson að nafni, varð þar fyrir bíl og slasaðist veru- lega. Nánari tildrög eru þau að Land-Rover bifreið. var ekið á fremur hægri férð eftir götunni Skógariönd í Egiistaðakauptúni. Hljóp drengurinn þá út á götuna og varð fyrir bifreiðinni og mun hafa lent undir bæði fram- og afturhjóli bílsins hægra megin. Drengurinn lærbrotnaði og fékk höfuðhögg, en missti þó ekki meðvitund. Hann var fyrst fluttur í sjúkraskýiið á Egiistöð- um en síðan á Fjórðungssjúkra- húsið í Neskaupstað. Líðan drengsins var I gær- kvöidi eftir atvikum æsmileg. Tíð er nú eins og á sumardegi og allar framkvæmdir útivið í fullum gangi. Steypuvinna er víðast stunduð nú þessa dagana og unnið að skurðgreftri og öðru jarðraski, sem þurfa þykir, því ekki hamla frost og snjóar. Þessa fallegu mynd tók ijósmyndari blaðsins, Ól. K. M. íyrir skemmstu í blíðviðrinu af Borgarsjúkrahúsinu í Fossvogi, þar sem ijós voru tendruð í flestum gluggum í skammdegishúminu, en þar er nú unnið af fuilum krafti við frágang hinnar veglegu byggingar. Landsliðið á móti Pólverjum valiö Ljds- og hljdðmerki slökkvibifreiða í athugun í GÆR voru valdir liðsmenn þeir í landslið Islendinga er leika skal körfuknattleik við iandslið Pólverja næstkomandi sunnudag í íþróttahöliinni hér í borg. Verður það sem kunnugt er fyrsti landsleikur íslendinga og Pólverja og hefst leikurinn kl. 4 sáðdegis. I landsiiði Islendinga verða þessir menn: Birgir Birgis og Davíð Helgason, báðir Ármenn- ingar, þá Ht-ingarnir: Agnar Friðriksson, Birgir Jakobsson, og Hólmst^inn Sigurðsson, Óiaf- ur Thorlacius, Körfuknattleiks- fé. Reykjavíkur og KR-ingamir: Einar Bollason, Kolbeinn Páis- son, Hjörtur Hansson og Gunnar Gunnarsson. Framkvæmdir við Strákagöng ganga vel MBL. NÁÐI í gær tali af Skúia i Guðmundssyni verkfræðingi hjá Almenna byggingafélaginu, og; spurði hann frétta af framkvæmd um við jarðgöngin i gegnum Stráka við Siglufjörð. Sagði hann, a'ð verkinu hefði miðað vel áfram síðan samningar tókust við verkalýðsfélagið Þrótt á Siglu- firði um fyrirkomulag á vakta- vinnu. Nú er unnið þar á vöktum allan sólarhringinn sex daga vík unnar, og hafa verið sprengdir rúmiega 200 metrar af þeim 780 sem fyrirhugaðir eru. Áætia'ð er, að göngin verði til búin til umferðar næsta haust. Ails starfa þar nú 25 manns, og eru það allt ísiendingar, nema einn þriggja fiokksstjóra, sem er Færeyingjur. Verkfræðingur á staðnum er Sigfús Thorarensen, og hefur hann yfirumsjón með verkinu. í FUNDARGERÐ borgarráðs frá 11. jan. s.l. er frá því skýrt að Jagt hafi verið fram bréf frá slökkviliðsstjóra borgar- innar þar sem Jagt er til, að fram fari athugun á því, hvort breyta skuli um aðvör- unarmerki á slökkvi- og sjúkrabifreiðum. Samþykkti borgarráð að fela slökkviliðs- stjóra og borgarlögmanni frekari athugun málsins. Morgunblaðið snéri sér því til Valgarðs Thoroddsens siökkvi- liðsstjóra og spurði hann um til- efni bréfs þessa. Hann sagði að borið hefði á því að undanförnu, að ekki hefði verið tekið eftir hljóð- og ljósmerkjum fyrrgreindra bif- reiða af vegfarendum. Hér væri Frá Hvet Sjálfs'tæðislkvennafélagið Hvöit ætlar að efna til nýársíagnaðar í Sjálfstæðistoúsinu hér í borg n.k. mánudagskiviöilid og verður iþar spilað uim marga ágæita vinninga, m.a. siglin.g með GiuJI- fossi í vetranferð tiJ Kauipmanna- hafnar. venja að haía sírennuhljóð á bif- reiðunum og rauð ljós, en viða erlendis væru blá, blikkandi ljós á bifreiðunum og tveggja tóna (ba-bu) hljómflautur. f*á hefði ennfremur komið í Ijós að öll laga- og reglugerðar- ákvæði vantaði um þessi merki á bifreiðum hér, og því væru þær í engu verndaðar með þessi merki. í því sambandi mætti geta þess að margar verksmiðjur not- uðu sírennur til hljóðmerkja við tilkynningar um matar- og kaffi- tima og hefði það haft viliandi áhrif. Með lögum, eða reglugerð, yrði því að ákveða þessi merki nán- ar. Hefði verið aflað ýmissa upp- lýsinga um þessi mál erlendis frá og væri nú unnið að tiJlögum um merki fyrir fyrrgreind öku- tæki. Eldur ■ íþróttahúsi Akureyri, 13. jan.: — SNBMMA í morgun var slökkvi- Jiðið kvatt að íþróttahúsi bæjar ins, en þar hafði kviknað í reið- ingseinangrun út frá tengidós í öðrum íþróttasalnum. Rífa varð nokkuð af reiðingnum úr veggn- um áður en eldurinn yrði slökkt- ur. Skemmdir urðu Jitlar, en þó varð að fella niður kennslu í saln um í dag. — Sv. P. Susanne Reith endurbyggð ÁKVEÐIÐ hefir verið að þýzka skipið Susanne Reith sem Björg- un hf. bjargaði á Raufarhöfn í fyrra, verði endurbyggt sem flutningaskip. Leitar Björgun hf. nú eftir tilboðum í viðgerð á skipinu, en hyggst selja það að viðigerð lökinni. Þó getur ikomið til greina að skipið verði selt í því ástandi sem það nú er. Kristinn Guðbrandsson fram- kvæmdastjóri BjÖTgunar hf, skýrði blaðinu frá þessu og gat þess jafnframt að sættir hefðu tekizit við fyrri eigendur Susanne Reith í málaferlum þeim, sem risu milli aðila, og áður hefir verið frá skýrt hér í hiaðinu. Hafa þau n>ú verið felld niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.