Morgunblaðið - 17.05.1966, Blaðsíða 30
na/ n u u » e L M UIV
Priðjudagur 17. maí 1966
o\>
íslendingar unnu
Bandaríkin 26:18
Síðari leikurinn átti að vera i nótt
ÍSLENDINGAR unnu Banda-
ríkjamenn í landsleik í hand-
knattleik á laugardagskvöldið
með 26 mörkum gegn 18. Sigur-
inn var fyrirfram all öruggur.
Lið landanna hafa áður mætzt
tvívegis hér á landi og sigruðu
ísendingar í bæði skiptin með
nær helmings markamun.
Liðin áttu að leika annan
landsleik á mánudagskvöld eft-
ir bandarískum tíma eða að-
faranótt þriðjudags efir ísl.
tíma. Sá leikur fer fram í New
ark State College.
Mbl. tókst ekki í gær að fá
frekari fréttir af fyrri leiknum.
1 svarskeyti sem við fengum
við fyrirspurn um leikinn segir
Keflavík
vann 7:0
en ÍA og Hatnar-
fjörður 2:2
KEFLVÍKINGAR sigruðu
Breiðablik með yfirburðum á
laugardaginn í leik þessara liða,
sem fram fór á malarvellinum
í Keflavík.
Keflvíkingar tóku leikinn í
sínar hendur þegar í upphafi
og skoruðu á skömmum tíma 4
mörk án þess að Breiðablik
fengi rönd við réist. Náðu Kefl-
víkingar oft laglegum samleiks-
köflum sem virðast benda til að
liðið geti orðið hættulegur mót-
herji þegar til íslandsmótsins
kemur í sumar.
Mörk Keflavíkur skoruðu:
Jón Ólafur 2 mörk, Sigurður Al-
bertsson 2 mörk, bæði úr víta-
spymum og Magnús Torfason,
Karl Hermannsson og Einar
Magnússon eitt mark hvor.
Hinn efnilegi miðvörður ÍBK,
Guðni Kjartansson, snerist um
ökla snemma í síðari hálfleik
og varð að yfirgefa völlinn, svo
að Keflvíkingar léku aðeins 10
það sem eftir var leiksins.
— B.Þ.
Á Akranesi léku Akurnesing-
ar og Hafnfirðingar. Jafntefli
varð 2 mörk gegn 2.
Að þálfnaðri keppninni hafa
Hafnfirðingar 5 stig, ÍBK 4, ÍA
3 og Breiðablik 0.
m.a. „að handknattleikur verði
á dagskrá Olympíuleikanna
1972. í hvoru liði séu 7 menn
í senn, leikurinn sé leikinn á
velli jafnstórum körfuknattleiks
velli og mörkin séu til end-
anna“.H!
Þetta sýnir nokkuð hvernig
Bandaríkjamenn líta á hand-
knatt' * kinn og hvern áhuga og
þekk ^u þeir hafa á honum.
Á lostudag, segir í skeytinu,
verður ísl. liðinu skipt í tvö hð
(munu þá fararstjórarnir leika
með — aths. Mbl.) og taka þátt
í hraðkeppni við lið í New Jers-
ey í Herwtage Junior High
School i Livingstone.
Forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson ásamt þeim Erlingi Pálssyni, Gisla Halldórssyni og Geir
Hallgrímssyni borgarstjóra (t.h.).
383 syntu 200 m fyrsta
daginn
NORRÆNA sundkeppnin hófst
á' sunnudaginn víða um lánd,
þar á meðal í flesturn kaupstöð-
um landsins. í Reykjavík hófst
keppnin formlega í gömlu Sund
laugnum og þar synti í farar-
broddi forseti íslands, Ásgeir
Ásgeirsson. Rétt við hlið syntu
þeir Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri, Gísli Halldórsson forseti
ÍSÍ og Erlingur, Páisson for-
maður Sundsamhandsins.
í Sundhöll Reykjavikur hófst
keppnin á svipuðum tíma og
synti þar fyrstur Jón Pálsson.
Einnig var synt í Sundlaug Vest-
urbæjar.
Fyrsta daginn syntu í Reykja-
vík alls 383. Syntu 140 þeirra í
Sundlaugunum, 133 í Sundhöll-
inni og 110 í Vesturbæjarlaug-
inni. Voru sundstaðir þá aðeins
opnir fram á miðjan dag eins og
venja er á sunnudögum.
KR—Víkingur
skildu jöfn
í gærkvöldi léku KR og Vik-
ingur í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu. Jafntefli varð —
hvorugt liðið skoraði mark.
Hefur KR nú 3 stig eftir 3 leiki
en Víkingur fengu sitt fyrsta
stig er þeir mættu íslandsmeist-
urunum.
Marklaus leikur
Vals og Þróttar
— bæði lið sýndu lélegan leik
Evertonleikmennimir fögnuðu vel að vonum. Hér hafa vteir
þeirra sett bikarinn eftirsótta á höfuð Brian Harris v. fram-
verði.
Sögulegustu bikarúrslit í 12 ár
Everton breytti stöðunni úr 0:2 i 3:2
tJrslitaleikur ensku bikar-
keppninnar — einn stærsti
viðburður brezku knatt-
spymunnar fór fram s.l. laug
ardag á Wembieyleikvangin-
um. Leikurinn var mjög sögu
legur. Óllum á óvart náði
Sheffield Wed 2—0 forystu
en Everton var ekki brotið
á bak aftur. Þvert á móti
sóttu Everton menn fast og
unnu leikinn með 3—2.
Jim McCalliog færði
Sheffield forystu á 4. mín.
með skoti er hafnaði í netinu
eftir að hafa breytt stefnu á
bakverði Everton. David
Ford v. innh. skoraði 2—0
fyrir Sheffield er 12 mín
voru af síðari hálfleik.
17 mín. síðar hafði Ever-
ton unnið leikinn. Mike Treb
ilock sem settur var í stöðu
h. innh. hjá Everton á síð-
ustu stundu skoraði tvö mörk
með stuttu millibili og á
74. mín skoraði v. útherji
sigurmarkið.
Þetta var sögulegastj úr-
Framh. á bls. 2
ÞRÓTTUR og Valur, einu tvö
tapiausu liðin í Reykjavikur-
mótinu, mættust á sunnudags-
kvöldið. Svo fóru leikar að hvor
ugu liðinu tókst að skora og lið-
in eru því taplaus enn og hafa
forystu í mótinu, Þróttur með
5 stig eftir 3 leiki og Valur með
3 stig eftir tvo leiki.
Margir bjuggust við að þessi
tvö taplausu lið myndu sýna
sæmilega knattspyrnu. En þær
vonir brugðust með öllu. Þófið,
handahófið og ónákvæmnin
skipuðu öndvegissess og leikur-
inn var afar lélegur.
Valsmenn áttu í upphafi harð-
ar sóknarlotur að marki Þróttar
og komst það oft í beina hættu.
En hvort tveggja var að Vals-
menn fylgdu ekki eftir af harð-
fylgi eða list og einhver guðs
blessun var yfir Þróttarmark-
inu þannig að alltaf kom fótur
fyrir knöttinn á siðustu stundu
— eða markstöng stöðvaði hann.
Þarna í byrjuri höfðu Vals-
menn tækifæri til að gera út
um leikinn en tókst ekki. Og
undir lok hálfleiksins sneri
Þróttur vörn í sókn og átti tvö
tækifæri til marka en bæði voru
misnotuð.
1 síðari hálfleik voru Þrótt-
arar ágengari, einkum framan
af og í heild séð mega bæði lið
veí við jafnteflið una. En knatt
spyrnan var vægast sagt léleg
og sízt til að auka áhuga áhorf-
enda.
Hjá Val kom í ljós að án Her-
manns Gunnarssonar er framlin-
an sundurlaus og máttlítil. Mað-
urinn sem er fjarverandi fær
því mesta hrósið. Sigurður Dags
son í markinu varði vel og eir.n-
ig vakti athygli leikur Halldors
Einarssonar.
Aftasta vörn Þróttar átti góð-
an dag — góðar staðsetningar og
sýndi har&fylgi í leik. Hún
tryggði jafnteflið. Leikur fram-
línunnar var í molum.
— A. St
35 syntu
d Akronesi
AKRANESI, 16. maí. — 35
manns höfðu synt 200 m. í norr-
ænu sundkeppninni hér i
Bjarnalaug á slaginu kl. 16.50 i
dag. Sá sem fyrstur synti í
keppninni var Benedikt Valtýs-