Morgunblaðið - 26.04.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.04.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1967. De Gaulle boðið fil Washington Bonn, 25. apríl. — NTB JOHNSON Bandaríkjaior- seti bauð de Gaulle, Frakk landsforseta, í heimsókn til Washington í sumar. — Frakklandsforseti gaf ekk ert ákveðið svar við heim- boðinu, en sagði, að hann mundi bráðlega svara því bréflega. Samkvsemt áreiðanlegum heimildum lagði Johnson til við de Gaulle, að hann kæmi við í Washington, þegar hann heimsækir Kanada í júlímán uði n.k. Forsetarnir tveir töl- uðust við í tiu mínútur eftir útför Adenauers og franskir og bandarískir talsmenn þeirra segja ,að þeir hafi báð- ir látið í ljós ósk um að hitt- ast fljótlega aftur. Stjórnmálamenn eru þeirr- ar skoðunar, að möguleikar á fundi forsetanna virðist betri eftir hinn stutta fund þeirra í dag. Hins vegar var minnt á, að frönsk stjórnarvöld álitu, að Johnson ætti að heimsækja de Gaulle til Parísar, sökum þess að starfsaldur hins fyrr- nefnda er mun skemmrL Áður hafði de Gaulle rætt við Harold Wilson, forsaetis- ráðherra Stóra-Bretlands, og búist er við, að Wilson hafi minnzt á mögulega aðild Breta að Efnahagsbandalagi Evrópu. 250 tonn af þorski 150 tonn af karfa EINS og sagt var frá í blaðinu í gær kom togarirn Þormóður goði með fullfermi af Grænlands miðum í fyrrakvöld. Ei blaðið hafði samband við Þorstein Arnalds hjá Bæjarútgerð Reykja víkur í gær. sagði hann, að lönd- un úr tegaranum væri ekk. lok- ið, en stæði til að ljúka henni í gærkvöldi. Áætlað var að 250 tonn af aflanum væri þorskur og fór hann til vinnslu í Fisk- verkunarstöðinni á Grandagarði og verður þar verkaður í skreið. Nokkur tonn af þorski úr togar- anum fóru til neyzlu í bænum. Karfinn, sem togarinn var með var áætlaður 150 tonn. Fór hann til vinnslu í Fiskiðjuverinu á Grandagarði að undanskildum 25 tonnum, sem voru lánuð til vinnslu í öðrum frystihúsum. Þorsteinn sagði að nægilegt framboð væri á fólki til að vinna við verkun aflans. Baðhúsið leit ósköp hvers- dagslega út í gærmorgun, er niðurrifsmenn komu á vett- vang með tæki sín. Stórt skarð kom í stafn hússins er fyrsta höggið reið af. maðurinn hreinn og hress út, sem þangað gekk inn með svitastorkna og óhreina húð. Nú er þessi gamli baðstað- ur Reykvikinga úr sögunni, Þannig-var umhorfs á rústum Baðhússins siðdegis í gær. Baðhúsið horfið Nýlega var ákveðið að rífa Baðhús Reykjavíkur í Kirkjustræti 10. Var ástæð- an sú, samkvæmt upplýsing- um borgarverkfræðings, að húsið var orðið lélegt og ekki talið taka því að breyta því til annarrar starfsemi. Ekk- ert liggur fyrir um aðrar byggingar á lóð Baðhússins, sem nú verður tekin undir bílastæði. sem þjónað hefur þeim lengi og vel. Þaðan kom margur Kínverjar myrtir og lemsfraðir í Indónesíu Áform um að fiytja 1,7 millj. þeirra úr landi Boðaðui til onncna starfa FORSTJÓRI Upplýsingaþjón ustu Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndum, ívar Guð- mundsson, var í dag boðaður til aðalstöðva SÞ í New York til sérstakra starfa þar. Ekki er þess getið í hverju hinn nýi starfi ívars er fólginn. fvar var blaðamaður Morg- unblaðsins um langt árabil, allt fram til ársins 1948. Djakarta, 25. apríl, AP. ÁTÖK Kínverja og innfæddra á eyjum Indónesíu fara sívaxandi, og a.m.k. fjórir Kínverjar voru drepnir í uppþotum í Djakarta á sunnudag. Fleiri liggja á sjúkrahúsum höfuðkúpubrotnir og alvarlega stærðir eftir rysk- ingar við indónesíska stúdenta, sem mótmæla dvöl þeirra í i Indónesiu. Um 1.7 milljón Kín-' verja eru í Indónesíu, þar af hefur um miiljón þeirra ekkert ríkisfang. Indónesíska ríkis- stjórnin telur alla Kínverjana kommúnista, eða fylgjandi kommúnistum, og hefur bannað þeim að stunda viðskipti víða í Indónesíu. Kínverjunum er einnig meinað að setjast að í Djakarta til að hindra að þeir flýi frá óeirðasvæðum. í Medan á N-Súmötru eru þúsundir Kínverja í fangabúð- um, en þaðan á að flytja þá til kínverska Alþýðulýðveldisins. Þar hefur hvað eftir annað komið til óeirða, en ekki er kunnugt um hversu margir Kín verjar hafa látið lifið í þeim. í Medan eru Kínverjar hvað fjölmennastir í Indónesíu. Kínverska hverfisins í Dja- karta er nú gætt af þungvopn- uðum herflokkum og herlög- reglu til að hindra hermdarverk og gripdeildir í hveifinu. Til mikilla mótmælaaðgerða hefur komið í Peking fyrir utan sendiráð Indónesíu þar og sendi- herranum hefur verið stefnt fyrir kínverska utanríkisráðu- neytið. í aprílmánuði í fyrra var kínverski sendiherann 1 Djakarta kallaður heim eft.ir mótmælaaðgerðir fyrir utan sendiráðsbygginguna. Utanrikisráðherra Indónesíu, Adam Malik, lét svo ummælt viö fréttamenn í Djakarta á sunnudag, að hann væri því mót fallinn, að stjórnmálasambandi yrði slitið við Kína, nema Al- þýðulýðveldið stigi fyrsta sporið í þá átt. Hermdarverk og mótmælaað- gerðir gegn kínverskum íbúum Indónesíu hófust eftir samsæri kommúnista í Djakarta haustið 1965, og færast nú mjög í auk- ana Rúml 50% hærri launagreiðslur í skipaviðgerðum hér en í Þýzkai. —Hærri heildarkosfna&ur v/ð v/ðgerð á Herðubreið hér á landi en erlendis f VIÐTALI við Mbl. í gær skýrði Guðlaugur Hjörleifs- son forstjóri Landssmiðjunn- ar frá því að launakostnað- ur við skipav t ’erðir hér á landi væri um 50% meiri en í Þýzkalandi, en svo sem kunnugt er, hefur það vakið nokkra athygli að þýzk skipa- smiðastöð hefur tekið að sér viðgerð á vélbátnum Bjarma fyrir 2,2 millj. króna og hyggst Ijúka verkinu á fimm vikum. Tilboð íslenzkra við- gjerðarstí-'iðv'a námu hins veg- ar milli 6 og 7 milljónum króna. Guðlaugur Hjörleifsson kvaðst hafa fengið staðfestar upplýsingar þess efnis, að í þessu verki greiddi hin þýzka skipasmíðastoð 3,80—4,20 þýzk mörk á tíma eða meðaltals- kaup 4 mörk á tíma. Hins vegar vissi hann ekki, hvort orlof og o.fl. væri innifaiið í þessari upphæð. Forstjóri Landsiriiðjunnar kvað tímá- kaúpið hér á landi tæpar 70 krónur í dagvinnu og auk þess orlof og ýmislegt fleira, sem á leggðist og færi því ekki fjarri, að tímakaupið væri 45 krónur í Þýzkalandi á móti 70 krónum hér eða um 50% munur. Hann kvað láunaliðinn láng stærsta kostnaðarliðinn við slíka viðgerð, sern þessi og mætti því skýra muninn á hinu þýzka tilboði að tolu-' verðu leyti með þvi. Hér væri auk þess erfiðara um vik með ýmsa hluti og ýmis aðkeypt þjónusta dýrari. Guðlaugur Hjörleifsson kvaðst ekki vita hverniig að- stæður væru hjá hinni þýzku skipasmíðastöð og hvort hér væri t.d. um lágt tilboð að ræða vegna verkefnaskorts. Hins vegar benti hann t.d. á að Landssmiðjan hefði haft jneð höndum viðgerð á Hérðu breið og þótt beinn kostnað- ur við viðgerðina hér á landi hefði orðið hærri en tilboð í hana erlendis frá hefði heildarkostnaður við viðgerð- ina orðið hærri þar en hér ef hún hefði verið fram- kvæmd erlendis. íslenzkar við gerðarstöðvar gætu annazt flestar viðgerðir á íslenzkum bátum nema ef til víll hinar viðamestu. Skyndiyeildoll mólm- og skipasmiSa í FYRRINÓTT hófst skyndi- verkfall málm- og skipasmiða, þ. e. verkfall fimm félaga í Málm og skipasmiðasambandi íslands og stóð til að því lyki í gær- kvöldi á sama tíma, eða eftir að hafa staðið í einn sólarhring. Félögin, sem stóðu að þessu verkfalli, eru Félag járniðnaðar- manna, Félag bifvélavirkja, Fél, blikksmiða, Sveinafélag skipa- smiða og Járniðnaðarmannafél. Árnessýslu. Þetta skyndiverkfall er hið fyrsta af fjórum, sem boðuð hafa verið hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma, sem þau eru boðuð. SpHakvöld ■ Hafnarfirði SJÁLFS1ÆÐISFELÖGIN í Hafn arfirði halda sameiginlegt spila- kvöld í Sjálfstæðishúsinu í kvöld miðvikudag, kl. 8.30. Kvöld- verðlaun verða veitt. Sjálfstæðis fólk er hvatt til að fjölmenna á þetta síðasta spilakvöld vetrarins. - ÞJÖÐARSORG . Framh. af bls. 1 forsíðu mynd. af Komarov í sorg arramma, og henni fylgdi óljós og stutt lýsing á slysinu. Sagði þar, að fallhlífar Soyuz I. hefðu flækzt saman, í þann mund, er geimfarið var að lenda. , ■ , Búizt er við tugþústindum MoskvUbúa við útför Momarovs á morgun..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.