Morgunblaðið - 04.05.1967, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
54. árg. — 99. tbl.
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Miklir jarðskjálft-
ar í Grikklandi
18.000 manns missa heimili sín
Frá 1. maí hátíðahöldunum í Moskvu. Leiðtogar Sovétríkjanna horfa frá grafhýsi Lenins á her-
sýningu á Rauða torginu. A myndinni eru talið frá vinstri: Takubovsky, aðstoðarvarnarmáia-
ráðherra, Grechko, hinn nýi varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, Brezhnev, aðalritari sovézka
kommúnistaflokksins, Kosygin forsætisráðherra og Podgorny forseti Sovétríkjanna.
Lítill áhugi í París á
umsókn Breta í EBE
Brezka stjórnin kvedst fallast á landbúnaðarst. bandalagsins
Ioannia, Aþenu og New York,
3. maí, NTB, AP.
MIKLIR jarðskjálftar urðu i
Grikklandi 1. maí norðvestan-
verðu, þar sem heitir Epírus og
IJtför frú
Kosygin í dag
Moskvu, 3. maí, AP, NTB.
1 DAG var gerð í Moskvu útför
Ifrú Klavdyiu Andgetevnu Kos-
ýgin, konu Kosygins forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, sem and-
aðist i sjúkrahúsi í Kreml á
mánudag. Hún hafði lengi þjáðst
af krabbameini.
Frúin var jarðsett f Novo-
Dyevichi kirkjuigcLrðinum, en
þangað var kista hennar flutt
tveggjakílómetra leið frá Vís-
Indamannaklúbbnum þar sem
Ihún hafði staðið á viðhafnarbör-
•um fyrir hádegi. Heiðursvörð við
kistuna þar stóðu Alexei maður
hennar og Andrei Gromyko,
einn af nánustu vinum fjölskyld-
Unnar. Skömmu áður en lagit var
úf stað til kirkjugarðsins bar að
ÍBrezhnev aðalritara kommúnista
(flokksins og Podgorny forseta,
eem stóðu við börur frú Kosygin
stutta stund. Mörg þúsund manna
Voru á götum úti, þar sem farið
Var með kistuna til kirkjugarðs-
ins og mannfjöldinn í kirkju-
garðinum skipti hundruðum.
liggur að Albaníu. Níu manns
munu hafa beðið bana og 53
særzt, að því er sáðustu fregnir
herma, en a.m.k. 18.000 manns
misstu heimili sínu. Hálft sjötta
hundrað húsa er sagt sem næst
jafnað við jörðu í fjörutíu þorp-
um og er enn leitað í rústum
þeirra ef ske kynni að þar fynnd
ist einhver með lífi. Þetta er
mesti jarðskjálfti sem orðið hef-
ur í Grikklandi síðan í apríl 1965
er jarðskjálfti á Pelopsskaga
varð að bana 17 manna.
Jarðskjálftinn í fyrradag sem
mældist 6.4 stig á Richtermæli,
varð að kvöldiagi er margir voru
við páskaguðsþjónustu og voru
flestir þe'ir er létu lífið kirkju-
gestir. Jarðhræringar héldu
áfram fram eftir nóttu og um
25.000 manns létu fyrirberast úfti
undir berum himni af ótta við
þær. Björgunarlið var þegar
sent á vettvang, læknar, hjúkr-
unarlið, matföng og fatnaður og
þangað komu um hæl 3 ráðherr-
ar úr grísku stjórninni með
Patokos innanríkisráðherra í
broddi fylkingar, og í gær kom
þangað Konstantín konungur og
flutti þyrla hann milii staða á
j arðsk j álf tas væðinu.
Konstantín toom fyrst fram
opinberlega við miðnæturmessu
í Aþenu á páskasunnudag 30.
apríl (að tímatali grísk-róm-
versku kirkjunnar) og var vel
Framhald á bls. 31
höfn, 3. maí — NTB —
ÁKVÖRÐUN brezku stjórnar-
innar um, að Bretland sæki um
aðild að Efnahagsbandalagi Ev-
rópu að nýju, hefur verið tekið
með kurteisi en litlum áhuga
í París. Er því haldið fram þar,
að umsókn Breta muni stranda
á afstöðu þeirra til stefnu Efna
hagsbandalagsins í landbúnaðar
málum. Á fundi með ríkisstjórn
inni, er haft eftir de Gaulle, að
hin sex ríki Efnahagsbandalags
ins verði að athuga umsókn
Breta gaumgæfilega og að tals-
verður timi muni líða, áður en
unnt verði að taka nokkra
ákvörðun um umsóknina. Haft
er eftir öðrum opinberum heim
ildum í París, að sennilega muni
samningsviðræðurnar hefjast
með haustinu.
Pakotaflugvél með þremur mönnum fórst í Vestmannaeyjum
Flugma&urinn kvaðst sjá flugbraut
ina rétt áður en vélin fórst
Flugvélin rakst á fjall í dimmviðri
„VAR EITTHVAÐ að koma
fyrir, piltar?“ sagði Þórður
H. Gíslason, netagerðarmað-
ur, er Björn Guðmundsson,
fréttaritari Mbl. í Vest-
mannaeyjum, tók hann upp
í bíl sinn kl. rúmlega sex í
gærkvöldi. — Því miður
hafði gerzt hörmulegt slys,
þá rétt áður. Flugsýnarflug-
vélin Austfirðingur DC-3
fórst þar í aðflugi og með
henni þrír ungir menn, Egill
Benediktsson, flugstjóri, Ás-
geir Einarsson, fiugmaður og
Finnur Finnsson, sem lauk
atvinnuflugmannsprófi í gær.
Var hann farþegi. Egill var
kvæntur og lætur eftir sig
konu og barn.
. Samkvæmt upplýsingum Flug-
eýnar var flugvélin í vöruflutn-
ingum og ætlaði að lenda í Vest-
mannaeyjum um kl. 6, en þar
var þá mikil snjómugga og grá
jörð. Flugmennirnir höfðu sam-
band við flugturninn i Eyjum
aðeins nokkrum mínútum áður
en samband rofnaði við flugvél-
ina og tilkynntu þá, að þeir sæju
brautina framundan. Síðan virð-
ist sem flugvélin hafi beygt og
lent utan í Kervíkurfjalli með
fyrrgreindum afleiðingum.
Þórður H. Gíslason, sem áður
er nefndur, var staddur í Lyng-
felli, sem er býli rétt út við svo-
kallaða Kinn suður á eynni.
Hann hafði farið þangað til að
Egill Benediktsson.
huga að netum kl. hálf sex og
rétt rúmlega sex verður hann
var við flugvélina og er hún þá
að sveima yfir bænum. Flaug
hún þá til suðvesturs frá flug-
vellinum og hvarf í sortann. Eft-
ir skamma stund verður hann
aftur var við hana og flaug hún
þá inn á eyjarnar, kemur að
vestan, nyrzt yfir Höfðavík.
Er flugvélin kemur, flýgur
hún lágt — að hann heldur i
aðeins 5 metra hæð. Er þá há-
vaðinn svo mikill að hann ætl-
ar að æra Þórð. Þegar vélin er
komin á móts við hann virtist
honum flugvélin hækka
flugið og flugmaðurinn taka
eftir Kinninni framundan, en
hún liggur suður úr Sæfellinu.
Flugvélin skreið rétt fyrir þessa
hæð, en eftir svo sem tvær til
þrjár mínútur, að sögn Þórðar
þagnaði vélarhljóðið.
Þórði fannst þetta þegar
mjög undarlegt, varð skelkað-
ur og grunaði að eitthvað hefði
komið fyrir. Hann hætti vinnu
sinni og hélt áleiðis heim fót-
gangandi. Þá er það sem Björn
Guðmundsson ekur fram á hann
Framhald á bls. 31.
Blöð í Paris voru í dag ekkl
mjög bjartsýn varðandi hina
nýju tilraun Breta til þess að
öðlast aðild að EBE. Höfundar
flestra leiðara dagblaðanna
leggja áherzlu á þær efnahags-
legu og stjórnmálalegu hindran-
ir, sem verði að yfirstíga og
spá löngu samningaþófi. Þau
halda því fram, að de Gaulle
muni áfram geta komið í veg
fyrir aðild Bretlands, en benda
einnig á, að afstaða Breta sjálfra
feli í sér lykilinn að vandamál-
inu. Hið opinbera málgagn
Gaullistaflokksins, La Nation,
segir: „Til þess að gerast evr-
ópskur er nauðsynlegt, að hug- -m
ur fylgi þar algjörlcga máli. Ár-
ið 1963 var þessu ekki þannig
farið hjá Bretum. Er það orðið
þannig nú eftir fjögur stutt ár.“
Fallast á landbúnaðarstefnuna.
Brezki utanríkisráðherrann,
George Brown, sagði í gær, að
brezka stjórnin myndi fallast á
stefnu Efnahagsbandalagsins 1
landbúnaðarmálum. Kvaðst
hann sannfærður um, að öll
vandamál í sambandi við inn-
göngu Bretlands í Efnahags-
bandalagið væri unnt að leysa.
Er haft eftir áreiðanlegum
heimildum í London í dag, að
Brown muni stjórna viðræðun-
um af hálfu Breta um þáttöku 0
þeirra í bandalaginu.
Ákvörðun brezku stjórnarinn-
ar um að sækja um upptöku i
Efnahafsibandalagið var tekið
með mikilli hrifningu yfirleitt af
brezku blöðunum í dag. Þannig
skrifar blaðið Daily Mail, sem
sem styður fhaldsflokkinn, að
„ef þessi blóði drifna öld hefur
kennt okkur eitthvað, þá er það
Framhald á bls. 31
Ásgeir Hinrik Einarsson. . Finnur Finnsson.
*