Morgunblaðið - 11.05.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1967, Blaðsíða 1
28 SÍÐUR og l\leð tsfigu fotki 54. árg. — 104. tbl. FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Andreas Papandreou ákærður um landráð Hreinsun áœtluð meðal embœttismanna Róðherraneind Evróporaðsins íjolli nm Grikklandsmólið eitt sinn ráðherra og sá nn» efnahagslega samræmingu, var í dag yfirheyrður af dómaranum Sokrates Sokratides og hinn sið- amefndi ákvað ásamt saksókn- ara ríkisins, að Papandreou yrði áfram haldið i varðhaldi. Kunngert var í dag í Aþenu, að stjórnin hefði komið á fót fjórtum öryggisnetfndum, sem eiga að rannsaka mál þeirra 6.138 pólitísku fanga, sem hafðir eru í haldi á eynni Yaros. f hinni opinberu til'kynningu seg- ir, að gamlir, sjúkir og lastburða fangar verði látnir lausir fyrst- ir en síðan menn, sem ekki hetfðu tekið þátt í starfsemi kommún- ista að undanförnu og sem unnt væri að líta á sem hættulausa frá pólitísku sjónarmiði. Konstantin Kollias forsætisrá’ð herra gaf enn fremur út þá til- kynningu í dag, að ríkisstjórnin myndi láta framkvæma hreins- un á meðal stjórnsýslumanna í þvi skyni að gera stjórnsýslu landsins virkari. Með tilliti tffl. þess hefði stjórnin ákveðið að láta afnema ákvæði stjórnar- skrár landsins um að ekki megi Framhald á bls. 17. Aþenu, 10. maí. NTB. G'RfSKI stjórnmálamaðurinn, Andreas Papndreou, sonur Ge- orgs Papandreous fyrrum for- sætisráðherra var í dag form- lega ákærður fyrir landráð. Um leið var ákveðið, al honum skyldi haldið áfram í fangeisi. Hinn 46 ára gamli Andreas Papandreou var ákærður fyrir að hafa tekið þátt í svonefndri „Aspida" hreyfingu, en í henni var hópur ungra liðsforingja, sem dæmdir voru til fangelsisvistar í marz sl. fyrir þátttöku í samsæri um að steypa ríkisstjórninni og koma á hlutleysisstefnu í utan- ríkismálum Grikklands. Ákæran á hendur Papandreou yngra er þannig, að samkvæmt lögum er unnt að dæma hann til dauða, en Gregorios Spandi- dakis hershc iTingi og varafor- sætisráðherra skýrði svo frá á fundi með blaðamönnum í Par- ís í dag, að hann myndi ekki verða tekinn af lífi. Papandreou hefur verið hafður í haldi í gistihúsi í útjaðri Aþenu, frá þvi að herinn framkvæmdi valda- rán sitt í sl. mánuði. Andreas Papandreou sem var Heimssýningln í Kanada hefu r vakið mikila athygli og aðsók n að henni hefur verið mikil. Þessi mynd sýnir fánaborgin a við opnunina. Standa tveir f ulltrúar frá hverri þjóð við fána landa sinni. Ceorge Brown í Neðri málstofunni: .Oruggir um upptöku þessu sinni1 Upptökubeiðni Breta í EBE samþykkt i með 488 atkvæðum gegn 62 BREZKA þingið sairnþykkti í gær með 426 atkvæða meiri hiliuta þá ákvörðun ríkis- stjórnar Wilsons að sækja um upptöku í Efnahagisbandalag- Fimmburar fæddir í Kaupmannahöfn, 10. maí. AP. FIMMBURAR fæddust í dag í Danmörku í fyrsta sinni svo vit- að sé, allt sveinbörn, og lifðu fjögur þeirra er síðast fréttist. Fimmburana ól tuttugu og sjö ára gömul kona búsett í einni útborga Kaupmanahafnar og vill hún ekki láta nafns síns getið. Hún hafði tekið frjósemis- lytf og var það vitað löngu fyrir fæðinguna að von væri á fimm- burum og allar ráðstafanir gerð- ar til þess að taka á móti þeim. ið. Var gengið til atkvæða í Neðri málstofunni í kvöld að loknum þriggja daga umræð- um um málið og féllu at- kvæði á þann veg að 488 voru upptökuibeiðninni hlynntir en 62 greiddu at- kvæði gegn henni. Þar voru í hópi ámóta mangir þing- menn Verkamannaf lo'kksi ns sjálifs og íhaldsflokksins. Tii- laga andstæðinga aðildar Breta að EBE úr hópi íhalds- manna um að sækja ekki um aðild var borin upp áður og felld með 488 atkvæðum gegn 26. Alls sitja nú í Neðri mál- stofunni 630 þingmenn. íhaldsflokkiurinn og frjáls- lyndir studdu hvorir tveggja stjórnina í máii þessu en aft- ur á móti riðluðust nofckuð raðir flokksmanna Verka- mannaflokksins sjálfs og eiga þeir þingmenn flokfcsins sem atkvæði greiddu gegn aðild gær Breta að EBE nú á hættu brottvikningu úr flofcknum fyrir bragðið. Meðal þeirra Framhald á bls. 27. Osló, 10. mai — NTB FORSÆTISRÁBHERRAR þriggja Norðurlandanna, Tage Erlander, Jens Otto Krag og Per Borten ræddu ástandið í Grikklandi á fundi er þeir héldu með sér í Osló í dag og kom þeim saman um að fara fram á, að ráðherranefnd Evrópuráðsins kæmi saman til aukafundar til þess að ræða valdatöku hersins í Grikklandi, að því tilskildu þó að ríkisstjórnir Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og þing landanna legðu blessun sína yfir þá ráðagerð. Var frá þessu skýrt á fundi m.eð fréttamönuum er haldinn var eftir að viðræðum forsætis- ráðherranna lauk. Lýsti Jens Otto Krag því þar yfir, að eng- N-Vietnam sendir fulltrúa á friðar- rúðstefnu í Gen Genf, 10. maí — NTB N-VIETNAM hefur í öllum grundvallaratriðum fallizt á að senda fulltrúa á ráðstefnu þá, sem halda á í Genf dagana 28.— 31. maí n.k. og gefið hefur ver- ið heitir „Pacem in terris" eða „Friður á jörðu". Friðarráðstefnu þessari er ætlað að fjalla um skilyrði þess að friður ríki með mönnum á jörðu hér og einkum og sér í lagi möguleikana á því að gera alla Suðaustur-Asíu að hlut- lausu svæði. Forseti ráðstefn- unnar verður Kanadam.aðurinn Chester Ronning, sem í fyrra átti sæti í friðarnefnd þeirri sem þá fór til N-Vietnam. Arthur Goldberg, aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá S.ÍÞ., mun einnig sitja ráðstefnuna, en hana setur aðalritari S.Þ., U Thant. í tilkynningu frá forstöðu- mönnum ráðstefnunnar segir, að öllum þeim löndum, sem beina aðild eiga að Vietnam-stríðinu, hafi verið boðið að senda full- trúa og hafi N-Vietnam þekkzt boðið. Kína var einnig boðið að senda fulltrúa en þaðan hefur ekkert svar borizt enn. Búizt er við því að alls sæki ráðstefnu þessa um 400 fulltrúar. inn ágreiningur væri með ríkis- stjórnum landanna þriggja um Grikklandsmálið, þær litu allar sömu augum á ástandið í Grikk- landi nú. Aðspurður hvort danska stjórnin myndi vel fagna Konstantín konungi, kæmi hann í brúðkaup Margrétar ríkisarfa 10. júní, svaraði Krag, að danska stjórnin myndi ekki misvirða það við konung þótt hann sæi sér ekki fært að sitja brúðkaup- ið eins og nú væri ástatt í heima landi hans. Við annarri spurn- ingu, sem fyrir Krag var lögð, veitti hann þau svör, að ráðherr arnir hefðu ekki rætt um það hvort stöðva skyldi útflutning til Grikklands. Illa svikinn Olíumilljónamæringur nokk ur í Texas hefur greiitt í kring um 43 millj. kr. fyrir 44 föls- uð málverk og vatnslitamynd ir. Hefur þessi maður þann- ig örðið fyrir mestu svikum sambandi við listaverkasölu, sem um getur í mörg ár. Skýrði listaverkasérfræðing- ar í New York frá þessu i gærkveldi. Samband listaverkasala i Bandéiríkjunum hefur rann- sakað safn milljónamærings- ins, en í því voru 58 verk listaverk etftir Pioasso, Modi- gliani, Degas, Chagall, Bon- ard Derain og fleiri fræga lisrtamenn. Samband lista- verkasalanna komst að þeirri niðurstöðu, að öll listaverk in nema 14 væru fölsuð. Milljónamæringurinn, hinn 69 ára- gamli Algur Meadows, keypti flestar myndirnar atf listaverkasala í Paris.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.