Morgunblaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, í>RIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1967.
5
jR9| Sgffl X-'■ jföfögg
íígggcj
'
• ' ■ ■
Þessa dagana et verið að legg.ia síðustu hönd að verki við smíði Boeing-þotu Flugfélags íslands, en hún verður afhent i næsta
mánuði. Hefur hún þegar verið máluð með litum félagsins eins og sést á meðfylgandi mynd.
það, sem helzt
hann varast...
í FYRRAVETUR ritaði ég grein
í Lesbók Morgunblaðsins, þar
sem ég sýndi framá með ljósum
rökum, að ekki ætti að rita R
í staðarnafninu Bolungavík. NA
skeður það, að í greinum mínum
í Sjómannadagsblaði Morgun-
blaðsins fyllist þetta staðarnafn
af R-um. Þessi R eru Morgun-" >
blaðs err og ekki á minum
snærum.
Nú hef ég engin tök á að
breyta rithætti Morgunblaðsins
né heldur kippa burt R-inu úr
koki úrvarpsþulanna, ekki held-
ur situr á mér brottfluttum Bol-
víkingi að rekast í því, hvernig
innbyggjarar staðarins nú rit»
nafnið á sinni eigin stassjón. Ég
er þvi ekki að ergja mig yfir
annarra manna rithætti eða
framburði á nafninu. Veröldin
er hvort eð er full af R-um,
sem ekki eiga að vera þar. Hitt
er svo annað mál, og það vona
ég að allir sjái, að eðlilegt er
að maður sem búinn er að
reilna burt eifct err vill ekki
fá mörg í staðinn.
Ásgei*- Jakobsson.
Sinfóníutónleikar
SlÐUSTU reglulegir tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands á
þessu sfcarfsári voru haldnir í
samkomuhúsi Háskólans síðast-
liðið fimmtudagskvöld. Flutt
voru tvö verk eftir Mozart: „Eine
kleine Nachtmusik" og píanókon-
sertinn í B-dúr, nr. 18; ennfrem-
ur Konsertsinfónía eftir svtss-
neska tónskáldið Frank Martin
og tilbrigði eftir þýzkia höfund-
inn Boris Blacher um stef eftir
Paganini. Stjórnandi var Bohdan
Wodiczko og einleifcari kín-
verski píanóleikarinn Fou Ts’ong.
Það er lítið vafamál, að hin
tæra list Mozarts hefði notið sín
betur í fámennari strengjasveit
en hér var að verki, tónninn orð-
ið hreinni og áferðin samfelldari,
og hefði ekki komið að sök, þótt
átökin, t.d. í „Eine kleine Nacht-
musik“, hefðu orðið eitthvað
minni. Kínverski píanóleikarinn
er vafalaust ágætur liistamaður,
þótt ekki tækist honum að blása
verulegu líf i í þann fremur sjald-
heyrða konsert, sem hér var
fluttur. Nákvæmni hans í hljóð-
falli er til fyrirmyndar og mótun
tónhendinga oft falleg, en ofmik-
il pedalnotkun olli því, að sumt
af hinu fingerða tónasflúri Moz-
arts kom fram eins og í móðu.
Síðari verkin tvö á efnis-
skránni eru sýnishorn af tónlist
þessiarar aldar, þótt hvorugt geti
talizt meðal hins merkasta, sem
þar er að finna. Frank Martin er
elvarlegt tónskáld, sem lengi hef-
ur notið virðingar, að minnsta
kosti meðal tónlistarmanna. Hann
hefur verið alveg óþekktur hér
á landi, og var því fengur að fá
að kynnast „Konsertsinfóníu“
hans, sem virðist vera ágætt verk
og á köflum beinlínis hrífandi.
Paganini-tilbrigðin eftir Boris
Blacher hafa heyrzt áður hér á
sinfóníutónleikum og virtust nú
eins og þá léttmeti fyrir alla
nema hljóðfæraleikiarana. Væri
auðvelt að nefna nokkuð mörg
tónverk tuttugustu aldar, sem
meiri ástæða væri til að kynna
íslenzkum hlustendum. Bæði
þœsi erfiðu verk flutti hljóm-
sveitin, undir öruggri leiðsögn
Bohdans Wodiczkos, með veru-
legum glæsibrag, svo að þau
munu hafa notið sín eins og efni
stóðu tiil.
Það orkar ekki tvímælis, að
Bohdan Wodiczko hefir unnið
hér ágætt starf undanfarin tvö
ár. Hann hefir þjálfað lið sitt
með nákvæmni og festu, enda
munu samtök og samstilling í
hljómsveitinni ekki hafa verið
betri í annan tíma, þóbt enn
Framhaid á bls. 21
Frá íslenzk -
ameriska
félaginu
ÍSLENZK-ameríska félagið mun
halda aðalfund í Átthagasalnum
á Hótel Sögu þriðjudaginn 30.
maí kl. 8.30.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa mun hinn nýskipaði sendi
herra Bandaríkjanna, Karl
Rölvaag, flytja ræðu. Sem kunn-
ugt er, hefur Rölvaag tekið virk
an þátt í stjórnmálum og á ár-
unum 1963 — ’67 var hann ríkis-
stjóri Minnesota, en hafði áður
verið vararíkisstjóri (1955—’63).
Er hann þekktur ræðumaður og
gefst félögum á fundinum ágætt
tækifæri til að kynnast honum
og skoðunum hans.
Ennfremur verður sýnd kvik-
mynd um Minnesota.
Félagar eru hvattir til að
sækja fundinn og taka með sér
gesti.
-rc-
í mínum hópi er það
svo eðlilegt með Marlboro.
Marlboro hefir
það sém við viljum:
Eðliiegan, ófilteraðan keim.
Hvar sem glæsileiki,
yndisþokki og hæfni mætast,
þar er Marlboro!
Miull
inrn
AUs staðar sömu gæðin,
sem gert hafa Marlboro
leiðandi um allan heim:
Amerískt tóbak -
Amerisk gæði, úrvals filter.
ÍFiIter • Flavor • FIip-Top Box
Trlplex 65MLF01