Morgunblaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1967. UNDIR VERND eftir Maysie Greig: — Vitanlega, sagði hann. — Komið þér með mér. En þegar hann kom aftur, tók Paula eftir því, að hann var eitt hvað út úr jafnvægi. — Mér þykir leitt ef Agga frænka hefur komið þér á óvart, sagði hún. — En þér þykir bara vænt um hana, þegar þú kynnist henni betur. Hún er allra bezta kelling. — Hún er dálítið fyrirferðar- mikil, finnst mér, sagði hann og reyndi að brosa. — Eins og ég sagði, hefði það verið betra ef við hefðum vitað af henni fyrir- fram. — Það gerir nú vonandi ekki svo mikið til. Agga frænka hefði ekkert haft á móti því að sofa hérna inni hjá mér. Við fórum ekki svo vandlega eftir settum reglum heima. Fólk hefur oft komið til okkar úr borginni, alls óvænt, og o'kkur hefur alltaf ver ið það ánægja að hýsa það eina nótt eða svo. — Já, það er sjálfsagt hægt að gera fyrir þá, sem ekki hafa neitt þjónustuíólk að taka tillit til. — Já, en mér finnst nú, Dav- íð, að því fleira fólk sem maður hefur því auðveldara ætti þetta að vera. — Ekki er það nú alltaf, svar- aði hann stuttaralega. — Þú átt eftir að komast að því. Þú skil- ur, að einn aukagestur getur al- veg truflað ganginn I störfum á heimilinu. Mavis er alveg frá sér, og ég er hræddastur um, að frú Maitland sé í þann veginn að segja upp. Paula fölnaði upp og augun leiftruðu af reiði. — Og væri ekki nema gott! Ónýt manneskja og ósvífin í þokkabót! Mér þætti líklegast, að þú yrðir feginn að losna við hana. Hún hafði sleppt sér, og nú sá hún, að Davíð eins og stirðn- aði upp. — Mér þykir fyrir því, að við skulum ekki vera á einu máli um húshald. Frú Maitland er nú búin að vera hérna árum saman og ég hef alltaif verið mjög á- nægður með hana. Louise var mjög hrifiin af henni og Mavis hefur alltaf sagt mér, að hún væri fyrirtaks ráðskona. Paula opnaði munninn, en sagði samt ekki það, sem henni bjó í brjósti. Hinsvegar hneig hún niður á koddanm, náföl. Til hvers var að rífast um þetta, ef hann var svona sinnaður? Stúlk an kom nú inn til að segja til kvöldverðar. — Mavis sagði mér, að hún hefði ætlað henni frænku þinni að borða hérna uppi hj'á þér, sagði hann. — Það verður skemmtilegra fyrir þig. Hún reis upp við olnboga. — Já, en. Davíð, þegar ég bað þig um að borða hérna uppi hjá mér, var það alltof mikil fyrir- höfn fyrir þjónustufólkið, að því er Mavis sagði. Þegar hann svar aði engu, æpti hún: — Æ, Dav- íð, sérðu virkilega ekki gegm um þetta ráðabrugg hennar? Get- urðu ekki séð, hvað hún hatar mig? Hvernig hún gerir allt, sem hún getur til þess að stía okkur í sundur? Og frú Maitland er engu betri. — Þú mátt ekki vera svona heimsk og óhemjuleg og gera þér allskonar grillur, sagði hann alvarlega. Mavis hefur tekið trú lofuninni okkar srvo skynsam- lega. Og eina markmið frú Mait land í lífinu er að heimilishaldið skuli vera í fullkomnu lagi. Ég er hræddur um, að ég yrði ekk- ert hrifinn af heimili, þar sem allt er látið vaða á súðum. Og þar er ég ekki fyrst og fremst að hugsa um sjálfan mig. Þegar maður á börn, verður að vera regila á heimilinu. Hann gekk nær og brosti til hennar. — Ég er viss um, að þú verður skyn- söm og skilur það. Og nú verð ég að fara niður að borða. Eins og ég sagði, borðar frænka þin hérna uppi hjá þér. Paula og frænka hennar borð- uðu svo saman, og það mátti furðulegit heita, hvernig þær forðuðust að neflna Davíð á nafn. í staðinn töluðu þau um Don og Lucy. — Það er dásamlegt að hugsa sér, hvað þau verða hamingju- söm, finnst þér ekki, Agga frænka? Frænka hennar leit eitthvað skrítilega á hana og svaraði ekki öðru en einhverju hummi, sem hefði geta þýtt bæði eitt og annað. Næsta morgun heyrðu þau hjá stúlkunni, að Mavis hefði farið upp í sveit, og ætlaði að verða þar nokkra daga. — Ég skal bölva mér upp á, að það er vegna þess, að hún þolir ekki að sjá mig, snörlaði í Agötu frænku. — Og hefði hún tekið þetta dyggðamunstur, hana frú Maitland með sér, hefði ég farið að dansa, þrátt fyrir alla gigt- ina. Og heldurðu ekki, að við hefðum notið þess að taka að okkur hússtjórnina. Ég skal bölva mér uppá, að þessi laglegi kærasti þinn hefði orðið þre- falt ánægðari eftir. Paula svaraði engu og ekki minntist hún á samtal þeirra Davíðs kvöldinu áður. Hún þoldi ekki einu sinni að minn- ast þess. En svo skrítið var það nú samt, að hún tók >að ekki líkt því eins nærri sér nú og hún hafði gert þá. Paula settist upp í rúminu og leit spyrjandi á frænku sína. — Heldurðu, að það væri hægt að flytja mig heim strax? Ef við hefðum bíl, þá gæti ég legið í aftursætinu, gætum við þá ekki komizt heim? Ég veit, að það færi svo miklu betur um mig þar. Gamla konan svaraði: — Ég skil ekki í öðru en það væri vel hægt. Heldurðu, að kærastan- um þínum þætti mjög fyrir því? Hann gæti alltaf heimsótt þig helgar. Paula hló ofurlítið kuldalega. Hann mundi aldrei gera það. Hann hefur alltaf svo mikið að ^ I dag er K AFFIK YNNIN GIN z í verzluninni o z 1 & Verzlunin STRAUMNES v/ Nesveg. O. JOHNSON & KAABER HF. gera um helgar, bæði í golfi og öllu mögulegu öðru. — Jæja, það er ekki nema gott, að þú gerir þér ljóst nógu snemma að karlmaður afsalar sér ekki öllum heiminum fyrir ástina eina. Það var Davíð, sem sagði þeim, hvert Mavis hafði farið, en óviljandi þó. Hann var nú miklu kátari Paula gat sér til, að það væri vegna þess, að nú hefði hann ekki fengið sinn dag lega fyrirlestur um misgerðir hennar sjálfrar. — Ég vona, að Mavis skemmti sér vel, sagði hann. — Hún hef- ur ekki nema gott af því að hvíla sig í nokkra daga. Hún var eitt- hvað slöpp uppá síðkastið, enda tekur það á taugarnar að stjónna stóru heimili og hafa eftirlit með uppeldi barnanna. Sunclnámskeið Hin árlegu sundnámskeið mín fyrir börn í Sund- laug Austurbæjarskólans hefjast fimmtudaginn 1. júní. Innritun í síma 15158. Aðeins þessi eini sími. JÓN INGI GUÐMUNDSSON, sundkennari. Vilt þú fá fokhelt garðhús í Árbæjarhverfi í skiptum fyrir 4ra herb. íbúð í borginni? Uppl. í síma 22911. Höfum flutt skrifstofu vora að SKEIFU 3. Virðingarfyllst, GODDI S/F Umboðs- og heildverzlun Sími: 30801. Sumarvinna Stúlkur ekki yngri en 21 árs óskast á sumarhótel úti á landi við bakstur og eldhússtörf. Upplýsingar í síma 60308. Gamla timhurhúsið að Skólavörðustíg 11 er til sölu, tilbúið til flutnings. Tilboð sendist oss fyrir 8. júní næstkomandi. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis. Frá Búrfellsvirkjun Þurfum að ráða tvo ýtumenn, tvo menn á gröfu Landsverk. — Upplýsingar hjá ráðningarstjóra. Fosskraft Suðurlandsbraut 32, sími 38830.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.