Morgunblaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 1
32 SIDUR L 54. árg. — 119. tbl. MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Oryggislögreglan metur bókmenntaverk Sovéthöfunda — segir Svetlana í grein um Zhivago lækni eftir Pasternak jafnframt upp myndum vors og endurfæðingar, sem alls staðar sé að finna í verkum Pasternaks. Rithöfundur í fangeJsi Svipmiyndir af Zhivago lækni á heimleið úr stríðinu eftir bylt- inguna, þar sem húsvörður hans 'fyrrverandi auðmýkir hann, 'minnir Svetlönu á rithöfundinn Andrei Sinyavsky og híbýli Sinyavskys í Moskvu á herbengi húsvarðarins í skáldsögu Past- ernaks. „t»ú hafðir aldrei mikið til Framhald á bls. 31. Boris Pastemak Svetlana Alliluyeva „Ó, l>IÐ píslarvottar rúss- nesikra bólkmennta! Ekkert hefur breytzt .... nú sem fyrr er það htutverk öiryggis- lagreglu og annarra laganna varða að leggja fyrstir mat á verk rithöfunda og skálda“. Þessi orð eru höfð eftir Svet- lönu, dóttur Stallíns, sem nú er landflótta í Bandaríkjun- um. í brtóka stórblaðinu „Times“ segir frá því sl. fimmtudag í frétt frá frétta- ritara blað'sins í Washington, að Svetlana Alililuyeva, dótt- iir Stalíns, hafi í grein sem birtast mun í júnihefti tíma- ritsins „Atlantic Monthly", sagt frá áhrifum þeim er lest- ur bókar Boris Pasternaks, „Zhivago lælknir“, hafði á hana, en þeim lýsir hún svo, að þau hafi verið: „eins og lost, eins og óskaplega sterk- uir rafstraumur“. „Sérhvert orð í þessari undraverðu bók“, segir Svet- lana, var mér sem uppljóstr- an leyndardóma míns eigin Mfs og iífs rússnesku þjóðar- innar þann tíma sem ég til þekkti. Ég hef séð þetta allt og heyrt. Ég þekki angan og braigð þessa tunglbjarta snæv ar, þessa gaddfreðna reyni- trés, flóðanna í fljótum Síb- eríu, óupphitaðra herbergj- anna í sameignaríbúðunum í Mosikvu, þar sem allt var al'lt af á tvist og bast“. ■ í formála að grein Svetlönu skrifar Max Hayward, fræði- maður við Oxford University og sá er þýddi „Zhivago lækni“ á enska tungu, að ummæli hennar Varpi ljósi á hina réttu merk- 'ingu ritverka Pasternaks framar ■nokkrum ummælum öðrum. — Hann bendir á að þótt Svetlana Alliluyeva harmi örlög landa sinna og aðskilnaðinn frá ætt- ingjum og vinum bregði hún Engin ákvörðun um aðild Breta Leiðtogafundi EBE lokið í Róm Róm, 30. maí (AP-NTB) TVEGCrJA daga ráðstefnu leið- toga rikja Efnahagsbandalags Evrópu lauk í Róm í dag án þess að tekin væri ákvörðun um um- sókn Breta um aðild að samtök- unum. Verður brezka umsóknin tckin til umræðu á fundi utan- ríkisráðherra bandalagsríkjanna í Briissel á þriðjudag í næstu viku. Ákveðið var á ráðstefn- unni í dag, að leiðtogar aðildar- ríkjanna kæmu saman til við- ræðna, og verður sá fundur væntanlega haldinn á þessu ári. Sex ár eru liðin frá því að leiðtogar Efnahags'bandalags- ríkjanna sex komu síðast til fundar, en samtökin eru rúm- lega tíu ára. Ýms mál voru tek- in til umræðu á ráðstefnunni að þessu sinni, en ekkert þeirxa hlaut endanlega afgreiðslu. Auk umsóknar Breta voru aðalmálin stofnun framkvæmdaráðs Etfna hags'bandalagsins og frekari stjórnmálaeining ríkjanna sex, Varðandi brezku umsóknina telja áreiðanlegar heimildir að de Gaulle, Frakklandsforseti, vilji ekkert um málið ræða að sinni, eða ekki fyrr en hann hef- ur átt fund með Harold Wilson forsætisráðherra Bretlands, sem kemur í heimsókn til Parísar hinn 19. júní n.k. í>ótt málinu hafi nú verið vísað til utanríkis- ráðherrafundarins í Brússel á þriðju'dag, er ekki talið að nein ákvörðun verði tekin þar af þessum sökum. Algjör samstaða w Araba gegn Israel Sögulegur samningur Jórdaníu og Egypta- lands um sameiginlegar varnir ríkjanna Karíó, 30. mai (AP-NTB) ÖL.LUM að óvörum lenti Huss- ein Jórdaníukonungur flugvél sinni á flugvellmum við Kaíró í dag. Þangað var hann kominn til viðræðna við Nastser forseta, og lauk þeim viðræðum með samningi um sameiginlegar varnir Jórdaniu og Egypta- lands. Samningurinn er til fimm ára og þar tekið fram að árás á annað ríkið jafngildi árás á þau bæði. Fregnin nm komu Husseins til Kaíró vakti mikla furðu víða nm heim, enda ekki nema fjórar vikur síðan Nasser lýsti því opinberlega yfir að Hussein starfaði á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Langvarandi fjan-dskapur Jórdaniu og Egyptalands guf- aði upp eins og dögg fyrir sólu við komu Husseins, og var kon- ungi ákaft fagnað í Kaíró. Sam- kvæmt egypzkum heimildum átti Hussein sjálfux frumkvæð- ið að Kaíróferðinni, og stýrði sjálfur flugvélinni, sem fluitti hann þangað. Hann gekk rakleið is til fundar við Nasser', og tókst leiðtogunum fljótlega að komast að samkomulagL Sam- kvæmt samningnum skipa ríkin sameiginlega varnarmálanefnd og herstjórn, en komi til styrj- aldar verður her Jórdaníu undir stjórn Egypta. Eftir að leiðtogarnix höfðu undirritað sáttmálann, ræddu þeir við fréttamenn. Brostu hinir fornu fjandmenn hvor til annars og fóru hlýjum orðum um samstöðu Araba. „Fregnin um þennan samning mun vekja furðu í heiminum“, sagði Nasser, og var það ekki ofsagt. „En þetta er sönnun þess, að Arabar gleyma innbyrðis deilum á al- vörutimum. ísrael, Bandarfkin og Bretland verða að skilja að við erum staðráðnir í að verja rétt okkar í Palestdnu", bætti Nasser við. Egyptar og Jórdanar féllust I faðma frammi fyrir fréttamönn- um, og sumum vöknaði um augu á þessari alvörustund þeg- ar fornar deilur hurfu sjónum. „Ég þakka bróður mínum Nasser árangur þann, sem náðzt hefur“, sagði Hussein. „Við erum »ið upphaf vegarins, og ég er sann- færður um að við komiumst brá,tt á leiðarenda". Nasser svaraði og horfði beint framan í manninn, sem hann i ræðu hinn 2. maí sL kallaði „hand'bendi heimsvaldasinna": „Kæri bróðir, í nafni Araba- þjóðarinnar gríp ég þetta tæki- færi til að lýsa yfir þakklæti mínu fyrir það skref, sem þú hef ur stigið með heimsókninni til okkar. Nokkur ágreiningur ríkti okkar í milíi, en hættan, sem steðjar að Aröbum í dag, fær okkur til að snúast gegn ógn unum ísraels, Bandaríkjanna og Bretlands.“ í samningnum er ekkert tek- ið fram um það hvað verðuT um hersveitir flóttamanna frá Pal- estínu, sem Hussein hefur neitað um landvist í Jórdaniu. Það bendir þó til þess að eitthvert samkomulag hafi náðst um það atriði, að formaður flóttamanna samtakanna, Ahmed Shukairi, varð samferða konungi er hann sneri heim til Amman, höfuð- borgar Jórdaníu. Samningurinn nýi táknar það, að Nasser forseta hefur tekizt á þremur vikum að sameina öll Arabaríkin, þótt það hafi virzt útilokað í byrjun þessa mánað- Framhald á bls. 31. Almenningsálitið snýst gegn Framsókn 1 — Andleg móðuharÖindi heltaka forustumenn hennar F Ó L K um land allt er furðu lostið yfir framferði Framsóknarmanna á Fá- skrúðsfirði, þegar þeir í krafti yfirráða sinna yf- ir atvinnufyrirtækjum á staðnum beittu ungt fólk atvinnukúgun, vegna þess, að það ætlaði að taka þátt í stofnun félags ungra Sjálfstæðismanna á staðn- um. Menn spyrja hvernig það geti átt sér stað, að slíkir atburðir gerist á ís- landi á árinu 1967. Þá hefur fólki ekki síður ofboðið sú blygðunarlausa ósvífni, sem fram kemur í viðtali forráðamanna kaup félagsins og Framsóknar- flokksins á staðnum við Mbl. þegar þeir viður- kenna verknaðinn og virt- ust ekki sjá neitt athuga- vert við að beita atvinnu- kúgun gegn frjálsri skoð- anamyndun. Ummæli þessara tveggja manna lýsa slíku pólitísku ofstæki og svartnættishug- arfari að næsta ótrúlegt er og svo virðist, sem andleg móðuharðindi hafi heltek- ið forustumenn Framsókn- arflokksins. Það er einnig að skýrast hve veigamikill þáttur for- manns Framsóknarflokks- ins, Eysteins Jónssonar, er í þessu athæfi, en hann var svo sem kunnugt er á ferð um Fáskrúðsfjörð daginn áður en atvinnukúguninni var beitt og bendir allt til þess, að hann hafi átt hlut að aðgerðum þessum. Austurland hefur lengi verið mesta áhrifasvæði Framsóknarflokksins og Framsóknarmenn hafa löngum reynt að setja upp eins konar járntjald milli Austurlands og annarra landshluta. Á síðustu ár- um hefur nokkuð tekið að rofa til í þessum efnum og Mbl. birtir í dag viðtöl við ýmsa forustumenn á Aust- urlandi um málefni þessa landshluta. Kemur þar glöggt fram, að á síðustu árum hefur mikil upp- bygging orðið á Austur- landi, fyrst og fremst fyrir tilverknað hins mikla síld- arafla, sem þar hefur hor- izt á land og fyrir dugnað og framtak fólksins þar. í kjölfar þessarar miklu upp byggingar hafa tök Fram- sóknarmanna á málefnum Austfirðinga slaknað, en þó hafa þeir enn mikil á- hrif á ýmsum stöðum á Austfjörðum eins og t.d. á Fáskrúðsfirði. En margt bendir nú til, að það sé rétt, sem Margeir Þórorms son símstöðvarstjóri á Fá- skrúðsfirði sagði í viðtali við Mbl. í gær: „Raunverulega hygg ég, að þetta mál hrjóti þá fjötra, sem hér hafa legið á um árabil, þvi að al- menningsálitið snýst gegn Framsókn í þessu máli“. Nánar er rætt um mál þetta í ritstjórnargrein- um Mbl. í dag og á bak- síðu eru viðtöl við tvo frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins í kjör- dæmum, þar sem Fram- sóknarmenn hafa mis- notað vald sitt yfir sam- vinnuhreyfingunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.