Morgunblaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967. Lagt til að þing ASÍ verði haSdið 4. hvert ár og fulltrúum fækkað Umfangsmiklar tillögur um breytingar á skipulagi Alþýðusambands Islands Á SÍÐASTA þingi Alþýðusam- bands tslands s.l. haust voru samþykktar tillögur um skipu- lagsmál ASÍ, og jafnframt var kosinn laga- og skipulagsnefnd, sem ætlað er að starfa til fram- haldsþings ASI, sem kvatt skal saman ekki síðar en 15. nóv- ember n.k. Verkefni nefndarinn- ar er að gera tillögur um nauð- synlegar breytingar á skipulagi og lögum ASÍ, en þær tillögur skulu siðan lagðar fyrir þingið í haust en áður skal meginefni þeirra verða sent sambandsfé- lögunum, sem fjalla skulu um það og skila áliti á þinginu. í fyrngreinda skipulagsnefnd vopu kosnir 28 menn, sem kusu síðan átta manna framkvæmda- nefnd tiil að vinna undirbúninigs- störf. í henni eiga sæti: Eðvarð Sigurðsson. Jón Snorri Þorleifs- son, Snorri Jónsson, Óskar Hall- grímsison, Pétur Sigurðsson, Her. mann Guðmundsson, Björn Jóns son og Pétur Kristjánsson, en í hans stað hefur Sveinn Gamal- Fékk sólsting SAMKVÆMT upplýsingum lög- reglunnar á Akranesi fékk ung- ur maður sólsting í fyrrakvöld við Laxá í Leirársveit. Fannst hann þar liggjandi. Læknir og lögregla frá Akra- nesi fór á vettvang og úrskurð- aði lækmirinn. að um sólsting væri að ræða. Maðurinn, sem er úr ±veykjavík, var fluttur í sjúkrahús. íelsson mætt á fundum fram- kvæmdanefndar. í marz mánuði boðaði framkvæmdanefndin 28 manna nefndina til fundar eftir að hafa rætt um skipulagstillög- urnar á fjölmörgum fundum, og voru tillögur framkvæmdanefnd- arinnar þar samþykktar sam- hljóða með nokkrum breyting- um, og sendaT þannig til sam- bandsfélagana til umræðu og umsagnar. Á fundi með fréttamönnum I gær gerði framkvæmdanefndin grein fyrir tillögunum um skipu lagsbreytingu ASÍ. Evarð Sig- urðsson, sem hafði orð fyrir nefndinni, drap fyrst á tillögur síðasta ASÍ-þings, sem fram- kvæmdanefndin hefur haft að vegarnesti við samningu tillagna sinna, en þar segir m.a. að Al- þýðusambandið verði byggt upp af landsamböndum, þó með þeirri undantekningu að núverandi sambandsfélögum, sem ekki verður skipað að svo stöddu í landssamlbönd, skuli heimil bein aðil að ASÍ meðan svo er. Eðvarð sagðl ennfremur, að mikið hefði verið um það rætt innan ASÍ að fækka fulltrúum á sambandsþinginu verulega, en samkvæmt núverandi fyrirkomu lagi hefur hvert félag einn full- trúa, og hefur fulltrúatalan á- vallt verið að vaxa á undamförn- um árum. f tillögum fram- kvæmdanefndarinnar er lagt til að takmarka fulltrúatöluna við 150, en það þýðir samfevæmt núveramdi félagatölu ASÍ að 230 félagsmenn séu á bak við hvern kjörinn fulltrúa. Þetta skapar það vandamál. að ekki getur hvert félag, sem aðild á að ASÍ, átt fulltrúa, og hefur það Flngþjónustan hefnr einnig hng á De Hnvillnnd-vél I GÆR skýrði Mbl. frá því að Flugsýn hefði hug á að kaup’a De Havilland Otter skrúfuþotu, og nú hefur Mbl. fregnað að Flug- þjónustan hafi einnig áhuga á slíkri vél. Vél af þessari gerð hef ur verið hér í nokra daga, og hafa ýmsir hérlendir fengið að fljúga henni til reynslu, svo sem flugmenn frá F.I., Landhelgis- gæzlunni og Bjöm Pálsson. Mbl. hafði samband við Bjöm Pálsson í gær. og spurði hann hvort Flugþjónustan hefði í hyggju að kaupa flugvél af þess- ari gerð. Björn sagði, að De Havilland vélin hefði marga þá kosti, sem þyrfti fyrir íslenzka staðhætti, og því hefði Flugþjón ustan mikinn áhuga fyrir slíkri vél, en ýmislegt þyrfti að koma til áður en af kaupum yrði. Hann sagði, að fleiri aðila* hefðu sótt um áætlunarhlug en Flugsýn til Blönduóss og Siglu- fjarðar, og nefndi í því sambandi bæði Þyt og Flugþjónustuna. Hann sagði að ennþá væri eng- in flugvél hérlendis, sem gæti þjónað Siglfirðingum með nægu öryggi, en De Havilland-vélin væri ef til vill lausnin á því vandamáli. því orðið annað höfuðviðíangs- efni nefndarinnar að finna leið- ir, hvernig haga eigi kosnimgum til alþýðusambandsþingis, og leggur nefndin eftirfarandi til: Landssamband, siem kýs 7 full- trúa eða fleiri, skal skipa aðild- arfélögum sínum í kjördeildir og skal það vera aðalregla, að fé- lög sem starfa í sama kjördæmi séu í sömu kjördeild. Hver kjör- deild kýs þá tölu fulltrúa á þirug A.S.Í. sem sameiginleg félags- mannatala félaganna í kjördeild- inni gefur rétt til, miðað við heildartölu félagsmanna viðkom. andi samibands og heildartölu fuilltrúa, sem sambandið á rétt tn. f landssamböndum, sem um ræðir hór að ofan, eru félögum heimilt, sem hafa jafnmarga eða fleiri félagsmenn, en nemur þeirri tölu, sem er að baki hvers fulltrúa viðkomiandi sambands, að mynda sérstaka kjördeild, Framhald á bls. 27 Welcome totfae American Astronauts TW awwKwrf «t few**w<iú** »******, m UtwiMKÓ l t wry lÉæwf ymrnlnbtM'émtvmtát »w Wt »w jwy <*rea***y mw* *• » WnbwMtoÍHiþytMt, SmAmI' $ttn$$9 tt Ammméhíf wtíi lly ro ibþóftí Inriiníic M *+> --......- ■**-»--* VT* ***-*— 4|| _ „ __ »- . IwLhmMc Ik plo WVÍCMM dMHK flftNMMHL Skýrt var frá þvi hér í blaðinu í gær að Loftleiðir hefðu keypt heiLsiðu auglýsingu i New York Times í tilefni heimsóknar bandarisku geimfaranna til íslands. Mynd þessi sýnir auglýsing- una. Stöðva flutning leik- rita 1. september n.k. — hafi samningar ekki tekizt við Ríkisútvarpið STJÓRN Félags íslenzkra leik- ritahöfunda hefur skrifað út- varpsstjóra bréf og tilkynnt, að stöðvaður verði flutningur leik- verka félagsmanna þann 1. sept- ember n.k. hafi samningar um greiðsiur fyrir flutning ekki tek- izt fyrir þann tíma. Bréf stjórnar FÍL til útvarps- stjóra for hér á eftir: „Reykjavík, 28. júní 1967. Hr. útvarpsstjóri, Ríkisútvarpið, Reykjavík. Vér sendum yður hér með sam þykkt Félags íslenzkra leikrita- höfunda viðvíkjandi samningum um greiðslur fyrir flutning leik- verka félagsmanna í Ríkisútvarp ið. Hefur félagið ákveðið, að sam þykktin taki gildi frá og með 1. september þ.á., hafi samningar ekki verið gerðir fyrir þann dag. Vér væntum þess, að Ríkisút- varpið tilkynni félaginu, ef það vill ganga til samninga við félag 7/5 laxar hafa fengizt í Blöndu LAXINN er fyrir norðan. genginn í 1 Blöndu arnar hófst í GÆR var austan gola og lít- ilsháttar rigning á Suðurlandi en þurrt og víðast bjart veð- ur annars staða org áttin hæg Dreytileg. 4 st. hiti var á Dala- tanga kl. 15, en hlýjast 18 st. í Haukatungu og 14 st. í Síðu- múla. veiðin 21. júní og virðist byrja vel, því í fyrrakvöld voru komn ir 115 iaxar á land, en í Blöndu er veitt á þrjár stengur á dag. Það sem af er veiðitímans hef- ur Blanda verið tær, og veiðin verið svo til eingöngu á maðk. Fremur kalt hefur verið fyrir norðan og lítil jökulleysing. Um síðustu helgi veiddust 48 laxar á tveim dögum, á laugar- daginn 27 laxar en þann Jag höfðu læknarnir á Hofsósi og Sauðárkróki, Valgarð Björnsson og Steinn Steinsson. Marteinn Friðriksson og Magnús Sigur jónsson á Sauðárkróki veiddu 21 lax á sunnudeginum. Á fimmtudag fengust 11 lax- ir á 2 stengur. í Svartá, sem er þverá Blöndu, hefst veiðin ekki fyrr en viku af júlí, en veiðin í Blöndu virðist benda ttl að Svartá geti orðið góð í sumar. ið fyrir hinn tilgreinda dag. Samþykkt félagsins er þannig: „Félag íslenzkra leikritahöf- unda var stofnað 15. nóvember 1964. Því nær allir leikritahöf- undar íslenzkir, sem nú skrifa fyrir leikhús og útvarp, eru inn- an samtakanna. Ríkisútvarpið hefur undanfarið samið við höf- unda persónulega um greiðslu fyr ir flutning leikverka, eftir taxta, sem útvarpið hefur sett sjálft, en sá taxti er mjög lágur, oa. 1/6 af höfundalaunum, sem greidd eru fyrir samskonar verk á hinum Norðurlöndunum. Hefur félagið gert endurteknar tilraunir til þess að ná samningum við Rík- isútvarpið og hefur lagt fram sundurliðaðar kröfur, sem þó eru miklu lægri en gerist á hinum Norðurlöndunum. Nú hefur Ríkisútvarpið endan- lega neitað að gera samninga við félagið, en býðst til að semja við hvern höfund sérstaklega við hvert tækifæri. Þessu getur félag ið ekki unað og hefur ákveðið að stöðva flutning leikverka Mótmæli gegn embættisveit- mgu MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt yfirlýsing frá Dómarafulltrúa félagi fslands, þar sem mótmælt er veitingu bæjarfógetaembætt- isins á Aknreyri og sýslumanns- embættinu í Eyjafjarðarsýslu. Segir í yfirlýsing’unni, að báð- ir umsækjendur virðist álíka hæfir og hefði því starfsaldur átt að ráða við veitiingu embætt- isins. Hafi sá, sem veitingu hlaut, verið 13 árum skemur í þjón- ustu hins opinibera og haft minni starfsreynslu en mótumsækjandi hans. í yfirlýsingiunni er stjórn dóms mála og vítt fyrir að launa dóm- arfullfrúa verr en aðra háskóla- menntaða menn í þjón-uistu ríkis- ins. Yfirlýsingin er undirrituð af formanni félagsins, Hrafni Braga synL félagsmanna í Ríkisútvarpinu, þar til samningar néist. Stjórn Fél. ísl. leikritahöfunda". -----♦♦♦----- Mikil nisnveiði á handfæri Akranesi, 30. jún. HANDFÆRAVEIÐI hefur verið góð að undanförnu, eða frá 12 til 30 lestir eftir tvo til þrjá sólar- hringa. Er það eingöngu stórufsi sem aflast. Af honum landaði Haförnin í dag 21 lest, og Hauk- ur í gær 27 lestum. Þessi afli hefur aðallega fengizt suður und ir Eldeyjarboða. Veður hefur hamlað veiðum smærri báta. Síldveiði hefur verið stunduð af nokkrum bát- um við Vestmanaeyjar og hafa eftirtalin skip landað hér: Sigur- fari 210 lestir, Skírnir 90 lestir, Sólfari 26 lestir. Síldin er smá, en 26% feit, og fer hún til vinnslu í Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjuna. Hún er raunar eins og grautur þegar henni er landað og er það fitan sen g-erir hana svona meyra. — H.J.Þ. ----------♦♦♦------ Blsknpi boðið til Færeyjn BISKUPNUM yfir tslandi, herra Sigurbirni Einarssyni, hefur ver- iff boðið til Færeyja í byrjun september-mánaffar næstkom- andi til aff vera viffstaddur end- urvígslu kirtcjunnar í Kirkjubæ. Boðið barst frá Joensen, bisk- upi í Þórshöfn, en að auki er biskupnum í Niðarósi og biskupn um í Kaupmannahöfn boðið til vígslunnar. Sigurbjörn Einarsson tjáðl Morgunblaðinu í gær, að .íann hefði ekki ennþá getað tekið um það endanlega ákvörðun, hvort hann gæti þegið boðið. Sumarferð Sjálfstæðis- manna í Hafnarfirði SJÁLFSTÆÐISMENN í Hafn arfirffi fara í sumarferff sunnudaginn 9. júlí nk. _ f næstu viku verffur ferffatil- högun og fyrirkomulag nán- ar auglýst. '

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.