Morgunblaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967. 3 STÁKSIEIKAR Embættaveiiinga r Vísir segir í íorustugrein I gær: „Siðferði hefur batnað stór- lega í embættisveitingum hér á t - landi. Áður fyrr þóttust ráðherr * ar oft geta skipað embættismenn að eigin geðþótta, án tillits til h'æfileika og starfsaldurs þeirra manna, sem til greina komu. Smám saman hefur þetta breytzt, enda hefur aukizt skiln- ingur manna á nauðsyn traustrar og ábyrgrar embættismannastétt ar. í þessum efnum þurfa Is- lendingar nú ekki að skammast sín í samanburði við neinar aðr- ar þjóðir. Almenningsáiitið hefur stuðlað mjög að þessari þróun. Þar með er ekki sagt, að almenningsálit- ið sé alltaf rétt. Rangt væri af ráðherrum að hlaupa á eftir því í embættaveitingum, ef það hefði í för með sér brot á hefð- bundnum starfstímareglum. Það hefur t.d. borið á því, þegar w sýslumannsembætti eru veitt, að fólk vill heldur heimamann, að- alfulltrúa sýslumannins í em- bættið, heldur en gamalreyndan sýslumann úr öðru héraði. 1 slik um tilvikum gera ráðherrar rétt í að standa gegn óréttmætum kröfum heimamanna. Einnig að þessu leyti mega embættaveit- ingar teljast traustar hér á landi“. Halldór Þormar „Nýlega fengu landsmenn ís- kalda skvettu framan í sig, er veitt var starf forstöðumanns meinarannsóknastöðvarinnar að Keldum. Þar var gersamlega vik ið frá eðlilegum reglum og stig- ig stórt skref til baka frá hinum siðferðilegu venjum, er hafa skapazt hér á löngum tima. Frá þessu máli hefur áður verið skýrt mjög ýtarlega á opinberum vettvangi. Um starf þetta sótti vísinda- maður, sem lengi hefur starfað á Keldum, dr. Halldór Þormax. Hann hefur náð svo miklum árangri í starfi sínu, að hann hef ur hlotið alþjóðaviðurkenningn. Er vafasamt, að fleiri en þrir eða fjórir íslenzkir vísindamenn séu kunnari erlendis en hann er. Hann er einn aí þeim mönnum, sem hafa sýnt það og sannað, að íslendingar eiga skilið að vera sjálfstæð þjóð. Þessum manni var hafnað, en valinn ungur og óreyndur læknir, vafalaust ágæt ur maður, en ekki sérfræðingur á þvi sviði, sem Keldnastofnunin starfar á.“ Þung dbyrgð „Nú um mánaðamótin tekt*. hinn nýi yfirmaður við störfum, en hin heimsfrægi visindamaður mun hverfa að einhverju af þeim forstöðumannastörfum, sem er- Iendar visindastofnanir bjóða honum. fslenzka þjóðin glatar þama einum af sínum beztu son- um, vegna stórfelldra mistaka nokkurra manna. Læknadeild Háskóla fslands ber þyngstu ábyrgðina, en hún mælti með lækninum en ekki vis indamanninum. Virðing Háskól- ans hefur oft staðið tæpt, en slík an hnekki hefur hún ekki beðið um langt skeið. Menntamálaráð- herra veitti starfið að ráði lækna deildar, þótt honum væri bent á, hvilikt óráð það væri. I þessu tilviki bar honum að þora að ganga gegn læknadeild og vita hana jafnframt fyrir mistökin. Dapurlegt er, að atburður setu þessi skuli geta gerzt árið 1967“. Ferðaáætlun Reginu Maris breytt vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafsins ------------------------------- FORRÁÐAMENN ferðaskrif- stofunnar Lönd og Leiðir buðu fréttamönnum og öðr- um gestum til hádegisverðar í gær um borð í hið glæsilega v-þýzka skemmtiferðaskip Reginu Maris, „Sjávardrottn- inguna“, sem ferðaskrifstofan hefur tekið á leigu til sigl- inga með íslenzka farþega í september og október n.k. Regina Maris er flaggskip v- þýzka flotans 5800 lestir að stærð og fór jómfrúarferð sína 1. júní sl. ár og er þvi rétt rúmlcga eins árs. Upphaf upphaflegri áætlun. 29. sept: Um kyrrt í Tangi- er til kvölds. 30. sept: Á sjó. 1. okt: Á sjó. 2. okt: Komið snemma um morguninn til Messina á Sikil ey. Þar verður farin ferð um eyjuna, (Etna o.fl.). 3. okt: Komið að morgni til Napoli. Dvalið þar samkv. upphaflegri áætlun með þeirri breytingu að ekki er lagt úr höfn fyrr en kl. 2 cftir miðnætti. 4. okt: Á sjó. 5. okt: Komið til Palma de Mallorca að morgni. Dval- ið þar daginn til kvölds. Farn ar ferðir um eyjuna, en aðr- ir farþegar fiuttir á baðströnd er þess óska. 6. okt: A sjó. 7. okt: Komið að morgni til Cadiz. Dvalið þar samkv. upphaflegri áætlun. 8. okt: Komið til Lissabon og dvalið þar samkv. upphaf- legri áætlun. 9. okt: Á sjó. 10. okt: Á sjó. 11. okt: Komið til London og dvalið þar um kyrrt 12. okt: Dvalið í London fram eftir degi, en síðan látið úr höfn áleiðis til íslands. 13. okt: Á sjó. 14. okt: Komið til Reykja- víkur seint um kvöld. Eins og fram kemur af ofan greindri áætlun er lengst far- ið til Messina á Sikiley, en sleppt viðkomu í La Coruna á Spáni, Aþenu og Beirut. í . þess stað er komið við í Dublin, Messina á Sikiley, Palma de Mallorca og London, en að auki er dvölin i Tangier og Napólí lengd. Ferðin í heild verður nú 22 daga löng, en upphaflega var gert ráð fyrir 27 dögum. Við þetta lækka öll fargjöld í Framhald á bls. 27 Séð eftir uinum glæsilega aðalborðsal Reginu Maris. lega áætlun skipsins gerði ráð fyrir siglingu til botns Mið- jarðarhafs, þ.e.a.s. til Beirut í Líbanon. Vegna styrjaldar Israelsmanna og Araba og hins ótrygga ástands, sem rík- ir á þessum slóðum, hafa margir þeirra sem skráð hafa sig til þátttöku farið fram á 1. REYKJAVlK 23.sept. 10. REYKJAVl::* 14.okt. að ferðaáætluninni verði breytt og telur ferðaskrifstof- an að athuguðu máli ekki rétt að fara umrædda siglingu til austurhluta Miðjarðarhafs og hefur því breytt áætluninni og er hún nú sem hér segir: 23. sept: Siglt frá Reykja- vík kl. 12 á hádegL 24. sept: Á sjó. 25. sept: Komið til Dublin að morgni. Efnt til kynnisferð ar um borgina. Lagt úr höfn að kvöldi. 26. sept: Á sjó. 27. sápt: Á sjó. 28. sept: Komið um hádegi til Tangier. Dvalið þar skv. 2. DUBLITI 25.sept . L0ÍID0N ll.okt e. LISSAB0N e.okt• 5. NAP0LI 3.okt. M 4. ME33INA' 2.okt. ^/>3. TANGIER S* . 2S.sept. Á þessu korti sést hin nýja ferðaáætlun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.