Morgunblaðið - 01.09.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.09.1967, Blaðsíða 1
32 síður 54. árg. — 195. tbl. FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins A í GÆRKVÖLDI rann upp sú stund, sem Ólafsfirðingar höfðu lengi beðið eftir, heim koma skipbrotsmanna af Stíganda. Bæjarbúar, ætt- ingjar og vinir, byrjuðu að safnast saman niðri við ha-fn arbryggjuna hálftíma áður en von var á skipinu. And- rúmsloftið var þrungið þögl- um fögnuði, og menn ræddu aðeins sín á milli í hálfum hljóðum. Astvinir skipbrots- manna stóðu í hóp, þar sem Guðbjörg, skipið sem flutti þá heim, átti að leggjast að, og horfðu eftirvæntingaraug um í hafnarmynnið. Klukkan 21.20 skreið svo skipið inn á spegilslétta höfn- ina og ekkert heyrðist nema hægur dynur vélarinnar. Það ríkti nær grafarþögn, er festar voru bundnar, en svo hófst almennur söngur á bryggjunni, og var sungið „Táp og fjör og frískir menn.“ Á þeirri stundu glitruðu víða tár í augum. Ingþór Indriðason, sóknarprestur í Ólafsfirði sté síðan fram á bryggjubrúnina, og mælti m.a.: „Þetta er í senn gleði og alvörustund — gleðin yfir því að þið skulið heimtir úr helju hlýtur að vera alvöruþrungin. Skuggaský dró yfir bæinn sl. mánudag, er sú fregn barst, að Stíganda væri saknað. Menn urðu annars hugar við störf sín og ræddu saman í hálfum hljóð- um milli vonar og ótta. Þáð er erfitt að túlka gleði okkar, þeg- ar fréttist, að ykkur hefði öllum verið bjargað. Guði sé lof, sögðu menn á götum. Ég talaði 5 dag við bislcupinn yfir íslandi í síma, og hann bað mig að skila inni- legum samfagnaðarkveðjum. Ver ið velkomnir heim.“ Þessu næst tók til máls Sig- valdi Þorleifsson, bæjarfulltrúi, og bauð skipsmenn velkomna, en Karl Sigurbergsson, skipstjóri, þakkaði hlýjar og gó’ðar móttök- ur. Að því búnu var sungið „Hvað er svo glatt“. Voru skip- brotsmönnum öllum færðir blóm vendir. Þegar þessari stuttu en hátíðlegu athöfn var lokið stóðu sjómennimir þöglir og eins og hálfvandræðalegir um stund, enda ekki vanir slíku. En svo var sem tilfinningamar leystust úr læðingi, sjómennirnir vógu sig upp á bryggjuna og féllust í faðma við ástvini sína. Mið- aldra móðir gekk burt með syni sínum til konu hans og barna, þar sem varð fagnaðarfundur. Vfð gerðumst svo djarfir að rjúfa þessa gleðistund fólksins til að fá stutt samtöl, fullir sam- vizkubits. Við létum samt vera að ónáða Karl skipstjóra þar sem hann var í ástvinahópi, enda hafði blaðið áður haft tal af honum. En við sneram okkur að Guðjóni Jónssyni háseta á Stíg- anda, og tók hann vel í bón okk- ar. Guðjón er 26 ára gamall, kvæntur Jóhönnu Svavarsdóttur og eiga þau þrjú börn, sem vildu eðlilega hvergi vera nema í fang- inu á pabba. — Hvernig er ykkur innan- brjósts á þessari stundu? — Því er erfitt að lýsa, það er ósköp iítið að segja svona Framtti. á bls. 3 A alvörustund var skipbrotsmönnum af Stíganda fagnað með MHvað er svo glatt“ heima í Ólafsfirði Blaðamenn og Ijósmyndari Mbl. flugu austur að Langanesi í gær með Elíaseri Jónssyni á tveggja hreyfla flug- vél Flugstöðvarinnar, til þess að fylgjast með því er skipbrotsmenn af Stíganda fóru um borð í Guðbjörgu ÓF úr Snæfugli SU og hófu síðasta áfanga heimferðarinnar. Sjómennirnir höfðu snör handtök við að flytja gúm- bátana og þilfarsbátinn um borð í Guðbjörgu, og 6 mínútum eftir að skipin hittust setti Guðbjörg á fulla ferð heim, og þá tók Ól. K. M. þessa mynd og veifa skipsmenn glaðir í bragði. Fleiri myndir frá Langanesi eru inni í blaði. Stígandamenn me» blómvendina hlýSa á Ólafsfirðinga syngja: „Hvað er svo glatt“. I i < I \ i \ ( \ < < < i 4 I i i 4 ! i 4 i i 4 (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.