Morgunblaðið - 22.09.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR Benin-lýðveldið i Nígeríu úr sögunni Stóð aðeins í einn dag ÞRATT fyrir sigurinn yfir Ihinu s kammlífa Benín-lýð- veldi gengur hermönnum Ní- geríustjórnar seint að binda lendi á aðskilnaðarbaráttu Bi- aframanna. íbóar eru fjöl- mennasta þjóðin í austurhér- uðunum, og þegar íbóar flúðu 'úr bænium Ogoja, sem barizt Var um fyrir nokkru, notuðu margir tækifærið til að láta greipar sópa um eignir þeirra. Myndin sýnir ræningjana forða sér úr bænum eftir rán- in. Lagos, 21. sepbember. NTB. ÖNNIJR aðalskilnaðartilraunin í Nígeríu á tæpum fjórum fjór- um mánuðum fékk skjótan endi í dag. „Lýðveldi“, sem stofnað var í miðvesturhéraðinu, stóð aðeins frá sólaruppkomu til sólarlags í gær. Hersveitir sam- bandsstjórnarinnar hafa náð höfuðborg miðvesturhéraðsins á sitt vald, og „Benin-lýðveldið“ er úr sögunni, að því er sagt er í Lagos. Sigur sambandshersins í mið- vesturhéraðinu er talinn mikil- vægasti sigur sarobandshersins í borgarastyrjöldinni, sem hófst í júlí, einum mánuði eftir að Austur-Nígería sagði sig úr lög- um við sambandsstjórnina og lýsti yfir stofnun lýðveldisins Biafra. Það var herstjórinn Goldberg skorar á aðildarlönd SÞ að vinna að lausn Vietnamdeilunnar Vill fá svar frá Hanoi um viðbrögð við stöðvun loftárása. tltanríkisráðherrar fjórveldanna haida fund með IJ Thant New Yark, 21. sept. NTB. ARTHUR Goldberg, aftal- fulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ, skorafti í dag á öll aftildar ríki samtakanna, að beita á- hrifum sínum, ein sér og í sameiningu, til að stuftla að friðsamlegri lausn Víetnam- deilunnar. Goldberg sagfti í umræðum Allsherjarþingsins um alþjóðamál, að Banda- ríkjastjóm mundi hlusta af athygli á sjónarmið aðildar- landanna og Bandaríkja- stjórn teldi að finna ætti sem allra fyrst pólitíska lausn á deilunni. Frá því var skýrt í dag, aft utanríkisráðherrar fjórveld- anna hefðu samþykkt að halda fund með sér undir for sæti U Thants, framkvæmda- stjóra SÞ, í New York á þriðjudaginn að tillögu fram- kvæmdastjórans. Á fundin- um verður rædd tillaga U Thants um, að ráðherrar þeirra landa sem eiga full- trúa í Öryggisráðinu komi til fundar meðan nýbyrjað Allsherjarþing stendur yfir. Önnur mikilvæg mál eins og Víetnam og ástandið í Aust- urlöndum nær verða rædd á fundinum. Fundurinn, sem verður hald- inn í sikrifstofu U Thants, verð- ur fyrsti fundur utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, Sovétríkj- anna, Bretlands og Frakklands um eins árs skeið. Fastafulltrú- um Iandanna hjá SÞ er einnig boðið til fundarins. I umræðum Allsherjarþingsins í dag talaði Jens Otto Krag, for- sætisráðherra Dana, meðal ann- arra, og sagði hann að finna yrði pólitíska lausn á Víetnamdeii- unni. En Krag sagði, að slik lausn kæmist ekki á án tilslak- ana. Hernaðarleg lausn ekki svarið Goldíberg sagði í næðu sinui að Bandaríkin reyndu ekki knýja fram hern.aðarlega laiUisn í Víetniam, en Bandairíkjamenn mundu heMur ekki láta það við- giangast, að Norðiur-Víietnam- menn þröngvuðu hernaðarlegri laiusn upp á Suður-Víetnam- menn. Hann sagði, að Bandaríkja- istjórn héldi áfram tilraunum sínium til að fá hinar Sameinuðu þjóðir til að taka virfean þátt í baráttunni fyrir friði í Víetnam. Samikvæmt stotfnskrá SIÞ vænu öill aðildarlöndin skuldlbundin til að stuðla að lausn ailþjóðlegra deilumálla. Þrátt fyrir vonibrigði ítneika ég áskorun okkax til allra Framhald á bls. 31 Fjársjdður f innst á hafsbotni St. Mary's, Seilly-eyjum, 21. sept., NTB. FROSKMAÐUR í fjársjóðsleit, undan ströndum Suðvestur-Eng lands, kom fyrir fáeinum dögum að gjá einni á hafsbotninum. Hann kafaði niður í gjána og vissi ekki fyrr en hann stóð á teppi af gull- og silfurpen- ingum. Froskmaðurinn, Geoffrey Uptoh, þagði í fyrstu um fund- inn, en hafði með sér á þurrt land 1500 peninga, sem hann ai henti yfirvöldum. Sérfræðingar álita, að í gjánni séu verðmæti í gulli og sUfri, sem numið geta 120 millj. isl. kr. Uptoh er félagi froskmannafé- lags, sem til skamms táma leit- aðd flaksins ai breziku freigát- unni „Association", sem sökk und an SV-Englandi árið 1706. Skip ið var fermt gull- og silfur- mynt og öðrum verðmætum. Fjársjóðaleitin hófst, en nokkr ir froskmenn fundu fyrr á þessu ári stóra fallbyssu á hafsbotn- inum. Uptoh skýrði fréttamönnum frá því, að froskmenn í félagi hans hefðu vitað um gjána, sem nán ast er óaðgengileg og mjög djúp. Á botni hennar var fjársjóður- inn. Gullmyntirnar litu út sem nýjar, en mjög var fallið á silfr- ið. Engin þessara mynta var frá seinni tíma en 1706. Segir Up- toh, að það muni taka tvö ár, að flytja fjársjóðinn á land. 'Lögum samkvæmt leggja yf- irvöld hald á fjársjóðinn, og geri enginn giMa kröfu til hans innan árs, þá verður hann seld- ur og tekjurnar af sölunni fara til ríkisins. Finnandinn fær þó ríflegan skammt af sölutekjun- um, eða allt að einum þriðja þeirra. í miðvesturhéraðinu, Albert Okonkwo majór, sem lýsti yfir stofnun ,,Benin-lýðveldisins“ í gær. í Addis Abeba var tilkynnt í dag, að friðarnefnd Ei.ná'ngar- samtaka Afríku (OAU )færi flugleiðis til Lagos á miðviku- dag í næstu viku til að finna lausn á deilunni. Báðir aðilar borgarastyrjaldarinnar hafa látið í ljós ánægju með skipun nefndarinnar, sem er skipuð þjóðhöfðingjum sex Afríkuríkja. Stuttir bardagar Bardögunum í Benin og ná- grenni lauk í morgun, en skipzt hafði verið á skotum um nótt- ina. Hersveitir Biaframanna, sem höfðu tekið Benin og aðra hluta héraðsins herskildi, virt- ust hafa hörfað austur á bóginn. Yfirmaður sambandshersins, Murtala Mohammed ofursti, tál- kynnti í Benin-útvarpinu, að FramhaM á bls. 31 Aðgeiðirnoi gegn grísku stjóininni hljótn fylgi Strassborg, 21. septem- ber. NTB. VONAÐ er, að aðgerðir Norð urlanda gegn herforingja- stjórninni í Grikklandi hafi þau áhrif, að bandaríska stjórnin taki ákveðnari af- stöðu gegn henni, að þvi er danskir þingmenn er sitja fundi Evrópuráðsins í Strass- borg sögðu í dag. Auk Íslendinga, sem hafa lýst yfir stuðningi við frum- kvæði skandinavísku land- anna, er hugsanlegt að Belgir og Hollendingar taki þátt í aðgerðunum. Margjr ræðu- menn lýstu yfir stuðningi við aðgerðirnar á fundinum í dag, og ýmsir lögðu til að Grikk- land yrði rekið úr Evrópu- ráðinu. Blake í Sovétríkjunum? Félagi hans snýr sér til brezka sendiráðsins i Moskvu London, 21. september. NTB — FYRIR liggja allöruggar sann anir um, að brezki njósnarinn George Blake, sem flúði úr Wormwood-fangelsi í London í október í fyrra dveljist nú í Sovétríkjunum, að því er tals maður brezka utanríkisráðu- neytisins skýrði frá í dag. Blake, sem er 44 ára gamall, var dæmdur í 42 ára fangelsi fyrir njósnir 1961. í réttar- höldunum í máli hans játaði hann að hafa afhent Rússum leynilegar upplýsingar í London, Berlín og Líbanon á árunum 1953 til 1961. Talsimaður utanríkisráðu- neytisinis S'agði, að m'aður nolkkiuir hefði snúið sér tdl brezka senidiiTáðsins í Mosfevu kynnt sig sem ínskan' ríksis- borgara, Sean Bourkie að n'afmi, og beðiið um upplýsing ar um heimfararleyfi til Bret lands. Maðuxinn hélrt þvi fram, að banin hefði búið með Bl'ake í Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.