Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 196« VVAVA’A' Myndin sýnir byggingaframkvæmdir Geðverndarfélags íslands að Reykjalundi, og var hún tekin um s.l. mánaðamót. Verkinu meðar mjög vel áfram, og vonast félagið til að húsin þrjú verði fnllgerð og tekin í notkun fyrir næsta haust. — Ljósm.: ABj Brotið blað í sögu geðverndarmála hér Frá aðalíundi Geðvemdarfélags Islands Aðalfundur Geðverndarfélags íslands var haldinn hinn 3. apríl s.l. — Formaður Geðverndarfé lagsins, Kjartan J. Jóhannsson héraðslæknir, taldi, að nú hefði verið brotið blað í sögu geð- verndarmála hér á, landi, og kæmi þar margt til. — Skrif- stofa og félagsráðgjafcistarfsemi Geðverndarfélagsins ætti nú fyrsta heila árið að baki, og væri reynslan af þessari starf- semi mjög góð. — Læknirinn taldi, að Geðverndarfélagið hefði verið mjög heppið, hversu góð samvinna hefði tekizt með SÍBS og Geðverndunarfélaginu viðvikjandi öllum framkvæmd- um að Reykjalundi, sem mið- aði mjög vel áfram, og væri stefnt að því að ljúka öllum byggingafnamkvæmdum fyrir komandi haust. — Kjartan J. Jóhannsson minntist á ýmsa þá viðurkenningu, sem félagsstarf- semin hefði hlotið, og væri þar bæði átt við beina fjárstyrki, en einnig ýmaa aðra fyrir- greiðslu. — Starfsemi „Tengla“, éhugahóps framhaldsskólanem- enda, var þökkuð, svo og ánn- arra þeirra, sem lagt hafa hönd á plóginn. — Tilkynnt var, að skammt væri nú undan, að eld- spýtnabréf kæmu á markaðinn, og vonaðist formaður til að sala auglýsinga á slík bréf gæti orð ið nokkur tekjustofn fyrir fé- lagið. Niðurstaða eignarefknings sýni tæpl. 1,2 millj. kr hreina eign félagsins, og í minningar- sjóði um Kjartan B. Kjartans- son lækni eru nú um 80 þúsund krónur. Borgarlæknir dr. med. Jón Sigurðsson, flutti erindi á fund inum. Ræddi hann geðverndar- mál almennt og taldi að enn vantaði rösklega 400 sjúkrarúm til að fullnægja brýnustu þörf, ef við íslendingar vildu miða okkur við þær kröfur, sem gerð ar væru á Norðurlöndum. Er- indi borgarlæknis vakti mikla athygli, og mun það verða birt í næsta hefti tímaritsins GEÐ VERNDAR, sem félagið gefur út. ' Nokkrir fundarmanna tóku til máls, m.a. ritari félagsins, þrófessor Tómas Helgason, sem þakkaði borgarlækni sérstak- lega, svo og öðrum þeim, sem sýndu geðvemdarmálum skiln- ing. Öll þessi mál hefðu — til þessa — reynzt nokkuð þung í tauminn, en nú væri greinilega úr að rætast, og — án efa— allri þjóðinni til mikilla heilla. Félagatala Geðverndarfélags- ins hefur nær tvöfaldast frá haustmánuðum 1966, og eru nú skráðir félagar um 550. Stjórn félagsins var endurkosin, en hana skipa: Kjartan J. Jóhannsson, hér- aðslæknir Kópav., formaður Benedikt Tómasson, skólayfir- læknir, varaformaður, Tómas Helgason, prófessor, ritari Ás- laug Sívertsen, frú, gjaldkeri Grímur Magnússon, læknir frú Jóhanna Baldvinsdóttir og Jón H. Bergs, forstjóri meðstjórnend- ur. Framkvæmdastjóri er Ásgeir Bjarnason (daghluta starf). Ráðgjafa og upplýsinga þjónusta alla mánudaga kl. 4-6 e.h. að Veltusundi 3. sími: 12139 Geðverndarfélagi íslands hef ur borizt myndarleg dánargjöf að upphæð tæplega 140 þús. krónur. Guðbjörg Guðjónsdóttir ljós- móðir, síðast til heimilis að Strandgötu 83 í Hafnarfirði, á- nafnaði félaginu hluta eigna sinna, en Hrafnkell Ásgreisson hdl., Hafnarfirði afhenti félag- inu þessa veglegu gjöf. Um leið og Geðverndarfélagið leyfir sér að minnast hinnar göfugu konu, þakkar það lögmanninum vinsemd og fyrirgreiðslu. (Rrá Geðvemdarfélaginu) Úthlutað úr Menningorsjóði Spnrisjdðs Snuðnrhróks Sauðárkróki 29. apríl — Þegar Sparisjóður Sauðár- króks, sem stofnaður var 1866, hætti starfsemi sinni og við tók Búnaðarbanki íslands árið 1964, var ákveðið að með eignum sparistjóðsins skyldi myndaður sjóður til eflingar skagfirzku menningarlífi og hlaut hann nafnið Menningarsjóður Spari- sjóðs Sauðárkróks. Stofnfésjóðs ins var kr. 3.1 milljón. f skipulagsskrá sjóðsins, sem staðfest var á þessu ári, erheim ilt að verja árlega allt að % hlutum ársvaxta á fyrrnefndan hátt. Laugardaginn 27. þessa mán- aðar var haldinn á Sauðárkróki aðalfundur sjóðsins og úr hon- um veitt í fyrsta sinn. Var hér um að ræða úthlutun fyrir tvö siðastiiðin ár, að upphæð kr. 440 þúsund, en framvegis erráð gert að veita úr sjóðnum árlega. Samkværrit tillögu stjórnarinnar voru eftirfarandi fjárveitingar samþykktar í einu hljóði á fund inum: Fyrsta: til stofnunar Lista- safns Skagfirðinga krónur 270 þúsund. Annað: til Sögufélags Skagfirðinga kr. 60 þúsund. Þriðja til Tónlistarskóla Skag- firðinga 60 þúsund til hljóðfæra kaupa. Fjórða: til Sjúkrahúss Skagfirðinga kr. 25 þúsund til kaupa á segulbandstæki. Fimmta til Karlakórsins Heimirs 25 þús und í tilefni 4 ára starfsafmælis kórsins. Stjórn Menningarsjóða Spari- sjóðs Sauðárkróks skipa Stef- án Ólafur Stefánsson, póst- og símstjári, farmaður, Bjöm Daní- elsson, skólastjóri og Sæmund- ur Hermannsson tolltjónn. Á fundinum voru lagðir fram reikningar annarra sérsjóða sem stofnaðir voru á sínum'txma af sparisjóðnum. Menntasjóður með 105 þúsund króna eign. Fegr unarsjóður með 35 þúsund krónum og Minningarsjóður Kristjáns og Valgarðs Blöndal kr. 16 þúsund, en þeir feðgar vonu stairfsmenn sparisjóðsins uim langt ánabil. — jón. Lífræn umferöarfræösla JÓN Oddgeir Jónsson fulltrúi | azt leiðbeiningar fyrir kennara í I um landsins um kennslu í um- hefur á undanförnum árum ann I flestum barna- og unglingaskól- I ferðarmálum, svo og í Kennara- skóla fslands. Hefur hann leitazt við að gera kennslu þessa sem lífrænasta og haft ýmis ráð til að svo mætti verða. Hér bregð- um við upp nokkrum myndum af leiðbeiningum þessum, en þær voru teknar í bama- og unglingaskóla á Akranesi af Ólafi Arnasyni, ljósmyndara á Akranesi: — mmm 'sm* Þama hefur verið búinn til ,,bíU“ með fjómm drengjuw auk bílstjóra, sem ekur bílnum um kennsiustofuna eftir settum um- ferðarreglum. A myndinni sjást þeir Jón Oddgeír, Njáll Guð- mundsson, skólastjóri og Helgi Daníelsson, lögregluþjónn, sem leiðbeint hefur um umferðarmáll í flestum skólum Akraness á síðasti. vetri. Reiðhjói inn í kennslustofu. Oneitanlega var það nýstárlegt fyrir hina ungu nemendur og einnig það að þeir skyldu fá sjálfan lögregluþjóninn til að segja þeim frá öryggisútbúnaði reiðhjóla. — Það verður nemendum skóla þessa minnisstætt hveraig ungu — Þarna sjáið þið muninn, segir Heigi Danielsson, á slitnum stúlkurnar sýndu undirstöðuna að merkjunum um stöðvunar- og lítt slitnum hjólbörðum og hvorum treystið þið betur fyrir skyldu. lífi ykkar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.