Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 28
I 28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 19«8 náungi kom og sagði okkur, að hópurinn, sem hafði Corvin-bí- óið á valdi sínu, þarfnaðist hjálp ar. Við bróðir minn og fimm aðr ir komum okkur saman um að fara, en þegar við vorum komn- ir framhjá tveimur húsasamstæð- um hlupum við inn í rússneskt virki. Við höfðum alls engin skotfæri, svo að þarna var ekki annað að gera en gefast upp. Þeir settu okkur upp á flutn- ingabíl og óku eftir breiðgöt- unni. Við héldum, að við ættum að fara til aðalstöðvanna, en allt í einu stönzuðu þeir og settu okkur af bílnum. Flest hús in þarna í kring voru gjöreyði- lögð, en einhverra hluta vegna var karlmannafatabúð þarna al veg óskemmd. Þeir fóru með okkur þar móts við. Einn Rúss- inn mölvaði rúðuna með byssu- skeftinu. Annar Rússi sagði á bágborinni ungversku, að nú skyldum við bara birgja okkur upp úr búðarglugganum. í fyrst- unni skildum við ekki, hvað hann var að fara, en svo sáum við að þarna kom annar rúss- neskur flutningabíll með kvik- myndatökuvél á pallinum. Þessir fantar ætluðu með öðrum orðum að kvikmynda okkur meðan við værum að ræna búðarglugga, til þess að geta síðar sannfært heim inn um, að við værum ekki ann- að en hópur róna. Við sögðum höfuðsmanninum, að hann gæti ferið fjandans til. Þá sagðist hann ætla að telja upp að þrem- ur ei> skjóta síðan. Og hann taldi líka upp að þremur og skaut svo á okkur með vél- skammbyssu. Fjórir af hópnum lágu eftir dauðir. Einn dó hálf- tíma seinna. Við Miklos vorum teknir upp af ungverskri konu í bíl, og hún ók okkur í Stefáns- spítalann. Nemetz lofaði honum að tala út. Svo spurði hann. — Sögðuð þér ekki, að þetta hefði verið á laugardaginn síðdegis? — Jú, svaraði Mihaly. — Um þrjúleitið. — Siðdegis á laugardag, taut- aði Nemetz. Frú Halmy var myrt á laugardagskvöld. Nú vissi hann að hann hafði verið á villu götum. Hann gæti þegar á stund inni strikað frú Moller út og svo syni hennar af skránni yfir grunaða. Þótt undarlegt væri, fann hann fremyr til léttis en vonbrigða og gremju. Héðan i frá gæti hann lofað frú Moller að hverfa aftur til þessa fátæk- lega og rólega- nafnleysis, sem hún sjálf hafði kosið sér. 1 lögreglustöðinni bað hann drenginn að tala við móður sína í einrúmi. Hann beið þess í spenningi, að þögnin yrði rofin af ópi. En það óp kom ekki. Á skrifborðinu fann hann miða frá Kaldy: „Rudolf Moller var frá klukkan sjö til tólf á laug- ardagskvöld hjá einum kunn- ingja sínum, Laci Tarjan, sem hefur staðfest fjarverusönnun hans“. Nemetz herti upp hugann og gægðist inn til frú Moller. Hún sat á bekk hjá syni sínum og lagði arminn um axlir honum. Hún var rauðeygð, en alls ekk- ert í þann veginn að sleppa sér. — Nú megið þér gjarna fara heim frú Moller, sagði hann. — Mér fellur þetta þungt, hvern- ig fór fyrir drengnum yðar. Og afsakið þér þessi áþægindi, sem ég hef valdið yður. 48 Hún stóð upp seinlega og sendi honum' þreytulegt bros. — Það gerir ekkert til, herra full- trúi. Trúið mér ... með tilliti til allra kringumstæðna, þótti mér vænt um að hitta yður aft- ur. Enda er orðið býsna langt síðan við sáumst síðast, finnst yður ekki? Hún rétti fram höndina. Hann tók í hana og langa stund stóðu þau hreifingarlaus og horfðu hvort á annað. Það sem þau sáu, var tvær manneskjur — allt aðrar manneskjur, úr horfinnj veröld, sem var grafin undir djúpu öskulagi, rétt eins og Pom pei eða Herculanum. Fimmtudagur 1 nóvember. KAUPUM hreinar léreftstuskur (stórar og góðar). JIIwgtiitHðfrifr prentsmiðjan. veitingahúsið ASKUR BÝÐUR YÐUR HELGARMATINN i handhœgum umbúðum til að taka HEIM GRILLAÐA KJÚKLINGA ROAST BEEF GLÓÐARSTEIKT LAMB GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR HAM BORGARA Gleðjið frúna — fjölskjlduna — vinina — — njútið hinna Ijúffengu rétta heima i stofujðar. Ef þér óskið getið þér hringt og pantað ■ við sendum leiguhíl með réttina heim tiljðar. K S KU R matreidir fyrirydur olla daga vikunnar Sudurlamhbraut IJf simi 38550 y * Ég skil hann pabba ekki, en hann er að spyrja um, hvort sér sé óhætt að koma. Alexa gekk út á götuna. Hún stanzaði þar andartak og andaði að sér fersku og svölu morgun- loftinu — með álíka ákafa og drykkjusjúklingur skellir í sig fyrsta strammaranum að morgni dags. Andvari á vestan bar til hennar þefinn frá ánni. Hópur kvenna var að hreinsa leifar byltingarinnar af Jósefstorg- inu. Vafalaust voru þetta sjálf- boðaliðar, því að þær voru miklu kátari én hinar, sem hafa götusópun að atvinnu. Ung stúlka í hópnum tók að syngja, og hinar tóku undir. Þetta var einhvernveginn svo óraunveru legt og leikhússkennt. Það var ekki nema í óperettum, að stúlk ur sópa götur af svona hjart- ans lyst. — og svona illa. Sem snöggvast brauzt sólin gegn um tætingsleg skýin og keilulaga geislarnir voru rétt eins og eitthvert boð um nýja von. eftir dauðamyrkur síðustu viku. Sorgarleikurinn var á enda kljáður og leifarnar af honum lágu þarna samansópaðar í kyrfilega hrúgu. Friðurinn beið handan við næsta horn, með öll- um sinum smávægilegu skemmt- unum: leikhúsi, kvikmyndum, kvöldboðum úti, löngum ferðum, siglingum á Dóná. Þsyð var und- arlegt, hvað hægt var að sakna slíks á skömmum tíma. Ef Rússarnir hyrfu raunveru- lega úr landinu, yrði það frjálst rétt eins og Austurriki, og þá yrði Budapest hreint ekki sem verstur staður að eiga heima á, hugsaði Alexa, er hún gekk eftir breiðgötunni. Þó því aðeins hún gæti átt Halmy áfram. Það mundi koma sumar og sígaun- arnir í litskrúðugum jökkum og frunsuskyrtum og með olíugljá- andi hár mundu spila í útiveit- ingahúsunum í Buda, og svo kæmi haust og „Káta ekkjan" kæmi á sviðið í leikhúsunum, með einhverja prímadonnu í að- alhlutverkinu, næstum eins sterk byggða og gamla og sankti Hell erts kastalann. Svo kæmi vetur- 4. MAÍ. Hrúturinn 21. marz — 19. apríl. Reyndu að sýna meiri gestrisni en undanfarið jafnvel þótt þéir finnist gestirnir trufla þig frá störfum. Veittu vel en ekki svo veglega, að þú stofnir fjárhag beiimilisins í voða. Nautið 20. apríl — 20. maí. Einhverjar áhyggjur hafa legið þungt á þér um nokkum tíma og þú virðist vonlítili um að úr rnálum greiðist. Reyndu að vera bjartsýnn á framgang miálanna. Tvíburamir 21. maí — 20. júní. Skoðanir þínar og samstarfsmainna þinna eru nokkuð ólikar • og kann 1 fljótu bragði að vera erfitt að samræma þær. Með góðum vilja er þó unnt að ná ótrúliegum árangri. Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Þú hefiu- tekið ákvörðun, sem fjöls/kyldu þinni eða vinmufélög- um feilur ekki i geð. Haltu þó fasit við þitt og láttu esngan telja þér hughvarf. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Reyndu að skyggmast undir yfirborð hlutanna og einblína elkki á það eitt, sem augað sér. Komdu skikk á fjárm-ál og gerðu bú- reikninga til að sýna maka þínum í hvað peningarnir fara. Jómfrúin 23. ágúst — 22. september. Reyndu að vera sveigjanlegri í viðskiptum þínum og sam- skiptum við aðra og láttu efcki eðlislæga þrjóefcu þína spúla fyr- ir að góður árangur náist á ýmisum sviðum. Vogin 23. september — 22. október. Ef þú værir efcki svona dæmialaust eyðsJusamur og raun ber vitnd um, mundi nú hagur þiinn annar. Reyndu að taka þessi mál til gagngerðrar endurskoðuinar. Láttu efcki ginnast af gylli- boði, sem þér kann að verða gert. Efcki er aHt sem sýnist. Drekinn 23. október — 21. nóvember. Forðastu að gefa nokfcur bindiandi loforð í dag, hvert sem eru viðskiptalegs eða persónulegs eðlis. Dómgreind þin er ekki upp á það bezta og því er hagsitæðara að nasa hvergi um rað fram. Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember. ýmsar breytingar verða á heimiíliinu I sag, sennilega til hins betra. Láttu hagsýni þína og meðfæddia og góða greind hafa yfirhöndina í viðkvæmu máli. Steingeitin 22. desember — 19. janúar. Þú vinnur þér ívið létt og ættirekki að venja þig á það, kynnii að koma þé í koll síðar. Hafðu samband við ættingja eða vini sem bíða frétta af högum þínum. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar. Þú sfcalt vera óhræddur við að segja hug þinm og draga efckert undan. Láttu efckert á þig btta. Farðu fram á launahækkun í starfi þinu, ef þú vimmuir ékkert utan heimiliis, þá akaltu fá aukna vasapeninga á heimavígsitöðvum. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz. Þú lendir í leiðindaþrefi á vinnustað og lætur það haifa meiri áhrif á þig en þörí er. Síðari Muti dagsins verður miun ánægju- legri. Vertu heima við i kvöld og bjóddu ekki til þín gestum. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.