Morgunblaðið - 11.05.1968, Blaðsíða 1
32
SIÐUR
95. tbl. 55. árg.
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Algert fylgishrun Verkamannaflokksins
— Tapaði fylgi í svo til hverju einasta kjördœmi í bœja- og sveitastjórnakosningum
í Bretlandi — Yfirmaður Englandsbanka segir af sér og sakar stjórnina um lygar
til að breiða yfir efnahagskreppu
London, 10. maí — (AP-NTB)
jr BORGA-, sveita- og bæjarstjórnarkosningar standa yfir
í Bretlandi um þessar mundir, og lýkur þeim á morgun,
laugardag. Ljóst er nú þegar að Verkamannaflokkurinn hef-
ur beðið gífurlegan ósigur í kosningunum.
ÍJrslit eru þegar kunn í 370 borgum og hverfum. Hafði
Verkamannaflokkurinn ráðið meirihluta þessara kjördæma
nú um 30 ára skeið, en ekki lengur. Hlaut flokkurinn að
þessu sinni aðeins meirihluta í 43 kjördæmanna, og missti
stjórn margra kjördæma, sem talin hafa verið höfuðvígi-
flokksins um áratuga skeið.
Kosningaúrslit þessi eru mikið áfall fyrir Harold Wil-
son forsætisráðherra og stjórn hans. Brezki blaðakóngurinn
Cecil King bætti gráu ofan á svart í dag með harðri árás
á Wilson og stjórn hans. Sagði hann að ríkisstjórnin hefði
glatað trausti landsmanna. Framundan væri ein versta efna-
hagskreppa í sögu Bretlands, og undan henni yrði ekki
komizt með lygum varðandi varasjóði Breta, heldur þyrfti
að hefja nýja baráttu undir nýrri forustu.
Sagði King jafnframt af sér embætti yfirmanns Eng-
landsbanka, en stjórn Verkamannaflokksins skipaði hann í
það embætti fyrir þremur árum. Við tvennar síðustu þing-
kosningar hafa blöð Kings hvatt milljónir lesenda sinna til
stuðnings við Verkamannaflokkinn, en í dag birtu þessi
sömu blöð þær upplýsingar að stjórnin hefði sýnt að hana
skorti algerlega forsjá, hæfni til að stjórna, tilfinningu fyrir
stjórnmálum, og hæfileika til að viðhalda trausti.
a'ð hrikt hafi í undirstöðum
Verkamannaflokksins í dag, og
Kosningarnar til bæja- og
sveitastjóma fara fram um allt
England og Wales, og í svo til
hverju kjördæmi hefur Verka-
mannaflokkurinn beðið stórkost-
legan ósigur og tapað fylgi sínu
yfir til íhaldsflokksins. Ekkert
yfirlit er enn fyrir hendi yfir
heildarúrslitin, en einstök dæmi
tala sínu máli.
Sheffield hefur verið öruggt
vígi Verkamannaflokksins í 40
ár, en við kosningamar 1965
hlaut flokkurinn 72 bæjarstjórn
arfulltrúa kjörna, en íhaldsflokk
urinn 28. Nú hefur íhaldsflokk-
urinn þar hreinan meirihluta.
Verkamannaflokkurinn hefur átt
meirihluta í bæjarstjórn Hudd-
ersfield í rúma öld, en rpissjfi
hann nú. 1 einu borgarhverfi
Lundúna hlaut, íhaldsflokkurinn
alla 60 stjórnarmennina kjörna.
I öðru Lundúnahverfi, Xslington,
þar sem allir fulltrúarnir voru
frá Verkamannaflokknum, hlaut
flokkurinn nú aðeins 1/6 hverf-
isstjómarinnar.
1 heild er hér um að ræða
mesta ósigur Verkamanna-
flokksins í áratugi, og vilja
sumir líkja úrslitum kosning-
anna við uppreisnina innan
flokksins árið 1931, en sú upp-
reisn stafaði af óánægju með
þáverandi leiðtoga flokksins,
Ramsey McDonald.
I NTB frétt frá London segir
Harold Wilson
að margir velti því nú fyrir sér
hvað framtíðin beri í skauti fyr-
ir Wilson.
I Blaðakóngurinn Cecil King
hefur um nokkurt skeið verið
eindreginn stuðningsm. Verka-
mannaflokksins, og blöð hans
hafa stutt stjórnina, en meðal
þeirra er s/ærsta blað Bretlands,
The Daily Mirror, sem daglega
Framhald á bls. 3.
Heræfingar í Póllandi
Tékkai vísa á bug fregnum um liðs-
safnað við landamærin —
Prag, 10. maí (NTB)
TÉKKNESKA fréttastofan
Ceteka skýrði frá því í dag
að litið væri á fregnir, sem
birtar voru í gær um liðs-
flutninga sovézka hersins
við landamæri Póllands og
Tékkóslóvakíu, sem beina
ögrun. Segir fréttastofan að
tékkneskum yfirvöldum hafi
verið tilkynnt með fyrirvara
VIETIMAM-VIÐRÆÐUR
HEFJAST Á MÁNUDAG
Paris, 10. maí (AP—NTB)
FULLTRÚAR úr viðræðunefnd-
um Bandaríkjanna og Norður-
Vietnam komu saman til nærri
tveggja klukkustunda fundar í
dag til að ræða fyrirkomulag og
dagskrá samningafunda um Viet
nam, og var samþykkt á fundin-
um, að friðarviðræðumar hefjist
á mánudagsmorgun. Fulltrúarnir
koma á ný saman í fyrramálið til
að ganga endanlega frá undirbún
ingi viðræðnanna.
Fyrir hönd Bandaríkjanna
mætti Cyrus Vance á fundinum
í dag, en af hálfu Norður-Viet-
nam Ha Van Lau ofursti. Báðir
eru þeir varaformenn viðræðu-
nefnda sinna. '
Talsmaður bandarísku við-
ræðunefndarinnar sagði við
fréttamenn í París í dag, að
bandarísku fulltrúarnir hefðu
-----------------------------4'
átt von á því að samningavið-
ræðurnar hæfust strax í dag.
Hins vegar hefðu fulltrúar Norð
ur-Vietnam óskað þess, að fyrst
Framhald á bls. 3.
um heræfingar Vársjárbanda
lagsins í suðurhluta Pól-
lands.
Haft var eftir erlendum sendi-
ráðsmöniniuim í Vairsjá í gær að
mi'klir liðsflluitninigair sovézíkra
hersveita stæðu þá yfir í Pól-
landi að tékikniesku la.ndamærim
um. Höfðu noikkirir sendiráðs-
starfsm'enn orðið fy rir töf’urn á
ferðum sínum um Suður - P ó 1 land
af þessum völdum, eða jafnvel
vísað heim til Varisjá. Nú segja
pólsk yfixvöld aig heftinig á ferða
frelsi sendiráðsmainnia hiafi staf-
að af misskilniinigi.
I ákvæðum Varsjárbandalags-
ins er ráð fyirir því gent að um
30 þús. manna sovézkt herlið hafi
hersetu í Póllandi. Ekkier vitað
hvont það er þettia herlið, eða
sameinað lið Vansjárbandalaigs-
rikjanna sem nú er að æfiingum
við tékiknesku landamærin, og
ekki er þess hölduir getið hve
lemgi æfimgiarnar eiiga að standa.
H-umferðin:
Miklar framkvæmdir
Reykjavíkurborgar
NÚ standa víða yfir umfangs-
miklar breytingar á gatnakerfi
Reykjavíkur,, malbikunarfram
kvæmdir, gatnamerkingar og
flutningur umferðarmerkja
vegna gildistöku H-umferðar.
Ennfremur er unnið að þeim
framkvæmdum, sem þegar var á-
ætlað að framkvæmdar yrðu á
árinu.
Gatnamálastjóri, Ingi Ú. Mag-
nússon, Guttormur Þormar, yfir-
verkstjóri, umferðardeildar, Ól-
afur Guðmundsson, yfirverk-
fræðingur gatnadeildar og Pétur
Sveinbjarnarson forstöðumaður
Fræðslu og upplýsingaskrifstofu
Þannig mun Hverfisgata, Laugavegur og næsta umhverfi líta
út eftir umferðarbreytinguna.
Umferðarnefndar Reykjavíkur,
boðuðu blaðamenn á sinn fund
í gær í Góðtemplarahúsið og
kynntu þeim tæknilegan undir-
búning og breytingar vegna H-
umferðarinnar, malbikunina í
borginni og opnun Upplýsinga-
miðstöðvar umferðarmála.
Breytingar verður að gera á
alls 26 stöðum, eða gatnamótum,
en flestar eru þær smávægileg-
ar, aðallega í því fólgnar að
gera biðreinar fyrir vinstri
beygjiur. Helzita breyitiragm, sem
þegar er komin vel á veg, er
breikkun Hverfisgötu, á kaflan-
um milli Snorrabrautar og Þver-
holts. Á þeim kafla verður tek-
inn upp tvístefnuakstur. Lauga-
vegi verður lokað milli Þver-
holts og Rauðarárstígs, þannig
að ökumenn sem aka vestur Suð-
urlandsbraut og Laugaveg, og
ætla áfram niður Laugaveg, aka
Hverfisgötu að Snorrabraut,
taka þar vinstri beygju inn á
Snorrabraut og síðan hægri
beygju inn á Laugaveg. Tví-
stefnuakstur á Hverfisgötu á áð-
urnefndum kafla, milli Snorra-
brautar og Þverholts, er liður
í aöalsikipulaigi Reykjavitour-
borgar, en þar er gert ráð fyrir
tvístefnuakstri á allri Hverfis-
götunni.
Viðamesta og dýrasta breyt-
ingin, sem eingöngu er gerð
vegna H-aksturs er á gatnamót-
um Miklubrautar og Lönguhlíð-
ar og greiðir H-nefndin algjör-
lega kostnaðinn við hana, um
400 þúsund krónur. Breytingin
við Hlemmtorg kostar samkvæmt
áætlun um 2 milljónir króna og
er liður í aðalskipulaginu og
greiðir H-nefndin því ekkert
vegna hennar.
Við gildistöku H-umferðar
verður umferðarljósum fjölgað
úr 10 í 16. Breyta þarf öllum
gömlu ljósunum og verður t.d.
sett í stað græna ljóssins
sem ætlað er gangandi fólki,
alþjóðlegt merki, er sýnir gang-
andi mann. Eins verður á rauða
ljósinu fyrir gangandi fólk mað-
ur í kyrrstöðu.
Á eftirtalin gatnamót verður
komið fyrir ljósum: á gatnamót-
um Miklubraut og eftirtal-
inna gatna: Kringlumýrarbraut-
ar, Háaleitisbrautar og Grensás-
vegar, á gatnamótum Suðurlands
brautar og eftirtalinna gatna:
Kringlumýrarbrautar, Grensás-
vegar og Álfheima. Umferðarljós
in á Miklubraut verða samstillt,
þannig að unnt er að aka við-
Framhald á bls. 31.
t