Morgunblaðið - 21.09.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.09.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐUR 206. tbl. 55. árg. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. FIUGSLYS í FARNBOROUGH 12 lík fundin en óttazt að fleiri hafi farizt Eldhafið yfir samkomuhúsinu við Farnboroug-h-flugvöll eftir a ð franska flugvélin féll niður á húsið. Efst í eldinum, hægra megin við miðju, sést í stéi vél arinnar. Farnborough, Englandi 20. sept. AP-NTB. STÓR, tveggja hreyfla frönsk flotaflugvél af gerðinni Bregu et Atlantique fórst í dag í sýningarflugi á flugsýning- unni í Farnborough, og urðu um 10 þúsund áhorfendur sjónarvottar að slysinu. Vitað er að 12 menn fórust í slysinu, en óttazt að þeir hafi Hörð gagnrýni sovézkra blaða verið fleiri. Flugvélinni var flog ið á öðrum hreyflinum yfir sýn- ingarsvæðið í aðeins 70 metra hæð þegar slysið varð. Hún féll skyndilega niður á samkomuhús vi'ð flugvöllinn, og varð þá sprenging í henni. Flæddi logandi eldsneyti vélarinnar um brakið og samkomuhúsið, og stigu eld- súlur hátt til lofts. í kvöld höfðu björgunarmenij fundið 12 lík í rústunum, þeirra á meðal lík fimm foringja úr franska flug- hernum. Tæpum 100 metrum frá slysstaðnum var mannfjöldi sam an kominn við sölu- og upplýs- ingamiðstöð, sem starfar á veg- um flugsýningarinnar, og má Framhald á bls. 20 — á seinagang hjá leiðtogum Tékkósló- vakíu við að koma á eðlilegu ástandi Moskvu, 20. sept. NTB. SOVÉZK blöð birtu í dag harðorðar ádeilur á and-sósíal ísk öfl og and-sovézkar ögran ir í Tékkóslóvakíu, eins og komizt er að orði. Birtast greinar þessar í þremur þekkt um blöðum í dag, og kvarta Marcello Caetano blöðin yfir því hve seint geng ur hjá leiðtogum Tékkóslóvak íu að koma á eðlilegu ástandi í landinu. Málgagn sovézka hersins, Krasnaya Zvezda (Rauða stjam an) ræðst harðlega á „andbylt- ingarsinna“ í Tékkóslóvakíu, sem blaðið segir að séu enn starfandi í landinu, en hafi breytt starfs- aðferðum sínum. Sovietskaya Rossia, málgagn rússnesku flokksdeildarinnar, segir að óvinir kommúnismans reyni að innleiða borgaralegar hugsjónir meðal kommúnista- ríkjanna, sérstaklega í Tékkó- slóvakíu. Segir blaðið að Mao Tse Tung formaður og lei'ðtogar Júgóslavíu eigi sök á því sem blaðið nefnir and-sovézka móð- ursýki varðandi málefni Tékkó- slóvakíu. Pravda, málgagn sovézka kommúnistaflokksins, ræðir um andstöðu í Tékkóslóvakíu við inn rás Varsjárbandalagsrikjanna fimm og um það hve leiðtogum gengur erfiðlega að koma á „eðli legu ástandi“ þar. Segir blaðið a'ð tékkóslóvakískir leiðtogar hafi unnið slælega gegn and- sósíalísku öflunum í landinu. Telur blaðið upp fjög atriði, sem eiga að sýna þá erfiðleika, sem Eftirmaður Salazars Lissabon, 20. sept. (AP). ANTONIO de Oliveira Salazar forsætisráffherra Portúgals ligg- ur enn milli heims og helju, og ekki er unnt aff segja hvort hann fær bata. Herma óstafffestar fregnir frá Lissabon aff skipaður verffi nýr forsætisráffherra iandsins nú um helgina, ef ekki verffur snögg breyting á líffan Salazars. Áreiðanlegar heimildir herma að Americo Thomaz forseti og ríkisstjórnin hafi þegar ákveðið hver taki við embætti forsætis- ráðberra, og að tilkynning um skiptin verði birt á morgun, laug ardag. Segja þessar heimildir að fyrir valinu hafi orðið Marcello Caetano, sem lengi hefur verið náinn samstarfsmaður Salazars. Caetano er 62 ára, og hefur oft gefið til kynna að hann hafi ekki áhuga á að gefa sig að stjórn- málum að öllu leyti. Hinsvegar hierma heimildirnar að hann hafi, þrátt fyrir „miklar persónulegar fórnir“, fallizt á tilmæli ríks- stjórnarnnar um að taka embætt ið að sér. hernámsliðin eigi við að stríða i sé raunsýnn, á það ekki við um í Tékkóslóvakíu: aila. Sumir átta sig ekki á né 1. Þótt meirihluti kommúnista taka jákvæða afstöðu til hag- og verkamanna í Tékkóslóvakíu I rramhaid á Ws. 2« Þingsætaskipting eftir sænsku kosningarnar Þingmannatala sænsku flokkanna, að loknum kosningum, liggur enn ekki fullkomlega ljós fyrir. Sænska blaðið Dagens Nyheter birti í gær þær tölur, sem sennilega komast mjög nálægt endanlegri skipan mála. Hægri flokkurinn 33 þingsæti ( 33 áður) og 13.8% Miðflokkurinn 39 þingsæti ( 35 áður) og 16.2% Þjóðarflokkurinn 33 þingsæti ( 43 áður) og 14.5% Jafnaðarmenn 125 þingsæti (113 áður) og 50.1% Kommúnistar 3 þingsæti (höfðu 8) og 2.9% Trúir ekki á pilluna Ottawa, 20. sept. (AP). — Þetta eyffileggur trú mina á pilluna, sagffi 33 ára ljósmynd ari í Ottawa í dag eftir aff lion- um var sagt aff kona hans hefffi aliff honum fjórbura, þrjá drengi og stúlku. Ljósmyndarinn, Victor C. Millar, var staddur í Montreal Framhald á hls. 20 Rússar reyna að beina athyglinni frá Tékkum — Kenna V-Þjóðverjum um eigið atferli þar í landi Bonn, San Fransisco 20. sept. NTB-AP. V-Þýzka stjórnin hélt því fram í dag, aff síðustu fullyrðingar Sovétmanna um rétt þeirra til í- hlutunar í V-Þýzkalandi sam- kvæmt sáttmála Sameinuðu þjóff anna sýndu ljóslega, aff vald- beiting væri hornsteinn stjórn- málastefnu Sovétríkjanna. Jafnframt sagffi Nelson Rocke feller, ríkisstjóri í New York, sem var einn þeirra, sem til greina komu viff val frambjóff- anda repúblikana viff forseta- kjör í Bandarikjunum, í dag að Sameinuðu þjóffirnar yrffu þegar í staff að taka til umræðu og meffferffar fullyrffingar Sovét- manna um aff þeir hafi rétt til afskipta af innanríkismálum V- Þjóffverja. í ritstjórnargrein á for- síðu stjórnarblaðsins Izvestia í Moskvu segir í dag, að þær greinar Sáttmála SÞ, sem fjalla um óvinaríki, séu enn í fullu gildi, og veiti þær Sovétríkjun- um rétt til þess að grípa til að gerða gegn V-Þýzkalandi, ef á- Framhald á bls. 20 Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins Miffstjórn Sjálfstæffisflokksins hefir ákveffiff, aff efnt verffi til flokksráðsfundar í Sjálfstæffishúsinu í Reykjavík 11.—12. október næstkomandi. Hefst fundurinn föstudag- inn 11. október kl. 16. Samkvæmt skipulagsreglum flokksins skal boffa Flokks- ráff tii fundar minnst einu sinni á ári við upphaf hvers reglulegs Alþingis. Fundur þessi verffur boffaður flokksráðsmönnum bréflega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.