Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1968.
„Fyrst að hafa hugsjdnir -
síðan að gera þær að veruleika"
Rœtt við Magnús Gunnarsson
MAGNUS Gunnarsson hefur
tekið virkan þátt í starfi sam-
taka ungra Sjálfstæðismanna.
Bann stundar nú nám i við-
skiptafræði við Háskóla fs-
lands. Mbl. spurði Magnús
nokkurra spuminga um mál-
efni þau, sem hæst hefur bor-
ið í umræðum ungra manna
upp á síðkastið.
— Hvern telur þú helzta mis-
mun á afstöðu ungu og gömlu
kynslóðanna til stjóramála?
— Unga fólkið í dag, neitar
að axla gömul deilumál stjórn-
málamannanna. Halda áfram
þeirri stjórnmálabaráttu sem
einkennzt hefur af því, að sýna
fram á, að andstæðingurinn
hafi altlaf rangt fyrir sér en
ekki að sanna ágæti eigin
stefnu.
— Er þá Iausnin kannski að-
eins sú að ungir menn taki við
fleiri áhrifastöðum í stjóramál-
um?
— Nei, alls ekki. Það er oft-
ast svo þegar stjómmálasam-
tök yngri mannanna vakna upp
á tveggja til þriggja ára fresti,
að herópið er „ungir menn í
forystu", „kynslóðaskipti", eða
eitthvað álíka. Að sjálfsögðu
er nauðsynlegt fyrir stjóm-
málaflokk að stöðugur straum
ur nýs blóðs leiki um forystu-
lið hans, eins og flokkinn
reyndar allan. En nýtt blóð
þarf ekki undantekningarlaust
að vera ungt blóð. Þáð er al-
kunna, að menn geta verið há-
aldraðir í stjórnmálum milli
tvítugs og þrítugs, en ungir og
sprækir rúmlega sextugir.
Frjór og opinn hugur, og það
að vera ávallt ungur í anda og
síleitandi skiptir mestu í augum
unga fólksins. Sömu kröfu ger-
ir það vitanlega til eigin sam-
taka. Þau eiga ekki aðeins að
vera samtök ungra stjómmála-
manna, heldur samtök ungs
fólks með stjómmálaáhuga.
— Nú þarf vart að fjölyrða
meir um „einangrun stjóra-
málamannanna", „stirðnun
flokkanna" og „flokksræði" á
öllum sviðum. Hvað er nú til
ráða hjá unga fólkinu?
— 1 fyrsta lagi tek ég fram,
að ég þykist ekki sjálfkjörinn
talsmaður unga fólksins. En
skoðun mín og þeirra sem ég
umgengst virðist mjög á eina
lund. Sjálfstæðisflokkurinn
þarf, ef hann á að gegna for-
ystuhlutverki í íslenzkum
stjórnmálum, að gerast bylt-
ingarflokkur. Hann hefur því
miður átt sinn þátt í að byggja
upp það kerfi, sem nú er kom-
ið að fótum fram og rfðar til
falls sökum megns vantrausts
fólksins í landinu. Flokksfor-
ystunni verður að vera ljóst, að
þeir flokkar, sem ætla að
standa með þessu kerfi í fram-
tíðinni munu falla með því.
Sjálfstæðisflokknum, eðli
síns vegna, er lífsnauðsyn að
hafa forystu um að brjóta fún-
ar stoðir ríkisflokksveldisins,
ef hann á að komast heill út úr
komandi stormum íslenzks
stjórnmálalífs. Hann ver'ður að
hafa forystu um að færa völd-
in aftur til fólksins. Vitanlega
á þetta hvorki skylt við stjórn
leysi né að gera þjóðkjörna
fulltrúa valdalausa. En það
óeðlilega vald, sem safnazt hef-
ur á herðar stjómmálamann-
anna í öllum mögulegum og
ómögulegum efnum á ekkert
skylt við þá þjóðfélagshugsjón,
sem Sjálfstæðisflokkurinn á að
stefna að.
Fyrsta skrefið í þá átt að
gera þjóðfélagið heilbrig’ðara
tel ég að sé að flytja fjármagn
Jð úr höndum stjórnmálamann
anna, sem í gegnum ríkisvald-
ið hafa náð úrslitavaldi yfir
megin hluta fjármagnsins og
þar með atvinnulífinu. Afleið-
ingin er veikt atvinnulíf, þar
sem engin virðist hafa nokkra
ábjrrgð. Þegar eitthvað bjátar
á sjá menn oft þá lausn eina
að hlaupa á náðir ríkisins. Þar
er fjármagnið og ábyrgðin. En
auðvitað er það ljóst, að um
Magnús Gunnarsson,
viðskiptafræðinemi.
leið og fjármagnið verður flutt
til í þjóðfélaginu flytzt ábyrgð
in líka með því. Þarna held ég
að skilji á milli okkar þjóðfé-
lags annars vegar og þeirra á
Norðurlöndum og í V-Evrópu
hins vegar.
— En hvert yrði þá fyrsta
skrefið til endurbóta á stjóra-
málasviðinu
— Þar tel ég, að sé við hlið-
stæð vandamál áð stríða. Við
verðum að deila valdinu innan
flokkanna. í lýðræðissamfélög-
um þykir sjálfsagt að tví- ef
ekki þrískipta valdinu. Jafn-vel
í einræðisríkjum kommúnism-
ans er hreyfing í þá átt að
skilja flokksvald og ríkisvald.
Þetta sáum við glögglega með
falli Krúsjeff og þeirri tví-
mennisstjóm, sem við tók. Þar
náði samþjöppun valdsins há-
marki með Stalin heitnum.
Flokkur og ríki sameinuðust
þar í einni persónu. í Tékkó-
slóvakíu var slíkur aðskilnað-
ur valdsins frumatrfði endur-
bótanna.
— En lítum oss Jlú nær.
Hvemig eigum við að brúa aft-
ur það djúp, sem myndazt hef-
ur milli fólksins og flokkanna?
Flokkana sem eiga að vera
tæki fólksins til þess að hafa
áhrif á landstjórnina. Fyrsta
skrefið hlýtur að vera að láta
fólkið finna að þess sé valdið.
Gagnvart Sjálfstæðisflokknum
er það eindregin skoðun mín,
að hann eigi í næstu kosning-
um að láta kjósendur sína al-
gjörlega um val frambjððenda.
Almennt prófkjör kjósenda
hans er eina leiðin. Hér á ég
þó alls ekki við það fyrir-
brigði, sem nefnt var prófkjör
á fyrri árum.
Jafnframt endurbótunum,
sem ég drap á áðan, tel ég nýja
kjördæmaskipun á grundvelli
einmenningskjördæma vera
ráðlega til að lyfta stjórnmál-
unum upp úr núverandi lægð.
Slík breyting er þó áreiðanlega
engin allsherjarlausn út af £yr-
ir sig. Það kennir sagan okk-
ur. En ég er líka sannfaerður
um, að hægt væri að fram-
kvæma þá kj ördæmaskipan án
þess að allt koðni í einangrun-
ar- og vegaspottapólitík.
— Nú fara fram umræður
um hugsanlega þjóðstjóm,
hvert er álit þitt á slíkri
stjóm?
— Ég get ekki séð, að hún
leysi nokkurn vanda. Ég held
að þjóðareining fáist aldrei um
þjóðstjórn, heldur aðeins um
stefnu, sem meirihluti þjóðar-
innar óskar eftir. Það er flokk-
anna að leggja fram sínar
stefnur um lausn vandamál-
anna. Þjóðarinnar er að velja.
Ef menn telja að umboðið, sem
núverandi ríkisstjórn fékk frá
meiri hluta kjósenda í síðustu
kosningum sé útrunni’ð, þá er
að leggja spilin á borðið und-
anbragðalaust. Þjóðstjórn án
þjóðarfylgis er vægast sagt
áikaflega ólýðræðislegt fyrir-
brigði. En kannski er nú óþarfi
að gera ráð fyrir, að landið
verði stjórnarandstöðulaust, ef
af þjóðstjórn yr'ði?
— Nú er sagt að hugsjónir
gagni litt þegar út í raunveru-
leikann er komið, er ekki hætta
á að unga fólkið sé að flýja
veruleikann?
— Ég er þess fullviss, að
bæði ungir og aldnir eiga það
sameiginlegt að vilja kjósa um
málefni og menn, ekki aðeins
að velja milli nafna á flokk-
um, sem því miður marka
stefnu sína einhvem veginn
frá degi til dags.
Nú er það unga fólksins að
koma nfður úr skýjunum og
takast á við vandamálin og
berjasit fyrh hugsjónamálum
sínum. Það er auðvelt að rífa
niður, en nú er að beita öll-
um kröftum til að móta það
framtíðar þjóðfélag, sem við
viljum búa við. Fyrst er að
hafa hugsjónir. Síðan að gera
þær að veruleika.
Þ. W.
Sextíu hross utan
með Re ykjaíossi
— sérstakt gripaflutningaskip sœkir
á þriðja hundrað hross hingað
i
SE3TÍU hrossum verður skipað
um borð í Reykjafoss í dag, að
því er Agnar Tryggvason hjá
útflutningsdeild SÍS tjáði Morg-
unblaðinu í gær. Flytur Reykja-
foss hrossin ti'l Hamborgar, en
október á vegum þýzkra og
baðan verður þeim dreift til
kaupendanna, sem eru í Þýzka-
landi, Hollandi, Ausrturríki,
Frakklandi og Danmörku. Hafa
þá alls rúmlega 300 íslenzk hross
Verið flutt út á þessu ári. Vonir
standa til, að sérstakt gripaflutn
ingaskip komi hingað til lands í
danskra hrossakaupenda og
mun það taka hér á þriðja hundr
að hross. Er nú verið að velja
þau hross, en flest þeirra verða
úr Skagafirði. Ekki sagði Agn-
ar, að fleira væri fyrirhugað í
hrossaútflutningi á þessu árL
Húseignir til sölu
Sérhæð við Austurbrún.
Húseign með tveim íbúðum.
4ra herb. enðaíbúð í Stóra-
gerði.
Fokhelt endaraðhús í Foss-
vogi.
4ra herb. íbúð, útb. 300 þús.
8 herb. einbýlishús við Akur-
gerði.
4ra herb. íbúð við Kleppsveg.
Rannveig Þorsteinsdóttir,
hrl.
málflutningsskrifstofa
Sigurjón Sigurbjörasson
fasteignaviðskipti
Laufásv. 2. Sími 19960 - 13243
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustíg 3A. 2. hæð.
Símar 22911 og 19255.
Til sölu m.CL
Tvö lítil risherb. við Rauðar-
árstíg.
2ja herb. íbúðir á hæðum í
igamla bænum.
3ja herb. íbúð á 4. 'hæð við
Háaleitisbraiut.
4ra 'herb. íbúð á 1. hæð í Hlíð-
unum.
4ra herb. endaíbúð á 1. hæð
við Kleppsveg.
5 herb. íbúð á 3. hæð í gamla
bænum.
íbúð óskast
160 — 170 feim,
íbúð óskast á góðum stað í
borginni, 'helzt í tvíbýlis-
eða þríbýlishúsi. Þarf eklki
að vera laus strax. Skipti
á um 133 ferm. góðri íbúðar
hæð s'em er í Vesturbænum,
koma einnig til greina.
Jón Arason hdl.
Sölumaður fasteigna
Torfi Ásgeirfwon.
TIL SÖLU
Ágæt 2ja herb. íbúð við Lauga
veg. Góðir greiðsluskilmál-
ar.
3ja herb. íbúðir við Langholts
veg, Laufásveg, Hverfisgötu,
Laugarnesveg, Skólabraut.
4ra herb. risíbúð í Vesturbæn
um, 96 ferm. í góðu ásig-
komulagi, hitaveita. Tvöfalt
gler.
5 herb. íbúð á 2. hæð við
Kleppsveg. Teppi á stofum
og gangi. Suðursvalir.
Einbýlishús ásamt bílskúr
við Hrauntungu
Einbýlishús ásamt bílskúr við
Sunnuflöt.
Höfum kaupendur að góðum
2ja—3ja herb. íbúðum, einn
ig íbúðum í smíðum.
Steinn Jónsson hdl.
Lögfræðiskrifstofa og fast-
eignasala, Kirkjuhvoli.
Símar 19090 - 14951.
Kvöldsúni 36768.
Fasteignir til sölu
2ja, 3ja og 5 herb. íbúðir í
igóðum timburhúsum í Mið-
bænum. Hagstæðir skilmál-
ar.
Snotur 3ja herb. risíbúð við
Miklubraut. Góð kjör.
Lítið einbýlishús við Fram-
nesveg.
4ra herb. hæð við Lækjarfit.
3ja herb. íbúð á hæð við
Nönnugötiu.
Góð 3ja herb. kjallaraíbúð við
Ránargötu.
Góð 3ja herb. íbúð við Raiuð-
arárstíg.
Verzlunarkjallari við Klapp-
arstíg. Góð kjör.
Austurstrætl 20 . Sfmi 19545
Til sölu
7 herb. raðhús við Miklubraut
í góðu standi.
6 herb. hæðir við Rauðalæk,
Gnoðarvog, Fellsmúla og
Blönduhlíð.
Einbýlishús við Laiugarnesveg,
Aratún, Vífilsgötu, Bræðra-
tungu Kópav., Hrauntungu
Kópav., og Gufunesi.
í smíðum
Glæsilegt einbýlishús, 222
ferm. íbúð, með tvöföldum
bílskúr, 55 ierm. Selst fok-
helt. Útborgun aðeins 300
þús. Eftirstöðvar lánast til
5 ára.
Einnig raðhús á bezta stað í
Fossvogi, selst fokhelt með
400 þús. fcróna útborgun, eft
irstöðvar lánast til 5 ára.
630 ferm. lóð við Sfcerjafjörð
'undir einbýlishús.
Lóð, 1 hektari, lóð undir
sumarbústað nálægt Reykja
vík.
Einar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4. Sími 16767.
NÝKOMIÐ FYRIR
CHEVROLET
varahlutir í rafkerfi, hemla-
kerfi, útblástursrör, hljóð-
deyfar, blöndungar, benzín-
dælur, vatnsdælur, 14 tommu
hjólhlifar.
Bílobúð SÍS
Ármúla 3.
Vil kaupa íbúð!
á hæð eða í góðu risi. Þarf
að vera í góðu standi og sem
mest sér.
Útborgun samkomulag.
Uppl. í síma 14663.
Falleg íbúð
Til sölu 6 herbergja íbúð á II. hæð í Heimunum 160
ferm., 4 svefnherb., stofur, eldhús, búr, bað og sér
þvottahús. Stórar svalir í suður og vestur.
SKIP OG FASTEIGNIR
Austurstræti 18.
Sími 21735.
Eftir lokun 36329.