Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DES. 1968 Opnum í dag nýja hárgreiðslustofu og snyrtivörusölu í verzluninni Vogaborg Kleppsvegi 152. Hárgreiðslustofan Kaprí st. Kleppsvegi 152, sími 36270. „f STRIÐI OC STORSJÓUM " Fjórða bók Sveins Sæmundssonar KOMIN er út bókin „I stríði og stórsjóum" eftir Svein Sæmunds- L . ~ Hafsteinn Björnsson miðili NÆTURVÁKA Hafsteinn Björnsson hefor um óratuga skeiS verið lands- kunnur sem mikilhœfur og eftirsóttur miðill. NÆTURVAKA er fyrsta bók hans og hefur að geyma sjö smósögur; sveitasögur, sögur um íslenzkt fólk og íslenzka staðhœtti. Hafsteinn gerþekkir það fólk, sem hann lýsir og myndir þœr, sem hann dregur hér upp eru sannar og gleymast ekki. Hópur aðdáenda Hafsteins Björnssonar miðils er stór. Það er því öruggara að draga ekki til síðasta dags að ná sér í eintak af bók hans, Nœturvöku, það kann að reynast of seint síðar. Verð kr. 344,00 SKDGGSJÁ Jónas Þorbergsson BROTINN ER BRODDUR DAUÐÁNS Þessi síðasta bók Jónasar Þorbergssonar fjallar um „mikil- vœgasta málið í heimi". Hann rœðir hér um orku og efni og framlífið að loknum líkamsdauðanum, — um manninn og samsetning hans, — langur kafli er um sálfarir og segja þar átta landskunnir menn frá eigin reynslu, — kafli er um djúptrans miðla og loks er hór að finna brot úr sam- tölum sem Jónas átti við framliðna vini sína. — Sem bókar- auki eru minningargreinar nokkurra vina Jónasar um hann látinn. Verð kr. 365,50 SKIGGSJÁ BÓKIN UM SÉRA FRIÐRIK Skrifuð af vinum hans í þessa bók skrifa tuttugu þjóðkunnir menn um eftirtektarverðustu þœttina f fari hins ástsœla œskulýðsleiðtoga, séra Friðriks Friðrikssonar, og þau miklu áhrif, sem kynni við hann hðfðu á þá. Hofvnéar bókarinnar •rwt Árni Ámaten, dr. m#d. Ástráður SígursteindárMOa, ðkátastjári ESnar Guínaton, práfatfwr Guímundur Kr. GuSmundsson, fyrrverandi kaupmaSar Gylfi P. Gíslason, menntamálaráðherra HÖfundpr bókarinnar • ru: Matthías Johannessen, ritstjári Páll V. G. Kolka, lasknir Sigurbjörn Einarsson, bískup Sigurbjörn Á. Gtslason, prestur Sigurbjörn Þorkolsson, forstjári Sigurður A. Magnússon, ritstjári Sigurján Ólafsson, myndhöggvari Ulfur Ragnarsson, lœknir Valdimar Björnsson, ráðherra ÞárÖur MÖllor, yfirlœknir Þárir Kr. ÞárBarson, prófessor Jakob Frímannsson, forstjárl Jáol Fr. Ingvarsson, skósmíðam. Kristrún Ólafsdáttir, frú Magnút Guðmundsson, fyrrverandi práfastur Bákin um séra Friðrik er fögur bák, jafnt að efni sem útliti. Hún er vegleg vinar- gjöf, jafnt ungum sem öldnum. Fjöldi mynda úr lífi séra Friðriks prýða bók- ina, auk teikninga við upphaf hvers kafla. Atli Már annaðist bákarskreytingar. Verð kr. 494,50. SKDGGSJA son, nýjar frásagnir af íslenzk- um sjómönnum á friðar- og stríðstímum. Bókin er 218 blað- siðnr að stærð, útgefandi er Set- berg. „í srtríði og stórsjóum“ er fjórða bók Sveins Sæmundsson- ar. Hinar bækurnar þrjár eru „í brimgarðimim“, sem kom út 1965, „Menn í sjávarháska“, sem út kom 1966 og ,,í særótinu“, sem kom út sl. haust. Bækur Sveins fjalla allar um sjómenn og gjómennsku, eins og heiti þeirra gefa til kynna, og hafa þær notið mikilla vinsælda. Fjórða þók Sveins skiptist í níu kafla. Sá fyrsti heitir „í sjáv- arháska við Færeyjar“. Er það saga vestfirzks sjómanns, sem 10 ára gamall hóf sjómennsku á skútu, en fór síðar í siglingar. Kaflinn „í grunnbrotum Faxa- flóa“ er frásögn af togaranum Skallagrími í ofviðri í Faxaflóa. „Með Frigg á vertíð“ er frá- sögn af starfi fiskimanna á vélbátaflotanum frostaveturinn mikla. „Með óbilandi kjarki og hug- rekki' er saga fimmmenninga á vélbátnum Kristjáni í upphafi síðustu styrjaldar. „Þsir rigndi eldi og eimyrju" er kafli um tvo íslenzka togara á stríðsárunum, sem björguðu hundruðum manna úr sjávar- háska, en annar þeirra varð síð- ar fyrir árás þýzkrar sprengju- flugvélar. „Brotsjór við Eyjar“ er frásögn af togara, sem lenti í brotsjó. Sveinn Sæmundsson en komst til hafnar af eigin rammleik. Lengsti kafli bókarinnar nefn- ist „Örlagaþung varð Arctic". Skipið var keypt af fiskimála- nefnd í stríðsbyrjun til fiskflutn- inga og er saga þess og áhafnar rakin, sagt frá siglingum um ófriðarsvæðið, fangelsun og yfir- heyrslum, sem fóru fram á Kirkjusandi og eiga ekki sinn líka hérlendis. Þá er sagt frá hinztu för skipsins. Kafli samnefndur bókinni fjall ar um afdrif flutningaskipsins Heklu, fyrsta íslenzka vöruflutn- ingaskipsins, sem skotið var í kaf í stríðinu, svo og hrakning- um þeirra, sem af komust, á fleka. „Haldið til hafnar," er eftir- máli höfundar og heimildarskrá. Nokkrar myndir eru í bókinni, sem prentuð er í Setbergi. Hlífð- arkápu gerði Kristin Þorkels- dóttir. Norskt pípuorgel vígt í Saurbæjarkirkju AKRANESI 28. nóv. — Síðast- liðinn sunnudag var vígt nýtt pípuorgel í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Hófst athöfnin með há- tíðarþjónustu klukkan þrjú. Bisk up íslands, herra Sigurbjörn Ein- arsson, flutti ávarp og bæn og vígði orgelið, en sóknarprestur- inn, séra Jón Einarsson, prédilt- aði og þjónaði fyrir altari. Söng- málastjóri þjóðkirkjunnar, dokt- or Róbert Abraham Ottósson, flutti ávarp. Guðmundur Gilsson organleikari lýsti orgelirnu og lék á það, og gerði grein fyrir ein- kennum þess og hæfni. Athöfnin var hin hátíðlegasta, og var kirkjan fullsetin. Meðal við- staddra voru, auk biskupshjón- anna, allir prestar Borgarfjarð- arprófastsdæmis. Að kirkjuat- höfninni lokinni, bauð kvenfé- lag sveitarinnar öllum viðstödd- um til kaffisamsætis í félags- heimilinu að Hlöðum. Þar flutti Guðmundur Brynjólfsson, for- maður sóknarnefndar, ræðu, rakti sögu orgelmálsins og gerði grein fyrir kostnaði. Einnig tóku margir aðrir til máls. Hið nýja pípuorgel er tólf radda og þykir hið vandaðasta og fegUrsta hljóðfæri. Það er keypt frá orgelverksaniðjunni Vestre í Noregi, og er fyrsta orgelið, sem hingað er flutt frá því landi, ef undan er skilið lítið pípuorgel, sem mun hafa komið hingað frá Þrándheimi á dögum Lárentíusar Kálfssonar, eða fyrir 640 árum. Hið nýja oTgel mun verða mikil lyftistöng fyrir kirkjulíf Saurbæjarsóknar og er byggð- inni þar og kirkjulífí öllu mikill menningar- og gleðiauki. Jólakortin komin Höfum til, nú sem fyrr, margar tegundir jólakorta, t. d. Ijósmyndakort, litprentuð kort eftir teikningum Halldórs Péturssonar og Selmu Jónsdóttur og fleiri falleg og ódýr kort. Einnig kort Sameinuðu þjóðanna. Bókaverzlun Stefán Stefánssonar Laugavegi 8. — Sími 19850.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.