Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 1
60 síður (Tvö blöð)
* . 4*.
285. tbl. 55. árg.
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Moshe Dayan, varnarmálaráðherra ísraels, var í nokkurra daga heimsókn í Bandarikjunum
og hitti þá meðal annars Richard Nixon, nýkjörinn forseta. Ferð Wiiliams Scrantons á veg-
um Nixons um Arabalöndin vakti talsverðan ugg i ísrael og því lagði Dayan áherzlu á að
hitta Nixon að máli.
Níu hundruð þús
und verkamenn
lýsa stuðningi við Smrkovsky
Prag, 19. des. AP—NTB
VERKAMENN i málm- og járn-
iðnaðarsamtökum i Tékkóslóvak-
iu, en þau hafa um 900 þúsund
félagsmenn innan vébanda sinna,
samþykktu í dag, að boða alls-
herjarverkfall, ef Josef Smirkov-
sky, forseta þjóðþings landsins,
eða einhverjum öðruin leiðtoga
yrði vikið úr starfi.
Flokksmálgagnið Rude Pravo
skýrði frá samþykktinni, svo og
öðrum sem félagið gerði á fundi
sínum, þar sem meðal annars var
lýst óánægju með þær fyr-
irhuguðu breytingar sem verða á
stjórn landsins um áramótin. Fund
urinn krafðist þess að þegar verði
horfið til fyrri áætlunar ríkis-
stjórnarinnar um breytingar í
landinu.
Þá segir Rude Pravo frá því, að
níu félagar í slóvakísku rithöf-
undasamtökunum hafi sagt sig úr
þeim. Blaðið gizkar á að þeir
geri það í mótmælaskyni við rík-
isstjórnina og kommúnistaflokk-
inn, þar sem útgáfa tímarits þeirra
Framhald á bls. 23
ítulskor konur
fc oukinn rétt
Rómaborg, 19. des (NTB)
ÍTALSKAR konur eru nú í (
þann veginn að fá aukin rétt-
indi og mjókkar óðum bilið'
milli réttar þeirra og forrétt-1
inda ítalskra karlmanna. Boð-
aðar hafa verið breytingar á i
lögum þeim, sem gera ráð'
fyrir að leyfilegt sé að \
dæma konur í allt að I
eins árs fangelsi fyrir að (
halda framhjá eiginmönn- .
uim sínum. Karlmenn hafa'
hins vegar aldrei átt á ihættu !
fangelsisvist, þótt þeir gömn- {
uðu sér við aðrar en eiginkon-1
ur sínar. Næsta skretfið í jafn-
réttisbaráttu ítalskra kvenna \
mun væntanlega að fá að |
taka þátt í uppeldi barna, |
vinna utan heimilis ef þær ,
! ósika þess og tfá vitneskju um '
kaup eiginmanmsdns.
Murkelukis
ber Norðmenn
þungum sökum
Paris, 19. des. — (NTB)
GRÍSKI flóttamaðurinn Pantelis
Marketakis. sem hefur ákveðið
að taka aftur játningu sína um
að hann hafi verið pyntaður í
grísku fangelsi, lýsti yfir á blaða
mannafundi í dag í París, að
Jens Evensen, formaður norsku
sendinefndarinnar í umræðunum
í mannréttindanefndinni í Strass
borg um Grikklandsmálið, hefði
staðið undir öllum kostnaði þeg
ar honum var rænt. Marketakis
hélt því fram, að þrir menn í
hvítum bíl hefðu rænt sér og
neytt til að Iýsa yfir því, að hann
hefði sætt pyntingum i Grikk-
landi. -
Grískur verkfræðdngur, Deme-
trios Papma.ntallos, sagði í
Strassborg í dag, að Marketak-
Framtaald á bls. 2
Varað við Viet Cong árás á Saigon
Cœti leitt til nýrra loftárása á N-Vietnam
París og Saigon, 19. des.
(AP-NTB)
0 Cyrus Vance, annar að-
alsamningamaður Bandaríkja
stjórnar í Vietnam-viðræðun-
um í París, tilkynnti samn-
inganefnd Norður-Vietnam í
dag, að árás af hálfu Viet
Cong á Saigon gæti komið í
veg fyrir alvarlegar friðar-
viðræður og leitt til þess að
loftárásir yrðu hafnar að
nýju á Norður-Vietnam.
★ A leynifundi, sem samninga-
nefndirnar héldu í dag, tókst
ekki að gera út um ágreining
þann, sem komið hefur í veg fyr
ir að ráðstefna hinna fjögurra
aðila Vietnam-styrjaldarinnar
geti hafizt. Talsmaður Þjóðfrels-
isfylkingar Viet Cong krafðist
þess á blaðamannafundi, að
mynduð yrði ný „friðarstjóra“ í
Suður-Vietnam i stað Saigon-
stjórnarinnar og ætti slík stjórn
að vera fús til viðræðna við
Þjóðfrelsisfylkinguna.
FÖNGUM SUEPPT
Útvarpsstöð Viet Cong t il-
kynnti í dag, að þrir bandarísk-
ir striðsfangar yrðu látnir laus-
ir nálægt landamærum Kambó-
díu á jóladag. Útvarpsstöðin
lagði til að skæruliðaforingjar
og bandarískir yfirmenn héldu
með sér fund um einstök atriði
þeirrar ákvörðunar að láta fang-
ana lausa og skoraði á banda-
rísku herstjórnina að virða jóla-
vopnahlé það sem Viet Cong hef
ur boðað frá kl. 1 f.h. að staðar-
tíma 24. desember til 27. desem-
ber. Skæruliðaforingjar og
bandarískir yfirmenn hafa aldrei
haldið fund með sér.
í Phnom Penh tilkynnti Nor-
odom Sihanouk fursti, þjólðhöfð
ingi Kambódiu, að hann hefði
ákveðið að láta lausa 12 banda-
ríska hermenn, sem teknir voru
til fanga í júlí, og einn Suður-
Vietnama. Seinna skýrði Silhan-
Framhald á bls. 23
iMao-flensan í
Bandaríkjunum
New York, 19. des. (NTB)
MAO-innflúenzan breiðist nú
mjög ört út í Bandaríkjunum
I og milljónir manna liiggja
sjúkir. Skólar og fyrirtæki
eru víða lítt starfhæf vegna
veikinda nemenda og starfs-
fólks. Bólusetning á öldruðu
fólki og sjúklingum á sjúkra-
húsum stendur jnfir í New
York og bóluefni hefur verið
sent í flest hinna stœrri
sjúkrahúsa í stórborgunum.
| Talsvert hefur verið um það,
að fólk fengi lungnabólgu uipp
úr flenzunni, einkum roskið
1 fólk. Læknar hafa hvatt þá
sem eru veilir fyrir hjarta til
að fara vel með sig og ekki
fara of snemma á fætur.
Meðal þeirra sem tekið hafa
Mao-flenzuna er Johnson,
Bandaríkjaforseti, og var
hann lagður inn í Bethesda-
sjúkralhúsið, með háan hita,
sárindi í hálsi og hósta. For-
setinn hafði verið bóluisettur
tvisvar. Líðan hans er nú
sögð góð.
Shriver verður sendiherra hjó S.Þ.
— sagði New York Times í gœr
New York, 19. des. (AP)
BANDARÍSKA blaðið New York
Times segir í dag, að Sargent
Shriver hafi fallizt á tilmæli
Nixons að taka við stöðu am-
bassadors Bandarikjanna á þingi
Sameinuðu þjóðanna. Blaðið seg-
ir, að Nixon muni tilkynna þetta
opinberlega einhvern allra næstu
daga.
Sargent Shriver er nú sendi-
herra lands síns í Frakklandi.
Hann kom til Bandaríkjanna fyr.
ir nokkru og átti þá fund með
Nixon, og síðan hélt hann á
fjölskylduráðstefnu hjá tengda-
fólki sínu, en Shriver er kvænt-
ur Eunice Kennedy. Þær raddir
hafa heyrzt, að Kennedy-fjöl-
skyldan hafi lagzt gegn því að
Shriver tæki við ambassadors-
stöðunni, en New York Times
segir það ekki rétt, heldur hafi
fjölskyldan yfirleitt verið því
hlynnt.
Kannski eru skrímslin mðrg á botni
Loch Ness stöðuvatnsins
að því er vísindamenn segja, en þeir
vilja jbó fara gœtilega í sakirnar
Chicago, London, 19. des. AP
DR. Roy Mackaþmólekúlalíf-
fræðingur við háskólann í Chic
ago, sagði á blaðamannafundi
í dag, að eitthvað stórbrotið og
einkennilegt væri að gerast í
Loch Ness stöðuvatninu í Skot
landi. Ekki vildi hann fullyrða
að skrímslinu væri um að
kenna, en taldi ýmislegt benda
í þá átt. Mackal er fulltrúi
Bandaríkjanna í Loch Ness
rannsóknarnefndinni, sem hef-
ur aðalbækistöðvar sínar í
London. Aðalviðfangsefni þeirr
ar nefndar er að kanna með
vísindalegum aðferðum, hvort
hið nafntogaSa skrímsli, sem
við vatnið er. kennt, hafi þar
í raun og veru aðsetur.
Rannsóknarnefndinni hefur
nýlega verið úthlutað 20 þús-
und dollurum til að halda
störfum áfram á næsta sumri,
en það er Encyclopedia Brit-
annica, sem hefur látið mest
fé af hendi rakna til þessara
athugana. Mackal sagði að mik
illar gætni væri þörf í að
túlka þær niðurstöður, sem
virtust hafa fengizt, en þær
renndu vissulega stoðum undir
þær kenningar, að hópur tor-
kennilegra dýra væri í Loch
Ness.
Það voru prófessorar og vís
indamenn við Birmingham há
skólann i Bretlandi undir
stjórn Dadids G. Tucker, sem
birtu nýlega árangur rann-
sókna sem þeir hafa unnið við
í sambandi við skrímslamálið.
Þeir notuðu sérstakt hlustunar
tfæki og segjast hafa orðið var
ir við hreyfingar og hljóð niður
í vatninu, sem séu algerlega ó-
þekkt og fráleitt geti þau staf
að frá fiskum eða öðrum hvers
dagslegum lagardýrum.
Sagan um skrímslið í Loch
Framhald á bls. 2