Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968
3
Ágreiningur vegna ferða formanns
Hlífar um Str aumsvíku rsvæðið
ÞEGAR Hermann Guðmundsson,
formaður Verkamannaféagsins
Hlífar í Hafnarfirði, var á leið
inn á athafnasvæðið í Straums-
vík í gærmorgun tilkynnti hlið-
vörðurinn honum, að hann hefði
fengið fyrirskipun um að hleypa
Hermanni Guðmundssyni ekki
inn á svæðið. Nærstaddir verka-
menn hindruðu vörðinn í því að
stöðva ferðir Hermanns og fór
hann sinna ferða. Karl Magnús-
son, hliðvörður, tjáði Morgun-
blaðinu í gær, að hann hefði
fengið munnlega fyrirskipun um
að hleyf>a Hermanni ekki inn á
svæðið. Philip Miiller, viðskipta-
legur framkvæmdastjóri ÍSALS,
tjáði Morgunblaðinu, að hlið-
vörðurinn hefði fengið fyrir-
skipun um að tilkynna yfirmönn-
um um komu Hermanns, þar sem
þeir vildu, að hann færi ekki um
svæðið nema í fylgd með verk-
fræðingi. Halldór Jónsson, stjórn
arformaður ÍSALs, sagði Morg-
unblaðinu í gærkvöldi, að stjórn
ÍSALSs hefði þá ekki tekið mál-
ið til meðferðar. Á fundj mið-
stjórnar ASÍ í gær voru sam-
þykktar vítur á erlenda fram-
kvæmdastjórann, sem að fyrir-
skipun þessari stóð, og var
Hannibal Valdimarssyni, forseta
ASf, og Hermanni Guðmunds-
synj falið að ganga með sam-
þykkt þessa á fund dómsmála-
ráðherra.
Hermann Guðmundsson sagði
Morgunblaðinu svo frá: „Ég
'þurfti að ganga á fund yfir-
iranna sænsku verktakanna
StAB og kom að Straumsvíkur-
hliðinu ásamt Hallgrími Péturs-
syni, starfsmanni Hlífar, um
klukkan hálf tíu. Þegar við kom-
x'im í hliðið tilkynnti hliðvörður-
'inn mér, að 'hann hefði um það
ákveðin fyrirmæli að ekki mætti
tiieypa mér inn á svæðið. Ég vissi
vel, að maðurinn var aðeins að
gera skyldu sína, en sagði honum
að enginn myndi stöðva ferðir
mínar inn á svæðið. Tveir nær-
■staddir verkamenn brugðu við og
hindru'ðu vörðinn í að stöðva
ferðir mínar. Ég gekk siðan á
fund yfirmanna SÍAB og að
fundinum loknurn fór ég út af
svæðinu. Ég mun, hvenær sem
nauðsyn krefur, fara allra minna
ferða um Straumsvíkursvæðið“
sagði Hermann.
Karl Magnússon, hliðvörður,
sagði Morgunblaðinu, að hann
'hefði fengið ákveðna fyrirskip-
un, munnlega, frá Philip Muller,
viðskiptalegum framkvæmda-
stjóra íiSALs, um það, að ekki
væri óskað eftir því, að Her-
mann Guðmundsson kæmi inn á
Straumsvíkursvæðið og kvaðst
Karl aðeins hafa verið að fram-
fylgja þeirri fyrirskipan.
Philip Muller sagði Morgun-
blaðinu, að hliðvörðurinn hefði
greinilega misskilið fyrirskipun
þá, sem hann fékk í sambandi
við kornur Hermanns Guð-
mundssonar.
„Það er hrein vitleysa, að ég
hafi skipað hliðverðinum að
banna Hermanni að koma inn á
svæðið. Ég vildi aðeins fá að
'vita um komur hans svo ég gæti
sent verkfræðing á vettvang til
áð fyrirbyggja það, að ferðir
LANGIR fundir voru í báðum
deildum Alþingis í gær, og voru
margir fundir haldnir í báðum
deildum. Miklar umræður urðu
í neðri deild um stjórnarfrum-
varpið um ráðstafanir vegna
sjávarútvegsins, en í efrj deild
urðu mestar umræður um frum-
varpið um togveiði innan land-
helgi.
Eftirtalin frumvörp voru tekin
tii umræðu og afgreiðslu:
Nálmslán og námstyrkir
Frumvarpið tekið til 2. og 3.
umræðu í efri deild. Auður Auð-
uns mælti fyrir nefndaráliti
menntamálanefndar sem mælti
einróma með samþykki frum-
varpsins. Frumvarpið síðan af-
greitt sem lö.g frá Alþingi.
Skólakostnaður
Tekið til umræðu í efri deild.
Auður Auðuns mælti fyrir áliti
meiri hluta menntamálanefndar,
sem vildi samþykkja frumvarpið
óbreytt, en Páll Þorsteinsson
mælti fyrir minni hluta áliti.
Frumvarpið var afgreitt sem lög.
Ráðstafanir vegna landbúnaðar-
ins
Kom til umræðu í efri deild.
Steinþór Gestsson mælti fyrir
óliti meiri hluta landbúnaðar-
(Hermanns um svæðið skapi erf-
'iðleika eða jafnvel hættu á stór-
tjóni.
1 Þessi afstaða mín er til komin
vegna þess að fyrir fjórum dög-
um kom Hermann inn í kerja-
skálann og stöðvaði þar alla
vinnu án vitundar verkstjóra og
verkfræðinga.
Starfið, sem þar er unnið, er
þess eðlis, að slíkar skyndilegar
stöðvanir geta valdið erfiðleikum
,og skapað hættu á stórtjóni og
tii þess að fyrirbyggja slíkt gaf
nefndar, en Ásgeir Bjarnason
fyrir minni hluta áliti. Auk
þeirra tóku þátt í umræðum þeir
Jón Ármann Héðinsson og Jón
Þorsteinsson. Frumvarpið af-
greitt sem lög.
Bann gegn botnvörpuveiðum
i Pétur Benediktsson mælti fyr-
ir nefndaráliti, en í umræðumim
tóku þátt auk hans Ólafur Jó-
hannesson, Jón Árnason, Karl
Guðjónsson, og Einar Ágústsson.
Deildin samþykkti breytingartil-
lögur frá sjávarútvegsnefnd og
frá Jóni Árnasyni og varð því
að vísa frumvarpinu affcur til
neðri deildar. Þar voru breyting-
artillögurnar einnig samþykktar
samhljóða, og frumvarpið af-
greitt sem lög.
Stofnskrá Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins
Sveinn Guðmundsson mælti
fyrir áliti fjárhagsnefndar efri
deildar um málið, en hún var
sammála um að mæla með sam-
þykkt frumvarpsins. Var það síð-
an afgreitt sem lög.
Verðlagsmál
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
skipan verðlagsnefndar verði ó-
beytt næsta ár. Sveinn Guð-
mundsson mælti fyrir áliti fjár-
Annir á Alþingi:
Tíu frumvörp
afgreidd sem lög
M.a. frumvarp um rádstafanir vegna
sjávarútvegsins og frumvarp um
botnvörpuveiðar r landhelgi
ég fyrrgreinda fyrirskipun",
sagði Múller.
Morgunblaðið snéri sér til Jó-
hanns Hafstein, dómsmálaráð-
herra, vegna þessa máls og sagði
hann: „Að sjálfsögðu heyrir þetta
mál ekki undir mig sem dóms-
málaráðherra. Hins vegar frétti
ég í gær af því, að árekstur hefði
orðið þarna suður frá og þar sem
ég sem iðnaðarmálaráðherra hef
haft mjög náin tengsl við þessar
framkvæmdir, spurðist ég fyrir
um málið.
Ég tel, að ég hafi þegar komið
áleiðis þeim leiðréttingum, sem
koma í veg fyrir frekari árekstra
í bili, og hef ég gert frekari ráð-
stafanir til þess að eiga eftir ára-
mót viðræður við viðskiptalegan
framkvæmdastjóra fSALs og einn
ig mun ég ræða málið nánar við
formann Hlífar, Hermann Guð-
mundsson, sem ég hef þegar átt
nokkrar viðræður við“.
hagsnefndar. Frumvarpið af-
greitt sem lög.
Ferðamál
Frumvarp er fjallar um strang-
ari reglur fyrir leyfisveitingum
til ferðaskrifstofa. Afgreitt sem
lög.
ToUskrá
Kom til umræðu í neðri deild.
Matthías Á. Mathiesen mælti
fyrir nefndaráliti fjárhagsnefnd-
ar sem var sammála um að mæla
með samþykkt frumvarpsins, er
Ifjallar um breytingar á toll-
Is-kránni. Afgreitt sem lög.
Þóknun fyrir innheimtu opin-
berra gjalda
Sigurður Ingimundarson og
,'Skúli Guðmundsson mæltu fyrir
Imeiri og minni hluta álitum
Ifjárhagsnefndar. Meiri hluti
inefndarinnar lagði til að frum-
Ivarpinu yrði vísað til ríkisstjórn.
larinnar og var sú tillaga sam-
þykkt.
Ráðstnfanir vegna sjávarútvegs-
Ins
Miklar umræður urðu um mál-
ið í neðri deild. Sverrir Júlíus-
son mælti fyrir áliti meiri hluta
Isjávarútvegsnefndar, en Björn
Pálsson fyrir minni hluta álitinu.
Einn þingmanna er stóð að meiri
Ihluta álitinu, Pétur Sigurðsson,
Iritaði undir með fyrirvara og
gerði hann grein fyrir afstöðu
isinni. Aðrir siem tóku þátt í um-
Iræðum um frumvarpið voru
Eggert G. Þorsteinsson, Magnús
Kjartansson, Lúðvík Jósefsson,
Eysteinn Jónsson og Þórarinn
iÞórarinsson.
Frávís'unartillaga minni hluta
sjávarútvegsnefndar var við at-
kvæðagreiðslu felld með 18 atkv
igegn 18, og frumvarpið var siðan
afgreitt sem lög.
IBjargráðasjóður
Frumvarp þetta gerir ráð fyrir
áð framlög til Bjargráðasjóðs
verði aukin til muna. Var það
tekið fcil 3. umræðu í efri deild
og til þriggja umræðna í neðri
deild, og afgreitt sem lög.
NÝJAR VÖRUR Á
GÖMLU VERÐI I ÚRVALI.
<§> KARNABÆR
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
FORELDRAR!
NÝJAR VÖRUR
TEKNAR UP DAGLEGA.
„ERUÐ ÞIÐ í VANDRÆÐUM MEÐ GJAFIRNAR
FYRIR UNGA FÓLKIÐ Á HEIMILINU?“
VIÐ BJÓÐUM MJÖG FJÖLBREYTT ÚRVAL
FATNAÐAR Á UNGT FÓLK Á ÖLLUM ALDRI.
Munið gjafakortin okkar
ÞAÐ ER OFT VANDI AÐ VELJA Á UNGA
FÓLKIÐ OG KOMA GJAFAKORTIN ÞÁ í GÓÐAR
ÞARFIR. ÞAU ERU Á IIVAÐA UPPHÆÐ SEM
ÓSKAÐ ER EFTIR.
NÝKOMIÐ: KJÓLAR — HERRA-
SKYRTUR — PEYSUR.
mKSTEI^R
Viðræður um
atvinnumál
Fyrir nokkrum dögum hófust
viðræður milli fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og Alþýðusam-
bands Islands um atvinnumál.
Megintilgangur þessara viðræðna
er að finna leiðir til þess að auka
atvinnu í landinu og útrýma at-
vinnuleysi, sem þegar hefur gert
vart við sig. Með þátttöku í þess-
um viðræðum hefur Alþýðusam-
band íslands sinnt sjálfsagðri
skyldu, sem umboðsaðili rúmlega
35 þúsund launamanna víðsveg-
ar um landið og skapað sér að-
stöðu til að hafa veruleg áhrif á
aðgerðir ríkisvaldsins í þessu
efni. Hefði ASÍ neitað þátttöku í
þessum viðræðum eins og komm
únistar lögðu til hefði Alþýðu-
sambandið vanrækt helga
skyldu sína að leggja sitt af
mörkum til þess að útrýma at-
vinnuleysi, sem ekki er hægt að
þola á íslandi nútimans. Þess mis
skilnings gætir hins vegar mjög
í forustugreeinum kommúnista-
blaðsins og Tímans í gær, að hér
sé um að ræða viðræður um
kjaramál. Því fer fjarri. Verka-
lýðsfélögin hafa sagt upp samn-
ingum og viðræður við atvinnu-
rekendur munu vafalaust hefj-
ast, þegar báðir aðilar eru reiðu-
búnir til þess en þær viðræður,
sem nú eru hafnar milU ASÍ og
ríkisstjórnarinnar snúast um ráð-
stafanir í atvinnumálum. Það er-
gjör óþarfi að láta misskilning
verða um þetta atriði.
Stuðlað að
atvinnuaukningu
í forustugrein kommúnista-
blaðsins í gær er þvi haldið
fram, að ríkisstjórin hafi ekki
staðið við fyrirheit, sem hún hafi
gefið sl. vetur um að stuðla að
aukinni atvinnu. Þetta er auð-
vitað fráleit ásökun. Rikisstjórn-
in hefur á þessu ári gert mjög
gagngerar ráðstafanir til þess
ag halda atvinnuvegunum gang-
andi. Þetta hefur hún gert með
því að, hlaupa undir bagga með
fiskveiðum og fiskverkun og þá
ekki sízt hraðfrystihúsunum og
fullvíst er, að ekkert hefði orðið
úr sildveiðum og hvalveiðum á
þessu ári, ef atbeini ríkisstjórn-
arinnar hefði ekki komið til. Rík-
isstjórnin aflaði einnig fram-
kvæmdaláns í Bretlandi, sem
nam hátt í þriðja hundrað
milljóna króna og leiddi til veru-
legrar og margháttaðrar atvinnu
aukningar. Loks er ástæða til að
minna á þá staðreynd, að þær
tvær framkvæmdir, sem veitt
hafa einna mesta atvinnu á þessu
ári, Búrfellsvirkjun og álbræðsl-
an í Straumsvík hefðu ekki ver-
ið til staðar, ef fylgt hefði verið
ráðum stjórnarandstæðinga. Það
var einungis fyrir harðfylgi ríkis
stjórnarinnar og stuðningsmanna
hennar, sem tókst að tryggja fram
gang þessara miklu framkvæmda.
Viðræðui við verka-
lýðshreyfinguna
1 forustugrein Tímans í gær er
sú skoðun sett fram, að ríkis-
stjórnin hefði átt að hafa sam-
ráð við verkalýðshreyfinguna
um aðgerðir í efnahagsmálum. I
þessu sambandi er ástæða til að
vekja athygli á, að t.d. gengis-
lækkun, er ekki aðgerð, sem
heppilegt er að beri að á þann
hátt, að langvarandi samninga-
viðræður eigi sér stað á undan
henni. Hvernig halda menn, að
ástatt hefði verið í þessu þjóð-
félagi í haust, ef ráðherrarnir
hefðu setið á löngum samninga-
fundum við verkalýðshreyfing-
una um gengislækkun og hvað
hvað hún ætti að vera mikil?
Sú spurning svarar sér sjálf.
<r
m
<
■