Morgunblaðið - 06.10.1970, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.10.1970, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1970 17 Janis Joplin látin Hitaveita Húsa- yíkur í notkun Sætanýting Loftleiða FYRSTU sjö mánuði þessa árs jókst farþegafjöldi Loftleiða um 43,7% miðað við sama timabil í fyrra. Farþegafjöldinn var þessa 7 mánuði 146.951. Sætanýtingin var 72,8%, sem er hækkun frá því í fyrra um 4,7%. Nýting í vöruflutningum var 70,6% og jókst um 0,2%. Frá þessu segir í nýútkomnu fréttabréfi frá Loftleiðum. Þar eru einnig birtar tölur um nýt- ingu Loftleiðahótelsins. í júlí gistu 5.039 gestir hótelið og var nýting hótelsins þá 95,6%. í ág ústmánuði voru gestirmir 4.615 og nýtingin 90,6%. Nýtingin var 6,5% mimni í júlímánuði og 14,5% minni í ágúst miðað við sömu mánuði í fyrra. Fyrstu átta mán uði ársirns er gestafjöldi hótels- ins orðinn 29.514 eða 78,8% nýt- ing. Er nýtingin 0,5% minni en á sa-ma tírna í fyrra. Syrgjandi milljónir KISTA Nassers er sveipuð 1 fánum og grátandi sonur hans er studdur af vinum sínum. Á þriggja dálka myndinni sést hvar kista forsetans stendur á börum í höll hans, rétt áður en hún var flutt með þyrlu til höfuðstöðva byltingaráðs- ins í Gezira, en þaðan hófst hin opinbera útför. 'Erlendir fréttamenn líkja henni við það sem sést hefur í stórmynd um um jarðsetningu Faró- anna. Milljónir manna fóru grát- andi og kveinandi um göturn- ar, rífandi í hár sér og klæði. Fjölskylda Nassers var ekki síður harmi lostinn, og á tveggja dálka myndinni styðja nokkrir vinir grátandi son hans, þegar hann kom til út fararinnar. — Það tók þrjár klukkustundir að komast að / grafreitnum og öðru hvoru I óku brynvarðar bifreiða.r á \ fullri ferð beint inn í mann- L fjöldann til að ryðja leiðina. i Þó nokkrir létu lífið af þeim J orsökum og öðrum slysum. \ Húsavík, 5. okt. HITAVEITA Húsavíkur var formlega tekin í notkun sl. laug ardag, eins og sagt var frá í sunnudagsblaðinu. í því tilefni hafði bæjarstjórn Húsavíkur boð inni í Félagsheimilinu. Voru þar margar ræður fluttar og lýstu menn ánægju sinni yfir fram- kvæmdinni. Bjöm Friðfinnsson, bæjar- stjóri, rakti hina löngu sögu og aðdraganda Hitaveitu Húsavík- ur og lýsti mörgum hugmyndum og tilraunum á framkvæmda- braut málsins og minntist margra áhugamanna í því sambandi. — Sveinbjörn Jónsson, nú forstjóri Ofnasmiðjunnar, mun fyrstur manna hafa hreyft þeirri hug- mynd 1931, að Húsavík fengi hita veitu frá hveravatninu í Reykja hverfi, og árið 1932 leituðu Hús- víkingar til alþingis og báðu um aðstoð við rannsóknir á hitaveitu málinu, en fengu þar enga á- heym. Til alrnenns fundar var svo fyrst boðað um málið í desem- ber 1932 og stóð sá fundur í tvo daga. Þar flutti Sveinbjörn Jóns son erindi um hitaveituma og hug myndir sínar í því sambandi og Ólafur Jónisson, ráðunautur, ræddi um möguleika til að reisa 60 nýbýli í Reykjahverfi í sam bandi við hitaveituna. Á þessum fundi var kosin fyrsta hitaveitu nefndin og þá mefnd Skipuðu Júlí us Havsteen, sýslumaður, Sigurð ur Bjarklind, kaupféliagsstjó'ri, Jón H. Þorbergsson, Laxamýri, Baldvin Friðlaugsson, Hver-avöll um og Einar J. Reynis, pípulagn. meistari, Húsavík. Síðan eru liðin 38 ár og marg ar nefndir hafa starfað, tiirauna boranir gerðar, samdar áætlanir, bæði af áhugamönnum og sér- fræðinigum og mætti segja þá sögu á mörgum síðum Mbl. en verður ekki gert nú. f desember 1968 tekur málið fyrst raunhæfa stefnu, eftir að áætlun berst frá Karli Ómari Jónasyni, verkfræðingi hjá Fjar hitun h.f. í Reykjavík. Kemur hann þar fram með nýjar hug- myndir við byggingu leiðslunn- ar og ýmsar breytingar frá fyrri hugmyndum, sem aukin tækni og reynsla í hitaveitumálum hefur skapað. Samkvæmt þeirri áætlun virt ist vera komin framkvæmda og rekstrargrundvöllur fyrir Hita- veitu Húsavíkur frá Hveravöll- um. Var Fjarhitun h.f. fengin til að hanna verkið og ráðin til að hafa umsjón með framkvæmd- um, sem ákveðið var sl. vetur að hefjast skyldu í vor, eftir að lána stofnanir og viðkomandi ráða- rnenn höfðu lýst jákvæðum stuðningi sínum við þetta verk. Hinn 9. maí var verkið hafið oig hefur því miðað vel áfnam, enda lögð á það mikil áherzla að binda sem stytzt mikið fjárm'agn í óniot uðum framkvæmdum og nú er svo komið að beitt vatn er kom ið í gegnum útveggi flestra húsa á Húsavík, — en innilagnir hafa verið látnar bíða, þar sem þær er hægt að vinna óháð frosti og hríðum. Fjöldi húseiigenda hafa þó þegar tengt hitunarkerfi húsa sinna við veituna og líkar vatn- ið ágætlega. Vatnssala úr kerf- inu mun hefjast í nóvember. — Hitaveitan var áætluð á rúmar 56 miflljónir kr. og hafa eftir- greindir þrír aðilar fjármagnað framkvæmdina: Lánasjóður sveitafélaga með aðstoð Seðla- banka Islands, Landsbanki ís- lands og Atvinnujöfnunarsjóður. Þá hafa fleiri aðilar veitt fjár- hagsiegan stuðning og talsverð ur hluti kostnaðar verður greidd ur af notendum sjálfum í formi tengigjalda og svo beint fram- lag frá bæjarfélaginu. í ræðu sinni upplýstti bæjar stjórd, að áformað væri að allir bæir í Reykjahreppi fengju heitt vatn úr veitunni á næstu 5 árum og þá mundi það væntan lega verða eina sveitarfélagið á landinu, þar sem allir bæir væru upplhiibaðir með heitu hveravatni. Bæjarstjórinn lauk máli sínu með þessum orðum: í jarðvarmanum eigum við Is- lendingar fólg'in gífurleg auðæfi. Jarðvarminn er orkulind, sem við getum nýtt okkur til hag- sældar, hvað sem á gengur úti í heimi. Hann veitir sinn yl, hvort sem styrjaldir, aðflutn- ingsbönn eða hafís kemur í veg fyrir siglingar til landsins. Hann veitir sinn yl án þess að menga andrúmisloftið með reyk. Hann sparar gjaldeyri og verð hans er að mestu háð fjárfestingu virkj uniar mannvirkjann'a, en síðari verðsveiflur hafa þar lítil áhrif á. Við áætlum hér að selja hita orkuna á um 10% lægra verði en núverandi verð gasolíu samsvar ar. Eftir 4 ár eigum við að geta lækkað verð vatnsins nokkuð og eftir 8 ár ætti verð hitaorkunnar að geta verið 50—60% af orku frá gasolíu. Ég lýk svo máli mínu hér með því að lýsa því yfir, að Hitaveita Húsavíkur er tekin til starfa. — Fréttaritari. Hollywood, 5. ökt. NTB EIN ÞEKKTASTA banda- ríska söngkonan í popheimin- um, Janis Joplin, fannst lát- in í ibúð sinni i Hollywood í dag. Dánarorsökin var ekki ljós, en lögreglan taldi dauð- ann stafa af ofneyzlu lyfja. Janis Jopl'in varð fræg fyr- ir söng sinn með hljómsveit- inni Big Brother and the Hoiding Company. Hún skóp sér smám saman sinn eigin söngstíl, sem helzt mátti líkja við blues-söng. Hún vann mik inn sigur á tónlistarhátíðinni í Woodstock á síðasta ári. Sviðsframkoma hennar var óvenjuleg í hæsta máta. Hún skók sig og hristi, eins og hún ætti lífið að leysa, og drakk töluvert sterkt vín, Southern Comfort, á milli. Hún átti það til að drekka einar fjórar fiöskur af vín- inu á einni skemmtun. Rödd hennar var sérstæð og auð- þekkt — eins og strokið væri yfir raddböndin með sand- pappír. En Janis lagði mikl- ar tilfinningar í sönginn og því var hún á'kaflega vinsæl meðal tónlistaráhugamanna. Meðal þekktustu iaga henn- ar má nefna „Piece Of My Hearth“ og „Ball And Chain“. — Bolivia Framhald af bls. 1 ar erlendar eignir upptækar, en Ovando hefur aðeins þjóðnýtt bandaríska fyrirtækið Bolivian Gulf Oil og hefur vil'jað fara með gát. Þegar Ovando lofaði að greiða þessu fyrirtæki skaða- bætiur kom till óeirðianma í síðasta mán-uði, þar á meðal tveir af- dankaðir hershöfðingjar og 20 manns, kunnir leiðtogar stjórn- arandstöðunnar, voru handtekn- ir fyrir helgina, og að sögn inn- anríkisráðherrans var þetta gert til þess að brjóta á bak aftur öfl hryðjuverkamanna, sem hefðu skipulega unnið að þvi að búa í haginn fyrir byltingu. Sam kvæmt óstaðfestum fréttum und irrituðu nokkrir hinna hand- teknu yfirlýsingu, þar sem hvatt var til þess að Ovando yrði sett- ur af, að herforingjastjórn tæki völdin og að efnt yrði til al- mennra þingkosninga. — Hótelin Framhald af bls. 32 hefur svo alltaf verið um sum- armánuðina. Eftir 20. september minnkaði aðsókn nokkuð. Mbl. tokst ekki að ná í hótel- stjóra City hótels í gær, Guðna Jónsson, en fékk þó þær upp- lýsingar að aðsókn að hótelinu hefði verið mjög góð í sumar. Samkvæimt upplýsiiinigium í fréttabréfi Loftleilðia h'efuir nýt- inig Hótel Loftieiiiðia miininllÐað um 0.5% fyrsitu átta miániuiði þessa árs miðiað við siöimiu m'ánuði í fyrra, en hún er niú 78.8%. I júlíimiániuiði var nýtiinig hóitelsiirts 95.6% oig í áigúst 90.6%. Hafðd nýtirugiin minmlkað í júlí um 6.5% oig í ágúst um 14.5% borið sam- ain við söimu miáruuði í fyrra. Söngskóli fyrir ungt fólk á vegum Dómkirkjunnar SÓKNARNEFND Dómkirkj unn ar í Reykjavík hefur ákveðið í samnáði við organleikara kirkj- unnar að starfrækja í vetux söng skóla fyrir ungt fólk, sem áhuga hefur á góðri tónli'St og því að syngja í kór. Mun kennslan faira fram tvö kvöld í viku á tímanum milli kl. 6,30 og 8,30. Nemendur fá kennslu í nótnalestri og tón- fræði og raddþjálfun. Jafnframt verða æfð kórverk af ýmsu tagi, 'sem áætlað er að flytja síðan á opinberum tónleikum síðar í vet ur eða vor. Kennslan verður nem endum ókeypis. Þeir einir skil- málar fyrir inntöku í skólann eru að vtiðkomandi hafi áhuga fyrir tónlist og gott „tónlistareyra". Hinn starfandi kór Dómkirkjunn ar mun vinna með nemendunum á söngæifingum og syngja með þeim á tónleikum. Stjórn skólans og hluta kennal unnar mun dómorganleikarinn, Ragnar Bjöimsson, hafa á hendi. Ungt fólk með tóntistaráhuga er hvatt til að notfæra sér þetta tækifæri, sem á engan hátt er bindandi þeim athöfnum, sem fram fara í kirkjunnd, (Fréttatilkynning).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.