Morgunblaðið - 19.10.1970, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.1970, Blaðsíða 1
19. desemBqr 1970 MACMILLAN MacmiIIan kvcður Krúsjeff og aðra sovézka ráðamenn við brottförina frá Moskvu. í RÚSSLANDI 1959 Einn athyglisverðasti kafl- inn í síðasta bindi sjálfsœvi- sögu Harold Macmillans, „Rid- ing the Storm“, f jallar um heim sókn hans til Sovétríkjanna árið 1959. Heimsóknir vest- rœnna stjórnmálamanna tii Sovétríkjanna voru sjaldgæfar á þeim árum, og heimsókn Mac- millans hafði mikil áhrif. Hún varð til þess að draga úr spennunni í sambúð austurs og vesturs og átti mikinn þátt í því að efnt var til fundar æðstu manna stórveldanna í París einu ári siíðar. Macmillan hafði lengi haft áhuga á því að draga úr við- sjám stórveldanna og segir frá þvi í endurminningum sinum, að hann hafi farið að ráðgera Moskvuför í ágúst 1958 að lok- inni misheppnaðri heimsókn til Aþenu, Ankara og Nikosíu vegna Kýpurmálsins. Hér birt- ist úrdráttur úr kaflanum um ferðina til Sovétríkjanna: Mér til ánægju var ástandið heima fyrir síður en svo slæmt. Blöðin höfðu verið vinsamleg í minn garð, meðan ég var í burtu, og nokkrum dögum síð- ar var birt niðurstaða skoðun- arkönnunar, sem var mjög hag- stæð stjórninni. Þess vegna voru allir að velta þvi fyrir sér, hvort efnt yrði til nýrra kosninga. Nokkrum dögum eftir heim- komuna barst mér skeyti frá Sir Patrick Reilly, sendiherra okkar í Moskvu. Þetta skeyti skýrði ýmislegt, og þess vegna lagði ég fyrir hann nokkrar spurningar. 1 fyrsta iagi spurði ég um skapgerð Krús- jeffs. Hvernig átti að túika þá afar mikilvægu staðreynd, að hann hafði skyndiiega náð æðstu völdum? Ég skrifaði Reilly 13. ágúst: „Ég er þess fuHviss, að rétt sé hjá yður að leggja áherzlu á hættulegasta þáttinn í skap gerð Krúsjeffs — valdagræðg- ina. Lenín og Stalín voru ekki haldnir henni . . . Maður óttast valdagræðgi, því að þeir sem henni eru haldnir geta framið stórkostleg heimskupör, sem leiða til mikilla hörmunga. Ég hef það á tilfinningunni —- og mig iangar til að vita hvort ég hef á réttu að standa — að í þessu felist alvarlegasta hætta þeirrar flóknu ringulreiðar, sem ríkir í heiminum. Getur verið, að Krúsjeff fremji eins mikil heimskupör og Hitler?" Sennilega verður svar sög- unnar við þessari spurningu á þá leið, að þessi tilhneiging í skapgerð Krúsjeffs hafi ágerzt eftir því sem völd hans urðu meiri og náð hámarki í Kúbu- deilunni fjórum áruim síðar. Önnur spurning mín fjallaði um ýmsar tillögur, sem höfðu verið á lofti um fund æðstu manna stórveldanna um ástandið í nálægari Austur- löndum. „. . . Allt er nú á huldu um það, hvort af slikum fundi getur orðið, en mig lang- ar að vita, hvort þér teljið að Krúsjeff hafi grætt eða tapað á deilunni um slíkan fund við mig og Bandarikjaforseta . . . 1 þriðja lagi vil ég vita um möguleika á raunverulegum fundi æðstu manna (þ.e. um öll deilumál) — ég á við fundinn, sem við höfum stefnt að hægt og sígandi um iangt skeið. Telj ið þér, að við eigum að taka nýtt frumkvæði í málinu og hvenær?" Ég lauk bréfinu með þvi að minnast á ráðagerð, sem ég hafði lengi haft í huga og stefnt að smám saman, það er persónuleg heimsókn til Sovét- ríkjanna. Hingað til höfðu sam ráðherrar minir ekki haft ýkja mikinn áhuga á hugmyndinni, og ólíklegt var, að bandamenn okkar sýndu meiri skilning. En ég var ekki ánægður með það, hvernig ástandið versnaði stöðugt og hafði áhuga á því að taka frumkvæðið í mínar hendur. FÁGÆTUR VIÐBURÐUR Það er erfitt nú, þegar heim- sóknir til Moskvu eru næstum þvi orðin skylda allra stjórn- málamanna, sem vilja komast áfram, hvort sem þeir eru við völd eða ekki, að minna á það kuldalega andrúmsloft, sem ríkti fyrir 12 árum. Heimsókn forsætisráðherra Bretlands yrði engin venjuleg kurteisis- heimsókn, þar sem áhrif Bret- lands voru enn gifurleg og það álit, sem það naut eftir heims- styrjöldina óbreytt, heldur óvæntur og nánast furðulegur atburður. Ég spurði þvi sendi- herrann, sem var gamall vinur minn og samstarfsmaður síðan á Alsírsdögum mínum: „. . . Ef samningaumleitanir um fund æðstu manna fara algerlega út um þúfur og ekkert gerist, hef ég í hyggju að leggja til, að ég komi sjálfur í heimsókn í í vor. Hvað finnst þér um þetta? Munu þeir líta svo á, að við brjótum odd af oflæti okkar eða ekki?" Eins og ég bjóst við fékk ég aðdáanlega vel samin og vel rökstudd svör frá sendiherran um við fyrstu þremur spurn- ingunum. Fjórða spurningin var ekki tekin til alvarlegrar umræðu og ákvörðunar fyrr en í byrjun ársins eftir. Á meðan fór ég að velta fyr- ir mér ýmsum aðferðum til að afstýra því, að gagnkvæmar hótanir og mótmælaorðsending- ar, mánuð eftir mánuð, drægju dilk á eftir sér. Ég ákvað að senda skeyti til Washington til þess að láta í ljós áhuga minn á því að stuðla að þvi að þoka málunum í samkomulagsátt. Umfram allt langaði mig til að fara til Washington og ræða við forsetann og Dulles utan- rikisráðherra. Þessi aðferð hafði gefizt vel á undangengn- um tveimur árum. En Frakkar voru öfundsjúkir og Þjóðverj- ar tortryggnir, og heimsóknin gat reynzt hættuleg. Þess vegna virtist hyggilegast að semja flóknari áætlun. 1 þó nokkurn tima hafði leg- ið fyrir nokkurs konar boð um, að ég færi í heimsókn til Moskvu. Vissulega gat svo far ið, að boðið yrði ekki ítrekað. En það sakaði ekki að reyna. Ég ákvað þvi að fara til Moskvu (ásamt utanríkisráð- herranum), siðan til Bonn og Parísar og loks til Washington (skv. dagbók). Stjórnin í Washington tók vel í tiUögu Macmillans, en var aði við hættum þeim sem væru samfara fyrirhugaðri heimsókn hans til Moskvu. 20. janúar skýrði hann rikisstjóminni frá ákvörðun sinni, og um leið sendi hann Sir Patrick Reilly skeyti, þar sem hann bað hann að spyrjast fyrir um, hvort tU- lögum hans um að þiggja boð það sem hann hafði áður feng- ið frá Rússum yrði hafnað eða ekki. Sendiherrann benti í svari sínu á hætturnar. Rússar mundu áreiðanlega skoða heimsóknina með hlið- sjón af mati sinu á stöðu al- menningsálitsins í Bret- landi rétt fyrir kosningar og reyna að hagnast eins mikið á henni og þeir gætu. Hann efað- ist um, að þeir gætu gert sér vonir um að geta rekið fleyg milli stjórnanna í London og Washington, þvi að öllum væri ljóst, hve vinátta min og Banda ríkjaforseta væri náin. Sennilega mundu þeir nota tækifærið til þess að einangra Adenauer og vestur-þýzku stjórnina og kalla hann aðal- hindrunina í vegi fyrir lausn Þýzkalandsmálsins. Hann taldi því, að ekki einungis Banda-. ríkjamenn heldur einnig Frakkar og einkum Vestur- Þjóðverjar ættu opinberlega að láta í ljós velþóknun á heim- sókninni og ennfremur að til- kynna ætti samtimis um Moskvuheimsóknina og heim- sóknirnar til Bonn, Parísar og Washington. Hann bætti því við, að til- gangslaust væri að reyna að fiska eftir heimboði; leggja yrði beiðnina fram hreinskiln- islega og vafningalaust. 1 ann- arri orðsendingu lét Reilly í ljós þá von, að ekki yrði um skyndiheimsókn að ræða; mér| og fylgdarmönnum ætti að gef-f GAMALT BOÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.