Morgunblaðið - 20.10.1970, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.10.1970, Blaðsíða 22
22 MORGUNÐLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1970 Herdís Kristjánsdóttir — Minningarorð F. 11. apríl 1886 — D. 14 okt. 1970 ÞAÐ mun hafa verið snemma á árinu sem leið, að ég sem oftar settist að matborði í veitingasal í borginni ásamt góðkunningja. Og ég renndi að vanda augunum inn eftir salnum, þar sem ég kom auga á tvo menn, virðulega og gráhærða sitja við borð. Þó ég áttaði mig ekki í svipinn á því hverjir mennimir voru, ályktaði ég strax. Valdamenn, sem bera ábyrgð á heiminum, án þess að þurfa að flíka því að öðm leyti. Eitt andartak þagnaði kliður- inn í salnum, svo ljóst mátti greina að þessir mikilúðlegu menn og sviphreinu, mæltu á okkar tungu. Og ég fægði í skyndi rúðurnar t Maðiurinm miinn oig faðir oikikar, Sigurður B. Sigurðsson, fyrrv. ræðismaður, Hávallagötu 22, andaðist 19. O'któber sl. Karitas Sigurðsson, Níels P. Sigurðsson, Asgeir Sigurffsson. t Móðir oklkar og systir mín, Málfríður Friðriksdóttir frá Akureyri, lézt hinm 17. þ.m. Kolbrún Kristjánsdóttir, Friffrik Kristjánsson, Kristján Kristjánsson, Alfa Friffriksdóttir. t Somur miinm, Sigurður Brúni Brynjólfsson, Grettisgötu 72, lézt af siysförum 18. þm. í gleraugunum og línurnar skýrð ust á andlitunum: Sunnlenzkir bændahöfðingj ar í samræðum um þjóðmálin! Og nákvæmlega jafn snemma steig fram á hugartjaldið þriðja persónan, og ég segi við borð- nautinn: Hér vantar einn mann, Bjargmund Sveinsson. Og allt er þegar þrennt er. Þessir þrír menn koma mér oftast í hug er ég heyri getið sannra haminigjumanna og vík- inga. Ég var þeim öllum ná- kunnugur, og hef fylgzt með því hvemig ásjóna landsins hefur smækkað og ófríkkað við fráfall þeirra. Þeir voru sannarlega hamingjumenn íslandis. Og þessi fullyrðing kallar á nýja spurningu: Hver er konan? Eiginkonur tveggja hinna fyrmefndu gæfumanna, halda enn vörð um verndara síma héma megin tjaldsins mikla. Hin þriðja tók sig upp fyrir fáum döigum að efna nýgefin loforð loforð við lífið og ódauðleikann: Herdís Kristjánsdóttir. Fátt er rosknum mönnum á mínu reki jafn gagnlegt til að dreifa þokuhnútum hversdags- ins og að ná fótfestu á hálum skriðjöklum lífsins, og að eiga vísan stað hjá eldri konu, sem á í seli, eða jafnvel bara inn- hlaup í sáluhús á himnum. Og manninum fátt eins háSkalegt og efinn og vantrúin. f stofunni hjá Herdísi Krist- jánsdóttur var ævinlega allt á því hreina, allar vangaveltur um það óþarfar, hvernig bar- áttunni muni lykta, hvernig ný framtíð opnast í fyllingu tím- ans, og ekki síður hitt, hvemig hamingja mannsins skapast, vex og þróast Fyrir Herdísi var að- ains einni spumingu ósvarað: Höfum við gengið til góðs, göt- una fram eftir veg? Herdís Kristjánsdóttir var Þingeyingur, og það var hennar stolt og hennar sársauki. Hún var fædd í Reykjadal, en fluttist upp úr fermingu í Aðaldal. Hún t Útför föður mánB, Sigurðar G. Jóhannssonar, bifreiffastjóra, Hátröff 6, Kópavogi, fer fram frá Kópavogsikirkju miðviíkudiaigiiinin 2/1. október kl. 3 e.h. Fyrir hönd okkar systkiinanina, giftist ung fyrra manni sínum, Jóni Jónssyni, og átti með hon- um 5 börn, en þrjú með seinni manninum, Bjargmundi Sveins- syni. Það urðu örlög Herdísar Krist- jánsdóttur að búa mestan hluta ævinnar á Suðurlandi. Hún saknaði alla tíð æskustöðvanna. Dýrðarljóminn í haustlitunum í Aðaldal var fyrir henni hámark tjáningar forsjónarinnar og upp- haf mikillar náttúrudýrkunar og listáistar. Þó Herdís festi aldrei fullkom- lega rætur á Suðurlandi og end- urminningin um Reykjadal og Aðaldal væri aila tíð viðkvæm und í sálinni, lejrfðu atvikin aldrei að hún heimsækti Norð- urland. Hún komst aldrei lengra en að búa sig í þá ferð, sem aldrei var farin. Örlögin streitt ust á móti og ef til vill dulinn ótti við vonbrigði, eins og svo títí reynist dapurlegur eftirmáli ofsafenginnar tilhlökkunar. Son- ur hennar bjó henni fagurt heim ili hjá sér þau ár sem hún lifði hér ekkja og bömin hennar, barnabörn og tengdabörn voru henni alla tíð ástfólgnir vinir og vemdarar. Herdís mín kæra og ógleym- anlega. Það skal vera hinzta ósk okkar vina þinna og skjólstæð- inga, að þú fáir aftur að finna yl og kul dalanna þinna fyrir norðan og hugarþel fólksins þíns þar og hér leiki áfram um líf og sál. R. J. HERDÍS frá Fossseli er látin, og í dag verður hún borin til moldar. Löngum og miisveðra- sömum lífsdegi er lokið. Ævi þessarar drauimlyndu konu hófst með hækkandi sól og dvínaði um haust, — þegar fjalldrapinn á Þingey ogskógarnir viðSkjálf- andafljót skarta sínu fegursta litskrúði og búast undir langan vetur. Herdís sleit barnsskónum á heimili foreldra sinna á Fossseli. Þar er eitt fegursta bæjarstæði í Þingeyjarsýshi. Kjarrskógur- inn vex á tvo vegu heimundir tún. Á vorin barst birki-ihnur í bæinn, til uppfyllingar rýrum kosti, — og hér varð blágresið allra blóma bláast. Úr varpan- um sér niður yfir Ullarfoss og Skipapoll, þar sem huldufólkið siglir sér til skemmtunar um lágnættið, þegar mófuglinn er þagnaður og grágæsin gengin til náða upp í skógi. Vestan fljótsins rís Fellið með skóga sína, hlíðar og ömefni, til að gefa umhverfinu tilgang og tengja það viðhorfum mannlegs samfélags. Hildarklöpp, Setberg, Umisvalir, Spangasel .... Þes’si breiði skjólsæli dalur inn í miðri byggð hefur aldrei notið þeinrar virðingar að heita neitt, og smá- býlin þrjú, sem hér fóstmðu fátækt fólk kynslóð fram af kyn- slóð, eru öll eydd. í þessum „fjallasal" minntist Herdís sinna fyrstu stunda, og hér kenndi hún fynst til þreytu lífsbaráttunnar. Vornæturnar í Fosssetli liðu henni aldrei úr minni. En Herdísi var ekki fyrirhug- að að dvelja lengi í paradís átt- haganna. Nauðug var hún knú- in til að takast á hendur langa ferð, sem nú er lokið. Heim kom hún aldrei aftur. Áningarstaðirnir urðu margir á vegferð hennar, og árin liðu. Hamingjan gaf henni sjö velgef- in og dugleg börn, sem gerðu ævikvöld hennar bjart og fag- urt, eftir langra ára andvökur og örbirgð. Síðustu áratugi æv- innar bjó hún við allsnægtir í húsi sonar síns, og naut þar um- kyggju og öryggis barna sinna og venzlafólks. Hljóðlát og þakklát kona hafði sigrað í sínu lífsstríði — sátt við alla menn. Lengi hafði hún alið þá von í brjósti að fara um vornótt norður að Fossseli og staldra þar við stundarkorn í túnfætinum með börnin sín öll. Loks voru allir ferðbúnir, en þá braist hana kjark til að horfast í augu við draum sinn og mælti: Ég hef svo oft farið þessa ferð í huganum, að þar verður engu við aukið. Kunnur listamaður, sem virti frú Herdísi umfram annað fólk, lagði krók á leið sína og færði henni teikningu af bæjarrústun- um í Fossseli. Það var eina kveðjan, sem henni barst frá draumalandi sínu eftir að hún flutti suður. S. B. GRÖNN, snögg í hreyfingum, með Skörp aitlhugul og greind- arleg augu. Með sterka skap- gerð en dula, og hógvær í kröf- um fyrir sjálfa sig. Þannig minnist ég Herdísar Krlstj áns- dóttur. En þess, sem ég minnist bezt, er góðvild hennar og hjarta hlýja. Ég var ungur að árum, þegar ég hóf verzlunarstörf hjá Krist- jáni, syni Herdísar. Það æxl- aðist þannig, að í nokkur ár var vinnustaður minn í sama húsi og heimili þeirra Herdísar og Bjarg mundar Sveinssonar. Alltaf minnist ég þess, hve mikið tillit þau hjón tóku hvort til annars, og hve mikill skilningur ríkti milli þeirira. Bjargmundur var beinvaxinn og svipfagur, traust- ur og góður maður. Hann er lát- inn fyrir nokkrum árum Það voru margar máltíðir og margir kaffibollarnir, sem ég þáði hjá þeim heiðunshjónum. Qft var komáð niður með heitan sopa og eitthvað ljúffengt með. Og þá var stundixm vinnusöm en hlý hönd lögð yfir öxl, eða strok- ið um vanga. Frá þeim árum hef ég alltaf hugsað um Herdísi, sem mína aðra móður, með virðingu og þakklæti. Herdis var ein af þessum sterku konum íslands, sem addrei létu bugast, á hverju sem gekk. Þessar konur miisstu, að miklu leyti, af bóknámi. En þær höfðu þann innri kraft, þann persónuleika, sem veitti þeim styrk, til að gera lífið þess virði, að því væri lifað. Þær ólust upp í tengslum við hina fögru nátt- úru íslands. Þær teyguðu fjalla- lækina, tæra loftið, litadýrðina og kyrrðina. Tengslin við náttúr- una gerði þær sterkar og trúaðar á fegurð og tilgang lífsins. Þær til'heyrðu lífinu, og það gerði sínar kröfur til þeirra. Þær brugðust því ekki. Þrátt fyrir erfiðleika þeirra ára, misstu þær aldrei trúna á hreinleikann og fegurðina, sem mótaði þær í æsku. Á þroskaárum mínum fékk ég að njóta hlýleika og góðvildar Herdísar. Fyrir það er ég for- sjóninni þakklátur. S. Guðlaugsson. S. Helgason hf. LEGSTEIHAR - ' c» MARGAR GERÐIR SÍMI 36177 t Þalökia inimliega sairmúð, vinar- h'Uig og hjiá.lp við amdlát og jarðarför Jóns Gíslasonar, garffyrkjuTnanns. Kristrún Gís-ladóttir. Brynjólfur B. Ólafsson. Elfar Berg Sigurðsson. Útför Mörtu Bjarnadóttur fer fram frá Nesikirkju þriðju- diagiinin 20. olktóber kl. 3. Vilmundur Sigurðsson, böm, tengdaböm og bamaböm. Móðir mín, Karitas Sigurðardóttir, verðuir jiarðisiunigin miðviku- diaiginn 21. oikitóber kl. 13.30 frá Lauiganraesikirkjiu. Blóm vinisaimtegiast aifþökfcuð. Sigurffur Runólfsson. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma ^ INGA LOViSA ANÐREASSEN f. Þorláksdóttir, Ljósheimum 6, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. októ- ber kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Ofe Andreassen, 5ofie Markan, Rolf Markan, Hugo Andreassen, Guðrún K. Andreassen, Erling Andreassen, Kristín E. Andreassen. og barnabörn. t Við sendum öllum hjartans þakkir, sem sýndu okkur samúð og veittu okkur hjálp og hlýju við fráfall SIGRÚNAR dóttur okkar og systur. Guðbjörg Einarsdóttir, Ólafur Þorsteinsson, Einar og Þorsteinn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför GlSLA JÓNSSONAR Guðrún Gísladóttir, Bergur Bjamason, Þorsteinn Gíslason, Ingibjörg Thors, Haraldur Gíslason, Björg Ingólfsdóttir. t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu SESSELJU HANSDÓTTUR Ásgarði 51. Magnús Kristinn Jónsson, Sigríður Kristín Sigurðardóttir, Hans Adolf Jónsson, Ingibjörg Ingimundardóttir, bamabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.